Morgunblaðið - 20.11.1998, Side 10

Morgunblaðið - 20.11.1998, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Kristinn Guðjónsson, verkefnis- stjóri hjá VSÓ-ráðgjöf Brig’sl um pant- aðar niðustöður eru ekki sönn Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra um gagnrýni Landssambands lögreglumanna LÖGREGLUSTÖÐIN í Reykjavík. „Orökstudd gífur- yrði og getsakir“ ÞORSTEINN Pálsson dómsmála- ráðherra segist ekki geta kallað það gagnrýni sem fram kom á blaðamannafundi Landssambands lögreglumanna þar sem þeir gagn- rýndu vinnubrögð við úttekt og breytingar á embætti lögreglu- stjórans í Reykjavík. „Gagnrýni felur það í sér að menn setji fram rökstuddar at- hugasemdir. Þarna komu fram órökstudd gífuryrði og getsakir sem eiga ekkert skylt við gagnrýni. Eg verð að segja að það kom mér á óvart vegna þess að ég þekki lög- reglumenn að allt öðru og veit að þeir geta ef þeir vilja komið fram með mjög gagnlegar athugasemdir sem geta alveg örugglega bætt og styrkt þá vinnu sem nú er í gangi varðandi nýtt skipulag lögreglunn- ar í Reykjavík,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. Landssamband lögreglumanna hefui- haldið því fram að ekkert samráð hafí verið haft við lögreglu- menn. Dóms- og kirkjumálaráðu- neytið svaraði Landssambandi lög- reglumanna í bréfi í gær og sagði Þorsteinn að ráðgjafarfyrirtækið VSÓ hefði rætt við fjölmarga aðila innan lögreglunnar, en dómsmála- ráðuneytið hefði að sjálfsögðu ekki haft nein áhrif á hverjir það voru. „En ég sé það í þeim lista sem fyrirtækið birtir yfír viðmælendur sína að formaður Lögreglufélags Reykjavíkur er einn þeirra. Þetta segir okkur strax að allar yfirlýs- ingar um að við þá hafi ekki verið talað og ekkert samráð haft eru út í bláinn. Þeim var kynnt skýrslan um leið og hún var tilbúin og við þá hefur verið rætt. Það var sérstak- lega tekin ákvörðun um það af mér að hafa lengri tíma til umfjöllunar fyrir stjómendur og lögreglumenn en ráðgjafar VSÓ lögðu til í þeim tilgangi að geta fengið sem vand- aðastar athugasemdir frá þessum aðilum. Enn sem komið er hafa lögreglumenn ekki nýtt sér það og ekki sett fram rökstuddar athuga- semdir. En ég vona að þeir muni gera það því ég veit að þeir geta lagt gott til málanna og lagt fram sjónarmið sem geta bætt þá vinnu sem þarna fer fram og bíð þess vegna eftir því að heyra eitthvað af því tagi frá þeim,“ sagði Þorsteinn. Spurning hvaða hagsmuni er verið að verja Lögreglumenn segja að hyl- dýpisgjá hafi myndast á milli lög- reglumanna og æðstu yfirstjómar lögreglunnar í landinu. Þorsteinn sagðist vilja minna á að lögreglan hefði lent í miklum hremmingum og týnst hefðu fleiri kíló af fíkni- efnum, en við rannsókn hefði ekki verið hægt að draga neinn til ábyrgðar fyrir þau alvarlegu mis- tök. Þetta hafi endað með því að lögreglustjórinn sjálfur hafi orðið að bera stjórnunarlega ábyrgð á Deilum lokið af hálfu ís- ólfs Gylfa ÍSÓLFUR Gylfí Pálmason al- þingismaður sendi í gær frá sér eftirfarandi yfírlýsingu vegna deilna hans við Þórhall Ólafsson, aðstoðarmann dómsmálaráð- herra, í kjölfar ummæla sem ísólfur Gylfi hafði eftir honum á Alþingi: „Deilum mínum við aðstoðar- mann dómsmálaráðherra er lok- ið af minni hálfu. Mér þykir enn mjög sárt að liggja undir ámæli af hans hálfu um lygar. Ég á þá von í brjósti að um- ræður um lögreglustjóraemb- ættið megi þróast í takt við þær upplýsingar og óskir er fram komu á blaðamannafundi Lands- sambands lögreglumanna 18. nóv. sl. Sannleikurinn sigrar alltaf að lokuni." hvarfinu þó að hann hafi hvergi komið að því sjálfur. „Þetta segir okkur að það voru brotalamir í stjórnskipulagi og skilgreiningu á ábyrgð einstakra yfirmanna og starfsmanna. Það týndist eða réttara sagt féll fyrir borð fjöldinn allur af minniháttar málum og sektarinnheimta var í molum. Þetta sagði okkur að það var óhjákvæmilegt að breyta stjórnskipulaginu og vinnubrögð- um til þess að koma þessu máli í lag. Lögreglustjórinn sem nú er óskaði eftir því í febrúarmánuði síðastliðnum að ráðuneytið gengist fyrir stjómunarlegri úttekt og til- lögugerð til þess að mæta þeirri gagnrýni sem uppi var. Hann óskaði jafnframt nokkra síðar eftir að fá sex mánaða veikindaleyfi og við því var orðið. Ráðuneytið varð við þeirri ósk um að fara í þessa vinnu og hefði heldur aldrei getað annað í ljósi þeirrar ábyrgðar sem á þess herð- um hvílir. Þegar menn halda því fram í dag að þetta hafi verið með öllu óþarfi þá spyr ég: hvaða hags- muni er verið að verja? Em menn að verja það ástand sem var? Eru menn að verja það að skipulagið hafi verið með þeim hætti að það var ekki hægt að koma fram ábyrgð gagnvart þeim sem mistök- in gerðu og lögreglustjórinn varð sjálfur að taka á sig með áminn- ingu? Þetta eru allt spurningar sem vakna þegar ég heyri menn halda því fram að það hafi ekki ver- ið tilefni til að takast á við stjóm- skipulag lögreglunnar i Reykjavík. Það hefur verið skipaður sérstakur starfshópur til að vinna að fram- gangi þessara tillagna og eiga við- töl við þá sem hlut eiga að máli og lögreglustjórinn er að sjálfsögðu í þeim hópi. Hann er kominn aftur til starfa og ég veit að hann mun leggja fram góð og málefnaleg rök inn í þá umfjöllun og er sannfærð- ur um það að hans tillögur muni geta leitt til enn betri niðurstöðu en fyrir liggur. Eg fæ því ekki ann- að séð en að hér sé um órökstudd gífuryrði að ræða,“ sagði Þorsteinn Pálsson. KRISTINN Guðjónsson, verkefnis- stjóri við gerð skýrslu VSÓ-ráðgjaf- ar um breytingar á stjórnskipulagi lögreglustjóraembættisins 1 Reykjavík, segh- að umræðan um skýrsluna og þær tillögur sem í henni eru settar fram hafi komið þeim sem unnu að skýrslunni nokk- uð á óvart. Sérstaklega undrist þeir þau stóryrði sem notuð hafa verið þar sem bæði sé vegið að starfs- heiðri þeirra og fagmennsku, en einnig að heiðarleika þeirra og fyr- irtækisins. Hann segir að erfitt sé að átta sig á hvað liggi að baki slík- um ummælum. Aðilar velti sér aðal- lega upp úr stöðu lögreglustjóra og varalögreglustjóra og séu þar með rangtúlkanir og útúrsnúninga. „Við verðum eins og aðiir að geta tekið gagmýni á niðurstöður vinnu okkar. Það er ekkert óeðlilegt að menn séu ekki á eitt sáttir um það sem við leggjum til. Það er svo verra þegar vinnubrögð okkar eru dregin í efa. Við teljum okkur eftir sem áður hafa unnið þetta fagmann- lega, en gott og vel, þar geta menn verið á annarri skoðun. Það sem hins vegar er sérstakt í þessu máli og okkur finnst erfiðast að sætta okkur við eru hörð um- mæli um ófagleg vinnubrögð og pantaðar niðurstöður. Að við séum viljalaust verkfæri einhverra til að leggja ákveðna persónu í einelti og rýra mannorð viðkomandi. Þetta eru alvarlegar ásakanir og ég vil því leggja áherslu á að þær eru ósann- ar,“ sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið. „Stundum er sagt, að ef ósannindi eru sögð nógu oft þá verði þau að sannleika. Við vitum hver sannleik- urinn er hér og hann er ekki að ráð- herra, aðstoðarmaður ráðherra eða aðrir aðilar hafí pantað niðurstöður vinnu okkar. Engar takmarkanir voru settar fram af hálfu dómsmála- ráðuneytis á niðurstöðurnar." í engum tilfellum með ákveðnar persónur í huga Kristinn sagði að það væru einnig ósannindi að þeir sem unnu skýi'slu VSÓ hefðu með vinnu sinni viljað eða verið falið að koma höggi á Böðvar Bragason lögreglustjóra eða kasta rýrð á mannorð hans. í engum tilfellum hefðu þeir verið með ákveðnar persónur í huga þeg- ar tillögumar voru unnar og þeir hefðu forðast í umfjöllun sinni eða þegar þeir hefðu þurft að gera grein fyrir tillögunum að draga einstakar persónur inn í umræðuna. „Hvað vinnubrögð okkar varðar þá fór upplýsingaöflun fyrst og fremst fram með þeim hætti að við- töl voru tekin við fjölda einstaklinga innan lögregluembættisins og ann- arra stofnana sem tengjast þessum málaflokki og eiga samskipti við lögreglustjórann í Reykjavík. Við söfnuðum einnig nokkru af upplýs- ingum um fyrirkomulag á stjórnun lögreglu annars staðar, ekki til að yfirfæra beint heldur til að fá hug- myndir. Dómsmálráðuneytið skip- aði stýrihóp okkur ráðgjöfunum til stuðnings sem aðstoðaði okkur meðal annars við upplýsingaöflun. í þessum hópi voru hugmyndir og áfanganiðurstöður ræddar. Þetta er ekkert óeðlilegt. Hópurinn reyndi hins vegar ekki að hafa áhrif á nið- urstöður í þá veru sem gagnrýnend- ur vilja halda fram, það er að segja að beina þeim gegn einhverri ákveðinni persónu. Við unnum að málinu í þrjá mánuði og við teljum að við höfum unnið tillögur sem eru gott verkfæri til að gera yfirstjórn embættisins og stjórn einstakra sviða þess markvissari en verið hef- ur,“ sagði Kristinn. Hann sagði að það sem einkum hefði verið gert tortryggilegt væri sú verkaskipting sem VSÖ hefði lagt til að lögreglustjóri og varalög- reglustjóri gerðu með sér, en þar legði VSÓ til að lögreglustjóri sinnti stefnumótun og þróun en varalög- reglustjóri sæi um daglega stjórn embættisins. „Þá hefur því víða verið slegið upp að við leggjum til í starfslýs- ingu varalögreglustjóra að lög- reglustjóri sé staðgengill hans. Það að slá slíku atriði upp sem einhverju meginatriði er að okkar mati dæmi um að verið sé að tína til atriði sem gæti stutt samsæriskenningu þá að við séum handbendi einhverra afla sem vinni að því að koma núverandi lögreglustjóra frá. Það eina sem liggur að baki af okkar hálfu er að undirstrika að enginn sviðsstjór- anna gangi í störf varalögreglu- stjóra í fjarveru hans, heldur yfir- taki lögreglustjóri skyldur undir- mapns síns. Ég geri ráð fyrir að þeir þing- menn sem farið hafa hörðum orðum um „vinnubrögðin" í málinu hafi les- ið skýrslu okkar. Þar stendur á bls. 5 að „varalögreglustjóri annast alla daglega stjórn embættisins í um- boði lögreglustjóra og í samráði við hann. Þó er ljóst að ef úrskurðar er þörf, þá er lögreglustjóri hæsti'áð- andi“. Þetta finnst okkur vera all- skýrt og þeir sem túlka þetta á þá leið að verið sé að gera lögreglu- stjóra valdalausan hafa annaðhvort misskilið þetta eða tala gegn betri vitund af einhverjum ástæðum sem við þekkjum ekki,“ sagði Kristinn. Fá ekki séð að hugmynd- irnar stangist á við lög Kristinn sagði það vekja nokkra undrun þeirra sem unnu að skýrslu VSÓ að í umræðunni hafi menn verið svo sammála um að gera lítið úr því hlutverki sem lögreglustjóra væri ætlað samkvæmt tillögunum. Ekki síst á þeim umbrotatímum sem embættið hefði gengið í gegn- um teldu þeir það vera embættinu til góðs að æðsti yfirmaður þess hafi svigrúm til að sinna stefnu- mótun og þróun, t.d. umbótastarfi í samvinnu við starfsmenn um alla þætti starfseminnar, sem geti ráðið meiru um starfsemina en besta skipurit. „Þetta ásamt öðru teljum við verðugt verkefni fyrir lögi'eglu- stjóra. Við erum þrátt fyrir allt að tala um stofnun sem snertir öryggi og daglegt líf 40% þjóðarinnar, velt- ir 1,3 milljörðum króna og þar vinna um 350 manns. Við teljum að það hefði verið óeðlilegt að fela varalög- reglustjóra, næstæðsta yfh'manni embættisins, þessi verkefni á með- an lögreglustjóri hefði með höndum daglega stjórn. A það má benda, að í núverandi skipuriti, sem var í gildi þegai' Böðvar Bragason fór í veikindaleyfi, er staðsetning lögreglustjóra og varalögreglustjóra í sjálfu sér sú sama og í tillögum VSÖ. Hins vegar lá þá ekkert fyiir um verkaskipt- ingu þein-a annað en ákvæði lög- reglulaganna, en um verksvið vara- lögreglustjóra segir í 6. grein að „varalögreglustjóra er ætlað að vera næstráðandi lögreglustjóra og staðgengill hans“. Við leggjum í okkar tillögum fram hugmyndir að skýrri verkaskiptingu milli lög- reglustjóra og varalögreglustjóra og við fáum ekki séð að þær stang- ist á við lög,“ sagði Kristinn Guð- jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.