Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Um 70 brúttórúmlesta skip dregið af sjó inn í nýsmíðaskemmu Slippstöðvarinnar
Fyrsta skipti
sem skip fer
inn þá leiðina
LÍNU- og dragnótaskipið Brimnes
BA-800 frá Patreksfirði var dregið
af sjó inn í nýsmíðaskemmu Slipp-
stöðvarinnar á Akureyri í fyrra-
kvöld en þetta er í fyrsta skipti
sem skip er tekið þá leið inn í
skemmuna. Aður hafði mörgum
skipum sem smíðuð voru í Slipp-
stöðinni verið rennt út úr skemm-
unni og í sjó. Síðasta skipið sem fór
þá leiðina var skuttogarinn Þórunn
Sveinsdóttir VE-800 hinn 15. maí
áríð 1991.
Brimnes BA er rúmlega 72
brúttórúmlesta stálskip, smíðað á
Neskaupstað og í Stykkishólmi ár-
ið 1979. Skráningarlengd skipsins
er rúmir 20 metrar og breiddin
rúmir 5 metrar.
Marteinn Hámundarson, verk-
efnisstjóri Slippstöðvarinnar, sagði
að áður hafi minni bátar verið
teknir inn í skemmuna vestan meg-
in á vögnum. Framundan er að
setja nýjan skut á Brimnes, skipta
um aðalvél og færa stýrisbúnað.
Við þessar breytingar á skutnum
lengist skipið um tæpa 2 metra.
Lausir undan veðri
„Hér á Akureyri er allra veðra
von en nú getum við unnið við skip-
ið alla daga án þess að lenda í
vandræðum með veðrið. Það gekk
mjög vel að draga skipið inn og ég
er viss um að við eigum eftir að
gera meira af þessu í framtíðinni.
Einnig er mikilvægt að koma á
betri nýtingu á nýsmíðaskemmuna,
þótt það sé kannski erfitt að nota
það nafn á skemmuna lengur."
Jóhannes Héðinsson, skipstjóri
og útgerðarmaður Brimness, var
að vonum ánægður með hvernig til
tókst að koma skipinu í hús. Hann
sagðist vonast til að í kjölfarið lyki
verkinu viku fyrr, en verklok eru
áætluð 21. desember nk. „Þá
komumst við örugglega heim fyrir
jólin."
Morgunblaðið/Kristján
STARFSMENN Slippstöðvarinnar fylgjast spenntir með því er Brim-
nes BA er dregið inn í nýsmíðaskemmu fyrirtækisins.
TVEIR bátar til viðbótar, Þorleifur EA frá Grímsey og Bergey SK, eru
í nýsmíðaskemmunni en þeir voru teknir inn landmegin. Þorleif á að
lengja hjá Slippstöðinni en Bergey á að stytta.
Jólaþorpið
Norðurpóllinn
opnað í dag
NORÐURPÓLLINN, jólaþorp á
flötinni neðan við Samkomuhúsið,
verður opnaður formlega í dag,
föstudag.
Jólasveinar byrja á því að safnast
saman á Ráðhústorgi kl. 15, heilsa
þeir upp á bæjarbúa og fara svo í
skrúðgöngu að Norðurpólnum með
sérstaka jólasveinalúðrasveit í
broddi fylkingar.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar, flytur ávarp og opnar
Norðurpólinn formlega kl. 17 og þá
verður kveikt á ,jólatré allra barna“.
Hljómsveitin Cantabile frumflytur
lag sem tileinkað er jólatré allra
bama og Guðrún Helgadóttir rithöf-
undur flytur ávarp. Barnakór Norð-
urpólsins syngur jólalög.
Fyrsta alþjóðlega jólasveinaþingið
hefst kl. 17.30 og munu jólasveinar
sem þátt taka í þinginu syngja og
dansa kringum jólatré.
Norðurpóllinn verður opinn frá
morgni til kvölds, þar er verkstæði
þar sem aðstoðarmenn jólasveinsins
hjálpa honum að útbúa jólagjafir, á
svæðinu er skóli, bakarí, jólapósthús
og margt fleira. Boðið er upp á ferðir
með hestakerrum til og frá Norður-
pólnum auk þess sem gestum gefst
kostur á að bregða sér á hestbak.
-------------------
Jóla-
stemmning
í Nonnahúsi
Flugfélagið Loftur gerir tilboð í rekstur atvinnuleikhúss
Bæjarráð telur ekki efni
til viðræðna að sinni
Þrennir
afmælistón-
leikar Tón-
listarskólans
TÓNLISTARSKÓLI Eyjafjarðar
er 10 ára um þessar mundir og af
því tilefni verða haldnir þrennir tón-
leikar.
Þeir fyrstu verða í gamla skóla-
húsinu á Grenivík, föstudagskvöldið
20. nóvember og hefjast þeir kl. 21.
Á laugardag, 21. nóvember, verða
tónleikar í Hlíðarbæ og hefjast þeir
kl. 13.30 og loks verða tónleikar í
Freyvangi sama dag kl. 16.
Efnisskráin er fjölbreytt, bæði
söngur og hljóðfæraleikur auk þess
sem djasshljómsveit kennara spilar.
Flytjendur á tónleikunum verða
kennarar og lengra komnir nem-
endur. Aðgangur er ókeypis og eru
allir velunnarar skólans hvattir til
að mæta.
FLUGFÉLAGIÐ Loftur hefur gert
tilboð í rekstur atvinnuleikhúss á
Akureyri.
Bæjarráð fjallaði um tilboð Flug-
félagsins Lofts á fundi sínum í gær
og lýsti yfir ánægju með þann áhuga
sem félagið sýnir á rekstri leikhúss á
Akureyri. Þar sem viðræður standa
yfir við stjórnendur Leikfélags
Akureyrar um framhald rekstrarins
auk þess sem í undirbúningi eru við-
ræður við ríkisvaldið um áframhald-
andi starfsemi leikfélagsins telur
bæjarráð ekki efni til þess að taka
upp viðræður að sinni við Flugfélag-
ið Loft, en erindinu var vísað til um-
sagnar menningarmálanefndar.
Oddur H. Halldórsson bæjarfull-
trúi L-listans bókaði á fundi bæjar-
ráðs að í sínum huga væri það ekki
spuming hver ræki, heldur hvort
starfrækt væri atvinnuleikhús á
Akureyri. „Flugfélagið Loftur hefur
sýnt það svo ekki verður um villst að
þeir eru hæfir tii að takast á við slíkt
verkefni,“ segir í bókun Odds og
einnig að þar sem nú standi yfir skoð-
un á rekstri atvinnuleikhúss í bænum
telji hann bæði sjálfsagt og eðlilegt að
einnig verði skoðuð sú leið sem flug-
félagsmenn setji fram í erindi sínu til
bæjaryfirvalda á Akureyri.
Leikfélag Akureyrar hefur átt í
erfiðleikum síðustu misseri og mikill
taprekstur verið á félaginu. Fyn- í
haust samþykkti bæjarstjórn að
leggja fram 18 milljónir króna til að
koma rekstrinum á réttan kjöl.
RÚM fjörutíu ár eru frá því Zonta-
klúbbur Akureyrar stofnaði minn-
ingarsafn um rithöfundinn og
jesúítaprestinn Jón Sveinsson,
Nonna, sem þekktur er um allan
heim fyrir frásagnir af ævintýrum
sínum á Islandi. Opið hús verður í
Nonnahúsi á sunnudag, 22. nóvem-
ber, frá kl. 14 til 17 og er aðgangur
ókeypis. Nýlega fékk Nonnahús til
varðveislu merkan grip, smíðaðan
árið 1850, dragkistu Voga-Jóns,
móðurbróður Nonna, og verður hún
til sýnis á sunnudaginn.
------♦-♦-♦---
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Svalbarðskirkju kl. 11, laugar-
daginn 21. nóvember. Kirkjuskóli í
Grenivíkurkirkju á laugardag kl.
13.30, Kyrrðar- og bænastund mánu-
dagskvöldið 23. nóvember kl. 21.
Ath. breytta dagsetningu.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli verður í Möðru-
vallakirkju á sunnudag, 22. nóvem-
ber kl. 11. Skólinn er í umsjá Söru
Helgadóttur og Hannesar Blandon.
Sunnudagsspjall á Sigurhæðum
Njála til umræðu
Hlýttog HAB
gott frá
um og seíjum flísfatnað í
Laugardalshöllinni 20.—22. nóv.
Fjölbreytt úrval
Tilvaldar jólagjafir
Flísfatnaðurinn fæst
einnig í Jólagrúsku
N orðurpólnum,
Gallerí Grúsku og
Nettó Akureyri, svo
og á saumastofunni.
Saumastofan
HAB
POSTSENDUM
UM ALLT LAND
Melbrún 2, Árskógsströnd,
621 Dalvi'k, sími 466 1052.
FYRSTA „Sunnudagsspjallið á Sig-
urhæðum" verður næstkomandi
sunnudag, 22. nóvember frá kl. 15 til
17. Gert er ráð fyrir að sunnudags-
spjall verði mánaðarlegur viðburður
í störfum Sigurhæða - Húss skálds-
ins. Eins og vera ber verður fyrst
spjallað um Njálu og munu þeir Jón
Karl Helgason og Kristján Jóhann
Jónsson, sem báðir hafa nýlega gefið
út bækur um þessa meistarasögu
reifa hugmyndir sínar og sitja fyrir
svörum. í fyrravetur stóð Hús
skáldsins fyrir 14 kvölda námskeiði
um Njálu á jafnmörgum vikum og er
gert ráð fyrir að annað slíkt fari
fram eftir áramót. Tilvalið er fyrir þá
sem sóttu eða hafa hug á að sækja
það að koma í Sigurhæðir á sunnu-
dag, hlusta á frummælendur og
leggja sitt til málanna, en aðgangur
er öllum áhugamönnum heimill.
----♦_♦_♦--
Hausthrað-
skákmót
HAUSTHRAÐSKÁKMÓT verður
haldið í skákheimili Skákfélags
Akureyrar við Þingvallastræti á
sunnudag, 22. nóvember, og hefst
það kl. 14.
Tæknival hf. hefur
starfsemi á Akureyri
TÆKNIVAL hf. hefur rekstur sér-
stakrar Akureyrardeildar félagsins í
dag, föstudaginn 20. nóvember.
Þetta er langstærsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar á landsbyggðinni.
Um síðustu áramót sameinaðist
Tölvutæki hf. á Akureyri Tæknivali
en verslun félagsins að Furuvöllum 5
hefur fram til þessa verið rekin und-
ir nafni Tölvutækja. Verslunin verð-
ur opnuð um hádegi í dag eftir gagn-
gerar breytingar og endurbætur og
mun eftirleiðis bera nafn Tæknivals.
Alls starfa 25 manns hjá fyrirtæk-
inu á Akureyri og skiptist starfsemin
í þrjú svið; þjónustusvið, fyrirtækja-
svið og verslunarsvið. Við tvö þau
fyrstnefndu starfa 16 manns sem
flestir hafa lokið viðurkenndum
gráðum frá Compaq, Microsoft og
eða Novell og er þessum sviðum
skipt upp í verkstæði, netþjónustu
og fyrirtækjasölu. Á verslunarsviði
starfa 7 manns og hefur það með
höndum sölu á tölvum og fylgihlut-
um þehra, skrifstofutækjum og -
búnaði ásamt tilheyrandi rekstrar-
vörum.
Tæknival selur tölvubúnað frá
mörgum þekktustu framleiðendum
heims. Samstarfssamningur er í gildi
milli Tæknivals og Microsoft sem
felur í sér að starfsfólk fær sérþjálf-
un í Microsoft-lausnum og ræður því
ávallt yfir nýjustu þekkingu á þeim.
I hópi viðskiptavina Tæknivals eru
mörg stór fyrirtæki og stofnanir á
Norðurlandi og þá hefur fyrirtækið á
síðustu mánuðum gert þjónustu-
samning við níu heilbrigðisstofnanir
í fjórðungnum um umsjón, uppsetn-
ingu og eftirlit með tölvukerfum
þeirra.
Deildarstjóri Tæknivals á Akur-
eyri er Kristján Aðalsteinsson.