Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 13
FRÉTTIR
SÁÁ-kortið til sölu
á 400 stöðum
Morgrinblaðið/Kristinn
SVEINN Christensen, kaupmaður í Kjöthöllinni, selur hér fyrsta SÁÁ-
kortið í verslun sinni í gær. Kaupandinn er Orn Snorrason.
Yiðvörunarbúnaður Fokker-flugvélar
bilaði tvisvar sama daginn
Bilanir af þessu
tæi erfiðar
viðureignar
.BILUNIN var í viðvörunarbúnaði
SÁÁ hefur ýtt úr vör umfangs-
mikilli fjáröflun til að kosta
byggingu meðferðardeildar fyr-
ir ungt fólk við sjúkrahúsið Vog.
Fjáröflunin felst í því að gefa
landsmönnum kost á að kaupa
svokallað SÁÁ-kort sem verður
til sölu á tæplega 400 stöðum
uin allt land, í verslunum, á
bensínstöðvum og í útibúum
Landsbankans. Hvert kort kost-
ar 300 krónur, en af þeim eru
þrjár gerðir mynda, sem sýna ís-
lensk ungmenni, en á bakhlið
eru upplýsingar um vímuefna-
neyslu ungs fólks, meðferð og
forvarnir.
Guðbjörn Björnsson, starfandi
yfirlæknir á Vogi, sagði við
kynningu á fjáröfluninni, sem
fram fór í Kjöthöllinni á Háaleit-
isbraut, að ungu fólki í meðferð
á Vogi hafi fjölgað verulega á
örfáum árum og kæmu að jafn-
aði 200 einstaklingar undir tví-
tugu í meðferð á Vog. Um hríð
hefur verið ljóst að skapa þyrfti
sérstaka aðstöðu fyrir meðferð
ungmenna hjá SÁÁ. Þau þurfi á
mikilli leiðsögn og stuðningi að
halda sem aðeins er hægt að
veita að gagni á sérstakri með-
ferðardeild. _
Sljórn SÁÁ samþykkti í byij-
un september að byggja tvær
nýjar álmur við sjúkrahúsið
Vog. í annarri álmunni verður
sérhæfð meðferðardeild fyrir
ungt fólk. Deildin verður á um
500 fermetrum og á henni verð-
ur rúm fyrir allt að tólf sjúk-
linga hverju sinni.
Heildarkostnaður
um 200 milljónir kr.
Heildarkostnaður við álmurn-
ar tvær á Vogi er áætlaður um
200 milljónir kr., þar af helming-
urinn við meðferðardeild ungs
fólks. Fjáröflunin sem nú hefur
verið hrundið af stað stendur yfir
dagana 29. október til 8. nóvem-
ber. Fyrsta gerð af SÁÁ-kortinu
fór í sölu í gær en kort nr. 2 fer í
sölu 2. nóvember og kort nr. 3
verður selt frá 5.-8. nóvember.
Hvert kort kostar 300 kr. og
rennur andvirðið beint til bygg-
ingarframkvæmda við nýju með-
ferðardeildina.
SÁÁ-kortinu er komið fyrir í
merktum standi við afgreiðslu-
kassa verslana og bensínstöðva
og hjá gjaldkerum í öllum útibú-
um Landsbankans. Það á því að
vera auðvelt fyrir fólk að taka
kortið með í viðskiptum sínum,
en greitt er fyrir SÁÁ-kortið eins
og hverja aðra vöru sem keypt
er. Viðkomandi verslun, bensín-
stöð eða bankaútibú sér síðan um
að koma andvirðinu til skila.
fyrir vængbörð vélarinnar og
þarna er um að ræða vandamál í
rafbúnaði sem var í lagi við prófan-
ir eftir atvikið á þriðjudagsmorgun
en kom svo aftur fram um kvöldið,"
sagði Páll Halldórsson; fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Islands, í
samtali við Morgunblaðið í gær, en
bilun í viðvörunarbúnaði vegna
vængbarða kom tvisvar upp á
þriðjudag í sömu Fokker 50-flug-
vélinni sem félagið rekur.
Páll sagði bilanir sem þessar í
rafkerfí véla geta verið erfiðar
viðureignar, raki og miklar hita-
breytingar gætu haft þau áhríf á
skynjara og viðvörunarkerfi að
falskar viðvaranir kæmu fram.
Engin áhætta væri tekin í slíkum
tilvikum, vængbörðin ekki notuð og
vél lent þar sem góð skilyrði á flug-
braut væi-u og faríð yfir búnaðinn.
Ekki ástæða til að skoða
aðrar Fokker vélar
Vængbörðin auka lyftigetu vél-
arinnar og þegar þau eru notuð
lenda Fokker-vélar á um 170 km
hraða. Sé ekki unnt að nota þau
verður lendingarhraðinn að vera
rúmlega 205 km og þá þarf vélin
allt að hálfu lengri flugbraut og
góð hemlunarskilyrði.
Flugfélagið rekur tvær aðrar
Fokker-vélar og sagði Páll ekki
ástæðu til að skoða þær sérstak-
lega vegna þessara atvika.
Fokker-vélin var rétt ókomin til
Akureyrar á þriðjudagsmorgni
þegar flugmenn vélarinnar fengu
ábendingu frá viðvörunarkerfi
vegna vængbarða um að ekki væri
hægt að láta þau niður. Flugstjór-
inn ákvað því að snúa til Keflavíkur
og lenda þar enda lengri brautir en
á Akureyri og þar voru hemlunar-
skilyrði ekki góð um morguninn.
Flugvirkjar fóru yfir búnaðinn,
skoðuðu tengingar og skynjara og
kom ekki annað fram við prófun
síðar um daginn en að búnaðurinn
væri í lagi og því fór vélin á ný í
áætlunarflug. Þegar hún var á leið
til Hornafjarðar eftir kvöldmat
kom sams konar viðvörun aftur
fram. Var vélinni þá lent í Reykja:
vík enda hemlunarskilyrði í lagi. í
hvoi-ugu tilvikinu var hætta á ferð-
um.
Flugvélin var tekin í skoðun á ný
snemma í gærmorgun og enn farið
yfir umræddan búnað. Sagði Páll
síðdegis í gær að hún væri komin í
lag. Hann sagði nokkra röskun
hafa orðið á flugi félagsins í gær-
morgun en áætlun hefði komist í
samt lag þegar leið á daginn.
VERSLUNIN HÆTTIR
ALLT Á AÐ SELJAST
íþróttafatnaður og skór
SPORTHÚS
REYKJAVÍKUR
Laugavegi 44
LOKAÐ í DAG VEGIMA VERÐBREYTIIXIGA