Morgunblaðið - 29.10.1998, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
GRÆNLAND
MORGUNBLAÐIÐ
Islenskir aðalverktakar ljúka við byggingu nýs flugvallar í Aasiaat á Grænlandi
Morgunblaðið/Arnór
FYRSTA flugvélin lendir á flugvellinum í Aasiaat.
UNDANFARIN ár hafa
stærstu íslenzku verk-
takafyrirtækin á íslandi
verið að reyna fyrir sér
erlendis. Flest halda i vesturátt til
Grænlands og keppa við stærstu
verktakafyrirtæki í Skandinavíu og
nú eru þau að sjá árangur erfiðis
síns.
Bæði ístak og íslenzkir aðalverk-
takar hafa skilað af sér flugvöllum á
vesturströnd Grænlands, ístak
byggði í Sisimiut (Holsteinsborg),
ásamt skandinavískum samstarfsað-
ilum en flugvöllurinn þar var vígður
3. sept. sl, en IAV í Aasiaat
(Egedesminde), en þar var flugvöll-
urinn vígður laugardaginn 17. októ-
ber sl. Auk þess byggðu Islenzkir
aðalverktakar brú í tengslum við
flugvallarsmíðina í Sisimiut þar sem
verksamningurinn hljóðaði upp á
370 milljónir kr.
Heildarsamningur IAV hljóðaði
upp á 850 milljónir kr. Þetta eru há-
ar tölur og kölluðu á meiri umfjöll-
un. Stuttar fréttir af stórvirkjum
verktakanna vöktu forvitni og
ákveðið var að fara til Aasiaat sem
er á vesturströndinni um 500 km.
norðan við höfuðstaðinn Nuuk og
250 km norðan heimskautsbaugs.
Langt ferðalag
Farið var frá Keflavík til Nuuk á
fímmtudag þar sem Guðmundur
Þorsteinsson framkvæmdastjóri
Greenland Prime Contractor (GPC),
sem er dótturfyrirtæki IAV á Græn-
landi, tók á móti blaðamanni sem
síðan hélt til Syðri Straumfjarðar
(Kangerlussuaq), gegn um Jakobs-
havn (Ilulissat) og til Aasiaat á
föstudag. Flogið var Dash 7 flugvél-
um Gronlandsfly nema síðasti legg-
urinn þar sem farið var með 25
manna Sikorsky þyrlu, sem jafn-
framt var síðasta þyrluflugið til
Aasiaat í áætlunarflugi.
Það var strax ljóst við komuna til
Aasiaat að það að byggja flugvöll er
stórt verkefni og þeir sem þar unnu
og þeir sem stjómuðu verldnu voru
engir aukvisar. Staðarstjórinn Agn-
ar Strandberg tæknifræðingur sem
verið hefir við stjómvölinn frá því
FÉLAGARNIR Agnar Strandberg og Friðrik Hansen Guðmundsson á
flugvellinum í Aasiaat. Nýja flugstöðin, 750 fm, í baksýn.
Mannvirki
sem breyta
mun mann-
lífinu
Nýlega var tekinn í notkun flugvöllur
í Aasiaat á Grænlandi sem Islenskir aðal-
verktakar byggðu. Þetta er glæsilegt
mannvirki sem breyta mun mannlífínu á
þessum afskekkta stað á komandi árum.
Arnór Ragnarsson skoðaði mannvirkið og
fylgdist með vígsluathöfninni.
um miðjan maí 1997 en auk hans
vom við starfslokin Friðrik Hansen
Guðmundsson verkfræðingur sem
hóf starfíð fyrsta sumarið með Hall-
dóri Ingólfssyni verkfræðingi og
Pétur Haukur Guðmundsson tækni-
fræðingur. Þá var Jóhann G. Berg-
þórsson fyrrum forstjóri og eigandi
Hagvirkis í Aasiaat þeim félögum til
ráðgjafar á lokasprettinum en hann
var þar í boði starfsmanna sem flest-
ir unnu hjá Hagvirki á áram áður.
Á meðan á framkvæmdunum stóð
störfuðu 10-30 íslendingar í Aasiaat
og má segja að þarna hafi myndast
lítið íslenzkt samfélag með öllum
þeim jákvæðu og neikvæðu hliðum
sem upp koma. Reyndar má orða
það svo að aðeins þurfí að nota já-
kvæða orðið a.m.k. þegar talað er
um samskipti íslendinga og heima-
manna. Allan tímann sem Islending-
ar bjuggu í bænum vora árekstrar
landans og heimamanna fátíðir og
nær einsdæmi ef hvessti manna í
milli. Auk þess að stjórna fyrirtæk-
inu stýrðu yfírmennirnir þessu litla
samfélagi sem þeir settu mark sitt á.
I viðtali sem blaðamaður átti við
bæjarstjórann Ane Hansen kom
fram að Islendingarnir hefðu með
penum aðfinnslum bent henni á
margt sem þeim fannst að betur
mætti fara. Hún minntist þess sér-
staklega að þeir hefðu sagt að þeim
þætti bærinn skítugur og hefði hún
þá þegar farið í átak að fegra bæinn
og væri það átak enn í framkvæmd.
Viðtal við bæjarstjórann verður síð-
ar í blaðinu.
Flugvöllurinn vígður
Það var mikið um dýrðir á Aasiaat
laugardaginn 17. október. Von var á
fyrstu flugvélinni til bæjarins með
góðum gestum. Þeirra á meðal vora
Jonathan Motzfeldt formaður græn-
lensku landsstjórnarinnar, Daniel
Skifte fjármálaráðherra, Peter
Grpnvold Samuelsson samgöngu-
ráðherra, ásamt nær öllum helztu
ráðamönnum grænlenskra sam-
gangna. Auk þess vora flestir bæj-
arstjómarmenn í nágrannabyggðum
Aasiaat mættir og Henrik Lund
bæjarstjóri í Julianeháb en hann er
konsúll íslendinga á Suður-Græn-
landi og stjómarmaður í dótturfyr-
irtæki verktakanna GPC. Vélin var
á eftir áætlun þannig að flestir bæj-
arbúanna vora mættir út á völl en
það háði þeim nokkuð að bflakostur
bæjarbúa er takmarkaður og
stærsti bfllinn í bænum er 17 manna
rúta sem verktakarnir eiga og var
mikið notuð þennan dag. Þegar hún
kom út á völlinn voru að jafnaði 50-
60 manns í bflnum og bflstjórinn átti
í erfiðleikum með að opna bílinn.
Þá hófst hefðbundin athöfn þar
sem bæjarbúum var að lokum af-
hentur völlurinn eftir fjölda ræðna
og mikinn söng. Að þvi loknu var öll-
um bæjarbúum boðið til veizlu en á
þriðja þúsund manns var á vellinum
þegar mest var en bæjarbúar era
um 3200. Þetta var fýrsta veizla
dagsins en þær urðu þrjár þennan
dag og sýnir það m.a. hve mikill við-
burður þetta var í lífi bæjarbúa og
það að Islendingum var boðið í allar
veizlurnar sýnir vel hvaða hug
stjómendur bæjarins bera til ís-
lendinganna.
Saga framkvæmdanna
Þegar farið er að skoða sögu
framkvæmdanna kemur fyrst upp í
hugann allur sá fjöldi verkfæra, sem
flytja þarf á staðinn auk mikils hrá-
efnis. Sem dæmi má nefna að það
fóra 80 tonn af sprengiefni til verks-
ins. Ekki er hægt að vinna nema frá
mánaðamótum aprfl/maí og fram í
nóvember en þegar kaldast er í
Aasiaat getur frostið farið niður í 40
gráður, en skoðum nú gang mála frá
upphafi.
Það var sumarið 1995 sem Græn-
lenska flugmálastjómin, Grpnlands
Lufthavnsvæsen, auglýsti í blöðum í
Skandinavíu og Kanada eftir verk-
tökum til að taka þátt í forvali vegna
byggingar 7 nýrra flugvalla á Græn-
landi. GLV auglýsti meðal annars
þetta forval í Morgunblaðinu. ís-
lenskir aðalverktakar vora meðal
tveggja íslenskra aðila sem sendu
inn forvalsgögn en fjöldi fyrirtækja
sendi inn gögn vegna þessa forvals.
GLV valdi einungis úr þeim hópi 7
aðila sem þeir treystu best til að
vinna þessi verkefni og vora Is-
lenskir aðalverktakar þar á meðal.
Til að byrja með vora boðnir út 4
flugvellir ásamt tilheyrandi vega-
gerð að flugvallarstæðinu. Þessi út-
boð fóra fram fyrrihluta árs 1996.
Niðurstaða þessara útboða sem lág
fyrir í sumarbyrjun 1996 var sú að í
hlut íslenskra aðalverktaka kom
flugvöllur í Aasiaat við Disko flóann
og brú yfir Ulkebugten í Sisimiut
við mynni Syðri-Straumfjarðar.
Unnið fyrir 850 milljónir
Samningsfjárhæðin við flugvallar-
gerðina í Aasiaat var um 43,7 millj-
ónir danskra króna og í brúnni í
Sisimiut 33,5 milljónir. Samtals
hljóðar samningsfjárhæðin upp á
um 850 milljónir íslenskra króna á
núverandi verðlagi.
Flugvallarframkvæmdin felst í því
að gera á 800 m langa flugbraut.
Brautin sjálf er malbikuð, 30 m breið
og 799 m löng. Að henni liggja
beggja vegna 20 m breið öryggis-
svæði. Framkvæmdin felst í því að
sprengja út um 150.000 rúmmetra í
flugvallarstæðinu og aka þeim út í
íyflingar, sem sumar era rúmlega 20
BÆJARSTJÓRNIN ásamt flugmönnunutn við komuna til Aasiaat. KÓRINN söng ættjarðarlög.