Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 25

Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 25 ERLENT Brezka rfkisstjórnin í rimmu við lávarðadeild þingsins Stj órnarfrum varpi hafnað í fjórða sinn Lundúnum. Reuters. Annað bindi ævi- sögu Brundtland Efaðist um forystu- hæfileika Jaglands Ósló. Morgunblaðið. ANNAÐ bindi endurminninga Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, sem út kom í síðustu viku hefur vakið mikla athygli í heimalandi hennar. Ekki hafa allir verið sáttir við það sem þar kemur fram og í gær kom út óopinber ævisaga Brundtlands, þar sem ráðist er harkalega á hana. Hefur bók- inni verið illa tekið í Noregi, hún þykir á köfl- um ósmekkleg, heimildir höfundarins, Hermans Willis, ótraustar og ályktanirnar vafasamar. Brundtland er ekki eins óvægin og Willis í gagnrýni sinni á sam- starfsmenn innan Verkamanna- flokksins og aðra stjórnmálamenn en þó fá ýmsir kaldar kveðjur, svo sem Islendingar, sem hún segir hafa nýtt sér sérstöðu sína til fulls í samningum við Evrópusambandið og að þeir hugsi fyrst og fremst um sjálfa sig í slíkri samningagerð. I bók Brundtlands kemur fram að hún efaðist um getu Thorbjorns Jag- lands til að taka við forystu í Verka- mannaflokknum, er hún lét af emb- ættinu árið 1992. Vildi hún að Jens Stoltenberg tæki við af sér. Brundtland viðurkennir hins vegar að Jagland hafl vaxið f starfi. Það sem einna mesta athygli hef- ur vakið er kafli um sjálfsmorð Jorgens, sonar Brundtlands, en hún hefur ekki tjáð sig opinberlega um það áður. Dauði hans varð til þess að hún sagði af sér sem formaður Verkamannaflokksins. Brundtland lýsir þeim sársauka og sektarkennd sem fylgdu í kjölfarið og geðlækna gagnrýnir hún fyrir að hafa ekki gert fjölskyldunni grein fyrir því hve illa var komið fyrir syninum. TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, sakaði í gær Ihaldsflokk- inn, sem er í stjórnarandstöðu, um að nýta sér hve yfirgnæfandi meiri- hluta íhaldsmenn hafa í lávarða- deildinni, efri deild brezka þingsins, til að „drepa“ mikilvægt frumvarp um breytta tilhögun kosninga til Evrópuþingsins. I fjórða sinn á einum mánuði hafnaði á þriðjudagskvöld lávarða- deildin - sem í sitja menn sem ekki eru lýðræðislega kjörnir til þing- setu - áætlun stjórnarinnar um að í kosningunum til Evrópuþingsins á næsta ári kjósi brezkir kjósendur í fyrsta sinn milli framboðslista í stað þess að velja einstaka frambjóðend- ur í einmenningskjördæmum. „Pegai' málið snýst um lýðræði kjósa íhaldsmenn frekar að treysta á aðalsmenn en vilja þjóðarinnar," sagði Blair í þingræðu í neðri deild þingsins. Ríkisstjórn Verkamanna- flokksins vill samræma reglur þær sem gilda í Bretlandi um kosningar til Evrópuþingsins þeim reglum sem gilda í öðrum aðildarlöndum ESB, en þær byggjast á hlutfalls- kosningu í stað einmenningskjör- dæma. Erfðaaðalsmenn í aðalhlutverki En lávarðadeildin, þar sem íhaldsmenn eru þrisvar sinnum fleiri en stuðningsmenn Verka- mannaflokksins, er mótfallin áfoi-m- um stjórnarinnar. Breytingartil- laga, sem ríkisstjómin getur ómögulega fallizt á, var samþykkt í lávarðadeildinni á þriðjudagskvöld með 63 atkvæða meirihluta. Margir stuðningsmenn hennar voru menn sem þakka sæti sitt í deildinni erfðri aðalstign. Cranborne vísigreifi, leiðtogi íhaldsmanna í lávarðadeildinni, tjáði The Daily Telegraph að áform flokks Blairs um að „færa meira vald til flokksforkólfa," eins og íhaldsmenn álíta að sé verið að gera með fyrirhuguðum breytingum á kosningafyrirkomulaginu, væri dæmi um tilhneigingu Verkamanna- flokksins til að vilja hafa mótþróa- lausa stjórn á öllum hlutum. Talsmaður Blairs sagði að ef þessir erfðaaðalsþingmenn hefðu ekki greitt atkvæði, hefði ríkis- stjórnin unnið með 36 atkvæða mun. Hann sagði að lávörðunum yrði gefið eitt tækifæri enn til að endurskoða afstöðu sína. „Ef þeir fella það, ganga þeir að frumvarp- inu dauðu,“ sagði hann. Engin málamiðlun var í sjónmáli í gær, og í dag er síðasti dagur sitj- andi haustþings. Ef engin niður- staða næst verður í Bretlandi, einu ESB-landanna, kosið til Evrópu- þingsins á næsta ári eftir hinu hefð- bundna brezka einmenningskjör- dæmakerfi, en gert er ráð fyrir að það gefi Verkamannaflokknum mun CHRIS Patten, sem stýrir nefnd sem ætlað er að gera tillögur um úr- bætur á lögregluliði N-írlands (RUC), sagði í gær að frétt The Irísh Times þess efnis í gærmorgun að RUC yrði lagt niður í núverandi mynd væri „algjör uppspuni". Reyndi Mo Mowlam, N-írlands- málaráðherra bresku ríkisstjórnar- innar, einnig að bera fréttirnar til baka enda höfðu þær vakið mikið uppnám meðal sambandssinna á N- írlandi. Hafði netútgáfa The Irísh Times um miðjan dag í gær eftir Da- vid Trimble, leiðtoga stærsta flokks sambandssinna og verðandi forsæt- isráðherra, að þrátt fyrir að Patten fleiri af hinum 87 þingsætum sem Bretar eiga á þinginu í Strassborg en flokkurinn fengi ef kosið yrði eft- ir hlutfallskosningkerfi, eins og stjómin er að leggja til. Sviptir seturétti? Þessi rimma ríkisstjórnarinnar við lávarðadeildina á sér stað nokkrum dögum áður en drottning- in les stefnuræðu stjórnarinnar fyr- ir næsta þing, sem hefst formlega í næstu viku. Lykilatriði í þeim laga- breytingum sem stjórnin áformar að hrinda í framkvæmd á þessu næsta þingi er afnám réttar erfða- aðalsins til setu í lávarðadeildinni, en hefðin fyrir þessum rétti er jafn- gömul og þingið sjálft. Blair sagði í gær að deilan um kosningareglurn- ar sýndi svo ekki yrði um villzt hve mikil réttarbót væri að þessari breytingu, þ.e. að aðalsmenn skuli sviptir arfgengum rétti til setu í efri deild þingsins. hefði fullvissað hann um það á fundi í gær að fréttin væri uppspuni þá væri hann samt áhyggjufullur því svona getgátur yrðu ekki til af sjálfu sér. Hafði The Irísh Times greint frá því að í bráðabirgðatillögum Patten- nefndarinnar væri gert ráð fyrir því að skipt yrði um nafn á lögreglulið- inu, stuðlað að meiri fjölgun kaþ- ólskra lögreglumanna og lagt bann við öllum táknrænum uppákomum, eins og því að breski fáninn blakti við hún á lögreglustöðvum. Væri markmiðið að gera lögregluna, sem kaþólikkar hafa í gegnum tíðina haft nokkurn ímugust á, óhlut- dræga og störf hennar fagmannleg. Gro Harlem Brundtland Patten neitar frétt- um af endalokum RUC HVER MÍNÚTA FRÁ KL. 23 TIL 08 Á KVÖLD- OG NÆTURTAXTA Dagtaxti er 73 kr./mín. Langmest seldi bíllinn á íslandi stefnir enn ofar l.OOOasta CoroUan gæti orðið þín - og óvæntur happavinningur - Nú stefnir í að við afhendum nýjum kaupanda þúsundustu Corolluna sem seld er á þessu ári. Af því tilefni gerum við óvenju vel við alla nýja Corolla-kaupendur næstu daga og sá, sem kaupir þúsundustu Corolluna, verður í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Láttu það eftir þér að fá nýja Corollu. Ef til vill er 1000 happatalan þín. Komdu á Nýbýlaveginn, á www.toyota.is eða hringdu í síma 563 4400 % O 2.. O5 3 03 ^ cv’ yP)/)jO Verðfrá 1.299.000 kr. COnOL-LA - Mest seldi bíllinn á íslandi í 11 ár. - í flokki öruggustu bíla á markaðnum. - í flokki best búinna bíla á markaðnum. - Hefur einna lægstu bilanatíðni fólksbíla. &,.m - Er einn besti endursölubíllinn á íslandi. Þessi bíll kostar 1.535.000 kr. COROLLA - strax í dag! Tákn um gæði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.