Morgunblaðið - 10.10.1998, Síða 72

Morgunblaðið - 10.10.1998, Síða 72
72 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF í DAG LAUGARNESKIRKJA. Safnaðarstarf Kvöldmessa í Laugarnes- kirkju FJÓRÐA veturinn í röð býður söfn- uður Laugarneskirkju til sinnar mánaðarlegu kvöldmessu þar sem ljúfir djasstónar renna saman í lof- gjörð og bæn. Fjöldi fólks hefur gert kvöldmessur Laugameskirkju að föstum punkti í tilveru sinni og sótt þangað andlega næringu og vstyrk. Sunnudaginn 11. október verður kvöldmessa mánaðarins kl. 20:30 en djassinn hefst í húsinu kl. 20:00. Þar eru á ferð landsþekktir tónlistarmenn, þeir Tómas R. Ein- arsson á kontrabassa, Matthías Hemstock á trommur, Kjartan Már Kjartansson á fiðlu, Sigurður Flosa- son á saxófón og Gunnar Gunnars- son á píanó. Prestar verða hjónin sr. Bjami Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og kór Laugar- neskirkju syngur. Hvetjum við allt fólk til kirkju- göngu á sunnudagskvöldið. Kaffisala í Óháða söfnuðinum þjónustu á sunnudaginn kemur, 11. október. Tónlistarguðsþjónustur fara svo fram síðdegis og hefjast kl. 17 nema þegar kvöldmessa fer fram, að jafnaði einu sinni í mánuði hverjum. Við tónlistarguðsþjón- ustuna á sunnudaginn kemur mun Árni Gunnarsson leika valin verk á básúnu. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Sr. Pétur Þórar- insson prédikar í L angholtskirkj u SR. PÉTUR Þórarinsson í Laufási mun prédika sunnudaginn 11. októ- ber við messu kl. 11 í Langholts- kirkju. Ashildur Haraldsdóttir leik- ur á flautu. Hin nýja útgáfa sálma- bókarinnar verður tekin í notkun við messuna og mun organisti kenna nýja sjálma rétt fyrir messu. Erindi í Lang- holtskirkju SR. ANNA Sigríður Pálsdóttir mun halda erindi sunnudagskvöld- ið 11. október um uppbyggingu eft- ir skilnað og úrvinnslu tilfinninga. Þar verður m.a. fjallað um hvemig sjálfshjálparhópar geta reynst gott VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sá yðar sem syndlaus er ÞEGAR nú „farísear og fræðimenn" á þjóðþingi þeirra Bandaríkjamanna eru móðir og másandi, nær froðufellandi uppteknir við það misserum saman að hneykslast og ákæra for- seta sinn fyrir framhjá- hald, þá koma ofanrituð orð Jesú í hugann. Og framhaldið er þetta: „Þeg- ar þeir heyrðu þetta, fóru þeir burt, einn af öðrum, öldungarnir fyrstir. Jesús var einn eftir og konan stóð í sömu sporum. Hann rétti sig upp og sagði við hana: „Kona, hvað varð af þeim? Sakfelldi enginn þig?“ En hún sagði: „Eng- inn, herra“. Jesús mælti: „Ég sakfelli þig ekki held- ur. Far þú. Syndga ekki framar." Hinir mjög svo trúuðu Bandaríkjamenn láta prenta á dollaraseðla sína: In God we trust. Má ekki biðja einhverja velviljaða um að koma þessari ábendingu á framfæri nú við þingið, Washington, t.d. sendiráð þeirra hér. Umheiminum finnst ástandið þar vestra nú grátbroslegt, já, aumkun- arvert. H.R.I. BYKO auglýs- ingin góð LANGAMMA hafði sam- band við Velvakanda og var hún með skilaboð frá langömmubörnunum. Seg- ir hún að þau vilji koma því á framfæri að BYKO aug- lýsingin sé alskemmtileg- asta auglýsingin sem þau sjái. Hún sé skemmtilegri en barnatíminn og bíða þau alltaf spennt eftir henni. Er Vegagerðinni orða vant ÞEIM tilmælum hefur verið beint hér hjá Velvak- anda, 18. ágúst og síðar, til Vegagerðarinnar að hún upplýsi hvers vegna vegir Vestfirðinga eru langvar- anlega látnir verða svo harðir og holóttir sem raun ber vitni meðan sam- bærilegir malarvegir í öðr- um landshlutum fá eðlilegt og nauðsynlegt viðhald með ofaníburði og heflun. Áréttuð eru tilmælin um að Vegagerðin Iáti í sér heyra um þetta. í Mbl. 6. október segir á bls. 54: „Vegamálin eru kafli út af fyrir sig, einfaldlega van- þróuð. Innan við 30% vegakerfisins er með bundnu slitlagi. Svokölluð vanþróunarviðmiðun Sam- einuðu þjóðanna er hærri.“ I þessu sambandi má minna á að þjóðvegur 1 (hringvegurinn) er sagður með 80% bundnu slitlagi. Vestfjarðakjálkinn á rétt á tilsvarandi. Kannski vilja núverandi þingmenn Vest- firðinga greina frá hvað þeir hafa gert í málinu á þessu kjörtímabili. H.Þ. Tapað/fundið Skór í óskilum SVARTUR Buffaloskór nr. 40, með frönskum rennilás, fannst þriðjudag- inn 6. okt. Upplýsingar í síma 564 1184. GSM-sími týndist GSM-sími, Ericsson með krómkúluloftneti, týndist á leiðinni frá Iðnó að Fóget- anum sl. laugardagskvöld. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 435 6660 eða skili símanum til lögregl- unnar. Dýrahald Hvít kanína týndist HVIT kanína með brún og svört eyru, trýni og dindil, týndist frá Skógarhh'ð 12 í síðustu viku. Þeir sem hafa orðið hennar varir hafi samband í síma 562 9232. SKAK Ilmsjón Margeir Pétnrsson STAÐAN kom upp á Ólympíuskákmótinu í Elista. Hollenski stórmeist- arinn góðkunni Jan Timm- an (2.655) hafði hvítt og átti leik gegn Magomedov (2.540) frá Azer- badsjan. Svartur er manni undir en virðist vera að ná honum til baka með ágætri stöðu. En Timman var ekki á því að láta neitt af hendi: 33. Rxe5! - Rxe5 (Eða 33. - Hxc7 34. Rexf7+ og svartur tapar drottning- unni til baka) 34. Dxe5H og svartur gafst upp, því eftir 34. - Bxe5 35. Bxe5+ - Dxe5 36. Rxf7 + tapar hann drottningunni til baka. Að loknum níu umferðum á mótinu var íslenska sveit- in í 34.-37. sæti, sem er ágætur árangur þegar tekið er tillit til þeirrar endurnýj- unar sem orðið hefur í ís- lenska hðinu og þess að mun fleiri þjóðir tefla fram sterkum landsliðum en á ár- um áður. HVÍTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... Á MORGUN, sunnudaginn 11. október, kl. 14 er Kirkjudagurinn í Oháða söfnuðinum. Að lokinni fjöl- skylduguðsþjónustu er kaffisala kvenfélagsins, þar sem mikið af veglegum viðurgerningi verður til staðar eins og þeirra góðu kvenna er von og vísa. Rennur allur ágóði af kaffisölunni til starfs kvenfé- lagsins, sem hefur á margvíslegan hátt styrkt safnaðarstarfið. Guðsþjónustan er fjöl- skylduguðsþjónusta og verður hún með léttara formi, þannig að allir aldurshópar ættu að skilja skila- ,hoðin í messunni án þess að skripla mikið á skötunni. Messa fyrir og eftir hádegi í Hafnarfjarðar- kirkju GUÐSÞJÓNUSTUR fara nú bæði fram árdegis og síðdegis í Hafnar- fjarðarkirkju. Jafnframt því sem íram fer árdegisguðsþjónusta í *kirkjunni, sem hefst kl. 11, fer fram sunnudagaskóli í safnaðar- heimilinu Strandbergi, en einnig eru sunnudagaskólar á vegum kirkjunnar í Hvaleyrar- og Set- bergsskólum á sama tíma. I árdegisguðsþjónustunum sýna fermingarböm iðulega helgileiki ^ins og þau munu gera við guðs- hjálpartæki við þessa vinnu. I framhaldi verður settur af stað sjálfshjálparhópur í Langholts- kirkju undir stjóra sr. Önnu fyrir þá sem vilja vinna úr tilfinningum sínum vegna skilnaðar. Prestur og djákni Langholtskirkju munu einnig koma að því starfi. Erindi sr. Önnu Sigríðar verður í safnaðarheimili Langholtskirkju 11. október og hefst kl. 20.30. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í Langholtskirkju í síma 520 1300. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al- menn samkoma kl. 14. Gestapré- dikari Óskar Sigurðsson. Allir hjartanlega velkomnir. Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri bama (6 ára og yngri) kl. 11. TTT- starf í safnaðarheimilinu Vina- minni kl. 13. KFUM og KFUK v/Holtaveg. Samkoma verður á morgun, sunnu- dag, kl. 17. Sagt verður frá sumar- búðastarfinu í Vindáshlíð. Umsjón Sigurbjört Kristjánsdóttir, formað- ur Hlíðarmeyja. Hugvekju flytur Sigurður Pétursson sjávarlíffræð- ingur. Boðið er upp á barnagæslu og -fræðslu á meðan á samkomunni stendur. Að lokinni samkomu verð- ur hægt að fá keypta fjölskyldu- væna og samfélagseflandi máltíð á vægu verði. Allir áhugasamir um starf KFUM og KFUK eru vel- komnir á samkomuna og hvattir til að koma. KUNNINGI Víkverja benti á að nú hefði verið ákveðið að færa til Hringbraut vegna húss, sem ekki væri risið, en þegar leysa þyrfti vanda íbúa húsa, sem þegar stæðu við Miklubraut, létu aðgerð- imar á sér standa. Hér er ekki verið að finna að því að færa eigi Hringbraut niður fyrir Tanngarð til þess að skapa hent- ugri aðstæður á lóð Landspítala þannig að reisa megi nýjan barna- spítala Hringsins. Hins vegar hef- ur barátta íbúa við Miklubraut fyr- ir því að dregið verði úr hávaðaj mengun staðið yfir í nokkur ár. I skýrslu borgarverkfræðings frá 1996 segir að 2.030 manns teljist „þjakaðir af hávaða“ frá Miklu- braut. Tveimur ámm síðar hefur það ástand ekkert breyst. xxx ARKITEKTINN Hans Scharoun hannaði eitt sinn torg í Berlín og tvö hús sem við það standa, fílharmóníuna (sennilega hans frægasta verk) og feiknlegt bókasafn. Á milli þessara húsa, sem klædd em gylltum plötum, liggur mikil umferðargata og í kenningum Scharouns er hún ár- farvegur stórborgarinnar. Á góð- viðrisdögum áttu síðan góðborgar- ar að geta setið á torginu og unað sér við umferðarniðinn í borgar- sælunni. Scharoun hefði sennilega keypt upp öll hús við Miklubraut hefði hann haft efni á og íbúar við götuna hefðu glaðir selt honum. Þeir myndu hins vegar seint að- hyllast speki hans um að niður bif- reiðanna væri hunang fyrir eyrun og útblásturinn þá veisla fyrir þef- færin. x x x FJÁRFESTINGARBANKI at- vinnulífsins fæst ekki við smá- verkefni var svarið þegar maður með lítið fyrirtæki hugðist leita fyrirgreiðslu til endurfjármögnun- ar lána, sem hann hafði tekið. Hon- um var sagt að leita til viðskipta- banka síns, það væri rétti staður- inn. Umræddur maður hafði vanist því að geta leitað til fjárfestingar- lánasjóðanna þegar á þurfti að halda, en nú em breyttir tímar. xxx IRÚSSLANDI versnar ástandið dag frá degi og em margir ugg- andi nú þegar vetur gengur í garð, ekki síst þeir, sem hafa horft upp á rúbluna skreppa saman og sparifé sitt verða að engu á einni dag- stund. Blaðið Komsomolskaja Pra- vda greindi fyrr í vikunni frá því að þegar Júrí Lúsjkov, borgarstjóri Moskvu, hefði verið spurður hvað hann ætlaði að gera til að koma í veg fyrir hungursneyð í Moskvu og hefði ekki staðið á svari: „Ég ætla að borða minna.“ xxx AFUNDI Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, sem nú er haldinn í Washington, hefur engum hug- kvæmst þessi lausn rússneska borgarstjórans þótt verið sé að fjalla um efnahagsástandið í heim- inum og það hvernig koma eigi í veg fyrir að krampinn, sem hófst í Taílandi, verði að heimskreppu. Dagblöðin Wall Street Journal og Washington Post tóku bæði til þess á fimmtudag að milli funda og fyrirlestra hefðu fundargestir gætt sér á kavíar og pönnukökum og ostmm, rækjum og humri hefði verið hlaðið á þriggja metra hátt amarlíkneski. Júrí Lúsjkov er ekki á fundinum til að benda þeim á að borða minna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.