Morgunblaðið - 10.10.1998, Síða 38

Morgunblaðið - 10.10.1998, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ 38 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 HÓPURINN fyrir utan Hard Rock Café í Reykjavík. landi í sumar. Guðrún Þorkelsdóttir fylgd- ist með krökkunum í þorpi hinna ósýnilegu í Klébergsskóla á Kjalarnesi og segir hér frá starfsemi ClSV-samtakanna. í þorpi hinna ósýnilegu Hér segir af skemmtilegum krökkum, víðs ---------------------7-- vegar að úr heiminum, sem hittust á Is- ÞAÐ var fyrir algera tilvilj- un að ég heyrði um sam- tökin Children’s Intemational Summer Villages, CISV. Frænka mannsins míns og bama var meðal ensku krakkanna sem komu. Við höfðum aldrei hitt hana, en mamma hennar hringdi og sagði okkur frá því að dóttir hennar, hún Kate, væri á leið til Islands á vegum þessara sam- taka. Þar með var forvitnin vakin, bæði að kynnast nýrri frænku og einnig að vita meira um þessi sam- tök, sem enginn í fjölskyldunni hafði heyrt um. Alþjóðlegar sumarbúðir bama CISV eru alþjóðleg friðarsamtök, stofnuð 1951. Upphafskona samtak- anna var dr. Doris Allen, bandarísk- ur barnasálfræðingur. Samtökin eru óháð stjórnmálum og trúar- brögðum, og hafa að markmiði sínu að böm og unglingar víðs vegar úr heiminum kynnist, læri að lifa sam- an á grundvelli umburðarlyndis og jafnréttis og stuðli þannig að friði og kærleik í heiminum. Á hverju ári fara íslensk börn ut- an á vegum samtakanna. Þau hitta jafnaldra sína víðs vegar að úr heiminum og kynnast siðum þeirra og menningu. Allir hafa jafna mögu- leika á að fara. Eina skilyrðið er, að bamið sé ellefu ára þegar farið er í sumarbúðimar. f sumar vora starfræktar sumar- búðir á vegum samtakanna í Banda- ríkjunum, Brasilíu, Danmörku, Noregi og Svíþjóð auk íslands. Þorp hinna óþekktu Sumarbúðir í hverju landi fyrir sig heita nafni, sem á að vera lýsandi fyrir landið og eða umhverf- ið sem þær era haldnar í. Nafnið á sumarbúðunum á Kjalamesi vísaði í huldufólkið okkar og álfanna og einnig þá staðreynd að landið okkar er enn „falið“ og algerlega óþekkt í hugum margra bama sem heim- sóttu okkur. Það er stórt skref að fara að heiman í fyrsta skipti. Enn stærra þegar þú ert að fara til annars lands. Risastórt þegar þú mátt ekki hringja heim. Það eru strangar reglur varðandi samband við fjöl- skylduna. Foreldrar bamanna geta alltaf haft samband við fararstjór- ana og fengið þannig fréttir af börn- um sínum. Einnig er leyfilegt að senda bréf. Auðvitað söknuðu allir mömmu og pabba og systkina og vina. Til að byrja með. Fyrstu vik- una var mikið skrifað heim, en fljót- lega leið lengra á milli bréfa og sjaldnar spurt hvort einhver hefði hringt að heiman. Því allir eignuð- ust nýja vini og mikið var haft fyrtr stafni þá daga sem dvalið var hér og því enginn tími til að láta sér leiðast eða þjást af heimþrá. Á hverjum degi var fastmótuð og fyrirfram ákveðin dagskrá. Einnig var gert ráð fyrir frjálsum tíma, þegar krakkarnir máttu gera það sem þau vildu, fíflast, hvíla sig, skrifa heim og svo framvegis. Frjálsa tíma barnanna notuðu far- arstjóramir og unglingarnir til að hittast, fara yfir í dagskrá næstu daga, taka á vandamálum sem komu upp og svo framvegis. Það voru ótrúlega fá vandamál sem komu upp, en eitt sem skaut fljót- lega upp kollinum varðaði tungumál og notkun þess. I þessum stóra hóp varð enskan fljótlega ríkjandi tungumál. Lang- flestir skilja og eiga auðveldast með að tjá sig á ensku utan móðurmáls síns. En að tala tungumál og skilja er tvennt ólíkt. Fljótlega fór að bera á því að sumir krakkanna notuðu orð sem ekki þóttu við hæfi, orð sem þau heyra í bíómyndum og sjónvarpi eða heyra unglinga og fullorðið fólk nota. Annar banda- rísku fararstjóranna tók þetta upp á fundi og benti á að það væri ekki við hæfi að böm væra að nota klæmin orð og blótsyrði, orðatiltæki sem þau í raun ekki skildu. Það væri þokkalegt ef bandarísku börnin kæmu alla leið til íslands til að læra ósómann! Á þessu var tekið strax, málið útskýrt íyrir bömunum, með vísun í þeirra eigin móðurmál og þeim bent á hversu fáránlegt væri að nota tungumál illa. Og málið var úr sögunni, en börnin vöknuðu til umhugsunar um hversu áhrifamikið tungumálið er - alls staðar. Misskilningur og vanþekking fengu aldrei tækifæri til að hreiðra um sig og verða að vandamáli - á þeim var tekið á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Á opnum degi sem haldinn var viku eftir að sumarbúðirnar hófust, fengu krakkarnir tækifæri til að kynna landið sitt með söng, dansi og nokkurs konar „landkynningu". Tókst þessi kynning framar vonum og voru allir yfir sig ánægðir með hvernig til tókst. Gestir og gang- andi fengu tækifæri til að hitta krakkana og fræðast um land þeirra og bragða eilítið af þeim mat sem einkennir hvert land fyrir sig. Var eftirtektarvert að sjá hversu mikið krakkamir lögðu sig fram. Einnig var nokkuð sérstakt að sjá og taka eftir, að nokkrar þjóðir eiga sér ekki þjóðbúning. Þetta era fjöl- mennar þjóðir, eins og Bretar, Bandaríkjamenn og Frakkar. Þótti börnum þessara landa það miður. Fannst þeir verða smá útundan og öfunduðu hina krakkana af því sam- einingartákni sem þjóðbúningur er. Fjölskylduhelgi Fjórar vikur í sumarbúðum er langur tími fyrir ellefu ára krakka. Til að breyta til og gefa krökkunum færi á að kynnast íslensku fjöl- skyldulífi vora börnin send í „fóst- ur“ yfir eina helgi. Var krökkunum skipt upp, tveir til fjórir saman í hóp, ekld af sama þjóðemi, en stelp- ur fóru saman og strákar fóru sam- an. Við vorum svo gæfusöm að Kate KATE frá Bretlandi og Rakel frá Islandi urðu góðar vinkonur. BÖRNIN frá Mexikó í sínum skrautlegu þjóðbúningum. LEGÁR ÚÐIR BARNA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.