Morgunblaðið - 10.10.1998, Side 77

Morgunblaðið - 10.10.1998, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1998 7J7 - FOLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Laugarásbíó sýnir vísindatryllinn Species II sem er framhald metaðsóknarmyndar- innar Species sem gerð var 1995 og eins og í fyrri myndinni fara þau Michael Madsen, Marg Helgen- berger og Natasha Henstridge með aðalhlutverkin. DR. Laura Baker (Marg Helgenberger) skapar hina hálfmennsku geimveru og sem fyrr nýtur hún að- stoðar Press Lennox (Michael Madsen). Endurkoma ÁRIÐ 1995 skilaði vísindatryllirinn Species rúmlega 100 milljónum doll- ara í tekjur og fyrir Frank Mancuso jr., framleiðanda myndarinnar, var það ekki erfið ákvörðun að gera framhaldsmynd um svipað efni. Hann segir að í byrjun hafi það ekki verið ætlunin að gera aðra mynd og lykillinn að velgengni sé að endur- gera ekki sömu myndina aftur og aftur. Pess vegna hafi verið tekið aðeins eitt atriði úr sögufléttu fyrri myndarinnar, blöndun kjarnsýra úr geimveru og manni, og það síðan sett inn í ólíka umgjörð. Takmarkið hafi verið að gera mynd sem áhorf- endur vildu sjá og héldi athygli þeirra. I Species II greinir frá Patrick Ross (Julian Lazard) sem er sonur öldungadeildarþingmanns og fyrsti maðurinn sem stigið hefur fæti á Mars, en hann snýr aftur til jarðar- PATRICK Ross (Justin Lazard) finnur að lokum Evu sem hann álítur vera hinn fullkomna maka fyrir sig. úr geimnum hin mannlegu hafa yfirhöndina. Eva er því hálfmennsk, en þegar hún kemst í kynni við aðra veru af sömu gerð veldur það henni tilfinninga- legum vanda þar sem eðli hennar er að maka sig, en hollustan er bundin mannkyninu. Eins og í fyrri myndinni leikur Michael Madsen öryggissérfræð- inginn Press Lennox sem orðinn er æfður í því að elta geimverutegund- ina sem ógnar mannkyninu. Hann lék síðast á móti þeim A1 Pacino og Johnny Depp í myndinni Donnie Braseo, en hann lék á sínum tíma í Keikómyndunum Free Willy og Free Willy II. Meðal mynda sem hann á að baki eru Reservoir Dogs, Mulholland Falls, Wyatt Earp, The Doors og Thelma & Louise. Natasha Henstridge leikur Evu en hún lék geimveruna Sil í Species og var það frumraun hennar í kvik- innar sem hetja og flytur með sér hættulegustu kjamsýru alheimsins. Pað er nefnilega eitthvað sem smátt og smátt er að yfirtaka líkama hans og þar er á ferðinni kjamsýra sem áður hefur heimsótt jörðina. Og eft- ir því sem breytingamar á Ross aukast fá konurnar sem eyða nótt með honum ýmislegt í kaupbæti annað en villt næturgaman með þjóðhetju, því vírusinn sem hann gengur með hefur það eitt markmið að fjölga geimverunum hér á jörð- inni. Þannig er hin bandaríska hetja orðin að drápsvél og eina von mann- kynsins er konan sem á sínum tíma reyndi að eyða því (Natasha Hen- stridge). Dr. Laura Baker (Marg Helgenberger) hefur endurskapað geimverutegundina úr fóstri sem líkist hinni fyrri á allan hátt, nema hvað í þetta sinn er einkennum geimverunnar haldið í skefjum og NATASHA Henstridge leikur hina hálfmennsku Evu sem er eina von mannkynsins. myndum. Henstridge er fædd á Nýfundnalandi og uppalin í Al- berta-fýlki í Kanada, en hún býr nú í Los Angeles. Hún hefur haft nóg að gera síðan hún lék í Species og hefur hún leikið í myndunum Max- imum Risk með Jean-Claude Van Demme og It Had To Be You, og væntanlegar eru með henni mynd- imar Dog Park, Kids in the Hall, Standoff og Bela Donna. Marg Helgenberger hefur aðal- lega leikið í sjónvarpsmyndum af ýmsu tagi og meðal annars komið ffam í ER þar sem hún lék ástkonu George Cloonys. Auk þess að Ieika í Species hefur hún farið með aukahlutverk í nokkrum kvikmyndum og má þar nefna myndirnar Always sem Steven Spielberg gerði, The Cow- boy Way, Bad Boys og Crooked He- arts. Aðeins þr|ár sýningar 15., 18. og 22. október 1998 NIGHT Jorma Uotinen STOOLGAME Jiri Kylián LA CABINA 26 Jochen Utrich 50% afsláttur til Vörðufétaga. Íslenskí dansflokkurinn lorgarieikhúsiö www.ld.is <xy ALÞJÓÐLEG MÁLVERKASAMKEPPNI Landið mitt árið 2000 (tilefni aldamótanna stendur Winsor & Newton fyrir alþjóðlegri málverkasamkeppni.Valin verða fimm bestu málverkin í hverju þátttökulandi og þau síðan send til London þar sem lokakeppnin fer fram. Verðlaun verða veitt fyrir 12 bestu málverkin og verða þau sýnd í London, Brussel, Stokkhólmi og NewYork ásamt verðlaunaverkum hvers lands. Þessi verk verða einnig á dagatali fyrir árið 2000 sem gefið verður út af Winsor og Newton. Skráningarblað og allar nánari upplýsingar má fá í myndlistardeild Pennans, Hallarmúla 2, Reykjavík, Sími: S40 2069. CHH www.mira.is Ármúla 7, sími 553 6540, Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 554 6300,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.