Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 62

Morgunblaðið - 19.11.1998, Page 62
62 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SVEINN TÓMASSON + Sveinn Tómas- son, fyrrverandi slökkviliðsstjóri á Akureyri, fæddist á Bústöðum í Lýtings- staðahreppi í Skagafirði 30. júlí 1904. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 7. nóvember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Akur- eyrarkirkju 12. nóv- ember. Hverjum og einum er það lán að kynnast góðu fólki, ekki síst á mót- unarskeiðinu milli tektar og tví- tugs. Þess naut ég í ríkum mæli í Laugargötu 3, á heimili þeirra Sveins Tómassonar og Helgu Gunnlaugsdóttur, konu hans. Þeim á ég mikla skuld að gjalda, sem mér endist ekki ævin til í orði, hvað þá verki. Nú, þegar Sveinn er allur og hugurinn leitar til baka, finn ég glöggt að um kynni mín af Sveini verður ekki fjallað án þess að Helga komi inn í myndina - og öf- ugt. Helga og Sveinn - Sveinn og Helga; tvær persónur sem í mínum huga voru og eru eitt, þrátt fyrir að mörgu leyti mjög ólíkan persónu- leika. Milli þeirra ríkti gagnkvæm- ur skilningur og tillitssemi sem skapaði notalegan heimilisbrag. Hjá þeim átti ég annað heimili á menntaskólaárunum og þar var gott að vera. Eg kom alls ókunnugur í lands- prófsdeild Menntaskólans á Akur- eyri haustið 1956. Þar kynntist ég fljótlega syni þeirra Sveins og Helgu, Tómasi, og tókst með okkur vinátta sem aldrei hefúr síðan borið skugga á, þótt lengi hafi höf skilið. Þannig varð ég heimagangur hjá Sveini og Helgu, og má með sanni segja að ég hafi verið það allar götur síðan. Sveinn var einkar hæglátur maður og dagfarsprúður og fór síst um með gusti en hann var fastur fyrir og fylginn sér að koma fram málum sem hon- um var umhugað um. Hann valdist til trún- aðarstarfa og var ætíð sannfæringu sinni trúr og sjálfum sér sam- kvæmur, velvirkur, traustur, orðheldinn og heiðarlegur fram í fingurgóma. Hann var orðvar og sanngjarn í dómum um menn og málefni. Eg man ekki til að hafa heyrt hann hallmæla nokkrum manni. Leið okkar skólafélaganna lá oft í Laugargötuna. Þau Sveinn og Helga voru okkur í senn sem for- eldrar og félagar og það var oft býsna glatt á hjalla við eldhúsborð- ið yfir mjólkurglasi eða kaffibolla, jólaköku Helgu og lummum eða vöfflum Sveins. Hann hafði nánast einkaleyfi á gerð þess meðlætis, sem engan sveik. Auk þess var dunka- eða pottbrauðsgerð innan verksviðs hans sem og að passa ofninn þegar bakað var til jóla. Mér þótti allsérstakt að húsbónd- inn skyldi gerast sjálfboðaliði til þessara verka en naut góðs af og innvígðist hjá honum í kúnstina að gera vöfflur með óhefðbundnum bætiefnum af ýmsu tagi, sem hann notaði gjarna og húsmóðirin hafði í flimtingum og þótti ekki mikið til koma. Einn eftirminnilegasti vöfflubaksturinn varð eitt sinn þegar von var á nokkrum vinkon- um Helgu í kaffi. Þá notuðum við bjúgu sem bætiefni í sumar vöffl- urnar og tókst svo vel að fela sneið- arnar að engin missmíði sáust á + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, LILJA V. HJALTALÍN ARNDAL, andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnar- firði fimmtudaginn 12. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði föstudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Jón Hj. F. Arndal, Margrét Jóhannsdóttir, Finnbogi F. Arndal, Hjördís S. Arndal, Kristjana F. Arndal, Þorgeir Þorgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, KARÓLÍNA STEFÁNSDÓTTIR, Bergþórugötu 6b, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 17. nóvember. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Stefán Óli Árnason, Guðmundur Árnason, Guðbjörg Árnadóttir, Steinunn Árnadóttir. Ástkær systir og mágkona okkar, GUÐRÍÐUR ÞORKELSDÓTTIR, Grænumörk 1, Selfossi, sem lést á Ljósheimum sunnudaginn 15. nóv- ember, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Sesselja Þorkelsdóttir. EINAR SÍMONARSON vöfflunum. Býsna stoltir voru bak- arar að loknu vel heppnuðu verki. Svo var bara að bíða og sjá svipinn á konunum þegar þær færu að gæða sér á bjúgnavöfflunum. Ekki man ég glöggt hvernig fór en minnir þó helst að engin þeirra hafi lent á „bættri“ vöfflu og við yrðum af þeirri ánægjunni - en við skemmtum okkur konunglega við baksturinn. Þannig var Sveinn. Hann átti ríka kímnigáfu þótt alvörumaður væri og kunni vel að meta græsku- laust gaman og smáhrekki. Þess vegna fundum við skólastrákarnir ekki giska mikinn aldursmun hans og okkar þótt hálfur fjórði áratugur væri á milli. Hið sama átti við um Helgu. Sveinn var heilsuhraustur þegar ég kynntist honum fyrst, varð aldrei misdægurt og vann mikið. En tíminn vinnur sitt verk hægt og bítandi. Fyrir mörgum árum fór heyrnin að bila og það háði honum mjög eins og nærri má geta. Helga var hins vegar furðu hress þótt ald- urinn færðist yfir en þó böguðu hana skemmdir liðir í mjöðmum og hún leið oft mikar kvalir. Því betur var hægt að bæta líðan hennar og auka hreyfigetu með nýjum liðum, og léttir var að verkirnir hurfu að mestu. Heyrn bónda hennar var hins vegar ekki hægt að endur- heimta, því miður. Sveinn og Helga voru svo lánsöm að geta verið heima eins lengi og mögulegt var. Þau nutu umhyggju barna, tengdabarna og barnabarna, sem litu til þeirra og hjálpuðu eins og þurfti. Það mátu þau mikils. Þegar þau svo þurftu meiri umönnunar við en hægt var að veita heima fluttu þau á Dvalar- heimilið Hlíð og hafa búið þar síð- ustu árin. Nú er komið að leiðarlokum. Við Bogga kveðjum með söknuði góðan dreng og kæran vin og þökkum samfylgdina okkar útmælda skeið. Einnig sendum við Helgu og fjöl- skyldum allra afkomenda þeirra Sveins innilegar samúðarkveðjur. Þórir og Aðalbjörg. + Július Smári Baldursson fæddist á Akureyri 8. sept- ember 1970. Hann lést 7. nóv- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Glerárkirkju á Akureyri 13. nóvember. Sumt er í lífinu óskiljanlegt. Eins og til dæmis það að í þennan heim skuli fæðast drengur, heilbrigð sál í svo veikburða líkama. Við getum stöðugt velt vöngum yfir þessu en fátt verður um svör. Einhver hlýtur þó ástæðan að vera, eitthvað hlýtur að búa að baki. Og svo er hann hrif- inn á brott svona ungur. Eflaust komum við ekki til með að leysa þessa óskiljanlegu lífsgátu, a.m.k. tEinar Símonarson var fæddur í Reykjavík 8. sept- ember 1920. Hann lést 6. nóv- ember siðastliðinn og fór útför hans fram frá Grindavíkur- kirkju 14. nóvember. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyi'ir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku afi. Lífið er ekki eins og við kjósum. Eg veit að þú bast miklar vonir við hjartaaðgerðina sem þú varst búinn að bíða svo lengi eftir. Þú varst skipstjóri og útgerðarmaður. Lífið snerist um sjóinn. Alltaf varst þú fyrstur niður á bryggju til að at- huga aflann þegar Hafbergið sigldi inn eftir að þú hættir til sjós. Stundum hringdir þú til mín að fá fréttir af afla eða láta mig vita hvað Hafbergið væri að fiska. Það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu á Eyvindarstaði. Þá var spjallað um fiskveiðar, kvóta og fótbolta eða hvað sem var. Þú varst mikið fyrir kappleiki og hafðir mikla ánægju af að horfa á leiki í sjónvarpinu. Afi, þú og amma eigið um 50 af- komendur. Þetta var allstór hópur, þegar flestir voru komnir með maka og við hittumst hjá ykkur ömmu í jólaboðinu sem var fastur punktur í tilverunni hjá okkur öll- um. Elsku afi, það er erfitt að kveðja því ég hefði viljað koma oft- ar til ykkar. Elsku amma Sóla, guð gefi þér og öðrum aðstandendum styrk á þessum erfiðu tímum. Hvíl þú í friði elsku afi minn. Sigríður (Sirrý), Stefán og dætur. ekki í þessu lífi... Smári hefur nú komist að hinu sanna og þjónar ef til vill öðru hlutverki í dag en því sem hann gegndi hér hjá okkur, þar sem hann ekki þarf að þjást og get- ur nú hlaupið um og gert allt sem hann þráði svo mikið að gera. Smári minn! Takk fyrir góð en stutt kynni. Við brölluðum ýmislegt saman sem ég mun aldrei gleyma. Alltaf var stutt í grallaralega brosið þitt, sama á hverju gekk. Það er skrýtið að þú skulir hafa þurft að kveðja svona fljótt. Eg bjóst við að sjá þig aftur, en það verður að bíða betri tíma. Þá skulum við sko bralla fullt saman. Takk fyrir að hafa verið til. Foreldrum, systrum, ættingjum og vinum Smára votta ég mína dýpstu samúð. Jóhanna G. Jóhannesdóttir. Elsku afi minn. Hér kemur kveðja frá mér til þín. Eg vil þakka þér allt, sérstak- lega samverustundirnar, jólaboðin og spilastundirnar okkar. Oft var spilað að Eyvindarstöðum, það var spilaður manni og vist eftir því hvað margir voru í heimsókn, einnig tóku amma og afi oft í spil bara tvö, núna seinni ár er tími gafst til. Eg átti góða stund með ykkur ömmu aðeins nokkrum dög- um áður en að þú fórst á spítalann og spiluðum við manna eins og svo oft áður og spjölluðum um lífið og tilveruna og er það mér alveg ómetanleg stund er við áttum sam- an daginn þann. Það var oft glatt á hjalla yfir spilum og öðru heima hjá afa og ömmu, t.d. eru morgun- stundirnar á sunnudögum ógleym- anlegar svo og bíltúrarnir í gamla daga þar sem farið var í lautar- ferðir og náttúrunnar notið í ná- grenni Grindavíkur. Svo og heim- sóknirnar ykkar austur til mín á sumrin og skruppum við þá iðu- lega að Hamragörðum undir Eyja- fjöllum, þar sem þú varst í sveit er þú varst strákur og fannst þér það alveg ómissandi að keyra á þessar gömlu slóðir svo og að heimsækja Sillu systur þína og Gunnar í Ar- túnum á Rangárvöllum þar sem strákarnir þínir voru í sveit og einnig ég. Afi minn, fyrir stuttu minntir þú mig á það að ég hefði einu sinni sagt að ég ætti bestu ömmuna og besta afann í heimi. Mér þótti vænt um að þú skyldir muna eftir því, ég man svo sannarlega eftir því og er það ekki ofsögum sagt og finnst mér það enn þann dag í dag. Sem betur fer getur ekkert tekið í burtu minningarnar mínar og okkar allra í fjölskyldunni um góðan mann, fóð- ur og afa, hann var bestur og er ætíð bestur. Eg heimsótti þig á spítalann og sá þig í síðasta sinn fimmtudags- kvöldið 5. nóvember. Þú varst mjög veikur þá og leist á mig tóm- um og sorgmæddum augum er ég sagði við þig: „Afi minn, horfðu á mig. Þetta er bara ég, hún Agga litla,“ og þú svaraðir: „Já, ég veit það,“ með erfiðismunum og þrýstir aðeins hönd mína. Eg bauð þér síðan góða nótt, afi minn, ég kvaddi þig ekki því að í hjarta mínu ertu og verður alltaf lifandi. Þrátt fyrir að ég sé elsta barna- barnið var ég alltaf hún Agga litla hjá þér og ömmu, enda mikið hjá ykkur er ég var lítil og alveg þang- að til að ég fluttist í burtu úr Gr- indavík. Og er ég hringdi stundum í ykkur og var búin að tala aðeins við þig kallaðir þú á ömmu í sím- ann og sagðir: „Sóla mín, það er lítil stelpa í símanum sem langar til þess að heyra í þér.“ Og ég sagði kannski: „Ekki trufla hana ef hún er í kjallaranum að baka sínar frægu góðu flatkökur." En ef hún var uppi sagðir þú stundum: „Hún er hérna við hliðina á mér, ég held svona yfir um hana.“ Þið voruð svo innileg og kær hvort öðru að það var alveg yndislegt og hlýjaði manni um hjartaræturnar. Eg geymi þetta og svo margt annað í hjarta mínu, einnig drauminn sem mig dreymdi nóttina eftir að þú lést. Þú komst til mín og settir hönd þína í mína og leiddir mig áfram fram á veg; ég trúi því að þú ætlir að leiða mig áfram í lífinu, og veitir það mér mikinn styrk í sökn- uði mínum. Afi minn, guð geymi þig, og amma mín, þú átt samúð mína alla og guð gefi þér styrk í fram- tíðinni. Lífsins faðir, ljóssins herra leiði þig um gæfu stig. Vonin sanna, vorið blíða vefy kærleiks örmum þig. (E.B. Gíslason) JÚLÍUS SMÁRI BALD URSSON ^arasKom v/ T'ossvoqskii'kjugarð y s. Símii 554 0500 5 Erfidrykkjur E Simi 562 0200 IITITTTTI Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Sverrir Olsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Utfararstofa Islands Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Agnes Guðbergsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.