Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 37

Morgunblaðið - 10.10.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ! i LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 37 ið að einn Svíinn skyldi fara á staðinn þar sem bjarndýrsins hafði orðið vart og bíða þar. En dýrið lét ekki sjá sig meira þann daginn. Næsta morgun þegar veiðin hófst á nýjan leik var ákveðið að veiða á sama svæði og lögð var áhersla á það við okkur veiðimennina að reyna að ná birn- inum. Við vörpuðum hlutkesti upp á hver skyldi fara á þann stað sem elgurinn hafði verið skotinn. Kom það í minn hlut.“ Einn á ferð „Þegar ég kom á staðinn var þar ekkert að sjá. Eg beið því átekta og eftir nokkra stund flaug upp hrafn. Þá skynjaði ég að ein- hver umferð var á svæðinu. Ég fór því að kanna nágrennið en gætti þess að fara hljóðlega. Innan skamms sá ég ógreinilega hreyf- ingu til hliðar við mig en ég gat ekki séð hvort þama var á ferð elgur eða bjamdýr. Ég flýtti mér þá á annan stað þar sem ég taldi líkur á að ég næði færi á dýrinu. Þar steig ég upp á gamlan pall sem veiðimenn nota til að sitja á þegar þeir era að bíða eftir veiði- dýrinu. Þarna stóð ég á tám og studdi mig við tré og reyndi að koma auga á dýrið. Tvær litlar glufur voru í trjáþykkninu fyrir framan mig. Allt í einu birtist björninn. Hann stefndi á þann stað sem glufurnar vora í skógar- jaðrinum. Vindurinn stóð af biminum þannig að hann varð mín ekki var. Ég sá að björninn var einn á ferð, þ.e. ekki með húna, svo að ég bjóst til að skjóta. Við fyrsta trjábilið sá ég björninn, en hann lá ekki vel við skoti þannig að ég beið átekta. A næsta trjábili sneri björninn þvert fyrir þannig að ég gat skot- ið. Ég sá björninn hverfa, en færið á hann voru drjúgir tvö hundruð metrar. Ég vissi því ekki hvort mér hafði tekist að hitta hann þó mér fyndist það líklegt. Eftir nokkrar mínútur kom einn Sví- anna til að athuga hvað hefði gerst, en hann hafði heyrt skotið. Við biðum um stund en gengum svo í átt til þess staðar sem ég hafði skotið að birninum. Ég gekk á undan en Svíinn á eftir, til að verja bak okkar. Þegar á skotstað- inn kom létti okkur mjög, þar sem björninn hafði drepist samstundis og oltið niður hæð sem þama var. Eg hafði hitt hann í hálsinn.“ Birnir í útrýmingarhættu í Evrópu Bimir era í útrýmingarhættu í Evrópu og á ákveðnum stöðum í Svíþjóð. Vignir segir að regluleg talning fari fram á bjömunum í Sví- þjóð til að fylgjast með stofninum, en reynslan hafi _sýnt að hófleg nýt- ing sé æskileg. „I ár var leyfilegt að skjóta tuttugu og fjóra bimi í Sví- þjóð. Svíamir sem vora með okkur og stjómuðu veiðiferðinni voru mjög áhugsamir um að skotinn yrði bjöm í ferðinni, en bjöm hefur ekki verið skotinn á þessu svæði sem við voram á í rám tuttugu ár. Ástæðan er sú að veiðimennimir hafa venju- lega byrjað veiðina á svæðinu viku seinna en annars staðar, en þá hef- ur þegar verið búið að veiða þá bimi sem leyfilegt er samkvæmt kvótanum. Að þessu sinni hófum við veiðamar viku fyrr en venju- lega þannig að við höfðum mögu- leika á að ná í bjöm. Auðvitað glöddumst við mjög yf- ir þessum feng,“ segir Vignir að- spurður. „Og Svíarnii- verðlaunuðu mig með því að fella niður að mestu mín veiðigjöld.“ Ætli hann hafi aldrei fundið ugg í brjóstinu meðan á veiðinni stóð? „Nei, það var engin ástæða til þess að óttast björninn auk þess sem ýtrastu varkárni var gætt,“ segir hann. Þess má geta að Vignir er vanur veiðimaður. Hann vandist því á unglingsárunum á Dalvík þar sem hann er fæddur og uppalinn að fara með byssu og veiddi þá gæsir, sjófugla og stundum hnísur. Vignir fer ekki aðeins á veiðar í Svíþjóð heldur veiðir hann einnig í Þýska- landi, einkum villisvín, rádýr, hirti, refi, héra og fugla. En ætli bjarn- dýraveiðarnar séu ekki hátindur- inn á ferlinum? „Eflaust er það talið af mörgum veiðimönnum hámarkið að veiða björn. Mér þykja villisvínaveiðar og gæsaveiðar þó ekkert síður spennandi," segir Vignir. „Á villisvínaveiðum þarf veiðimaður- inn að vera fljótur að átta sig á hvað má skjóta og hvað ekki, en það er mismunandi eftir árstímum og að sjálfsögðu má ekki skjóta gyltur með grísi.“ Kjötið þykir mikið lostæti Vignir segir að bjarndýrakjöt þyki mikið lostæti í Svíþjóð og sé selt háu verði til sláturhúsa sem afgreiði villibráðina til veitinga- húsa. Verðið til veitingahúsanna sé þrjú þúsund og fimm hundrað krónur fyrir kílóið. Sagði hann Sví- ana hafa umráðarétt yfir kjötinu af dýranum sem vora felld í veiði- ferðinni en hann hefði fengið svo- lítinn bita af kjötina fyrir sig. „Eitt sem mér fannst mjög at- hyglisvert við þessa reynslu var að fylgjast með því hve námkvæmt eftirlit er á öllu í kringum bjarn- dýraveiðamar. Sem dæmi um það má nefna að lögreglumaður kom gagngert 200 kílómetra leið til þess að rannsaka bjöminn og hvort rétt hefði verið að veiðunum staðið." En fékkstu ekkert til minningar um afrekið? „Jú, jú. Á næstunni get ég skrið- ið undir bjarnarfeld! Fasteign til sölu Góð eign á góðu verði Til sölu er fasteignin Hólavegur 17, Siglufiröi. Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum ásamt kjallara. Fasteignin er 174 fm að stærð. í kjallara eru þrjú herbergi ásamt þvottahúsi. Á jarðhæð er forstofa, eldhús, baðherb., eitt svefnherb. og stofa. í risi eru þrjú svefnherb. Fasteignin lítur vel út og er á rólegum og góðum stað í bænum. Áhvílandi veðskuldir á eigninni eru 2,1 millj. Sölu- verð 3,2 millj. Allar nánari uþþlýsingar um eignina gefur Björn Jóhann- esson, hdl., Aðalstræti 24, ísafirði í síma 456 4577 alla virka dagafrá kl. 13.00—15.00. www.mbl.is SOUJSYMNG / ASKALIND 5 - SMÁRANUM 7? ' 1 f |:iN JÉl Við hlökkum til að kynna þessi nýju, listrænu húsgögn fyrir íslendingum! Sýnd og seld í Askalind 5 í Smáranum í dag og á morgun frá kl. 11 - 18. báða dagana ATH! Mjög takmarkað magn! SIMAR: 533 3366 & 533 3368 Kynningar Kynningðt /// m i J wsmt Mm&u, - t ’WgK K A ii ..

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.