Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.10.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Kynferðisafbrot við Reykjanesbraut Hlaut þnggja ára fangelsi 28 ARA gamall karlmaður, Haukur Örn Aðalsteinsson, var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar. Hann var ákærður fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 8. ágúst sl., við vegbrún skammt suðvestan við bensínafgreiðslu Skeljungs á Reykjanesbraut í Kópavogi, veist að 46 ára gamalli konu, hrint henni út fyrir veginn þannig að hún féll í jörðina og þar urðu átök þeirra á milli og skömmu síðar ráðist að kon- unni þar sem hún var á hlaupum undan ákærða sunnar við vegbrún- ina, hrint henni aftur út af veginum, lagst ofan á hana og þrátt fyrir kröftuga mótspyrnu konunnar, með h'kamlegu ofbeldi þröngvað eða reynt að þröngva henni til holdlegs samræðis. Ekki þótti sannað að ákærði hefði gerst sekur um fullframda nauðgun. Við ákvörðun refsingar var samt litið til þess að brot ákærða var ein- staklega hrottafengið, brotavilji ákærða sterkur og atlaga hans stóð yfir í langan tíma og beindist að per- sónu, sem ákærði þekkti ekki og hafði ekkert gert á hlut ákærða. Þá ber til þess að líta að brotið hefur haft mjög alvarlegai' afleiðingar íyrir andlega heilsu kæranda. Þótti hæfi- leg refsing þrjú ár með hhðsjón af framansögðu og öllum málavöxtum. Ákærði vai- einnig dæmdur til að greiða allan sakarkostnað auk 727 þúsunda króna í skaðabætur til brotaþola. Ákærði greiði einnig saksóknarlaun er renni í ríkissjóð, 80.000 krónur og málsvarnarlaun skipaðs verjanda sins, Amar Clausen, hæstaréttarlögmanns, 120.000 krónur. Frá refsivistinni dregst gæsluvarðhald sem ákærði sætti í þágu rannsóknar málsins frá 10. ágúst til 24. september 1998. Finnbogi H. Alexandersson hér- aðsdómari við Héraðsdóm Reykja- ness, kvað upp dóminn. 25% aukning útlána síðustu tólf mánuði ÚTLÁN innlánsstofnana hafa auk- ist um tæp 25% síðustu tólf mánuði og lausafjárstaða þeirra hefur lækk- að um rúma 22 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýjum hag- vísum Þjóðhagsstofnunar, en þar kemur fram að útlán innlánsstofn- ana hafí aukist mjög hratt allt árið 1997 og það sem af er þessu ári og lausafjárstaða þeirra lækkað ört að sama skapi. Úndir útlán flokkast einnig markaðsverðbréf og eignar- leigusamningar í eigu innlánsstofn- ana, sem eru viðskiptabankar, sparisjóðir, póstgíróstofan og inn- lánsdeildir kaupfélaga. Þá kemur fram í hagvísunum að velta í smásöluverslun er 3,5% hærri fyrstu sex mánuði þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra, en smásöluverslun hefur numið um 45% af einkaneyslunni síðustu ár. Segir að samkvæmt áætlunum verði 10% aukning á einkaneyslu á þessu ári og gera megi því ráð fyrir svipaðri eða meiri hækkun í smásöluveltu seinni hluta þessa árs. FRÉTTIR Reuters FRÁ athöfninni í París í gær þegar Federico Mayor, aðalforstjóri menningar- og vísindastofnunar Sa- meinuðu þjóðanna (UNESCO), útnefndi Vigdísi Finnbogadóttur sérlegan sendiherra tungumála. Vigdís Finnbogadóttir útnefnd sendi- herra tungumála hjá UNESCO Utnefningin gerð á grundvelli góðs orðstírs FEDERICO Mayor, aðalfor- stjóri menningar- og vísinda- stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), útnefndi í gær Vig- dísi Finnbogadóttur, fyrrver- andi forseta Islands, sem sér- legan sendiherra tungumála við hátíðlega athöfn í París í gær. Gerði Mayor í upphafi grein fyrir þætti Vigdísar við varð- veislu og eflingu íslenskunnar og tók fram að það hefði verið á grundvelli góðs orðstírs henn- ar þar sem sú ákvörðun var tekin að hún yrði fyrsti sendi- herra tungumála hjá UNESCO. Að því loknu afhenti Mayor Vigdísi viðurkenningarskjal fyrir störf hennar í þágu tungumála og var síðan haldin móttaka henni til heiðurs. Þar voru viðstaddir sendiherrar Norðurlandanna, starfsmenn UNESCO á þessu sviði og um það bil þrjátíu íslendingar í París sem tengjast listum á einn eða annan hátt. Vigdís sagði í samtali við Morgunblaðið að athöfnin í París hefði verið afar vegleg. Hún sagði hið nýja starf sitt fel- ast í því að reyna að stuðla að varðveislu tungumála í heimin- um og að sitt fyrsta verkefni yrði að gera úttekt á stöðu ým- issa tungumála. Samkvæmt mati UNESCO munu um 6.000 tungumál vera í heiminum í dag og segir Vigdís að hætta sé á að þónokkur fjöldi þeirra hverfl í haf á næstu árum. Starf Vigdís- ar er hins vegar ekki aðeins fólgið í varðveislu tungumála heldur og því að benda á að tungumáí geti skilið milli þjóða jafnt sem sameinað þær og sagði Vigdís að hún myndi vinna að því að fá þjóðir til að skilja verðleika tungumála ann- arra þjóða. Skiljum mikilvægi tungumála lítilla samfélaga Kvaðst Vigdís telja að Islend- ingar skildu betur en margar aðrar þjóðir mikilvægi þess að tungumál lítilla samfélaga vfld ekki fyrir tungumálum fjöl- mennari þjóða og vitnaði hún í ræðu sinni, máli sínu til stuðn- ings, í Halldór Laxness sem minnti á sínum tíma á að tung- an hefði haldið lífi í íslenskri þjóð. Mikil vinna er nú framundan hjá Vigdísi en hún kvaðst fagna því að fá tækifæri til að starfa að svo mikilvægum málaflokki. Dansverkakeppni Verk Láru Stefánsdótt- ur í 1. sæti DANSVERKIÐ Minha Maria Bon- ita eftir Láru Stefánsdóttur danshöf- und var valið besta verkið af sér- stakri dómnefnd í dansverkasam- keppni sem íslenski dansflokkurinn gekkst fyrir í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Le Divine eftir Guðmund Helga- son var valið næst besta dansverk keppninnar og verk Sveinbjargar Þórhallsdóttur, Vegir liggja til allra átta, varð í þriðja sæti samkvæmt vali dómnefndar keppninnar. -----*-M------ Nauðgun í Kópavogi Lögreglan leitar upplýsinga ALVARLEG líkamsárás átti sér stað í holtinu sunnan við Kópavogs- kirkju á þriðjudagskvöld þar sem ókunnugur maður réðst á unga konu og nauðgaði henni. Lögreglunni í Kópavogi barst til- kynning um árásina um kl. 21 og var konan strax færð í neyðai-móttöku Borgarspítalans þar sem hlúð var að henni og gerð á henni rannsókn. Lögreglan tók síðan skýrslu af kon- unni, sem gaf lýsingu á manninum og stendur nú umfangsmikil lög- reglurannsókn yfir. Lögreglan í Kópavogi biður alla þá sem geta gefið einhverjar upplýs- ingar um málið að gefa sig fram. Sérstaklega óskar lögreglan eftir því að ná tali af þeim sem urðu varir mannaferða í grennd við Kópavogs- kirkju á þriðjudagskvöldið. Sérblöð í dag issím VIDSKIPn MVINNULÍF j FERÐAÞJÓNUSTA Hótel Saga Alþjóðlegt samstarí7B1 FYRIRTÆKI -------- • Hraðfrysti-: húsið • Hnífsdal • Skráð á VÞÍ/B6 J MAGASÍN Blaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá Magasín LANDSBANKINN Blaðinu f dag er auglýsingablað frá Lf og Framtíðarbörnum sem er dreift á mismunandi stöðum á landinu ••••••••••••••••••••••••••••• Kristinn G. Bjarnason komst áfram/C1 Fram vann UMFA og komst í efsta sæti 1. deildar/C2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.