Morgunblaðið - 29.10.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 21
ERLENT
Reuters
MENEM Ieggur blómsveig að minningartöflu um bresku hermennina, sem féllu í Falklandseyjastríðinu.
Argentínuforseti heiðrar minningu breskra hermanna
Upphaf að bættum
samskiptum ríkjanna
London. Reuters.
CARLOS Menem, forseti Argentínu,
lagði í gær blómsveig að minningar-
steini um þá 252 bresku hermenn,
sem féllu í stríði Breta og Argentínu-
manna um Falklandseyjar 1982. Er
atburðurinn talinn marka upphaf
betri samskipta milli ríkjanna.
Sveiginn, skreyttan bláum og hvít-
um blómum, fánalitum Argentínu,
lagði Menem að minningarsteini í
Pálskirkjunni í London en hann er
fyrsti þjóðhöfðingi Argentínu, sem
kemur til Bretlands síðan ríkin háðu
blóðuga styrjöld um Falkiandseyjar.
Viðstaddir athöfnina voru einnig
Robin Cook, utanríkisráðherra Bret-
lands, nokkrir foringjar í herafla
beggja ríkjanna auk fyrrverandi
hermanna, sem þátt tóku í hildar-
leiknum. Þar var einnig Andrés
prins, sem var þyrluflugmaður í
átökunum, en Menem gékk á fund
móður hans, Elísabetar drottningar,
síðar í gær. Það vakti hins vegar at-
hygli, að Margaret Thatcher, forsæt-
isráðherra í Falklandseyjastríðinu,
var fjarverandi en hún er í einkaer-
indum í Bandaríkjunum.
ítreka tilkall til eyjanna
Mikil viðskipti eru með Argentínu
og Bretlandi en breska stjómin hef-
ur lagt áherslu á, að í heimsókn
Menems verði ekkert rætt um breyt-
ingar á stöðu Falklandseyja.
Deilur um ummæli, sem höfð voru
eftir Menem í síðustu viku, urðu til
að varpa nokkrum skugga á heim-
sóknina. Þá sló dagblaðið The Sun
því upp á forsíðu, að hann hefði
beðist afsökunar á innrás Argentínu-
hers í Falklandseyjar en hann
kvaðst aðeins hafa harmað stríðið en
ekki beðist afsökunar.
Guido Di Tella, utanríkisráðherra
Argentínu, sagði í gær, að lausn ætti
að geta fundist á ágreiningnum um
Falklandseyjar en tók fram, að
Menem myndi ítreka tilkall Argent-
ínu til þeirra á fundi með Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands. Sagði
hann, að ríkin yrðu að sættast á, að
þau væru ekki á sama máli um þetta
og snúa sér síðan að öðru.
Menem sagði við komuna á
þriðjudag, að Bretar hefðu getað
sæst við sína fyrri fjandmenn, Þjóð-
verja, Japani og ítali, og það ætti
ekki að verða erfíðara með Argent-
ínumenn.
að vera auðmaður
Castro neitar því
Havana. Reuters.
FÍDEL Castro, leiðtogi Kúbu, vísar á bug fullyrðing-
um um að hann hafi rakað saman auði á þeim nær
fjórum áratugum sem hann hefur verið við völd á
eynni.
Castro átti um liðna helgi fund með 32 ritsljórum
bandarískra dagblaða, og voru í gærmorgun sýnd
brot úr viðtölum þeirra við hann í sjónvarpi. Leiðtog-
inn réðst þar á tímaritið Forbes, sem setti hann ný-
lega í ellefta sæti á lista yíír ríkustu konunga, drottn-
ingar og einræðisherra í heimi. I tfmaritinu var auður
hans metinn á 100 milljónir dollara, eða um sjö millj-
arða íslenskra króna. „Þeir hafa sakað mig um ýmis-
legt... en aldrei þetta ... Hvaða rétt hafa þeir til að
birta slíkar lygar?" spurði Castro, sem var næstur á
eftir Elísabetu Bretadrottningu á listanum, og þrem-
ur sætum neðar en Saddam Hussein, forseti Iraks.
Castro sagði að hvorki hann sjálfur, ættingjar
hans, né háttsettir embættismenn ættu bankareikn-
inga á erlendri grundu. „Við höfum ekki þörf fyrir
neina reikninga í útlöndum, því við erum staðráðin í
að deyja með sæmd hér í skotgröfúnum,“ sagði hinn
72 ára gamli leiðtogi.
Kynning
á nýju snyrtivörulínunni
SENSAI
CELLULAR PERFORMANCE
í Evitu, Kringlunni,
í dag og á morgun.
Snyrtisérfræðingur
verður með
húðgreiningartölvuna
og veitir faglega
ráðgjöf.
Kanebo
ÍUJll
Jólin á Kflnfli rí
með Heimsferðum
frá1 s.-
Nú bjóðum við einstakt tilboð á
örfáum sætum til Kanaríeyja um jólin.
Brottför út í sólina 14. desember og
komið heim 28. desember, þannig að
þú nýtur jólanna úti og áramótanna heima. Fyrri vikuna
gistir þú á Las Arenas, sem er í hjarta ensku
strandarinnar, og síðari vikuna í Tara- smáhýsunum,
fallegum smáhýsum í Maspalomas.
Bókaðu strax, aðeins 6 gistieiningar í boði.
Verð kr. 59.960 Verð frá kr. 49.975
M.v. 2 í studio/smáhýsi, M.v. hjón með bam,
14..des, 2 vikur. 2-14 ára, 14. des, 2 vikur.
Aðeins 6
gistíeiníngar
í boði
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is
GSM SIMAR
ERU ÚRELHR!
Þessi fiillyrðing stenst líklega ekki ennþá, en þróunin í upplýsinga- og fjarskiptatækni
er svo ör að sú gæti orðið reyndin fýrr en okkur grunar. Það vita sérfræðingar hlutabréfasjóða
ACM sem sérhæfa sig í fjárfestingum í nýjum og spennandi hugmyndum með frábærum árangri.
Leitaðu nánari upplýsinga um erlenda hlutabréfasjóði ACM
hjá ráðgjöfúm Landsbréfa.
LANPSBRfeFHP,