Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞAÐ var fjölraennur hópur undir leiðsögn Jóns Böðvarssonar sem heimsótti söguslóðir Eyrbyggju.
Á myndinni er hópurinn fyrir framan bændakirkjuna að Bjamarhöfn, þar sem Hildibrandur bóndi
fræddi gestina um staðinn og nágrennið.
Námfúsir könnuðu
söguslóðir Eyrbyggju
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
TRYGGVI Pálsson bankastjóri var meðal þátttakenda og er hann á
tali við Jón Böðvarsson um sögustaði Eyrbyggju í Helgafellssveit.
Tryggvi á sumarhús að Kóngsbakka í Helgafellsveit og er að velta því
fyrir sér hvernig það nafn er til komið.
Stykkishólmi - Jón Böðvarsson ís-
lenskufræðingur hefur á síðustu ár-
um hefur vakið mikinn áhuga hjá
fólki á höfuðborgarsvæðinu á lestri
íslendingasagna. Hann hefur staðið
fyrir námskeiðum þar sem hann les
með fólki helstu sögur Islendinga-
sagna. Hafa námskeiðin notið mik-
illa vinsælda.
í vetur tekur Jón fyrir Eyr-
byggjasögu. Eins og áður er aðsókn
mikil. Námskeiðið er einu sinni í
viku og sækir það 351 þátttakandi.
Vegna fjöldans verður að þrískipta
þátttakendum og er yfir 100 manns
hvert kvöld.
I tengslum við lestur Eyrbyggju
var ákveðið að heimsækja söguslóð-
irnir og kynna sér með eigin augum
sögusviðið. Fjöldinn er það mikill að
ekki getur allur hópurinn ferðast
saman. Því varð að skipta þátttak-
endum er skipt í 4 hópa á jafnmarg-
ar helgar.
Boðið upp á hákarl og harðfisk
Nýlega var einn hópur hér á ferð-
inni undir leiðsögn Jóns Böðvars-
sonar. Farið var af stað að morgni
laugardags frá Reykjavík og ekið
yflr Heydal og komið við í Álftafírði
og gengið á Helgafell. Bjarnarhöfn
var heimsótt og staðurinn skoðaður
í fylgd Hildibrandar bónda. Hann
sýnir gestunum kirkjuna og ber-
serkjagötuna í Berserkjahrauni og
býður upp á hákarl og harðflsk. Um
kvöld var borðað á Hótelinu í
Stykkishólmi og gist þar um nótt-
ina. Á sunnudeginum var farið út á
Snæfellsnes, komið við í Mávahlíð
og Ingjaldshóli og ekið þaðan heim
á leið.
Þátttakendur í þessari ferð voru
yfir 80 manns á tveimur rútum.
Þama var fólk á öllum aldri og segir
Jón að elsti þátttakandinn sé tæplega
áttræður. Flestir ef ekki allir hafa
farið oft um Snæfellsnes áðui', en nú
var augunum beint að nýjum stöðum
sem margir hverjh' láta ekki mikið
yfír sér, fara framhjá ferðamönnum,
en eiga sér merkilega sögu.
Ný hár-
greiðslustofa á
Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfírði - Albert Eiríksson,
hárskeri, hefur opnað hársnyrti-
og sólbaðsstofu. Efndi hann til
hugmyndasamkeppni um nafn á
stofunni og bánist yfír 200 nöfn.
Valdi hann nafnið Álbert
frændi.
Stofan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 10-20. í ljósa-
bekknum sem er á stofunni eru
45 perur og er hann einn stærsti
bekkurinn á Austurlandi.
Morgunblaðið/Albert Kemp
ALBERT Eiríksson á hár-
greiðslustofu sinni.
Morgunblaðið/KVM
Anægjulegt samstarf
Grundarfírði - Það er orðinn árlegur
viðburður meðal safnaðanna á norð-
anverðu Snæfellsnesi að kirkjuskóla-
börn, foreldrar þeirra, prestar og
aðrir starfsmenn standa að einum
sameiginlegum sunnudagaskóla. Að
þessu sinni var hann haldinn í
Grundarfjarðarkirkju sunnudaginn
15. nóvember.
Hver staður hefur umsjón með
ákveðnum liðum sunnudagaskólans.
Áður en þeh' sem komu til kirkjunn-
ar héldu heim vai' boðið upp á brauð,
kleinur og mjólk sem þegið vai' með
kærum þökkum. Á þriðja hundrað
börn og foreldrar komu til þessai'ar
guðsþjónustu, sem öllum er tilhlökk-
unarefni að sækja.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Beðið eftir vetrarveðrum
ÞAÐ er ró yfir hreinkúnum þrem
þar sem þær bíða eftir hinum
hörðu vetrarveðrum á Smjör-
tungudal skammt utan Kárahnúka.
Tíminn er notaður til afslöppunar
eftir fítusöfnun sumarsms og kálf-
urinn fremst á myndinni notar tún-
ann til að kjást við móðurina.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
NEMENDUR í 3 GIB ásamt kennara sínum Guðrúnu Ingu Bragadóttur
og Gunnlaugi Dan Ólafssyni, skólastjóra.
Morgunblaðið/Nanna Sjöfn Pétursdóttir
Veðurathugrm-
arstöð við
Gilsbakkagil
EFTIR krapaflóðin á Bíldudal á síð-
asta ári yar ákveðið að setja upp veð-
urathugunarstöð á staðnum. Stöðin
sést á myndinni og í baksýn er Gils-
bakkagil en þaðan koma skriðumar
gjarnan.
Grunnskóli
Grindavíkur
fær gjafabréf
til tölvu-
kaupa
Grindavík - Foreldra- og kennara-
félag Grunnskóla Grindavíkur
hélt aðalfund sinn nýverið. Edda
Björgvinsdóttir, leikari, ræddi við
foreldra á fundinum.
Hún studdist aðallega við það
efni sem hún notar á námskeið
sín. Foreldrar sem fyrirmyndir
var útgangspunkturinn. Edda tal-
aði um nauðsyn þess að þeir
þyrðu að segja hlutina umbúða-
laust, nálgast börnin með eðlileg-
um hætti og að vera þeir sjálfír.
Þá var skólastjóra afhent gjafa-
bréf að upphæð 350.000 krónur
sem ætlað var til tölvu og hug-
búnaðarkaupa.
Þegar Gunnlaugur Dan Ólafs-
son, skólastjóri, var spurður um
gjöfina sagði hann: „Þetta er mjög
ánægjulegt samstarf, ekki bara
það að fá þessa gjöf heldur líka
þessi áhugi fyrir skólastarfi sem
er svo mikilvægur. Þessi gjöf er
tilkomin fyrir frumkvæði For-
eldra- og kennarafélagsins en auk
þess voru það Kvenfélag Grinda-
víkur og Lionsklúbbur Grindavík-
ur sem gáfu tölvurnar og hugbún-
aðinn. Við erum núna komin með
fjórar tölvur í skólastofur en þær
eru færanlegar þannig að fleiri
bekkir geta notað tölvurnar auk
þess sem skólinn er tvísetinn. Það
eru því allir bekkir í 1.-4. bekk
auk 7. bekkjanna sem hafa að-
gang að þessum tölvum.
Við hófum þessa tilraun vetur-
inn 1996-1997 og höfum í dag auk
þessara tölva í stofunum tvö
tölvuver. Annað ætlað fyrir 1.-5.
bekk með 12 tölvum en hitt fyrir
6.-10. bekk með 16 tölvum, öllum
nettengdum. Þetta er mikil upp-
bygging í tölvumálum okkar á
skömmum txma og með tímanum
verður hver bekkur með sína
stofu og með sína tölvu og jafnvel
tvær, auk tölvuveranna tveggja."