Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 44

Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ 44 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 Ráð gegn orkubruðli „ Við reynum oft að blekkja en innan í okk- ur, einhvers staðar undir spikinu, leynist alls ekki einhver pvengmjór og vansæll úti- lífsunnandi sem vill ólmur komast út. “ að er ekkert smáræði sem þarf til ef ein- hverjum á að takast að telja okkur á að gera uppreisn gegn því milda yflrvaldi, bílnum. Því má heldur ekki gleyma að hann er ekki bara stjórnandi okkar heldur einnig vinur í raun. Þeir sem ekki skilja tilfinn- ingasambandið milli manns og bfls eru sennilega hjartalausir. Þeir skynja ekki þakklætis- kenndina, hlýjuna sem fyllir hugann þegar bíleigandinn hnígur niður í sætið. Um gagn- kvæmnina er erfítt að fullyrða; ’. bílar tjá sig aldrei nema í hljóði. Við bfleigendur erum ham- ingjusamari en VIÐHORF annað fólk. Við ------ þurfum ekki að Eftir Kristján híma í kulda Jónsson Qg trekki inni í strætóskýli á haustin, þurfum ekki að bisa við að hjóla með rokið í fangið eða klöngrast yfir klakabunka á vet- urna. Við látum bílinn taka af okkur höggið og óstöðugt veð- v urfarið hér verður bærilegra. Og sé farartækið gætt meiri kynþokka en til dæmis roskinn Volvo erum við svo stolt að ein- hverjir kalla það hlutadýrkun. Þeir eiga víst vonda bfla eða enga. Hins vegar er sagt að þýskir eigendur Benz og BMW- eðalvagna gangi með mynd af þessum kæra vini sínum í vesk- inu. Og við þvoum bílnum okk- ar, var einu sinni sagt; ástúðin birtist í þágufallinu. Stöku fólk getur sýnt fram á að það þurfi nauðsynlega að eiga bfl, til dæmis foreldrar ungi-a barna eða fatlaðir. Við hin reynum stundum að búa til -< einhver falsrök, setjum upp al- vörusvip og geram mikið úr því hvað við vildum gjarnan geta verið bíllaus en því miður, að- stæðumar séu nú einu sinni þannig. Flestir sjá í gegnum þetta. Auðvitað er þetta ekkert annað en kattarþvottur og hræsni. Fullkomin strætisvagnaþjón- usta með ferðum á fimm mín- útna fresti og upphituðum skýl- um og reiðhjólabrautum, hvflík skelfing það væri ef einhverjum dytti í hug að bjóða okkur svona gæði. Þá væram við alveg mát. Get ég ekki treyst því að R-list- inn haldi sig á mottunni? Undir stýrinu söfnum við líka ístru og þá er að taka því, ein- hverju verður að fórna fyrir málstaðinn. Við reynum oft að blekkja en innan í okkur, ein- hvers staðar undir spikinu, leynist alls ekki einhver þveng- mjór og vansæll útilífsunnandi sem vill ólmur komast út. Alla leið út fyrir bflráðuna þar sem hinn heimurinn, þessi óskiljan- lega veröld spengilegra karla og kvenna sem ganga eða hjóla, gefur okkur langt nef. Nei, við eram bara svona. Breytingar á lífsstíl era þess eðlis að við tökum það venjulega óstinnt upp ef okkur er skipað fyrir í þeim efnum. Sem dæmi má nefna venjur í tengslum við hreyfingu, mat, drykk og tóbak að ég minnist ekki á kynlífið. Við heyrum rökin gegn ofneyslu og þau geta hljómað sannfær- andi en við tökum sjaldnast mikið mark á þeim nema eitt- hvað örlagaríkt gerist, til dæmis að heilsan bresti. Það er líka alltaf verið að ráðskast með okkur á öllum sviðum, hvergi friður. Ósiðir eiga hvergi skjól. Við heyjum hugsjónabaráttu. Yrði gengið of langt í boðum og bönnum til að gera okkur öll spræk fram á elliárin væri verið að þrengja að mannréttindum okkar með ofstjórn sem gæti hæglega endað í fasisma. Gegn þessari hættu spornum við, þessi forhertu, með því að hunsa viðvörunarorð lækna og annarra heilsupostula. En líka, þegar allt annað bregst, með pottþéttu sandkassasvari: Víst bara! En hvað með bensínbraðlið, getum við leyft okkur að fara svona með náttúraauðlindirnar? Ráðamenn heimsins efndu til ráðstefnu i Kyoto um vandann. Þeir vilja að við grípum til ráð- stafana gegn gróðurhúsaáhrif- unum svonefndu. Örþiifaráðið til að draga úr kæruleysislegu orkusukki gæti auðvitað verið að hræða okkur. Við myndum sætta okkur við breytta lífs- hætti ef við tryðum því að ella yrði heimsendir. En ég ætla nú að þybbast svolítið við. Hvemig er þetta með stað- reyndirnar? Þegar við gagnrýn- um jarðýtubröltið á hálendinu vegna virkjana og línulagna, bendum á að náttúruperlum sé fómað fyrir stundarhagsmuni, er ekki um neitt að villast. Við þurfum ekkert að nefna einhver vísindaleg rök til að sanna að rask eigi sér stað. Okkur duga eigin skynfæri og þá einkum sjónin til að mynda okkur skoð- un. Sama verður ekki sagt um gróðurhúsaáhrifin. Meira en 2.000 færastu vís- indamenn heimsins í veðurfars- rannsóknum vora heimildar- menn þegar Sameinuðu þjóðirn- ar sömdu skýrsluna Climate Change 95 fyrir nokkrum áram. Niðurstöðurnar um hugsanleg gróðurhúsaáhrif era vægast sagt miklu varfærnislegri en maður skyldi halda þegar hlýtt er á mál þeirra sem hæst hafa um hættuna. Ráðamenn þessa heims ætla sér ekki sjálfir að sýna gott for- dæmi, leggja bflnum og fara að hjóla i vinnuna. Það myndi trafla þá í mikilvægum hlut- verkum þeirra, starfsdagurinn myndi ekki nýtast nógu vel og svo framvegis. Verður einhvern tíma hætt við að halda nokkur þúsund manna alþjóðlega ráðstefnu um gróðurhúsaáhrifín vegna þess að mönnum óar við öllum flug- ferðunum og akstrinum, allri menguninni og koldíoxíðlosun- inni sem henni fylgja? Þá skal ég fara að trúa þeim vísindamönnum og stjórnmála- mönnum sem hafa sannfærst um að hlýnun andrúmsloftsins stafi aðallega af mannavöldum og heimta aðgerðir strax. Þá skal ég verða ábyrgari og losa mig við bflinn. AÐSENPAR GREINAR_ Tungutækni og stafrænt útvarp í FYRIRSÖGN þessarar greinar er vísað til tveggja þátta, sem eiga eftir að setja svip sinn á þróun ís- lenskrar tungu og notkun hennar. Tækn- in krefst þess, að við skoðum hug okkar á öllum sviðum og leit- um leiða til að nýta hana á skynsamlegan hátt án þess að glata því, sem okkur er ljúft og skylt að vernda. Hugtökin tungutækni og stafrænir talmiðlar eru mörgum framandi og verður leitast við að skýi-a þau í þessari grein. Tungutækni Tungutækni er nýtt hugtak í umræðum um íslensku eins og önnur tungumál. Þessi tækni gerir tölvum kleift að lesa til dæmis ís- lenskan texta og þýða hann vél- rænt á erlenda tungu, skilja mælt íslenskt mál og breyta því í texta eða tala íslensku. Þegar hefur ver- ið þróaður hugbúnaður af þessu tagi fyrir enskt málsamfélag, en hann skilar ekki enn fullkomnum árangri. Sumir spá því, að kín- verska málsamfélagið verði hið fyrsta til að tileinka sér þessa tækni til fullnustu, bæði vegna þess hve fjölmennt það er og einnig vegna hins, að hljóðtákn kínverskunnar falli einkar vel að þessari tækni. Augljóst er, að við Islendingar verðum að leggja í mikla vinnu og töluverðan kostnað til að tryggja að móðurmál okkar verði ekki sett til hliðar vegna þessarar þróunar í tölvutækni. I framtíðarsýn ríkisstjórnarinn- ar um upplýsingasamfélagið segir meðal annars, að standa beri vörð um íslenska tungu enda verði henni beitt í grunnþáttum upplýs- ingatækni og tölvutæk gögn, hvers kyns fróðleikur og menningarefni verði á íslensku, svo sem kostur er. Menntamálaráðuneytið hefur ráðið Rögnvald Ólafs- son, dósent við Háskóla íslands, til að stjórna rannsókn á stöðu og möguleikum tungutækni á Islandi. I rannsókninni á að svara spurningunni: Hvað er tungutækni? Þeir eru margir, sem gera sér ekki grein iyrir, hvað stendur á bakvið þetta nýyrði. Þá á í skýrslunni að lýsa stöðu mála hér á landi, fjalla um hið ritaða mál, tölvulestur, staðla og letur, þýðingar, leit í erlend- um gagnabönkum, tölvutal og tölvuheyrn, texta í tal og tal í texta. Einnig á í skýrslunni að meta kostnað við að gera íslenskt mál meðfærilegt tölvum og þeirri tækni sem nú er fyrirsjáanleg á þessu sviði. I niðurstöðunum á að felast ráðgjöf til menntamál- aráðheraa um nauðsynlegar að- Með orðunum tungutækni og stafrænu útvarpi er vísað til framtíðar, segir Björn Bjarnason og lítur á þróunina með hagsmuni íslenskrar tungu í huga. gerðir stjómvalda og hvernig best verði staðið að þeim. Taka skai mið af þörfum samfélagsins í heild. Er að því stefnt, að Rögnvaldur Ólafs- son skili skýrslu sinni um þetta mál í upphafi næsta árs. Stafrænt útvarp I frumvarpi til nýrra útvarps- laga, sem hefur verið kynnt þing- flokkum ríkisstjórnarinnar og verður væntanlega lagt fram á Alþingi innan skamms, er mennta- málaráðherra veitt heimild til að hefja undirbúning að stafrænu út- varpi. I þessari heimild felst fyrir- heit um að tekið verði að ræða þessar tæknibreytingar frá ís- lenskum sjónarhóli og hvernig unnt sé að staðfæra þær hér. Stafrænt útvarp, sjónvarp og hljóðvarp, er nú hafið í nágranna- löndunum eða er um það bil að hefjast, að minnsta kosti á til- raunastigi. Hin stafræna tækni gefur mikla möguleika til að nýta tíðnisviðið betur en nú er gert, og er þessi tækni þannig meðal annars megin- forsenda þess, að fleiri aðilar geti hafið raunveralega samkeppni, sérstaklega í sjónvarpi, auk víðtækari nota á tíðnisviðinu. Öll nýting VHF-tíðnisviðsins er nú í raun og veru aðeins í höndum tveggja aðila, Ríkisútvarpsins og Islenska útvarpsfélagsins hf. Auk betri nýtingar á tíðnisviðinu mun sá kostur fylgja stafrænu útvarpi, að gæði útsendinga aukast til mik- illa muna auk fjölmargra annarra kosta, svo sem að skapa möguleika á þáttasölusjónvarpi, pay per-view, og kvikmyndapöntun, video on demand. Hin stafræna tækni er forsenda hins svokallaða samrana, convergence, sjónvarps, fjarskipta og tölvutækni í eitt svið með óljós- um landamærum eða án landamæra. Gera verður ráð fyrir, að innleiðing stafrænu tækninnar taki allmörg ár og hafi í för með sér verulegan kostnað. Staða íslenskunnar Þegar litið er á þessa nýju tækni út frá sjónarhóli íslenskrar tungu og með eflingu hennar í huga, skipta tvö meginatriði sköpum: I fyrsta lagi, að við nýtum tungutækni í þágu íslenskunnar og styi’kjum tunguna þannig stafrænt í sessi. Tæknin má ekki ýta ís- lensku til hliðar. I öðru lagi verði tölvutæk ís- lenska fléttuð inn í alla stafræna þróun útvarpsreksturs á Islandi. Höfundur er menntamálaráðherra. Björn Bjarnason Konur og kvóti NÝR flokkur, flokkurinn, haslar sér völl á vettvangi ís- lenskra stjórnmála og boðar til stofnfundar dagana 28. og 29. nóvember nk. Þessi nýi flokkur hefur frelsi einstak- lingsins og sjálfstæði til orða og athafna að leiðarljósi og mun berjast gegn frjáls- hyggjunni, sem núverandi stjórnar- flokkar hafa reynst syo ískyggilega hallir undir. Sérstakt baráttumál Frjálslynda flokksins verður að kollsteypa núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og benda á raunhæfar leiðir til úrbóta. Fyrir skömmu voru birtar nið- urstöður úr skoðanakönnun, þar sem fram kom að um 80% þjóðar- innar telja æskilegt að konur taki virkari þátt í stjórnmálum á ís- landi. Ég vil því hvetja íslenskar konur til að ganga til liðs við þetta nýja stjórnmálaafl og fá, með þátt- töku í stefnumótun nýs stjórn- málaflokks, tækifæri til að hafa áhrif á þróun lífskjara í landinu. Að undanförnu hef- ur gegndarlaus áróð- ur Landssambands ís- lenskra útvegsmanna (LÍÚ) dunið á landsmönnum í öllum fjölmiðlum. Meginefni áróðurins er, að al- menningur njóti góðs af því góðæri sem rík- ir í sjávarútvegi um þessar mundir og því séu allar breytingar á fiskveiðistjórnun afar varhugaverðar. En landsmenn ættu að vera minnugir þess, að þegar harðnað hef- ur á dalnum hingað til hjá útgerðinni, þá var það sá hinn sami almenningur sem átti að taka á sig gengisfellingar vegna þess að það varð að bjarga útveg- inum - okkar undirstöðugrein - frá falli. Allir eru sammála um að sýna þurfi mikla aðgát við sókn í fiski- stofna, en það er megn óánægja með hvernig staðið hefur verið að úthlutun aflaheimilda. Auðæfi hafsins voru með kvótalögunum fengin í hendur nokkrum mönn- um sem hafði lánast að stunda sjóinn á þeim þremur árum sem Við konur höfum frá ómunatíð staðið vörð um framtíð afkomenda okkar, segir Margrét Sverrisdóttir, og þurfum ekki að kunna skil á snurvoð eða dragnót til að láta okkur þessi mál varða. tekið var mið af við setningu lag- anna og nýliðun í atvinnugreininni getur engin orðið eins og málum er nú háttað. Við konur höfum frá ómunatíð staðið vörð um framtíð afkom- enda okkar og þurfum ekki að kunna skil á snurvoð eða dragnót til að láta okkur þessi mál varða. Okkur nægir að láta réttlætis- kenndina ráða för er við bjóðum fram krafta okkar í þágu nýs stjórnmálaflokks. Höfundur vinnur að stofnun Frjáls- lynda flokksins. stjórnmála- Frjálslyndi Margrét Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.