Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 47
AÐSENDAR GREINAR
Óhreinu
börnin?
ÁGÆTI leikhúsmaður Jón Viðar
Jónsson.
Ástæða þess að ég skrifa þetta
bréf er sú að í þættinum Mósaík í
sjónvarpinu miðvikudaginn 28.
október sl., þar sem þú fjallaðir um
barnaleikhús á íslandi, nefndir þú
ekki einu orði þær fjölmörgu
barnasýningar sem áhugaleikfélög
út um allt land hafa sett upp í
gegnum árin. Því spyi' ég: Er
áhugaleikhús einhvers konar
„tabú“ í þínum huga?
Ég veit ekki einu sinni hvort þér
er það ljóst að yfir 70 áhugaleikfé-
lög starfa á Islandi og hafa þau
flest sinnt börnum mjög vel í gegn-
um árin. Á síðasta leikári,
1997-1998, settu áhugaleikfélögin
upp tugi uppfærslna og þar af voru
Er áhugaleikhús ein-
hvers konar „tabú“ í
þínum huga? spyr Örn
Alexandersson í opnu
bréfi til Jóns Viðars
Jónssonar.
átta barnaleikrit. Leikárið
1996-1997 voru sömuleiðis færð
upp sjö barnaleikrit af áhugaleikfé-
lögum vítt og breitt um landið.
Ágætt dæmi um alúðarríkt leik-
starf fyrir börn er starfsemi Leik-
félags Kópavogs. Undanfarinn ára-
tug hefur félagið fært upp sjö
barnasýningar, þar af fimm frum-
flutt verk. Þetta eru:
Fróði og allir hinir
gríslingarnir, Virgill
litli, I Súrmjólkur-
þorpi, Ottó nashyrn-
ingur, Rúi og Stúi,
Galdrakarlinn í Oz og
Umhverfis jörðina á 80
dögum. Þessa hafa
tugþúsundir barna á
höfuðborgarsvæðinu
notið í gegnum árin.
Framboð á leiknu
efni fyrir börn hefur
stóraukist á undan-
förnum árum. Það er
hins vegar hollt að
minnast þess, að áður
en ýmsir atvinnuhópar
og stóru leikhúsin fóru að „gera út“
á leiksýningar fyrir börn með þeim
reglulega hætti, sem tíðkast hefur
á allra síðustu áram, voru það aðal-
lega áhugaleikhópar sem sinntu
þessum aldurshópum. Það er því
sjálfsögð og eðlileg krafa þess
fólks, sem af áhuga einum saman
hefur haldið úti blómlegu barna-
leikhúsi í gegnum árin, að á starf
þess sé minnst þegar þessi mál ber
á góma.
Gróskan í íslensku
leikhúslífi á ekki síst
rót að rekja til gras-
rótarinnar í áhugaleik-
félögum um allt land.
Þau hafa í gegnum tíð-
ina kveikt áhuga
margra á leikhúsi og
sá neisti hefur einatt
orðið til að skápa góða
og kröfuharða leikhús-
gesti og eins verið
ýmsum hvatning til að
hefja skipulagt leiklist-
amám. Fjölmargir af
fremstu leikurum
þjóðarinnar hafa
einmitt notið „for-
náms“ innan vébanda,
áhugaleikfélaganna.
I lögum um Ríkisútvarpið -
Sjónvarp segir: „Ríkisútvai-pið skal
leggja rækt við íslenska tungu,
sögu þjóðarinnar og menningararf-
leifð. Það skal gæta fyllstu óhlut-
drægni í frásögn, túlkun og dag-
skrárgerð." Upphaf leiklistar á Is-
landi var í áhugaleikfélögum og því
er starf þeirra óumdeilanlegur
hluti af menningarai'fleifð okkar.
Metnaðarfullt og kröftugt áhuga-
leikstarf um allt land er og góður
vitnisburður um þroskað menning-
arsamfélag, þar sem almenningur
finnur farveg til að rækta og efla
sköpunarkraftinn. Af einhverjum
ástæðum hefur ríkisrekna sjón-
varpsstöðin, sem byggir tilvist sína
á eflingu menningarstarfs í land-
inu, viljað líta framhjá þessum
staðreyndum að mestu í gegnum
árin.
Ég vil annars þakka sjónvarpinu
fyrir mjög góðan og oft á tíðum
fræðandi menningarþátt.
Að lokum vil ég nefna að mál-
þing um stöðu og horfur áhugaleik-
hússins á íslandi verður haldið í
Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn
14. nóvember, á degi áhugaleik-
hússins.
Höfundur er áhugaleikari.
Aðsendar greinar á Netinu
(m} mbl.is
-ALLTA/= errTH\TAO /\/Ý77
Örn
Alexandersson
V I N N u /au G
G A
Vélaverkstæði
Þekkt vélaverkstæði óskar eftir að ráða menn
til viðgerða á díselvélum.
Æskilegt er að menn séu lærðir vélvirkjar eða
vélfræðingar. Snyrtileg vinnuaðstaða og góð
laun í boði fyrir rétta menn.
Umsóknir berist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„V — 1710", fyrir 25. nóvember nk.
Matreiðslumaður
Lítinn veitingastað vantar matreiðslumann
til að hafa yfirumsjón með eldhúsi.
Góð laun fyrir duglegan mann.
Umsóknir berist til afgreiðslu Mbl. fyrir
24. nóvember merktar: „H — 6886".
VeitingadeiLd Hótet Loftleiða óskar aó ráóa vanan
bakara sem atlra fyrst.
Góóur vinnutími og góð vinnuaðstaóa.
Starf skrifstofumanns
í Snæfellsbæ
Laust er til umsóknar starf skrifstofumanns
á umboðsskrifstofu sýslumannsins í Stykkis-
hólmi, Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, í
Snæfellsbæ. Um er að ræða hálft starf fyrir
hádegi á umboðsskrifstofu embættisins í Snæ-
fellsbæ við almenn skrifstofustörf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála-
ráðuneytisins og BSRB.
Umsóknir skulu berast skrifstofu sýslumanns-
ins í Stykkishólmi, Aðalgötu 7, Stykkishólmi,
eigi síðar en 11. desember nk.
Frekari upplýsingar veita sýslumaður eða aðal-
bókari í síma 438 1220.
Stykkishólmi, 17. nóvember 1998.
Ólafur K. Ólafsson,
sýslumaður.
hjúkrunarheimili, Kleppsvegi 64
Umönnun
Sjúkraliðar og starfsfólk við umönnun
óskasttil starfa nú þegar.
Skjól er nýlegt hjúkrunarheimili þar sem hjúkr
un og umönnun aldraðra er veitt í hlýlegu
umhverfi. Góð starfsaðstaða.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
568 8500.
Umsóknir á staðnum milli kl. 14 - 18.
Veitingadeitd Hótel Loftleiða
HOTEL LOFTLEIÐIR
ICELANDAIR HOTELS
I.O.O.F. 11 ■ 17911198Vá = Fl.
Landsst. 5998111919 VIII
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.30 Lofgjörðarsamkoma
Eirný Ásgeirsdóttir talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
T7
KFUM
V
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
íslenskt safnadastarf
á Norðurlöndum
Umsjón: Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson. Upphafsorö: Ólafur
Sverrisson. Fundurinn hefst kl.
20.30. Allir karlmenn velkomnir.
TILKYNNINGAR
Auglýsendur athugið
skilafrest!
Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-,
rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast
í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12
á föstudag.
auglýsingadeild
sími 569 1111
símbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
Viðtalstími
hjá Tómasi Inga
Tómas Ingi Olrich alþingismað-
ur hefur viðtalstíma föstudaginn
20. nóvember kl. 10 — 12 og
13.30—16 í Kaupangi, Akureyri.
Vinsamlega pantið tíma í síma
462 1500 eða 462 3557.
TIL. SÖLU
Hvaða þingmaður vill
upplýsa um þjóðhagslegar og lagalegar for-
sendur Grundartangaálvers, svo sem kostnað-
ar- og söluverð raforku og lögmæti gagnvart
Rio-sáttmála? Skýrsla um samfélag fæst í
Leshúsi, veffang: Sjá símaskrá.
FUNDIR/ MANNFAGNAQUR
Aðalfundur
Hraðfrystihúss Hellissands
verður haldinn í Líkn, Hellissandi, 27. nóvem-
ber kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
3. Önnur mál.
FÉLAGSSTARF
VLandbúnaðarnefnd
Sjálfstæðisflokksins
íslenskur landbúnaður
á nýrri öld
Málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um landbúnaðarmál boðar til
fjögurra opinna funda um landbúnaðarmál.
Annar fundur verður:
Fimmtudaginn 19. nóvember, kl. 21.00, fundarstaður Stadar-
flöt, Staðarskála, Hrútafirði.
Framsöguerindi flytja:
Drífa Hjartardóttir, bóndi, Keldum, Kjartan Þ. Ólafsson, garðyrkju-
bóndi, Selfossi. Pétur Ó. Helgason, bóndi, Hranastöðum, Markús
K. Möller, hagfræðingur, Hjálmar Jónsson, alþingismaður.
Fundarstjóri er Ólafur B. Óskarsson, bóndi, Víðidalstungu.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
www.mbl.is
Stjórnin.