Morgunblaðið - 10.10.1998, Qupperneq 76
- -?6 LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
KVIKMYNDIR/Stjörnubíó sýnir gamanmyndina The Real Howard Spitz
-------------------------------------7----------------------------------
með Kelsey Grammer í aðalhlutverki. I þessari mynd sem er fyrir alla fjöl-
, skylduna leikur hann misheppnaðan spennusagnahöfund sem snýr sér að
______________________því að skrifa sögur fyrir börn.___________________
Höfundur í lygavef
HOWARD Spitz (Kelsey Grammer)
er rithöfundur sem skrifar saka-
málasögur undir dulnefninu Vance
Kirby, en sögurnai- hans eru í einu
orði sagt lélegar. Þær eru reyndar
svo lélegar að útgefandinn hans
fleitar harðlega að gefa út nýjustu
söguna hans. Þetta er mikið vanda-
mál fyrir Howard því hann er
margbúinn að lofa lánardrottnum
sínum fyrirframgreiðslunnni sem
hann átti von á fyrir söguna. Dag
einn þegar Howard er að glugga í
bækur í bókaverslun nokkurri kíkir
hann fyrir rælni í barnabók og sér
að hún kostar dágóðan skilding
þrátt fyrir að hún sé örstutt. Hann
reiknar út í snatri hvað höfundur
slíkrar sögu fengi í sinn hlut og í
kolli hans kviknar ný hugmynd.
Þrátt fyrir andstöðu umboðsmanns
Howards, Lou (Joseph Rutten),
ákveður hann að snúa sér að því að
skrifa bækur fyrir börn. Hann er
reyndar kominn með hugmynd um
sögupersónu sem hann kallar
Crafty Cow, en það er kýr sem gef-
ur af sér mjólk á daginn en eyðir
nóttinni í að vera einkaspæjari.
Eina vandamálið sem blasir við
Howard er að hann hatar krakka.
Hann sest engu að síður við skrift-
irnar en fljótlega lendir hann í
heiftarlegri ritstíflu og kemur litlu
sem engu á blað sama hvaða ráðum
henn reynir að beita. Hann tekur
jafnvel til í sokkaskúffunni sinni en
" -ekkert gengur. I örvæntingu sinni
leitar hann ráða hjá harðsnúinni sjö
ára stelpu sem heitir Samantha
(Genevieve Tessier), en hana hitti
Howard þegar hann var að viða að
sér fróðleik á bókasafni fyrir börn.
Samantha samþykkir að lagfæra
söguhandritið sem Howard er bú-
inn að berja saman með harmkvæl-
um og gera það þannig úr garði að
það sé boðlegt börnum, en í staðinn
verður Howard að veita aðstoð sína
við leitina að fóður hennar sem eng-
inn veit hvár pr. Móðir Samönthu,
Laura (Amaflda Ðonohoe), er hins
vegar ekkért vissmm að faðir henn-
ar vilji láta fínna sig, en engu að síð-
ur getur hún ekki neitað dóttur
Sinni um bón hennar. Að auki virð-
ist Samantha vera ákaflega hænd
að Howard og fyrr en varir er
KELSEY Grammer leikur rithöfundinn Howard Spitz sem er lítið fyr-
ir að koma fram í kynningum á hinni vinsælu barnabók sem hann
skrifar með aðstoð sjö ára vinkonu sinnar.
sannleika og hreinna lyga, og hann
verður sífellt háðari samvistum við
þær mæðgurnar Samönthu og
Lauru. Upp úr sýður þó á alþjóð-
legri barnabókastefnu í Los Angel-
es þar sem í ljós kemur að leikarinn
Roger er farinn að taka hlutverk
sitt einum of alvarlega og grípur
Howard þá til sinna ráða.
Leikstjóri The Real Howard
Spitz er Bretinn Vadim Jean sem
varð frægur fyrir mynd sína Leon
the Pig Farmer árið 1992. Hinn
góðkunni Kelsey Grammer sem
hvað þekktastm- er fyrir að leika í
sjónvarpsþáttunum um sálfræðing-
inn Frasier var efstur á lista að-
standenda mydarinnar í hlutverk
Howards, en hann hefur sagt að
ástæða þess að hann tók að sér
hlutverkið myndinni sé sú að hann
hafí hrifíst af kvikmyndahandritinu
sem hafi verið gamansamt og vel
gert í alla staði enda væri um
hreina og klára skemmtun fyrir alla
fjölskylduna að ræða. Grammer
hefur sópað að sér verðlaunum fyrir
hlutverk sitt í Frasier en hann sló
fyrst í gegn fyrir hlutverk sítt í
sjónvarpsþáttunum Cheers. Aður
hafði hann leikið talsvert á sviði og
þá meðal annars í Shakespeare-
leikritum á Broadway, en Grammer
er útskrifaðist á sínum tíma sem
leikari frá Julliard-skólanum í New
York.
ÞÆR Genevieve Tessier og
Amanda Donohoe leika mæðg-
urnar Samönthu og Lauru sem
Howard binst tilfinningalegum
böndum.
Laura búin að leggja allt sitt traust
á þennan ráðvillta rithöfund. Þegar
bókin hans kemur svo á markað
slær hún samstundis rækilega í
gegn. Howard er hins vegar ekkert
fyrir það að vera í sviðsljósinu og
ræður hann leikara að nafni Roger
(Patríek McKenna) til að koma
fram í sínu hlutverki alls staðar þar
sem kynning á bókinni fer fram.
Rithöfundurinn sjálfur tekur svo
smám saman breytingum eftir því
sem hann flækist í þennan vef hálf-
Byssur og kynlíf
STORBORGARLOGGAN
(Metro) var sýnd sl. laugardag
með Eddie Murphy í aðalhlut-
verki. Maður bjóst að vísu við
miklu frá Eddie en þetta lenti út
í venjulegum reyfara og má
kalla það synd og skömm fyrir
svo góðan leikara sem Eddie er.
Hann leyfði sér engan afburða
munnsöfnuð, eins og hann er
vanur, og var að eltast við fal-
lega konu af meiii áhuga en
hann sýndi bófunum. Það eru
nógir tO að leggjast í kvennafar
í myndum frá Hollywood þótt
slíkt þurfi ekki endilega að
henda Eddie Murphy. Ahorf-
endur urðu sem sagt að bíta í
það súra epli að sjá hann dálítið
annars hugar í myndinni og
verða að vona að þeir sjái venju-
legan Murphy næst.
Kvikmyndaframleiðendur eru
líklega að jafnaði geggjaðasta
fólk sem látið er
ganga laust að
öðrum ólöstuð-
um. A ríkis-
rásinni sýndu
þeir myndina Fréttasnápinn
með afburða vondum gaman-
leikara. Hann átti að vera mikill
fréttahaukur og gekk svo fram í
hlutverkinu, að hann dulbjóst
sem húsþerna hjá krimmunum
sem hann átti að skrifa um.
Þetta hefði gengið illa a.m.k. þar
sem undirritaður þekkir til,
enda hefðu fáir fengist til að
hella úr koppum fyrir viðfangs-
efnið. Síðan tæmdist þessum
snápi arfur, en dularfullir ná-
ungar vildu kaupa landið sem
hann erfði. Þessi hringavitleysa
var skýrð með því, að náungarn-
ir vildu búa til ruslahaug úr
landinu fyrir eiturefni og voru
raunar búnir að því. Eftir að
Bandaríkjamenn höfðu hvað eft-
ir annað gjörsigrað kommúnista
í kvikmyndum eru þeir nú, að
þeim gengnum, teknir að fást
við önnur eiturefni í kvikmynd-
um af sama fáránleikanum.
A sunnudaginn sýndi ríkisrás-
in strax eftir áttafréttir dökk-
bláa stuttmynd og erum við þá
búin að apa eftir allt það helsta
sem gróðamenn í kvikmyndum
hefa gert að atvinnuvegi sínum
erlendis. Byssur og kynlíf er
helsta viðfangsefni þessara
manna og virðist hafa haft slík
SJONVARPA
LAUGARDEGI
öriagaáhrif á sveitamennina hér
á landi, að þeim er flestum fyrir-
munað að hugsa út fyrir „guns
and sex“. Þetta er hörmuleg
þróun í okkar kvikmyndaiðnaði,
sem því miður ætlar ekki að
komast af gelgjuskeiðinu. Stöð 2
er stundum að sýna ljósbláar
myndir eftir miðnætti og fyrir-
tæki reka símaþjónustu með
klámi og græða vel. En ríkisrás-
in sendir út sitt klám á besta
tíma eftir áttafréttir án þess að
láta vita út af börnum, alveg
eins og samfarh- í sjónvarpi sé
bara framhald á veðurfréttum.
Aukageta í sjónvarpsdagski’á
var fjáröflunarþáttur á íTkis-
rásinni út af Reykjalundi, þar
sem margt gott fólk lagði sitt af
mörkum fyrir góðan málstað.
Mest þótti undirrituðum til um
dans frú Ingibjargar Pálmadótt-
ur heilbrigðisráðherra. Hún
varð að vísu ekki
heilbrigðisráð-
herra af því hún
kunni að dansa,
en manni dettur
í hug að hún eigi eftir að dansa á
andstæðingum sínum í lokin,
sem hafa verið óþreytandi við að
afflytja mál hennar. Kona sem
dansar af jafnmikllum ágætum
og Ingibjörg ráðherra vill öllum
vel.
Þáttunum um Hitler og Sta-
lín, þessa tvo aldarskelfa okkar
tíma, lauk á rólegu nótunum sl.
mánudagskvöld, þar sem þessir
fyrrum félagar í undirferli börð-
ust upp á líf og dauða, báðir jafn
ómerkilegir og drápu jafnt
heimafólk sem andstæðinga í
stríði. Eftinnælið um þá í þess-
um þremur sjónvarpsþáttum,
sem nú hafa verið sýndir, er
eðlilega bara ágrip. En þættirn-
ir gefa til kynna hvert eftirmæl-
ið verður að lokum. I báðum
löndum er saga þessara tveggja
manna vitnisburður um hvernig
alþýða landanna, stór hluti
hennar, var teymd villur vega.
Og í rauninni er alltaf verið að
reyna að teyma alþýðuna eitt-
hvað út í buskann erindisleysu á
vegum þeirra sem halda að póli-
tík sé að glamra sem mest yfir
skilningsvana fólki og telja því
trú um að paradís sé handan við
hornið.
Indriði G. Þorsteinsson
MYNDIN er tekin í heimabæ Elvis Presley, Tupelo í Mississippi, 26.
ágúst 1956.
Arna Þorsteinsdóttir og
Stefdn JÖkulsson halda uppi léttri
og góðri stemningu
á Mímisbar.
Elvis lifir!
-þín saga!
► NÚ er best að halda niðri í sér
andanum því það hefur sést til
Elvis Presley. Nei, það var ekki
á einhverjum hamborgarastað í
Memphis eða í kristalskúlu spá-
konunnar, heldur á myndbandi.
Fundist hefur líklega elsta
myndband með Elvis Presley á
sviði, en það var tekið í ágúst
1955 af Jim og Louis Robertson
í Magnolia Gardens rétt fyrir ut-
an Houston, þar sem ungir,
óþekktir tónlistarmenn stigu
stundum sín fyrstu skref. A
myndbandinu sést tvítugur Elvis
syngja og spila fyrir framan lít-
inn hóp áhorfenda.
Myndbandið fer í dreifingu í
Bandaríkjunum 21. október
næstkomandi.
Reynolds á
hausnum
►LEIKARINN Burt Reynolds,
sem siðast var tilnefndur til
Oskarsverðlauna fyrir hlutverk
sitt í Boogie Nights, hefur nú
samið við skuldunauta sína um
að greiða skuldir sínar upp á
næstu þremur árum, en gjald-
þrotamál hans var fyrir rétti í
West Palm Beach í Flórída.
Leikarinn mun líklega bjarga
sér fyrir horn með samningnum,
sem gerir ráð fyrir að hann
haldi heiniili sínu í Flórída og
öðrum persónulegum eigum.
SKILINN eftir allslaus?