Morgunblaðið - 19.11.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 35
Með tilfinningu
TÓIM,IST
Geisladiskar
CON ESPRESSIONE
Tchaikovsky: Melodie; Bruch: Kol
Nidrei; Schumann: Intermezzo,
Traumerei; Brahms/Joachim: Ung-
verskur dans nr. 5; Marie: La Cinqu-
antaine; Kreisler: Liebeslied, Liebes-
freud, Schön Rosmarin; Benjamin;
Rumba; Rimsky Korsakoff/Kreisler:
Hindúasöngur; Groudis: Austur-
lenskur dans, Söngur hafsins;
Schubert: Serenade;
Dvorák/Kreisler: Slavneskur dans
op. 72, nr. 2; De Falla/Kreisler:
Spænskur dans. Flytjendur: Mar-
tynas Svegzda von Bekker (fiðla) og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
(píanó). Útgáfa: Japis JAP 9861-2.
Lengd: 61:25.
LITÁÍSKI fiðluleikarinn
Svegzda von Bekker og Steinunn
Birna Ragnarsdóttir héldu tónleika
í Iðnó á liðnu sumri þar sem þau
fluttu efnisskrá þá sem hér birtist.
Og diskurinn er afrakstur þeirrar
samvinnu.
Það verður að segjast að safnið
vekur nokkuð blendnar tilfinningar
hjá mér. Bestu stykkin eru spiluð af
þvílíkum eldmóði og glæsibrag að
líkja má við það besta. Þetta á t.d.
við um Melodie Tchaikovskys og
Kol Nidrei Bruehs sem eru spiluð af
mikilli tilfinningu og næmleika.
Þessi verk era hrein unun á að
hlýða. Léttleikinn og elegansinn
sem einkennir La Cinquantaine eft-
ir Gabriel Marie og Spænska dans-
inn eftir De Falla eru ómótstæðileg-
ir í meðförum Steinunnar og
Svegzda Von Bekkers. Og ekki get
ég stillt mig um að nefna hina stór-
skemmtilegu Rúmbu Arthurs
Benjamins (sem heyi’ðist oft á guf-
unni í „gamla daga“) þar sem Stein-
unn fer á kostum í synkóperuðu
píanóspilinu. Einnig er gaman að
heyra verkin eftir landa Von Bekk-
ers, Graodis, þar sem fiðluleikarinn
sýnir veruleg virtúósatilþrif. Margt
fleira gott mætti nefna.
Það er hins vegar Ungverski
dansinn eftir Brahms sem hefði
mátt taka upp á ný. Glannaleg
spilamennska og tónmyndun fiðlu-
leikarans er ekki þægileg í því lagi.
Það sama má segja um Slavneska
dansinn hans Dvoráks (t.d.
lokatónninn). Engum dytti í hug að
fetta fingur út í þetta á tónleikum
en við endurtekna hlustun verður
slíkt hvimleitt. í lögum Ki-eislers er
samkeppnin grimmileg og það væri
hræsni að segja að ég hefði ekki
heyrt Liebesfreud og Schön
Rosmarin betur spilað. Liebesleid
er hins vegar mjög fallegt í túlkun
Svegzda von Bekkers og Steinunn-
ar Birnu.
Martynas Svegzda von Bekker er
greinilega feiknarlega fínn fiðluleik-
ari og Steinunn Birna Ragnarsdótt-
ir nærgætinn og vandvirkur píanó-
leikari sem þó getur sýnt klærnar
þegar við á.
A heildina litið afar eigulegt safn
þrátt fyrir ofangreinda fyrii-vara og
góð viðbót við fjölbreytta geisla-
diskaútgáfu íslenskra tónlistar-
manna.
(E.s.) Er til of mikils mælst að út-
gáfufyrirtæki láti texta á íslensku
fylgja íslenskri geisladiskaútgáfu?
Valdemar Pálsson
KARLAKÓR Rangæinga hélt velheppnaða tónleika
í Hellubíói fyrir skenmistu.
Karlakór Rangæinga
Velheppnaðir
tónleikar
MIKILL kraftur er í kórfélöguni í
Karlakór Rangæinga, en þeir hafa
komið fram á þrennum tónleikum á
undanförnum vikum, auk þess að
æfa og taka upp lög á geislaplötu
sem væntanlega mun koma út á
næsta ári. Þá er kórinn á fórum til
Wales og Skotlands, þar sem hann
mun m.a. koma fram á góðgerðar-
samkomu til styrktar krabbameins-
sjúkum.
Kórinn hélt velheppnaða tónleika
fyrir skömmu í Félagsheimilinu
Hvoli á Hvolsvelli og komust þá
færri að en vildu. Tónleikarnir
voru endurteknir sl. fóstudag í
Hellubíói fyrir fullu húsi, en viku
áður söng kórinn í Víðistaðakirkju
ásamt Karlakór Selfoss og
Karlakórnum Þröstum. Að sögn
formanns kórsins, Asgeirs Jónsson-
ar, hafa kórfélagar lagt hart að sér
í haust við æfingar og upptökur
fyrir væntanlega geislaplötu, auk
æfinga fyrir áðurtalda tónleika.
Kórfélagar er 42 víðs vegar að úr
Rangái"vallasýslu og innan kórsins
starfar annar minni skipaður tíu
félögum sem kalla sig öðlinga. Að
sögn Asgeirs koma þeir oftar fram
og við fleiri athafnir en kórinn all-
ur, t.d. við jarðarfarir.
Á tónleikunum í Hellubíói var
léttleikinn allsráðandi meðal
kórfélaga, sem brugðu á leik milli
laga með kveðskap og gríni hver á
annars kostnað og stjórnanda
kórsins. Kórfélagar sungu af
miklu öryggi og sönggleðin var
áberandi í léttum og skemmtileg-
um sönglögum auk þess sem önn-
ur óhefðbundnari runnu fram al-
veg fyrirhafnarlaust að því er
virtist. Eftir hlé sungu öðlingarnir
nokkur lög, m.a. „Fjalladraum",
lag Hlyns Snæs Theódórssonar við
ljóð Grétars Haraldssonar en þeir
eru báðir félagar í kórnum. Atli
Heimir Sveinsson raddsetti lagið,
sem hefur aðeins verið flutt opin-
berlega í örfá skipti, en er spáð
miklum vinsældum. Stjórnandi
Karlakórs Rangæinga er Guðjón
Halldór Oskarsson, en undirleik-
ari á tónleikunum var Hörður
Bragason.
Nýjar bækur
Ný bók í Ljóða-
safni Helgafells
• TÍMINN og vatuið
eftir Stein Steinarr er
endurútgefín í sér-
stakri afmælisútgáfu,
en 13. október sl. voru
níutíu ár liðin frá
fæðingu hans. Þá eru á
þessu ári liðin fjörutíu
ár frá andláti hans og
hálf öld frá því að
tímamótaverk hans
Tíminn og vatnið kom
út.
I kynningu segir:
„Steinn Steinarr er eitt
fremsta ijóðskáid 20.
aldar. Tíminn og vatnið,
sem út kom fyrír hálfri
öld, er líklega hans
þekktasta ljóðabók enda
hríngdi hún inn nýja tíma í íslenskum
bókmenntum. Ljóðin í bókinni eru
djúp og seiðmögnuð oglesandinn nýt-
ur þeura því betur sem þau eru lesin
oftar. Tíminn og vatnið
er einstök ljóðabók,
tímamótaverk í íslenskri
Ijóðlist og kjörgrípur öll-
um þeim er unna góðum
skdldskap.“
Þetta er önnur bókin
ínýju Ljóðasafni
Helgafells sem h.leypt
er af stokkunum á 55
ára afmæli bókaforíags-
ins Helgafells en þar
verða gefnar út nýjar
og eldri ljóðabækur ís-
lenskra og erlendra
skálda. Fyrsta bókin í
Ljóðasafni Helgafells
var Borgin hló efth■
Matthías Johannessen.
Utgefandi er Vaka-
Helgafell. Tíminn og vatnið er 32
bls. Wilfried Bullerjahn hannaði
bókarkápu, Grafík hf. prentaði. Verð
1.980 kr.
Steinn
Steinarr
_ ^ HREYSTI _
bvður enn benv
í fæðubótarefnum
Við í Hreysti gerðum verðkönnun
Hreysti
Creatine
400 gr.
2.990^
Pr. kg. 7.475
Bónus
Creatine
300 gr.
2.8797
Pr. kg. 9.597
4re'lfu^ HREYSTI.
Fitness^Shop sport vöRuhus
Skeifunni 19 - S. 568 1 71 7
Fosshálsi 1 - S. 577-5858
ecco
DAGAR
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
HAMRABORG 3 • SfMI 554 1754
15%
ecco
Gangur lífsins