Morgunblaðið - 29.10.1998, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 29.10.1998, Qupperneq 72
f Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF m HEWLETT PACKARD MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTII FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Heitir pottar undir smásjá Hættuleg mengun hjá mörgum líkams- ræktarstöðvum VATN í heitum pottum reynd- ist verulega mengað hjá 9 af 11 líkamsræktarstöðvum í Reykja- vík sem heilbrigðissvið Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur kannaði nýverið ásamt Holl- ustuvernd. I vatninu fundust kólígerlar, saurkólígerlar og pseudomonasgerlar sem allir geta valdið sýkingum, m.a. í eyrum og þvagfærum. Að sögn Hauks Haraldssonar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur eiga fyrrgreindir gerlar alls ekki að finnast í sýnum og borist hefðu bæði kvartanir og ábendingar vegna sóðaskapar á ýmsum líkamsræktarstöðvum. „Þá var gerlafjöldi í vatninu langt umfram það sem heilsu- samlegt er talið. Miðað er við að gerlaíjöldi sé ekki meiri en 1.000 á hverja 100 ml, en þegar talan var komin upp í 200.000 gerla á hverja 100 ml í einstök- um sýnum þá var hreinlega hætt að telja. Það kom veru- lega á óvart hversu slæmt ástandið reyndist vera,“ sagði Haukur. ■ Mengað vatn/18 Kári Stefánsson um álit Lagastofnunar Háskólans Sérleyfishafi komist ekki í ríkjandi stöðu KÁRI Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, segir að sér finnist sjálfsögð sú ábending sem fram kemur í áliti Lagastofn- unar Háskóla íslands um gagna- grunnsfrumvarpið, að komist sér- leyfishafi grunnsins í ríkjandi stöðu vegna sérleyfisins beri honum að fara að almennum samkeppnisregl- um. „Það sem mér finnst hins vegar gleymast í þessu er að gagnagrunn- urinn er hugsaður sem sértækt tæki og það eru til mörg önnur tæki til að vinna sömu vinnu. Eg sé ekki að sá möguleiki sé fyrir hendi að sérleyfishafi komist í ríkjandi stöðu vegna gagnagrunnsins sem slíks,“ sagði Kári. Hann sagði að engu að síður væri þetta atriði sem yrði að gæta frá upphafi. Ekki ætti að veita sérleyfi til að koma sérleyfishafa í ríkjandi stöðu og hafa yrði augun opin gagnvart því. Um innanríkismál að ræða Kári sagði að það væri misskiln- ingur að takmörkun á sérleyfi gerði að verkum að leyfið væri ekki þess virði. „I því felst misskilningur á okkar afstöðu," sagði hann. „Við vorum ekki að fara fram á sérleyfi til að komast í ríkjandi aðstöðu," sagði hann. Kári sagði að álit Lagastofnunar væri mikilvægt þai' sem þar kæmi fram að frumvarpið um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði bryti ekki í bága við þjóðréttarlegar skuldbindingar íslendinga og væri því um innanríkismál að ræða. Hann sagði jafnframt gi-undvallar- atriði að þar væri komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingarnar í grunninum yrðu ópersónugreinan- legar. ■ Gerir lagasetningu/37 / A þunnum ís ÞESSIR piltar stóðust ekki freistinguna í gær að láta reyna á hvort þunnur ísinn á Tjörninni í Reykjavík héldi. Gerðu þeir sér að leik að hlaupa yfir þunnt ís- ^ dagið sem dúaði undan fótum þeirra. Lögreglan varar fólk við að fara út á ísinn sem er alls ekki orðinn nógu traustur. Saga og Hótel ísland Radisson SAS-hótel Greiða ákveðið hlutfall af hagnaði HÓTEL Saga og Hótel ísland munu um næstu áramót hefja sam- starf við alþjóðlegu Radisson SAS- hótelkeðjuna sem er í eigu flugfé- lagsins SAS. Engar breytingar verða á eignar- og starfsmannahaldi við samstarfið. Innan Radisson SAS eru nú 84 hótel í 30 löndum og 18 hótel, þar á meðal Hótel Saga og Hótel Island, munu bætast í hópinn á næstunni. Frá og með næstu áramótum mun Radisson SAS-merkið bætast fyrir framan íslensk nöfn hótelanna. Þau munu taka upp nafnið í bréfs- efnum hótelanna, búningar starfs- — fólks verða þeir sömu og hjá öðrum hótelum í keðjunni og eins mun útlit herbergja og veitingastaða vera í samræmi við gæðakröfur keðjunn- ar. Að sögn Hrannar Greipsdóttur, framkvæmdastjóra Hótels Sögu og Hótels íslands, munu íslensku hót- elin greiða ákveðið hlutfall af hagn- aði til keðjunnar en á móti komi fag- leg ráðgjöf við stjórnun. „Yfirstjórn Radisson SAS mun fylgjast með því að við uppfyllum þær kröfur sem hún setur, en öll j^hótel innan keðjunnar eru fjögurra ^eða fimm stjörnu hótel. Þó svo að ekki sé til neitt algilt flokkunar- kerfi er ljóst að við verðum að taka okkur á til þess að standast kröfur þeirra. Ég geri ráð fyrir að það taki okkur 3-5 ár að komast á það stig sem við viljum vera á,“ segir Hrönn. ■ Miklar kröfur/Bl Morgunblaðið/Ásdís Uppsagnir meinatækna hafa mikil áhrif á starfsemi Landspítala Hægt að sinna 15-20% rannsókna RANNSÓKNASTOFA Landspítal- ans í blóð- og meinefnafræði mun einungis geta sinnt um 15-20% af nauðsynlegum rannsóknum vegna bráðaveikra sjúklinga eftir að ráð- gerðar uppsagnir 47 meinatækna koma til framkvæmda aðfaranótt næsta sunnudags. Jón Jóhannes Jónsson, forstöðu- læknir rannsóknastofu í meinefna- fræði, segir að samkvæmt neyðará- ætlun sem útbúin hefur verið verði lögð áhersla á að halda einkum uppi þeim rannsóknum, sem ekki er hægt að sinna annars staðar. Hann segir að neyðaráætluninni megi halda í nokkra daga en að síðan „hrynji spilaborgin“ vegna álags á það starfsfólk, sem eftir verður. Deilan á byrjunarreit Meinatæknar og viðsemjendur þeirra hittust á samningafundi síð- degis í gær. Að þeim fundi loknum sagði Anna Svanhildur Sigurðar- dóttir, talsmaður meinatæknanna, að deilan væri enn á byrjunarreit. Viðsemjendur meinatæknanna eru fulltrúar starfsmannaskrifstofu Ríkisspítalanna og segir Anna Svanhildur að þeir virðist ekki hafa umboð til að bjóða meira en þegar liggur á borðinu. Byi-junarlaun meinatækna eru 98.905 krónur og segir Anna Svan- hildur að meinatæknar hafi dregist mjög aftur úr í samanburði við hjúkrunarfræðinga og almennan vinnumarkað undanfarin ár. Jón Jóhannes Jónsson og Guðlaug Bjömsdótth', starfsmannastjóri Rík- isspítala, sögðu fyrir fundinn í gær að mikið bæri á milli í deilunni. ■ Nauðsynlegum/12 Gróðurhúsaloft Yerðmæt- ið allt að 6 milljarðar HEILDARÚTSTREYMI gróð- urhúsalofttegunda á íslandi vai' árið 1996 áætlað um 2,7 milljónir tonna af koldíoxíðsígildi og mið- að við líklegt markaðsverð er „verðmæti" íslenskrar losunar 3,8-5,7 milljarðar króna á ári. Samkvæmt Kyoto-bókuninni var gert ráð fyrir að íslendingar mættu á tímabilinu 2008-2012 losa 10% meira en árið 1990, eða samtals rúmlega 3 milljónir tonna. Verðgildi þess kvóta er um 4,2-6,3 milljarðar króna á ári samkvæmt sömu útreikningum. ■ Áætlað/6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.