Morgunblaðið - 19.11.1998, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 63
MINNINGAR
RÚTUR
HALLDÓRSSON
+ Rútur Halldórs-
son fæddist 15.
september 1925.
Hann lést 10. nóvem-
ber síðastliðinn. Fað-
ir hans var Halldór
R. Gunnarsson kaup-
maður f. 26. apríl
1896, d. 29. febrúar
1964. Móðir hans var
Steinuim G. Gunn-
arsson (f. Solvason),
f. í Kanada 5. sept.
1901, d. 7. okt. 1989.
Systkini: Gunnai'
Kristinn, dó í bam-
æsku, Guðrún Stein-
unn og Brynólfur Hermann.
Rútur útskrifaðist úr Verzl-
unarskóla fslands, stúdent
1946 og frá Uni-
versity of Birming-
liam, Englandi,
með BA-gráðu í
ensku og enskum
bókmenntum 1950.
Fyrstu árin eftir
nám vann hann við
kennslu og skrif-
stofustörf en réðst
síðan til Orkustofn-
unar og vann þar til
starfsloka. Hann
rak verzlunina
Manchs 1964 (með-
fram vinnu á Orku-
stofnun).
Útför Rúts fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag og hefst athöfn-
in klukkan 15.
Ég kynntist Rúti Halldórssyni
fyrst árið 1959 er hann hóf störf hjá
raforkumálastjóra. Við vorum sam-
starfsmenn æ síðan allt fram undir
vor 1997, er við unnum saman að
ýmsum „eftirhreytum" eftir starf
mitt sem orkumálastjóri sem ég lét
af haustið 1996.
Rútur starfaði að söfnun og úr-
vinnslu efnis í orkuskýrslur sem
raforkumálastjóri, og síðar Orku-
stofnun, gaf út undir heitinu „Orku-
mál“. Hann var alla tíð ritstjóri
þess. Starfi þessu fylgdu mikil sam-
skipti við rafveitur og önnur orku-
fyrirtæki. Þau samskipti rækti Rút-
ur af mikilli alúð og samviskusemi
og ávann sér vinsældir þeirra sem
hann skipti við. Eins og gengur með
söfnun upplýsinga þurfti hann oft
að ýta á eftir til að fá þær. Hann
hafði þar lag á að hvorutveggja;
festu og lipurð og varð vel ágengt.
Starfi Rúts að orkuskýrslum
fylgdi að annast samskipti af hálfu
raforkumálastjóra og Orkustofnun-
ar um íslensk orkumál við ýmis al-
þjóðasamtök, svo sem Sameinuðu
þjóðirnar, ÓECD, Alþjóða-orku-
málastofnunina (IEA) og norræn
samtök, svo sem NORDEL og
fleiri. Þessi samskipti rækti Rútur
af mikilli samviskusemi og lét sér
annt um að upplýsingar héðan bær-
ust á réttum tíma þannig að ekki
væru eyður undir nafni íslands í al-
þjóðlegum skýrslum um orkumál.
Auk þessara starfa var Rútur
framkvæmdastjóri íslensku lands-
nefndarinnar í Alþjóða orkuráðinu,
sem er óháð samtök landsnefnda í
milli 90 og 100 löndum. ísland gerð-
ist aðili að þessum samtökum í
kringum 1950. Raforkumálastjóri
og síðar orkumálastjóri hefur æ
síðan verið formaður íslensku
landsnefndarinnar og annast skrif-
stofuhald hennar. Þessu starfi
fylgdu, eins og orkuskýrslunum,
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyiár hádegi á föstudag. I mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein efth-
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum bh'tingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
einnig allmikil erlend samskipti,
sem Rútur rækti alla tíð af alúð og
samviskusemi. Kom sér þar vel að
hann var mjög vel að sér í enskri
tungu, með MA-próf í henni frá
Englandi.
Þá var Rútur ritari Orkuráðs frá
hausti 1987 til vors 1997.
Rútur Halldórsson var maður
hógvær og lítt fyrir það gefinn að
láta á sér bera. Kom það sér vel því
að starf hans var þess eðlis að það
dró lítt að sér blaðamenn og ljós-
myndara. Hygg ég að hann hafi
ekki saknað þess. Hins vegar varð
ég þess oft var hversu ánægður
hann var þegar verkefni var farsæl-
lega lokið. Hann gladdist yfir vel
unnu verki. Það er mikil lífsham-
ingja að geta það.
Nú er leiðir skiljast er mér efst í
huga þakklæti fyrir langt og gott
samstarf við Rút Halldórsson.
Blessuð sé minning hans. Aðstand-
endum hans vottum við hjónin
dýpstu samúð.
Jakob Björnsson.
Gamall vinur og skólafélagi, Rút-
ur Halldórsson, lést 10. nóvember
síðastliðinn eftir erfiða baráttu við
illvígan sjúkdóm og fer útför hans
fram í dag. Rútur var einn úr hópi
okkar sem útskrifuðumst úr Verzl-
unarskólanum vorið 1944, nokki-um
dögum fyi’ir stofnun íslenzka lýð-
veldisins. Að loknu verzlunarprófi
hóf Rútur nám í lærdómsdeild
skólans og útskrifaðist sem stúdent
vorið 1946. Að því loknu fór hann
utan til náms í ensku og enskum
bókmenntum við háskólann í
Birmingham í Englandi og lauk
þaðan BA-prófi vorið 1950. Eftir að
heim kom vann hann við kennslu
og skrifstofustörf auk þess sem
hann rak um tíma verzlunina
Manchester, að föður sínum látn-
um. Eftir það réðst hann til starfa
hjá Orkustofnun og starfaði þar
óslitið allt þar til hann komst á eft-
irlaunaaldur.
Með Rúti er genginn góður
drengur og grandvar. Hann vakti
strax í skóla eftirtekt fyrir ein-
staka samvizkusemi í námi. Það
var allur gangur á því hvað menn
voru vel lesnir fyrir tíma, en Rútur
skilaði alltaf sínu með sóma. Hann
var einstaklega hógvær maður og
lítt fyrir að trana sér fram, enda
vel liðinn af öllum sem kynntust
honum. I skóla var stofnað til vin-
áttu og tryggðabanda sem aldrei
brustu og efldust enn þegar bekkj-
arsystkinin hófu að hittast reglu-
lega á ný rúmri hálfri öld eftir að
skóla lauk. Að leiðarlokum er ljúft
og skylt að þakka samveru, tryggð
og trúnað. Rúts verður sárlega
saknað úr hópnum.
Við færum systkinum hans og
öðram ættingjum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Bekkjarsystkinin.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ARNÓR SIGURÐSSON
frá Sauðárkróki,
Fögrubrekku 16,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 21. nóvember kl. 11.00.
Minningarathöfn fer fram í Fossvogskapellu
föstudaginn 20. nóvember kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast Arnórs, er bent á líknarfélög.
Stefanía Arnórsdóttir, Jón Benedikt Björnsson,
Sveinn Tumi Arnórsson, Áslaug Ásgeirsdóttir,
Uggi Jónsson, Halla Jónsdóttir,
Lilja Rún Tumadóttir, Egill Uggason.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓFRÍÐUR GRÓA SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður til heimilis
á Snorrabraut 81,
sem Iést á Landspítalanum föstudaginn 13. nóvember, verður jarðsungin
frá Áskirkju á morgun, föstudaginn 20. nóvember kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar, er bent á að láta Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra eða Sjálfsbjörgu njóta þess.
Guðmundur Lárusson,
Lárus I. Guðmundsson, Jón Valgeir Guðmundsson,
Kristján S. Guðmundsson, Sigurlaug Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Þökkum innilega sýndan hlýhug og vináttu
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu og mágkonu,
UNNAR ÓLADÓTTUR
frá Bakka,
Seltjarnarnesi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín, Ásdís, Guðrún og Auður
Kjartansdætur.
+
Faðir okkar,
JÓNAS SIGURÐSSON
frá Hallsbæ,
Hellissandi,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 18. nóvember.
Börn hins látna.
+
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og bróðir,
ÞÓRÐUR GUÐJOHNSEN,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 18. nóvember.
Friðjón Guðjohnsen, Gíslína Ólafsdóttir,
Dóra Jakobsdóttir Guðjohnsen,
Kristín Guðjohnsen,
Stefán Guðjohnsen.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN S. SCHEVING
frá Heiðarhvammi,
síðast til heimilis í Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin frá Landakirkju Vestmanna-
eyjum, laugardaginn 21. nóvember kl. 14.00.
Sigfús Helgi Scheving, Ásdís Ástþórsdóttir,
Björn ívar Karlsson, Helga Jónsdóttir,
Sigurður Örn Karlsson, Margrét V. Eiríksdóttir,
Hrafn Karlsson, Anna María Baldvinsdóttir,
Sesselja K. S. Karlsdóttir, Stefán Brandur Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA PÉTURSDÓTTIR,
Espilundi 5,
Akureyri,
sem andaðist 13. nóvember sl., verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju á morgun, föstu-
daginn 20. nóvember, kl. 13.30.
Árni Árnason, Margrét Þorvarðardóttir,
Valmundur P. Árnason, Ingibjörg Ringsted
og ömmubörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
bróðir,
GUNNAR PÁLSSON,
verður jarðsunginn frá Garðakirkju föstu-
daginn 20. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrafnhildur Gunnarsdóttir,
Kristín Gunnarsdóttir,
Ragnheiður Gunnarsdóttir,
Kristín Pálsdóttir.
+
Inniiegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts og útfarar
ÁSTU ÓLAFAR ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Flateyri.
Jón Guðmundsson, Hólmfríður Benediktsdóttir,
Ásmundur Guðmundsson, Sigríður Einarsdóttir,
Dórótea Guðmundsdóttir, Jón Guðjónsson,
Þórður Guðmundsson,
Gunnar Guðmundsson,
Steinar Guðmundsson,
Gústaf Guðmundsson,
Þórdís Guðmundsdóttir,
Ásta Sveinsdóttir,
Hulda Hjálmarsdóttir,
Ásthildur Gísladóttir,
Anna María Einarsdóttir,
Sigurjón Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.