Morgunblaðið - 10.10.1998, Side 66
66 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
gönguskór
Meindl Arlberg barna- og unglingaskór
Léttir gðnguskór úr leðri og rúskinni
með góðum sóla.
-þessir eru líka góðir í skólann.
FRETTIR
Góður árangur ís-
lenskra danspara
-ferdin gengur vel á Meindl
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ • SIMI 581 2922
UTILIF
GLÆSIBÆ • S: 581 2922
www.utilif.is
ÁTTA íslensk danspör tóku þátt í
þremur opnum danskeppnum sem
haldnar voru rétt fyrir utan
London á Englandi. Það voru
keppnimar London-Open, Imperial
og International. Islendingar stóðu
sig vel eins og þeir hafa gert á und-
anfórnum áram.
Gunnar Hrafn Gunnarsson og
Sigrún Ýr Magnúsdóttir náðu þeim
árangri að komast í 4. sæti í Latin-
dönsum í London-Open-dans-
keppninni, sem haldin var laugar-
daginn 3. október sl. Þau keppa í
aldursflokkunum 12-15 ára. I ald-
ursflokknum 11 ára og yngri náðu
Friðrik Árnason og Sandra Júlía
Bemburg þeim árangri að komast í
12 para undanúrslit, bæði í Latin-
dönsum og Standard-dönsum.
Elísabet Sif Haraldsdóttir ásamt
Rafick Hoosain, erlendum dans-
herra sínum, náðu 5. sætinu í hópi
áhugamanna í suður-amerískum
dönsum í London-Open-dans-
keppninni, sem haldin var á laugar-
deginum.
Imperial-keppnin
Á sunnudag var Imperial-keppn-
in haldin og gerðu Gunnar Hrafn og
Sigrún Ýr sér lítið fyrir og náðu 3.
sætinu í Latin-dönsum og Davíð Gill
Jónsson og Halldóra Sif Halldórs-
dóttir, sem era nýfarin að dansa í
þessum aldurshópi, komust í 12
para undanúrslit í Latin-dönsum.
International-keppnin
Intemational-keppnin var haldin
í Brentwood 6., 7. og 8. október. Þar
luku 15 ára og yngri keppni á
miðvikudag en áhugamenn luku
keppninni á fimmtudagskvöld.
Á þriðjudag var keppt í Latin-
dönsum og þar komust Sigrún Ýr
og Gunnar Hrafn í 12 para undan-
úrslit og í aldursflokknum 11 ára og
yngri komust Jónatan Amar Or-
lygsson og Hólmfríður Bjömsdóttir
einnig í 12 para undanúrslit.
Elísabet Sif og Rafick Hoosain
náðu þeim árangri að öðlast keppn-
isrétt í Royal Albert Hall með því
að dansa sig inn í 48 para úrsht.
Þetta er í annað sinn sem par frá ís-
landi nær þessum árangri, því
systkinin Ámi Þór og Erla Sóley
náðu því haustið 1996 og komust í
24 para úrslit.
endist vel
Whirlpool gæða frystlkistur
AFG053 134L Nettó H:88,5 B: 60 D: 68 Verð: 29.925 kr
AFG073 258L Nettó H:88,5 B: 95 D: 68 Verð: 36.955 kr
AFG093 320L Nettó H:88,5 B: 112 D: 68 Verð: 39.900 kr
AFG094 400L Nettó H:88,5 B: 134,5 D: 68 Verð: 46.455 kr
Whirlpool frystlkistur eru með læsingu á loki, Ijósi f loki og aðvörunarbúnaði.
Whirlpool gæða frystiskápar
AFG065 65L Nettó H:56,5 B:
AFB427 130L Nettó H:85 B:
AFB341 203L Nettó H:140 B:
AFG343 283L Nettó H:180 B:
Whlrlpool frystiskápar eru með aðvörunarbúnaði.
52,5 D: 60
55 D: 60
59,2 D: 60
59,2 D: 60
Verð: 36.000 kr
Verð: 34.265 kr
Verð: 49.875 kr
Verð: 54.900 kr
öli verd eru stgr. verð
Umboðsmenn um land
Byggingavörudeild KEA
Einar Stefánsson
Elís Guðnason
Eyjaradíó
Fossraf
Guðni Hallgrfmsson
Hljómsýn
Kask - vöruhús
K/F Húnvotninga
K/F Borgfirðinga
K/F Héraðsbúa
K/F Þingeyinga
K/F V- Húnvetnlnga
K/F Skagfirðinga
K/F Vopnfirðinga
Akureyri
Búðardal
Eskifirði
Vestmannaeyjum
Selfossi
Grundarfirði
Akranesi
Höfn Hornafirði
Blönduósi
Borgamesi
Egilsstöðum
Húsavík
Hvammstanga
Sauðárkróki
Vopnafirðl
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUNNAR Hrafn Gunnarsson
og Sigrún Yr Magnúsdóttir
náðu 4. sætinu í Latin-dönsum
á London-Open.
Á miðvikudag var keppt í Stand-
ard-dönsum og þar náðu 2 pör í ald-
urshópnum 11 ára og yngri þeim
árangri að komast í undanúrslit.
Það vora þau Friðrik Árnason og
Sandra Júlía Bernburg og Jónatan
Amar Orlygsson og Hólmfriður
Bjömsdóttir.
Málþing um
lífsýnasöfn
SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskól-
ans og Samtök um krabbameins-
rannsóknir á íslandi gangast fyrir
málþingi um lífsýnasöfn þriðjudag-
inn 13. október kl. 17-19 í Odda,
stofu 101.
Rætt verður um söfnun, vörslu,
meðferð og nýtingu lífsýna m.a.
frá vísindalegu, lagalegu og
siðfræðilegu sjónarmiði og með
hliðsjón af drögum um frumvarpi
til laga um þetta efni.
Fundarstjóri verður Ástríður
Stefánsdóttir, læknir og MA í
heimspeki og frummælendur
Guðríður Þorsteinsdóttir, skrif-
stofustjóri í heilbrigðisráðuneyt-
inu, Helga M. Ögmundsdóttir,
læknir, Krabbameinsfélagi Is-
lands, Valgarður Egilsson, læknir
á Landspítala, Haraldur Briem,
læknir, fulltrúi Tölvunefndar og
Bryndís Hlöðversdóttir, alþingis-
maður.
Að framsöguerindum loknum
verða umræður. Málþingið er öll-
um opið og aðgangur er ókeypis.
Fj ölsky ldudagur
í Mosfellsbæ
í TILEFNI af því að nýtt íþróttahús
við íþróttamiðstöðina að Varmá verð-
ur vígt sunnudaginn 11. október verð-
ur haldinn fjölskyldudagur í Mosfells-
bæ og hefst hann ki. 13.
Meðal dagskrárliða verður afhend-
ing umhverfisverðlauna, sýning nem-
enda í íþróttaskóla bamanna, fim-
leikasýning, afreksfólk sýnir og
leiðbeinir, karatesýning, boccia og
björgunarsveitin og skátamir verða
með klifursýningu. Einnig verður
stangarstökk, langstökk og fleira og
munu þau Vala Flosadóttir, Guðrún
Amardóttir og Jón Amar Magnússon
koma í heimsókn. Kynnir verður
Magnús Scheving. Kl. 16 verður síðan
samæfing skólahljómsveitar og allra
kóra í Mosfellsbæ vegna hljóðritunar.
Opið hús verður í Varmárskóla þar
sem Helgi Ólafsson, stórmeistari í
skák, mun tefla fjöltefli kl. 15.
I Gamla íþróttahúsinu verður kom-
ið fyrii- leiktækjum íyrir yngri
kynslóðina með hoppukastala, laser
tag o.fL
Kl. 17 er öllum Mosfellingum boðið
á leik Aftureldingar og KR/Gróttu.
Námskeið um
hugljömun
NÁMSKEIÐ er nefnist Hugljómun
sjálfsþekkingar verður haidið í
Bláíjöllum 15. til 18. október. Mark-
mið námskeiðsins er að þátttakandinn
öðlist milliliðalaust reynslu af sann-
leikanum.
Charles Bemer, bandarískur eðlis-
iræðingur og jóga-
meistari, þróaði árið
1968 aðferð er sam-
einar aldagamla
hugleiðslutækni þar
sem hugleidd er
spuming og tjáð til
félaga. „Síðan þá
hefur Enlighten-
ment Intensive
hjálpað þúsundum
manna til aukinnar
meðvitundar, betri
samskipti og meiri lífshamingju," seg-
ir í fréttatilkynningu.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er
Guðfinna S. Svavarsdóttir, meistari í
hugljómun sjálfsþekkingar og Krip-
alujógakennari.
Námskeiðið hefst miðvikudags-
kvöldið 15. október kl. 20 og lýkur að
kvöldi sunnudagsins 18. október.
Kynningarkvöld verður haldið
sunnudaginn 11. október kl. 20 í sal
Sjálfeflis, Nýbýlavegi 30, Kópavogi.
Þar gefst kostur á að hitta Guðfinnu
og kynna sér nánar aðferðir Gharles
Bemer til hugljómunar.
Guðfinna
S. Svavars-
dóttir
Reykj avíkurborg
" ■ * Skrifstofa borgarstjóra
BORGARAFUNDUR UM MIÐBORG REYKJAVÍKUR
Borgarstjóri boðar til almenns kynningar-
fundar um nýjar áherslur í stjóm miðborgar
Reykjavíkur. Breskir ráðgjafar, Richard
Abrams og Jim Morrissey, sem unnið hafa að
þróunaráætlun miðborgarinnar ásamt starfs-
fólki Borgarskipulags og í samvinnu við
hagsmunaaðila munu kynna vinnu sína.
Þróunaráætlun miðborgariimar felur í sér
ákveðna stefnumörkun fyrir miðborgina.
Verður gerð grein fyrir áhrifum hennar meðal
annars fyrir íbúa, atvinnurekendur, borgar-
yfirvöld, gesti miðborgarinnar og þá sem
starfaþar. Jafnframt verður kynnt fyrirkomu-
lag nýrrar miðborgarstjómar og nýtt starf
ffamkvæmdastjóra hennar.
Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 10.
október n.k. kl. 15:00.
Fundarstjóri verður Halldór J. Kristjánsson
bankastjóri Landsbankans hf.
Hagsmunaaðilar og velunnarar miðborgarinnar
eru hvattirtil þess að mæta.