Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 28

Morgunblaðið - 29.10.1998, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Kjartan og þekjulitirnir iviVjvni jst G a 11 e r í F «1 d MÁLVERK KJARTAN GUÐJÓNSSON Opið daglega 10-18, laugardaga og sunnudaga til kl. 17. Sýningin stend- ur til 1. nóvember. HANDBRAGÐ Kjartans Guð- jónssonar er kunnuglegt íslenskum listunnendum, enda hefur hann ver- ið iðinn við málverkið um áratuga skeið. Myndmál hans er líka sér- stakt svo aldrei fer það á milli mála þegar fyrir augu ber eina af mynd- um hans. Hverju sem það er að kenna er óhætt að segja að Kjartan sé sér á báti í íslensku listalífi og sérstaða hans verður því meira áberandi þeim mun lengra sem líð- ur og þeim mun lengur sem hann stendur af sér allar holskeflur ný- tískunnar og umvandanir yngri manna sem krefjast sífelldrar end- umýjunar og endurskoðunar. Kjartan er fæddur árið 1921 og ólíkt flestum samtímamönnum sín- um sótti hann ekki menntun sína til Evrópu heldur hélt til Bandaríkj- anna og nam þar í borg vindanna við hina virtu listastofnun Chicago Art Institute, sem lengi hefur verið einn helsti listaskóli Bandaríkjanna utan New York, eins konar frum- byggi listanna á gróðursælum slétt- um miðvestursins. Kjartan tók lengi þátt í sýningum Septemhópsins og í myndmáli hans gætir enn sterkra áhrifa frá Parísarafstraksjóninni sem þar var lengi í heiðri höfð, en sjálfur virðist Kjartan alla tíð hafa verið meira fýrir representatíft málverk og helsta viðfangsefni hans er fólk, myndir af mönnum og kon- um sem hann beitir til að túlka hvaðeina frá móðurástinni til hræv- arelda eins og sjá má á nýrri sýn- ingu hans í Gallerí Fold. Nýbreytnin á þessari sýningu felst hvorki í myndmáli Kjartans né stíl, heldur í efnisnotkuninni, því hér málar hann ekki með olíulitum eins og við eigum að venjast, heldur með gouche- eða gvasslitum, vatns- leysanlegum þekjulitum sem eru svipaðir olíunni að því leyti að með þeim má byggja upp málverk úr litalögum og hvítur litur er notaður í stað þess að láta pappírinn skína í gegn eins og gert er þegar málað er með vatnslitum. Gvassið virðist henta Kjartani vel og úr fjarlægð er ekki að sjá mikinn mun á vinnu- brögðunum við þessar myndir og Leikfélag Keflavíkur Morgunblaðið/Björn Blöndal FRÁ æfingu Leikfélags Keflavíkur. Máttarstólpar þjóðfélagsins eftir Ibsen LEIKFÉLAG Keflavíkur frumsýnir Máttarstólpa þjóðfé- lagsins eftir Henrik Ibsen í kvöld, föstudag. Alls taka um 20 leikarar þátt í sýningunni auk fjölda fólks sem aðstoðar við smíðar, hágreiðslu, fórðun, leikmuni, hljóð o.fl. Leikstjóri er Hulda Ólafsdótt- ir og er hún einnig þýðandi verksins. Höfundur tónlistar er Sigurður Guðmundsson, ljósa- hönnun er í höndum Árna Baldvinssonar og Sveindís Valdimarsdóttir sér um bún- ingana. Hulda hefur áður sett upp leikrit með Leikfélagi Keflavíkur, þau eru Skemmti- ferð á vígvöllinn, Erum við svona? Við kynntumst fyrst í Keflavík, Hjónabönd, Lína langsokkur, Stígvélaði köttur- inn, Stöndum saman og Leik- húslíf. Önnur sýning verður sunnu- daginn 1. nóvember kl. 16, þriðja sýning þriðjudaginn 3. nóvember kl. 20.30 og fjórða sýning fimmtudaginn 5. nóvem- ber kl. 20.30. LISTIR YFIRLITSMYND frá sýningu Kjartans Guðjónssonar í Gallerí Fold. þeim sem hann hefur beitt við olí- una. Þegar betur er að gáð kemur þó í ljós að hér hefur listamaðurinn þurft að hafa nokkuð annan hátt á til að endurskapa stíl sinn í nýju efni. Gvasslitimir eru þekjulitir og eins og nafnið bendir til er ekki hægt að hafa þá gagnsæja eins og olíulitina, ólíkt olíulitunum þorna gvasslitirnir líka hratt svo þeir bjóða ekki upp á að unnið sé ofan í verkin eins og hægt er að gera þeg- ar málað er með olíu. Þrátt fyrir þessa annmarka tekst Kjartani að endurskapa í þessum verkum þá myndveröld sem hann hefur lengi unnið með í ohulita- myndum sínum. Hér birtist fólk í þeirri sérstæðu og hálf-afstrakt táknveröld sem jafnan einkennir málverk Kjartans, svífandi innan um samofna hálfhringi og dularfulla birtuglampa, nakið eða klætt, sam- an eða eitt og sér. Táknvísanir Kjartans eru að venju margvísleg- ar, stundum augljósar eins og í myndinni „Móðurást" en stundum svo langsóttar að áhorfandinn hlýt- ur að klóra sér í kollinum þegar hann hefur lesið titilinn og skoðar verkið, til að mynda verkið „Hræv- areld“ sem áður var vísað til. Sýn- ing Kjartans í Gallerí Fold staðfest- ir að hann er og verður einn af hin- um föstu punktum í íslenskum list- heimi, hvort sem hann málar í olíu eða gvass, og myndveröld hans er orðin okkur jafnkunnugleg og eigin hugarheimur, eins og draumur sem mann dreymir aftur og aftur, ein- föld og margræð í senn. Jón Proppé PACHORA, Skúli Sverrisson, Chris Speed, Brad Shepik og Jim Black. Á ferð um Balkan- skaga FJÖLÞJÓÐLEGA hljómsveitin Pachora er væntanleg hingað til Iands til tónleikahalds í Loftkast- alanum, leikur þar í kvöld. Meðal meðlima hljómsveitarinnar er Skúli Sverrisson bassaleikari. Aðrir í hljómsveitinni eru þeir Chris Speed klarinettuleikari, Brad Shepik, sem leikur á saz og quatro, og Jim Black, sem leikur á dumbek og slagverk. Eins og sjá má af hljóðfæra- skipan hefur tónlist Pachora á sér austrænt yfirbragð og reynd- ar má heyra á geisladisk sem kom út með htjómsveitinni hjá bandarískri útgáfu að þó hún sé djasskennd. Þá bregður fyrir stefjum úr Balkanskagatónlist, tyrkneskri tónlist og jafnvel klez- mer, ef marka má umQöllun gagnrýnenda, en klezmer-tónlist er einmitt sprottin af Balkanskaga. Skúli Sverrisson segist hafa kynnst þeim Chris Speed og Jim Black á námsárum sínum í Boston fyrir tíu árum og brallað með þeim tónlist öðru hvoru upp frá því, þar á meðal með Hilmari Jenssyni gítarleikara. Skúli segir að Pachora sé aftur á móti með mjög sérstakt verkefni sem þeir félagar hafi lagt mikinn metnað í og einnig mjög afmarkað vegna fráhvarfs frá hefðbundnum djassi. „Austur-evrópsk og arab- ísk tónlistarhefð er svo upp full af stórkostlegum einkennum að ég held að það sé erfitt fyrir hvern sem er sem hefur áhuga á tónlist að láta það fram hjá sér fara, sérstaklega ef áhugasviðið tengist spuna og rhytma." A fyrstu plötu Pachora, sam- nefndri sveitinni, semur Chris Speed flest laganna, en á nýjum diski, Unn, sem kemur út á veg- um Knitting Factory Records í janúar, er að finna ný lög eftir alla meðlimi ásamt nokkrum þóð- lögum. Sum laga Pachora hljóma reyndar eins og spuni við þjóðleg stef, en Skúli segir að stærstur hlutinn sé frumsaminn en jafn- framt innan ákveðins ramma sem sé dregin af balkönskum áhrif- um. „Við komum úr heimi fram- sækins djass og tilraunatónlistar og erum ekkert að fela það í túlkun tónlistarinnar." Hljóðfæraskipan Pachora er óvenjuleg af djassveit og í takt við tónlistina sem sveitin leikur, eins og áður er getið. I þjóðlegri austur-evrópski-i tónlist er hljóð- færafjöld, þar á meðal fiðlur og harmonikkur og aðspurður hvort Pachora-menn hyggist bæta við hljóðfærum segir Skúli að þeir félagar séu ekki endilega að spila þessa tónlist í upprunalegu formi og hefð heldur frá sínu sjónar- miði. „Við getum aðeins nálgast hana þannig í von um að eitthvað nýtt gerist, en við spilum stund- um með harmonikkuleikaranum Ted Reichman.“ BRESKI rithöfundurinn Ian McEwan var í fyrrakvöld sæmdur virtustu bókmenntaverðlaunum á Bretlandi, Booker-verðlaununum, íyrir bók sína Amsterdam. Segjast flestir gagnrýnendur nokkuð sáttir við niðurstöðuna en þetta er í þriðja sinn sem McEwan er tilnefndur til verðlaunanna. Lýstu hins vegar margir samúð með Beryl Bainbridge, þar á meðal McEwan, Áhugi á þjóðlegri tónlist jókst mjög í upphafi þessa áratugar, náði hápunkti en síðan kom nið- ursveifla. Nú virðist hann aftur hafa aukist og Skúli segir Ijóst að fólk hafi alltaf haft áhuga á að kynnast öðrum menningarsvæð- um og tónlist sé þar engin und- antekning. „íslendingar hlusta til dæmis á Mississippi-blús, Japanir hafa alltaf verið mjög hrifnir af franskri dægurlagatónlist og Debussy kunni vel að meta gamelan-músík frá Balí. Fyrir rótlausa New York-búa sem heyra tónlist frá öllum heims- hornum allan daginn held ég að það sé eðlileg þróun.“ Pachora heldur tónleika í Loft- kastalanum í kvöld, eins og áður er getið, en á undan flytur fs- lenski hljóðmúrinn, skipaður þeim Óskari Guðjónssyni og Jó- hanni Jóhannssyni, tónverk. en hún var nú tilnefnd í fimmta sinn til verðlaunanna fjTÍr bók sína Master Georgie. Aðrir höfundar sem tilnefndir voru til Booker-verðlaunanna í ár voru írski höfundurinn Patrick McCabe fyrir Breakfast on Pluto, Martin Booth fyrir The Industry of Souls, Magnus Mills fyrir The Restraint of Beasts og Julian Baraes íyrir England, England. Ian McEwan fékk Booker-verðlaunin London. Reutera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.