Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 15

Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 15 FRÉTTIR Háskólaútgáfan gefur út ættartölu Guðlaugs Tryggva Karlssonar Rekja ættir til konunga og landnámsmanna Morgunblaðið/Áadís VON er á ættartölu Guðlaugs Tryggva Karlssonar (t.v.) eftir Sigur- geir Þorgrímsson frá Háskólaútgáfunni á næstunni. Með Guðlaugi Tryggva á myndinni er Theódór Árnason sem er ritstjóri verksins. SÍÐUSTU árin hefur verið unnið að því að taka saman ættartölu Guð- laugs Tryggva Karlssonar þar sem raktar eru yfír 1.500 ættgreinar og eru ættir hans raktar til landnáms- manna og kon- ungsætta á Norðurlöndum. Sigurgeir Þor- grímsson BA vann að verkinu í fjölda ára en honum auðnaðist ekki aldur til að ganga frá því til útgáfu og var Theódór Arna- son verkfræðing- ur fenginn til þess og er hann ritstjóri verksins. Háskólaútgáfan gefur ættartöluna út sem verður um 300 blaðsíður. Sigurgeir rekur ættir Guðlaugs víða innanlands og utan, rekur ætt- ir til fjölmargra landnámsmanna, til konungsætta á Norðurlöndum og ýmissa höfðingjaætta Joar um slóðir, upplýsir Theódór Arnason. Hann sagði uppsetningu Sigur- geirs hafa verið breytt í hefðbundið kerfí og byrjað á karllegg, sem eru 13 liðir, og síðan kvíslað út frá hon- um þar til efnið er þrotið. „Síðan eru einnig tilvísanir fram og aftur þar sem ættir koma saman sem gefur verkinu meira gildi,“ segir Theódór sem segist hafa verið nokkuð við ættfræðigrúsk síðustu áratugina. Hann segist ekki hafa bætt við verk Sigurgeirs en sett inn einstaka athugasemdir og til- vísanir. Hann taldi ekki hafa verið gefna út hérlendis áður svo viða- mikla ættartölu með þessum hætti og þær ættartölur sem menn hefðu safnað á tölvur væru oft öðruvísi byggðar upp. Sigurgeir Þorgrímsson hafði rit- að ýmsar umsagnir um fólk í ættar- töiunni sem hann hefur frá ýmsum heimildum sem þó er ekki getið. Þannig segir t.d. um Jónas Samson- arson, bónda og hreppstjóra að Alftavatni í Staðarsveit, sem fædd- ur var árið 1788: „Ýmislegt bendir til þess að hann hafi verið talsverð- um kostum búinn, framgjarn og kom nokkuð við sögu í almennum félagsmálum, stóð framarlega í bindindisstarfí, virðist hafa verið dável skáldmæltur." Þá segir um Katrínu Brynjólfs- dóttur, ijósmóður og húsfreyju í Lækjarbotnum í Landmanna- hreppi, fædd 1817: „Hún var gerða- og rausnarkona, ljósmóðir, hún hafði tekið á móti fullum 700 börn- um þá var hið elzta af þeim 67 ára en yngsta á 1. ári, getið þar á heim- ilinu, því Katrín var um það bil kar- læg, hörkutól sem amma hennar. Hún var kona skynsöm og greind, gjörhugul, sterktrúuð og guð- hrædd.“ Börn fái sömu réttaraðstoð og fullorðnir LÁRA Bjömsdóttir, félags- málastjóri Reykjavíkurborgar, segir að það sé dómsmálayfir- valda að sjá börnum, sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi eða sifjaspellum, fyrir réttargæslu- manni. „Það á að líta á börn sem einstaklinga og veita þeim sömu réttaraðstoð og fullorðnum," sagði hún, en Sif Konráðsdóttir lögmaður, hefur gagnrýnt barnaverndarnefndir fyrir að túlka barnaverndarlög þannig að ekki sé nauðsynlegt að skipa réttargæslumenn í slíkum mál- um. Lára sagði að gagnrýnin væri byggð á misskilningi. í barnaverndarlögum væri talað um að sveitarfélög eða barna- verndarnefndir gætu eftir at- vikum greitt lögmannskostnað fyrir foreldra, sem væru með mál fyrir barnarverndarnefnd. „Þann lögmannskostnað greið- ir Reykjavíkurborg svo sann- arlega og er ekki einu sinni spurt um fjárhag því við teljum þetta mikilvægt réttaröryggi fyrir foreldra og börnin,“ sagði hún. Talsmaður Lára benti jafnframt á að í öðru ákvæði í barnarverndar- lögum væri gert ráð fyrir, að vissum skilyrðum uppfylltum, að skipa barninu talsmann þeg- ar mál væri til meðferðar hjá barnavemdarnefnd. „Þar segir ekkert um að það eigi að vera lögmaður," sagði hún. „Við höf- um skipað talsmenn þegar þarf að gæta réttinda barnsins en við höfum þá valið einhvern úr um- hverfi barnsins, sem það treyst- ir og sem vill vera talsmaður þess. Við höfum t.d. skipað presta og kennara eða aðra, sem þekkja til barnsins og fær hann þá greitt fyrir sitt starf frá okkur." Sagði hún að öðru máli gegndi um þau börn sem yrðu fyrir þeirri ógæfu að verða fyrir sifjaspellum eða kynferðislegu ofbeldi. „Þá er verið að tala um réttargæslumann og mál sem fara fyrir dómstóla," sagði Lára. „Það er hvorki skylda sveitarfélagsins né heldur finnst mér það koma til greina undir nokkrum kringumstæðum að sveitarfélögin fari að taka að sér slík mál. Slíkri málaleitan ætti að vísa til réttarfarsnefndar eða dómsmálayfirvalda. Þau eiga að líta á böm sem hverjar aðrar manneskjur og veita þeim sömu réttaraðstoð og fullorðnu fólki. Sveitarfélög hafa engar laga- skyldur til þess.“ Ingjaldur Hannibalsson prófessor á fundi um fjárfestingu í ferðaþjónustu Hugsjon eða skortur á skynsemi Óiafur G. Einarsson forseti Alþingis Ekki hægt að grípa inn í þegar vitnað er í samtöl ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Al- þingis, segir um þá gagmýni Þór- halls Ólafssonar, aðstoðarmanns dómsmálaráðheiTa, að forseti þings- ins hefði átt að grípa inn í þegar ísólfur Gylfi Pálmason alþingismað- ur viðhafði ummæli um Þórhall á þingi í fyrradag, að forseti geti aldrei vitað í svona tilvikum hvort viðkom- andi þingmaður sé að vitna réttilega í samtöl og sjálfur hefði hann ekki gripið inn í hefði hann setið í forseta- stól þegar Isólfur Gylfi viðhafði um- mælin. Ólafur sagði að forsætisnefnd Al- þingis hefði í gær borist bréf frá Þórhalli vegna þess máls og því yrði að sjálfsögðu svarað. „Eg veit að hann er ósáttur við að það sé vitnað í tveggja manna tal. Ég ætla ekkert að leggja dóm á það, en hins vegar eru það grundvallar- réttindi þingmanns að segja það sem honum býr í brjósti. Hann get- ur hins vegar þurft að standa reikn- ingsskil þess sem hann segir, en for- seti getur ekki gripið inn í þetta og það er ekkert nýtt,“ sagði Ólafur. í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Þórhaili Ólafssyni að kostirnir væru þeir að honum yrði leyft að svara ummælum ísólfs Gylfa á Al- þingi, hann bæðist afsökunar á þeim, eða að forsætisnefnd Alþingis ávítaði þingmanninn. „Aðstoðarmaður ráðherra veit auðvitað vel að það fer enginn upp i ræðustól á Alþingi nema sá sem er kjörinn á þing þannig að það er ekki hægt að verða við því. Það er mál á milli hans og þingmannsins hvort þingmaðurinn biðst afsökunar, en erindi til forsætisnefndarinnar verð- ur auðvitað svarað," sagði Ólafur G. Einarsson. FJÁRFESTING í ferðaþjónustu - arðsemi eða hugsjón? var yfirskrift morgunverðarfundar ferðahóps Gæðastjórnunarfélags Islands. „Arðsemi eða hugsjón? „Mér sýnist svarið liggja í augum uppi, annað hvort hugsjón eða skortur á skyn- semi,“ sagði Ingjaldur Hannibals- son prófessor, einn frummælenda, meðal annars í erindi sínu. Samkvæmt tölum úr Frjálsri verslun sagði Ingjaldur ferðaþjón- ustu ekki arðbæra atvinnugrein og að hún greiddi tiltölulega lág laun. „Höfum við þörf fyrir slíka atvinnu- grein á Islandi? Ýmsir, þar á meðal ráðamenn þjóðarinnar, eru farnir að segja að svo sé ekki. Ég er ekki sammála þeim og mun gera tilraun til að greina vandann og koma með tillögur til úrbóta.“ Ingjaldur vitnaði til könnunar Frjálsrar verslunar á stöðu 475 fyr- irtækja og tók hann úr henni stærstu fyrirtæki í ferðaþjónustu á Islandi á síðasta ári. Þau eru 24 með 40 milljarða króna veltu. Sagði hann athyglisvert að Flugleiðir væru með 57% veltunnar og fimm þau stærstu samanlagt um 87% hennar. Hann sagði þrjú fyi-ii-tæki gefa upp 60 milljóna króna hagnað en 12 tap uppá 419 milljónir. Með- allaun fyrirtækjanna í ferðaþjón- ustu sagði hann vera 186 þúsund sem væri rétt undir meðaltali Frjálsrar verslunar og væri Flug- leiðum sleppt væru meðallaunin 149 þúsund lu-ónui' á mánuði. í öðru sæti á eftir sjávarútvegi Ferðaþjónustan aflar að sögn Ingjalds 11,7% gjaldeyristekna þjóðarinnar og er í öðru sæti á eftir sjávarútvegi. Oi'kufrekur iðnaður aflaði 9,9% og almennur iðnaður 5,2%. Hann bar saman ferðaþjón- ustu og sjávarútveg, sagði skipulag sjávarútvegs gott, menntun í þágu greinarinnar væri þokkaleg, rann- sóknir væru stundaðar, samkeppni ríkti en einnig samvinna og margar stoðgreinar hefðu þróast. Þá sagði hann kröfur erlendra viðskiptavina sjávarútvegsins hafa leitt til þess að fyrirtækin verði að nota alþjóð- lega viðurkennd gæðakerfi. Hann spurði síðan hver væri staða ferðaþjónustunnar í saman- burði við stöðu sjávarútvegsins: „Alþjóðlegii' fjölmiðlar hafa ekki sagt eins mikið frá neinum öðrum 275 þúsund manneskjum og Islend- ingum. Ég minni á þorskastríðin, Fischer og Spassky, Nixon og Pompidou, alheimsfegurðardrottn- ingar, skákmeistara, Halldór Lax- ness, Nonna, íslenska hestinn, sterkustu menn í heimi, eldgos og Reagan og Gorbachev, páfann, Keikó, Björk og Vígdísi Finnboga- dóttur." Ingjaldur sagði litla menntun að fá á sviði ferðaþjónustu á íslandi og að víða í greininni skorti skilning á því að hennar væri þörf. Rannsókn- ir séu svo til engar, lítil reynsla hefði flust frá fyrri kynslóð öfugt við það sem gerst hefði í sjávarút- vegi og lítil samkeppni ríki á aðal ferðamannatímanum. „Islensk hótel hafa ekki getað komið sér saman um gæðaflokkun en nota flest svipaða verðskrá yfir sumartímann. Ýfir vetrartímann nota þau sumarverðskrána fyrir saklausa útlendinga en bjóða Is- lendingum umtalsverða afslætti. Nýlega kom fram í fréttum að Hótel Saga og Hótel Island væru að fara í samstarf við Radisson- SAS hótelkeðjuna. Hvers vegna skyldi það vera? Var ekki þjónust- an svo góð? Nei, svo virðist ekki hafa verið því tilgangurinn er að fá aðstoð við að bæta þjónustu hótel- anna þannig að hún verði sambæri- leg við þjónustu fjöguiTa stjörnu hótela erlendis. Það hefur hins veg- ar komið fram að þetta muni taka nokkurn tíma, a.m.k. 1-2 ár. Ef Hótel Saga sér ástæðu til þess að fara í erlent samstarf til þess að bæta þjónustu sína tel ég að ýmsir aðrir ættu að hugsa sinn gang.“ Gjald fyrir fiskveiðiheimildir myndi leysa vandann í lok erindisins varpaði Ingjaldur fram nokkrum atriðum sem hann taldi geta orðið til þess að gera ferðaþjónustuna arðbæra: PÁLL Pétursson félagsmálaráð- herra óskaði á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag eftir formlegu samstarfi við fjái-málaráðherra um aðgerðir gegn gerviverktöku. „Ég hef lengi haft miklar áhyggjur af gerviverktöku. Ég hef þegar óskað eftir samstai'fi við að- ila vinnumarkaðarins um þessi mál „Getur það verið að það gildi enn sem forsvarsmenn íslensks iðnaðar héldu lengi fram, en hafa að vísu ekki gert lengi, að þegar vel gengur í sjávarútvegi er gengið of hátt skráð og samkeppnisiðnað- ur og ferðaþjónusta eiga í erfíð- leikum. Eðlilegt gjald fyrir fisk- veiðiheimildir myndi leysa þetta vandamál. Auka þarf menntun á öllum skólastigum sem og endur- menntun í þágu ferðaþjónustu. Sérstaka áherslu þarf að leggja á bætta tungumálaþekkingu starfs- manna í ferðaþjónustu." Hann nefndi einnig að auka þyrfti rann- sóknir, auka virka samkeppni og að með samruna eða samstarfi væri hægt að veita Flugleiðum verðuga samkeppni sem hann sagði myndu hafa jákvæð áhrif á þróun ferðaþjónustu og hann sagði nauðsynlegt að menningarstofnan- ir ykju fjölbreytni afþreyingar. Þá sagði hann tengsl þurfa að vera milli verðs og gæða og að mat yrði að fara eftir alþjóðlegum hefðum en ekki íslenskum, styrkja þyrfti gæðavitund og auka alþjóðlegt samstarf. „Með markvissum að- gerðum og hugarfarsbreytingu í líkingu við það sem ég hef nefnt tel ég unnt að skapa ferðaþjón- ustuklasa á Islandi sem gæti blómstrað með sama hætti og sjáv- arútvegsklasinn hefur blómstrað á undanfórnum árum.“ og mun í framhaldinu vinna að því, í samstarfi við fjármálaráðherra og fleiri aðila, að koma betri skikkan á þau,“ sagði Páll Pétursson. Með orðinu gerviverktöku er átt við það þegar fólk er í sumum til- vikum ráðið til starfa hjá fyrirtækj- um sem verktakar en ekki laun- þegar. Aðgerðir ráðuneyta gegn gerviverktöku

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.