Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 80

Morgunblaðið - 19.11.1998, Síða 80
Það besta úr báðum heimum! I unix og NT = hp OPINKERFIHF ¥hp% hewlett PACKARD MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Loftsteinn yfír Anst- urlandi RAGNAR Axelsson ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa mynd af loftsteini sem þaut á gífurleg- um hraða á himninum um kl. 1 aðfaranótt miðvikudagsins. Myndin er tekin í Fellabæ og sést yfir Egilsstaði. Ragnar tók myndina á tíu mínútum og skýrir það hreyfinguna sem er á stjörn- unum á himni. Loftsteinn fór í þveröfuga átt við snúning jarðar og myndar strik í myndinni. Vesturlandsvegur við Grafarholt jr ------------------ Vegurinn tvöfaldaður á næsta ári HAFIST verður handa við tvöfóldun Vesturlandsvegar við Grafarholt milli gatnamótanna við Suðurlands- veg og gatnamótanna við Víkui-veg næsta sumar og á verkinu að vera að fullu lokið fyrir kristnitökuhátíð- ina árið 2000. Aætlað er að kostnað- ur við tvöfóldunina verði á bilinu 150-200 milljónir króna og verður verkið boðið út næsta vor. Að sögn Jónasar Snæbjörnsson- ar, umdæmisverkfræðings hjá Vegagerðinni, myndast mikill flöskuháls á þessum vegarkafla, sérstaklega vegna umferðarljósa við Víkurveg. „Það er verið að vinna við að gera mat á umhverfisáhrifum og ganga frá hönnun í samráði við Reykjavík- urborg. Þegar verið var að gera veg- inn um gjána á Suðurlandsvegi að Rauðavatni var efnið úr gjánni sett í Grafargilið þannig að íyllingin er að r^jjerulegu leyti komin. Það sem er eftir, er samt framkvæmd upp á 150-200 milljónir króna, en það þarf að gera undirgöng, lagfæringar á gatnamótum báðum megin og leggja slitlag, auk annars," sagði Jónas. Hrun úr Raufarhdls- helli í jarðskjálftum Þrengsla- vegur ligg- ur að hluta yfír hellinn SESSELJA Jónsdótth-, sveitar- stjóri í Ölfushreppi, segir að í jarð- skjálftunum um daginn hafí hrunið úr Raufarhólshelli, en vegurinn um Þrengsli liggur yfir hann. Hún telur að ákveðin hætta sé á að vegurinn fari í sundur í stórum jarðskjálfta og segir að þetta séu enn ein rök fyrir uppbyggingu Suðurstrandar- vegar milli Grindavíkur og Þorláks- hafnar. Sesselja sagði að sveitarstjórn Ölf- ushrepps hefði sent almannavarna- nefnd Þorlákshafnar erindi þar sem því er beint til sýslumanns Arnes- sýslu að sett verði upp aðvörunar- skilti á íslensku og ensku um að Raufarhólshellir sé hættulegur. „Mér er sagt að það hafi mikið hrunið úr hellinum í jarðskjálftunum sem urðu um daginn. Fari vegurinn í sundur skapast veruleg hætta. Hvernig ætlar björgunarlið þá að komast úr Reykjavík í Hveragerði eða hingað í Ölfusið ef eitthvað ger- ist?“ spurði Sesselja. Auðvelt að stoppa í að mati Vegagerðar Jón Rögnvaldsson aðstoðarvega- málastjóri segir að Suðurstrandar- vegur sé ekki inni á fjárhagsáætlun þótt talsvert hafí verið unnið að und- irbúningi hans. Hann segh' að þótt Þrengslavegur færi í sundur á parti, sem auðvelt yrði að stoppa í, væri fært til Þorlákshafnar eftir sem áður um Ölfusið. Frá öi-yggissjónarmiði sé lagning Suðurstrandarvegar því ekki aðkallandi. Steingrímur Ingvarsson, umdæm- isstjóri Vegagerðarinnar á Selfossi, segir að hrunið hafi úr hellinum í jarðskjálftunum um daginn. Hann segir nær að gerður yrði hlykkur á Þrengslaveg þar sem hann liggur yf- ir hellinum eða vegurinn styrktur þar en að hefja framkvæmdir við Suðurstrandai'veg. íslandsflug Býður barna- tilboð til Akureyrar i ÍSLANDSFLUG hefur ákveð- ið að bjóða börnum í fylgd með fullorðnum frítt flug milli Reykjavíkur og Akureyrar frá 20. nóvember til 16. desember. Allt að tvö börn að tólf ára aldri fá þannig frítt flug í fylgd með einum fullorðnum báðar leiðir. Tilboðið gildir í allar flugferðir, alla daga nema föstudaga og sunnudaga. Þá bjóða Fosshótelin á Akureyri börnum fría gistingu með morgunverði í fylgd með full- orðnum. k Tilboðið er nýjasta útspil ís- landsflugs í harðri samkeppni flugfélaganna á innanlands- markaði. Lægsta fargjald fyrir fullorðna er 7.980 kr. báðar leiðir ef bókað er með tveggja daga fyrirvara. ■ Íslandsflug/B2 Mikill samdráttur f veiðum á uthafsrækiu að undanförnu Spáð yfír 20 þúsund tonna minni afía á árinu VEIÐAR á úthafsrækju innan lögsögunnar hafa gengið mjög illa að undanfómu og hefur aflasam- drátturinn aukist dag frá degi það sem af er ver- tíðinni. Er rækjuaflinn það sem af er fískveiðiár- inu töluvert minni en á sama tímabili í fyrra, en rækjuveiði var einnig mjög treg á seinasta fisk- veiðiári. Uthlutað aflamark úthafsrækju á árinu er 60 þúsund tonn og til viðbótar er heimilt að flytja tæp 15 þúsund tonn af óveiddum afla frá seinasta fiskveiðiári milli ára. Samkvæmt upplýsingum Péturs Bjarnasonar, formanns Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda, gera svartsýnustu spár ráð fyrir að ekki muni veiðast nema um 40 þús- und tonn á fiskveiðiárinu ef fram heldur sem horfir sem er um 20 þúsund tonna minni afli en á seinasta ári. Að sögn Péturs Bjarnasonar hafa rækjuveiðar innan fjarða gengið ágætlega það sem af er vertíð- ar og má reikna með að þær skili um 8-10 þúsund tonna heildarafla. Uthafsveiðarnar hafa hins vegar verið uppistaðan í rækjuaflanum. Á síðasta ári voru veidd rúmlega 60 þúsund tonn af úthafs- rækju innan lögsögunnar. Heildarrækjuveiðin á seinasta ári að meðtöldum veiðum á fjarlægai-i miðum var 82 þúsund tonn samanborið við 89 þús- und tonn á árinu þar á undan. „Ef úthafsveiðarnar bregðast í jafn miklum mæli og svartsýnni menn telja erum við hugsanlega að tala um að þær fari niður í um 40 þúsund tonn og að heildarrækjuveiði íslenskra skipa verði nálægt 60 þúsund tonnum á öllu árinu,“ segir Pétur. Hann bendir þó á að í sögulegu samhengi sé það meiri afli en veiðst hafí hér við land allt fram til ársins 1994 en þá var stöðugur vöxtur í rækjuveið- unum. „Engu að síður þýðir þetta að það verður verulega erfítt fyrir verksmiðjunar og útgerðirnar að aðlagast þessum samdrætti," segir hann. Þessu til viðbótar er rækjan heldur smærri en verið hef- ur og því verðminni. Pétur segir að rekstrarstaða rækjuverksmiðja sé erfið og bendir á að með aukinni samkeppni um hráefnið hafí menn teygt sig eins langt í hráefnis- verði og unnt sé. Aukin rækjuveiði á fjarlægari miðum gefur góðar vonir Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðju- samlags Húsavíkur hf., gerir ráð fyrir aukinni rækjuveiði á fjarlægari miðum, einkum á Flæmska hattinum og í Barentshafi á næstu miss- erum, sem vegi nokkuð á móti minnkandi veiði innan lögsögunnar. Einar bendir á að rækjuveiðin hafi aukist utan lögsögunnar. Reikna megi með að rækjuveiðar fari vaxandi á Flæmska hattinum þar sem kvótinn hafi verið aukinn og góðar vonir séu um rækju í Barentshafi en Húsvíkingur ÞH kom úr Smug- unni fyrir skömmu eftir vel heppnaðan veiðitúr. „Á stóru skipunum eru menn að horfa mjög mikið út fyrir lögsöguna og ég býst við að stór hluti þeirra fari til veiða á Flæmska hattinn og í Barentshafíð á næstu misserum," segir Einar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.