Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Lögreglumenn mótmæla nýju skipuriti LANDSSAMBAND lögreglu- manna (LL) boðaði í gær til blaða- mannafundar þar sem vinnubrögð við úttekt og breytingar á embætti lögreglustjórans í Reykjavík voru harðlega gagnrýnd og segja lög- reglumenn að hyldýpisgjá hafi myndast á milli lögreglumanna og æðstu yfirstjórnar lögreglunnar í landinu. Tilefnið var skýrsla VSÓ-ráð- gjafar frá 26. október sl. um breyt- ingar á stjórnskipulagi embættis- ins og úrvinnsla dómsmálaráðu- neytisins á tillögum skýrslunnar. I yfirlýsingu gagnrýnir sam- bandið meðal annars þekkingar- skort skýrsluhöfunda á löggæslu- málum, óvönduð vinnubrögð, til- litsleysi í garð lögreglustjórans í Reykjavík við undirbúning breyt- inganna og ekki síst skort á sam- ráði við lögreglumenn. Draga lög- reglumenn jafnframt í efa að hið nýja skipurit standist lög. Talsmenn LL voru inntir eftir því hvort þeir teldu að breytingarnar miðuðu að því að bola Böðvari Bragasyni í burtu. „Almenningur og fjölmiðlar virðast túlka þetta þannig og við höfum enga ástæðu til þess að túlka þetta öðruvísi. Það er verið að gera lögreglustjórann óvirkan," sögðu þeir og kváðust hafa heimildir fyrir því að áður en Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfarandi mál verða til umræðu. 1. Stjórnarskipunarlög. 1. umr. 2. Miðlun upplýsinga og sam- ráð við starfsmenn á evr- ópska efnahagssvæðinu. 1. umr. 3. Lögheimili. 1. umr. 4. Tilkynningar um aðseturs- skipti. 1. umr. 5. Tryggingagjald. 1. umr. veikindaleyfi Böðvars Bragasonar lauk hefði honum verið boðið annað starf en hann hefði hafnað því. „Þá virðast menn hafa brugðið á það ráð að ýta honum út í horn.“ Ekki samráð við stéttarfélag Framkvæmdastjóm LL ítrekaði að dómsmálaráðuneytið hefði haft að engu ákvæði Lögreglulýsingar Evrópuráðsins um að samráð skyldi hafa við stéttarfélag lögreglumanna um stjómun lögi’egluliðs og samn- inga varðandi stöðu lögreglumanna. „I stýrihóp sem var ráðgjöfum til aðstoðar við tillögugerðina skipaði ráðuneytið aðeins einn aðila frá embætti lögreglustjórans í Reykja- vík, lögfræðing sem aðeins hafði starfað þar um nokkurra mánaða skeið,“ sögðu stjómarmenn og töldu einnig ámælisvert að ekki hefði verið rætt við sjálfan lögi’eglu- stjórann í Reykjavík um skipulag embættisins. Jafnframt var gagnrýnt að ekki stæði til að kynna stéttarfélögum lögreglumanna breytingamar fyrr en eftir að þeim hefði verið hrint í framkvæmd. „Stjórn LL telur slík vinnubrögð síst til þess fallin að bæta starfsandann enda felst í þeim megn ókurteisi og lítilsvirð- ing við stafsmennina, ekki síst þá sem breytingarnar bitna fyrirvara- Morgunblaðið/Ásdís FRAMKVÆMDASTJÓRN Landssambands lögreglumanna kynnti afstöðu sambandsins í gær. F.v. Oskar Bjart- marz gjaldkeri, Jónas Magnússon formaður, Jóhannes Jensson varaformaður og Baldvin Einarsson ritari. laust á með einum eða öðrum hætti.“ StjórnaiTnenn bentu á að fyrra skipurit hefði reynst vel og að eftir að vinna samkvæmt því hófst hefði afbrotum pg innbrotum fækkað. Að mati lögreglumanna hefur ekkert komið fram, hvorki af hálfu yfirstjómar lögreglunnar né frá dómsmálaráðuneytinu, sem gefi til- efni til gagngerra breytinga á skipulagi embættisins. Einna helst megi að því finna að ekki hafi tekist að halda rekstrinum innan ramma fjárlagaheimilda um nokkurt skeið. 70% landsmanna styðja ríkisstjórnina SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun Gallup, sem birt var í gær, styrja 70% landsmanna ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Er þetta mesti stuðning- ur sem ríkisstjórnin hefur notið í könnunum Gallups frá því um mitt ár 1995. Samkvæmt sömu könnun er fylgi Sjálfstæðisflokksins er nú rúmlega 47% eftir nokkra niðursveiflu og fylgi Framsóknarflokksins tæplega 18%. Fylgi sameiginlegs framboðs fé- lagshyggjuflokkanna er rúmlega 20% en það eru tveir þriðju hlutar þess fylgis sem flokkarnir, án Þjóð- vaka, fengu samanlagt í síðustu kosningum. Fylgi flokkanna, sem að framboðinu standa, minnkar með hveijum mánuði samkvæmt könnun- um og er nú á bilinu 1-4%. Framboð vinstra græns framboðs og Frjálslynda flokksins mælist 2,6%. Einar K. Guðfínnsson um áhrif hval- veiðibanns á Islendinga Gæti valdið tíu milljarða tjóni á ári EINAR K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði í fyrir- spurnartíma á Alþingi í gær að hvalveiðibannið gæti valdið íslend- ingum fjárhagslegu tjóni upp á sjö og hálfan til tíu milljarða la-óna á ári fyrir utan þau útflutningsverð- mæti sem hvalveiðin sjálf gæti skapað. Þetta sagði hann eftir að Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra hafði upplýst að tilgátur væru uppi um það að áframhaldandi hval- veiðibann gæti minnkað langtíma- afrakstur þorskstofnsins um 20% frá því sem ella yrði. Sagði ráðherra ennfremur að flest benti til þess að ávinningur af því að hefja hvalveið- ar að nýju væri fyrst og fremst fólg- inn í því að geta aukið veiðar úr öðr- um nytjastofnun sjávar. „Árleg veiði á þorski á undan- fömum árum hefur legið á bilinu 300 til 350 þúsund tonn,“ sagði Ein- ar. „Tuttugu prósent af því eru þá sextíu til sjötíu þúsund tonn á ári. Ég aflaði mér upplýsingar hjá Þjóð- hagsstofnun í morgun [í gænnorg- un] um það hver áhrifin yi’ðu á út- flutningstekjur okkar íslendinga ef þorskveiði yrði aukin um 10 þúsund tonn. Miðað við fiskverð á árinu 1997 var hér um að ræða áhrif upp á 1,2 milljarða króna. Þetta þýðir að hvalveiðibannið getur valdið okkur tjóni upp á kannski sjö og hálfan til tíu milljarða króna á ári fyrir utan þau útflutningsverðmæti sem hval- veiðin sjálf myndi skapa okkur. Það sem liggur hér fyrir er að það er okkur efnahagslega dýi’keypt að hefja ekki hvalveiðar að nýju,“ sagði Einar. Forsætisráðherra hefur mælt fyrir þingsályktunartillögu um nýja byggðastefnu MIKLAR umræður urðu um byggðamál á Alþingi á þriðjudag- inn þegar Davíð Oddsson forsætis- ráðherra mælti fyrir stefnu í byggðamálum fyrir árin 1998 til 2001 með tillögu til þingsályktunar. Forsætisráðherra sagði með stefn- unni ætlunina að taka á þeim vanda sem væri við að etja, taldi hana vera ágæta viðspyrnu en sagði hins vegar ekki unnt að snúa við bú- setuþróun síðustu missera í einu vetfangi. Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir margháttuðum aðgerðum til að treysta búsetu á landsbyggðinni og er stefnt að því að fólkfjölgun þar verði ekki undir landsmeðaltali og nemi 10% til ársins 2010. Bent er á ýmsar aðgerðir til nýsköpunar í atvinnulífmu, í menntamálum, jöfnun lífskjara og bættri sam- keppnisstöðu og bent á þýðingu þess að bæta umgengni við landið. Við umræðuna sagði forsætisráð- herra meðal annars að ofurskattur á sjávarútveg myndi veikja mjög greinina út um land. Hann varaði einnig við öfgum varðandi stóriðju og orkunýtingu á hálendinu og sagði öfgar í náttúruvernd litlu betri. Sighvatur Björgvinsson sagði byggðastefnu eina ekki nægja til að stöðva fólksflótta frá landsbyggð- inni. Hann sagði marktæka fylgni hafa verið á árum áður milli þeirrar fyi’irgreiðslu sem Byggðastofnun veitti sjávarútvegi og fjölgunar at- Spyrnt við þróun síðustu missera vinnutækifæra og atvinnutekna í viðkomandi grein. Hann benti á hátt hlutfall útlendinga í fisk- vinnslu, t.d. á Vestfjörðum, á. sama tíma og atvinnuleysi væri ríkjandi sunnanlands. Hann sagði það hafa komið fram í könnunum að áhrif stjórnkerfis á fiskveiðar kæmu fram í byggðamálum, ekki væri tilviljun hvernig þorp hefðu byggst við sjáv- arsíðu landsins. Vitnaði hann til orða Stefáns Ólafssonar prófessors í grein í Morgunblaðinu 12. nóvem- ber sl. þess efnis að rannsóknir hans bentu til þess að búseta væri alla jafna viðkvæmust í sjávarút- vegsbyggðunum, einkum minni þorpum og kaupstöðum á lands- byggðinni. Markaðsvæðing sjávar- útvegsins með myndun einkaeigna- réttar á veiðiheimildum og framsals á markaði hefði breytt gi’undvelli búsetu í mörgum sjávarbyggðum eftir 1990, einkum fiskvinnslufólks. Sagði Sighvatur að rekja mætti byggðaflóttann úr tveimur lands- byggðarkjördæmum til þeirrar stefnu sem rekin hefur verið í stjórnkerfi fiskveiða og til þeirrar ákvörðunar þein’a sem fengið hafa afnotarétt af þessari auðlind fyrir ekki neitt að selja veiðiheimildir sín- ar öðrum, án tillits til þess að sú ákvörðun gæti þýtt að allar eignir íbúa í sjávarþorpum yrðu á sömu nóttu verðlausar. Fólkið missti ekki aðeins atvinnutækifærin heldur yrðu eignimar verðlausar, sagði þingmaðurinn og sagði ekkert rætt um þetta atriði í þingsályktunartil- lögunni. Versta byggðaröskun nokkru sinni Steingrímur J. Sigfússon sagði Ijótt ástand í byggðamálum og nú horfðust menn í augu við verstu byggðaröskun sem nokkurn tíma hefði verið uppi. Sagði hann brott- flutning af landsbyggðinni til höfuð- borgarsvæðisins hafa aukist jafnt og þétt og nefndi tölur frá árunum 1992 til 1197. Hefði flutningur auk- ist úr um 500 manns í 1.800 og í ár stefndi í að hann yrði kringum 2.200 manns. Steingrímur sagði ástæðuna ALÞINGI vera þá pólitísku stefnu undanfar- inna ára að skera niður þjónustu skóla og heilbrigðiskerfis á lands- byggðinni og að raða niður stórfyr- irtækjum á suðvesturhorni lands- ins. Hann taldi barnalegt að ætla að ná 10% fólksfjölgun á landsbyggð- inni árið 2010, sagði það álíka bamalegt og að ætla sér að gera landið vímuefnalaust árið 2000. Sagði hann ekki minnstu líkur á að þessu markmiö næðust. Hann lýsti eftir aðgerðum og sagði tillöguna alltof almenna. Hann kvaðst ekki taka mark á þessum tillögum fyrr en þeirra sæi stað í fjárlögum. Vildi fá einn milljarð í vegaframkvæmdir, að fólk á landsbyggðinni sem yrði að senda börn sin burt í framhalds- skóla fengi að nýta ónýttan per- sónuafslátt 16-18 ára barna sinna, að ríkið greiddi kostnað við heima- vistir að fullu og tæki á sig kostnað vegna fámennra skóla sveitarfélag- anna. Einnig vildi hann að felld yi’ðu niður gjöld af innanlandsflugi og að almenningssamgöngur yrðu styrktar. Jafna þarf orkuverð og vöruverð Ragnar Arnalds gerði m.a. raf- orkuverð og verð á neysluvörum að umtalsefni. Taldi hann nauðsynlegt að samræma húshitunarkostnað og raforkuverð, sagði orkuverð Rarik 19,6% hærra en verð Rafmagns- veitu Reykjavíkur og spurði hvort eðlilegt væri að íbúum landsbyggð- arinnar væri einum gert að greiða niður fjárfestingu og viðhald dreifi- kerfisins út um land en Reykvík- ingum sleppt. Sagði þingmaðurinn að landsmenn allir ættu að bera þennan kostnað sameiginlega. Þá sagði hann vöruverð 11% hærra á Egilsstöðum og 14% hærra á ísa- firði en á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt athugun Samkeppnis- stofnunar og sagði bein tengsl milli flutningskostnaðar og vöruverðs. Sagði hann ríkið líka skattleggja flutninginn verulega og það yrði að endurskoða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.