Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Samtök sjálfstætt starfandi fræðimanna
Rey kj avíkuraka-
demían í JL-húsið
REYKJAVÍKURAKADEMÍAN,
sem stofnuð var í maí 1997 og er fé-
lagsskapur sjálfstætt starfandi
fræðimanna, hefur fundið sér þak yf-
ir höfuðið. Samtökin leigja skrifstofu-
húsnæði í JL-húsinu við Hringbraut
af fjármálaráðuneytinu en þar eiga
allt að 25 manns að geta haft aðstöðu
til fræðistarfa. Jón Karl Helgason,
framkvæmdastjóri samtakanna, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
gerður hafi verið leigusamningur til
eins árs en samtökin hafa notið vel-
vildar hjá fjármálaráðuneytinu og
styrkja frá Reykjavíkurborg. „Þetta
ár verður eins konar tilraunatímabil
til að sjá hvaða grundvöllur er undir
starfsemi af þessu tagi.“
Jón Karl segir að hugmyndin á
bak við opnun þessa húsnæðis sé
svipuð og á bak við Tæknigarð á lóð
Háskóla Islands. „Stefnt er að því að
þetta verði fræðimannagarður þar
sem sjálfstætt starfandi fræðimenn
geta leigt sér vinnuaðstöðu og verið
í samfélagi við aðra fræðimenn. Þeg-
ar er kominn nokkur hópur fólks
sem er að flytja inn í húsnæðið.
Þetta eru einkum fræðimenn í fé-
lags- og hugvísindum, bókmennta-
fræðingar, sagnfræðingar, heim-
spekingar, félagssálfræðingar og
fleiri. Með sameiningu fræðimanna
af þessum sviðum undir einu þaki
verður vonandi til þverfagleg sýn
sem veitir okkur færi á að takast á
við fjölbreytt og jafnvel nýstárleg
fræðileg verkefni."
Jón Karl sagði aðspurður að aka-
demían ætti ekki að vera mótvægi við
íslenskar háskólastofnanir heldur
viðbót. „Það eru alltaf fleiri og fleiri
hæfir fræðimenn sem ljúka lang-
skólanámi, mun fleiri en komast að
við kennslu og fræðistörf við hefð-
bundnar háskólastofnanir. Sumir
þeirra sem ekki hafa fengið fasta
kennara- eða rannsóknarstöðu hafa
tekið þann kostinn að leggja fræðin á
hilluna en við vonum að akademían
verði vettvangur og hvati fyrir þetta
fólk til þess að stunda sín fræði
áfram og skapa sér sín eigin tæki-
færi.“
Nýjar bækur
• ÓENDANLEGA uppsprettan þín
er eftir Ann Wigmore í þýðingu Ein-
ars Þorsteins. Bókin var fyrst gefin
út í Bandríkjunum
árið 1983 og er
svokölluð sjálfs-
hjálparbók.
í kynningu segir:
„í bókinni eru m.a.
kenndar nokkrar
huglægar aðferðir
til þess að ná betri
árangri í eigin lífi
og aðrar til að við-
halda betur eigin
líkama.“
Ann Wigmore lést fyrir nokkrum
árum en í hennar nafni starfa enn
tvær heilsustofhanir í Vesturheimi.
Útgefandi er L.E.F. bókaútgáfan.
Bókin er í litlu broti, 112 síður,
prentuð hjá Stensii. Mynd á kápu er
eftir Moussu. Verð: 695 kr.
• ORÐIN tóm er fyrsta bók Haf-
þórs Ragnarssonar og hefur að
geyma ellefu ljóða hans. Bókin er í
minningu vinar hans, Jóhannesar
Ann
Wigmore
Hjaltasonar.
Hafþór Ragnar
er fæddur í Reykja-
víkárið 1971, en
ólst upp í Kópavogi.
Ljóð hans hafa
birst í blöðum og
tímaritum.
Útgefandi er höf-
undur. Kápa og
prentvinnsla:
Prentþjónustan ehf.
Bókin fæst m.a. í
MáU og menningu og Bóksölu stúd-
enta. Verð: 1.200 kr.
• SÁÐMAÐURINN er ljóðabók eft-
ir Harald S. Magnússon. I bókinni
eru 52 stutt Ijóð.
Mörg sækja yrkis-
eftii til íslenskrar
náttúru. Áður hefur
höfundur gefið út
eina ljóðabók og
skrifað nokkrar
bækur fyrir böm.
Höfundur gefur
út. Bókin er 56 bls.,
Haraldur S. P^uðíPrent-
Magnússon "^r ^
Nýjar bækur
• SEIÐUR úifanna er eftir
breska metsöluhöfundinn Nicholas
Evans, í þýðingu Helga Más
Barðasonar.
Sagan gerist í smábæ í Montana
í Bandaríkjunum. Þar hafa ekki
sést úlfar í heila öld en þegar þeir
birtast á ný kvikna deilur og gam-
algróið hatur.
í kynningu segir að Seiður úlf-
anna sé heillandi og stórbrotin
skáldsaga um baráttu mannsins við
náttúruna og sitt innsta eðli - um
hættulegar ástríður og frelsandi
ást. Líffræðingurinn Helen Ross
berst af krafti fyrir verndun villi-
dýranna sem ógna bænum en hún
þarf einnig að kljást við mannlegt
eðli sem reynist erfitt að hemja,
spenna liggur í loftinu og skuggar
fortíðar sveipa söguna dulúð.
Höfundurinn vakti heimsathygli
fyrir fyrstu bók sína, Hesta-hvísl-
arann, sem komið hefur út á 26
tungumálum og selst í tíu milljón-
um eintaka, auk þess sem eftir
henni var gerð samnefnd stór-
mynd.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 387 bls., prentuð í Odda.
Verð: 3.880 kr.
• KAPPAR og kvenskörungar -
Æviþættir fornmanna er eftir
Gfsla Jónsson á Akureyri.
„I stuttum,
kjarnmiklum og
afar hnitmiðuðum
texta dregur Gísli
upp ógleymanlega
mynd af 49 forn-
mönnum, konum
og körlum. í eftir-
mála eru tekin
saman víðfræg
vísdómsorð forn-
manna. Fjöldi
teikninga Gísla G.
Jóhannssonar prýða bókina.
Útgefandi er Bókaútáfan Hólar
og styrkti Menningarsjóður útgáf-
una. Bókin er 160 bls. Umbrot,
prentun og bókband: Ásprent/Pob
ehf. Verð: 2.680 kr.
Benvenuto.
ferm
GARÐURINN
-klæðirþigvel
Steven Isserlis gestur
Sinfóníuhlj óms veitarinnar
GESTUR Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands á tónleikum hennar í Há-
skólabíói í kvöld kl. 20 verður
breski sellóleikarinn Steven Isserl-
is. Kom hann til landsins í gær-
kvöldi frá Lundúnum, þar sem
Elísabet drottning sæmdi hann á
þriðjudag heiðursorðu breska
heimsveldisins (CBE). Isserlis
mun leika Sellókonsert í h-moll op.
104 eftir Antonín Dvorák ásamt
hljómsveitinni en jafnframt er á
efnisskránni Sinfónía nr. 5 op. 47
eftir Dmitrij Sjostakovítsj. Tón-
sprotinn verður í höndum Ricos
Saccanis, aðalhljómsveitarstjóra
Sinfóníunnar.
Steven Isserlis rekur ættir sínar
til sögufrægra manna. Föðurafi
hans var rússneski píanóleikarinn
og tónskáldið Julius Isserlis en í
móðurætt er hann skyldur Felix
Mendelssohn og Karli Marx. Iss-
erlis er þekktastur fyrir hinn sér-
stæða hljóm sem hann nær úr sell-
óinu, meðal annars með því að nota
ekta gamir í strengina. Verkefna-
val hans er fjölbreytt og rannsókn-
ir á gamalli tónlist og endurreisn
gleymdra tónverka setja sterkan
svip á ferii hans.
Frægðarsól Isserlis reis nánast
á einum degi árið 1993 þegar hon-
um voru veitt Piatigorský'-verð-
launin. Auk þess að koma fram á
tónleikum víða um heim hefur
hann hljóðritað töluvert fyrir
hljómplötufyrirtækið RCA Victor
og hlotið mikið lof fyrir. Nýverið
hlaut hann til að mynda verðlaun
tímaritsins Grammophone og
Þýsku hljómplötuverðlaunin. Iss-
erlis leikur á hljóðfæri af Stradi-
varius-gerð sem forðum daga var í
eigu sellósnillingsins Feuermanns.
Dvorák skrifaði sellókonsert
sinn í Bandaríkjunum á árunum
1894-95. Hann var þá á hátindi fer-
ils síns. Þegar Johannes Brahms
las fyrst nótumar að verkinu sagði
hann: „Hví í ósköpunum hefur mér
ekki hugkvæmst að skrifa selló-
konsert sem þennan? Hefði mér
bara dottið það í hug væri ég löngu
búinn að semja svona verk.“ Bra-
hms var ekki einn um aðdáun sína
því konsertinn hefur æ síðan verið
eitt vinsælasta verk Dvoráks
ásamt sinfóníunni Frá nýja heimin-
um. Höfundurinn stjómaði sjálfur
frumflutningi verksins í Lundún-
um hinn 19. mars 1896. Einleikari
var Leo Stem.
Sjostakovítsj samdi fimmtu sin-
fóníuna á miklu umbrotaskeiði í lífi
sínu, árið 1937. Hann lá undir
ámæli af hálfu stjómvalda í Sovét-
ríkjunum eftfr að ópera hans, Lafði
Macbeth, var bönnuð. Sinfónían
Steven Isserlis
var frumflutt 21. október 1937, á
sjálfu byltingarafmælinu, og hlaut
afar góðar viðtökur. í fjölmiðlum
var talað um „hárrétt viðbrögð
Sovétlistamanns við réttmætri
gagnrýni, hinn leiftrandi stíll
fyrstu sinfóníunnar hefur snúið aft-
ur og tónskáldið lagt tilraunir á
hilluna“.
„Á mörkum
austurs og
vesturs“
Morgunblaðið/Kristinn
ZHANG Hong sýnir landslags- og kyrralífsmyndir í baksai
Galierís Foldar.
KÍNVERSKA listakonan Zhang
Hong heillaðist af íslenskri náttúm
þegar hún kom hingað til lands
snemma á síðasta vetri. Sérstak-
lega heillaðist hún af víðáttum
landsins, viðkvæmum gróðri, foss-
um og heitum hveram. Allt þetta
veitti henni innblástur í þær mynd-
ir sem hún sýnir nú í baksal Galler-
ís Foldar en sýningunni lýkur nk.
sunnudag. Á sýningunni, sem ber
yfirskriftina „Á mörkum austurs
og vesturs", era alls 28 verk, lands-
lags- og kyrralífsmyndir, flestar
málaðar á þessu ári.
Litir í siyónum
Zhang Hong er fædd í Peking
árið 1957. Hún stundaði nám í
textílhönnun og síðar í olíumálun,
grafík og tréskurði við The Central
Institute of Fine Art í Peking.
Fyrstu einkasýningu sína hélt hún
árið 1990 í Peking. í framhaldi af
sýningunni ferðaðist hún um slétt-
ur Kína og Tíbets í leit að frekari
innblæstri frá lífinu og náttúranni.
Síðan hefur hún sérhæft sig í
landslags- og kyrralífsmyndum
máluðum með olíulitum.
Zhang Hong hefur nú búið á Is-
landi í eitt ár ásamt manni sínum,
Ji Shen. Hann er einnig myndlist-
armaður og hefur dvalið hér á landi
í þrjú ár, m.a. við nám í íslensku,
en sjálfur hefur hann einnig haldið
sýningu í Galleríi Fold. „Áður en
ég kom hingað var hann búinn að
segja mér margt frá íslandi. Af
nafni landsins að dæma hefði ég
getað ímyndað mér land þakið ís
og snjó, með fáum litum og enda-
lausu myrkri á vetram og björtum
sumarnóttum. Þegar ég svo kom
og ferðaðist um landið að vetrar-
lagi kom það mér mjög á óvart. Ég
sá að hér var fullt af litum, líka í
snjónum. Við ferðuðumst líka mik-
ið um ísland í sumar og sáum þá
enn betur muninn á landslaginu
hér og í Kína,“ segir Zhang Hong,
sem kveðst hafa fengið mikinn inn-
blástur og margar hugmyndir að
vinna úr eftir þessi ferðalög um
landið. Hverimir, gufan, jöklarnir
og önnur jarðfræðileg fyrirbæri
hafa haft mikil áhrif á hana og list-
sköpun hennar. „Ég fann fullt af
litum í náttúranni sem eru svo
gjörólíkir þeim sem ég þekki frá
Kína,“ segir hún og bætir við að þó
að vissulega séu líka margir falleg-
ir staðir í heimalandi hennar, þá sé
mengun af manna völdum orðin
svo mikil þar að þeir séu að spill-
ast. Hún og maður hennar hyggj-
ast dvelja á íslandi enn um sinn og
jafnvel halda hér málverkasýningu
saman á næsta ári.
Zhang Hong hefur kennt í mál-
aradeild The Central Institute of
Fine Art frá 1990 og hefur á þeim
tíma málað fjölda verka. Mörg
þeirra hafa verið valin á árlegar
sýningar The Chinese National Art
og nokkur einnig á alþjóðlegar sýn-
ingar í Rússlandi, Japan og víðar.
Verk hennar era í eigu The
Chinese National Fine Arts Gall-
ery og era seld á uppboðum hjá
útibúi Sotheby’s í Kína og Gui-
dance Auctions, bæði til fyrirtækja
og einstaklinga.
Sýningin í Galleríi Fold stendur
fram á sunnudag. í dag og á morg-
un er hún opin kl. 10-18, á laugar-
dag kl. 10-17 og á sunnudag kl.
14-17.