Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 24

Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuters Kanslari flytur HÚSGÖGN úr skrifstofu þýska kansiarans, Gerhards Schröders, voru flutt í gær úr skrifstofu hans í Bonn í ný húsakynni í Beriín. Er kanslaraskrifstofan fyrsta opinbera stjórnarskrif- stofan seni flutt er til Berlínar samkvæmt ákvörðun sljórnar- innar. Þrátt fyrir að Schröder hafi aðeins setið í embætti í þrjár vik- ur, hefur hann sætt harðri gagn- rýni fyrir efnahagsstefnu sína. I gær bættust „vitringamir fimm“, hópur virtra hagfræðinga, í hóp gagnrýnenda er þeir birtu úttekt á stefnuskrá stjórnar Schröders í efnahagsmálum. Kváðust fim- menningarnir fátt jákvætt hafa fundið og sögðu stefnuna ósam- kvæma sjálfri sér og að hún bæri vott um hálfkák. Fundu hagfræð- ingarnir einkum að áætlunum stjórnarinnar um breytingar á skattkerfinu og aðgerðum til að draga úr atvinnuleysi. Árangur APEC-fund- arins sagður lítill Kuala Lumpur. Reuters. The Daily Telegraph. SÉRFRÆÐINGAR virðast á einu máli um að lítill árangur hafi orðið af fundi Efnahagssamvinnuráðs As- íu- og Kyrrahafsríkja (APEC) í Ku- ala Lumpur, höfuðborg Malasíu, í vikunni. Ekki komu fram afgerandi tillögur um úrræði, þrátt fyrir að ýmis aðildarríki standi frammi fyrir alvarlegum efnahagsvanda. í yfirlýsingu leiðtoga Asíu- og Kyrrahafsríkja í lok fundarins segir að stefnt sé að samvinnu aðildar- ríkjanna við að leysa fjár- málakreppuna í Asíu, og stuðla að viðreisn í efnahagslífi þessa heims- hluta. Fullyrt er að skilyi'ðum Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) fyrir neyðaraðstoð til APEC-ríkja verði fullnægt, og hvatt er til hertari reglna um viðskipti á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Líftími APEC ekki Iangur? Stjórnmálaskýrendur voru ómyrkir í máli um yfirlýsinguna, og sögðu leiðtoga APÉC-ríkjanna ekki hafa komið fram með neinar raun- hæfar tillögur um úrræði, sem biýn þörf væri á til að ráða niðurlögum efnahagskreppunnar í Asíu. Ymsir eru jafnvel farnir að efast um að líf- tími APEC verði langur, enda virðist ekki einu sinni vera samstaða meðal aðildarríkja um að fylgja eina skýra markmiði samtakanna, að auka frelsi í viðskiptum. Japanai' hindruðu á fundinum samkomulag um lækkun tolla á sjávar- og skógarafurðir í As- íu, og frestuðu þannig framkvæmd áætlunar sem skilað hefði milljörð- um dollara í viðsldptum. Einnig var bent á að fögur fyrir- heit um samvinnu aðildan-íkja væru ekld ýkja trúverðug í ljósi þess að fundurinn einkenndist af misklíð. Hæst bar vitanlega spennan sem skapaðist vegna stuðningsyfirlýs- ingar Als Gores, varaforseta Banda- ríkjanna, við stjórnandstöðuna í Malasíu, en Malasíustjórn hefur verið í forsvari APEC undanfarið ár og var gestgjafi fundarins. Tilkynningu Bandaríkjanna og Japans um að ríkin hygðust veita samtals 10 milljörðum dollara í að- stoð við banka og fyrirtæki í Asíu var víðast vel tekið, en þó er ljóst að þörf er á mun meiri aðstoð til að mæta þeim vanda sem mörg ríki í álfunni standa frammi fyrir. Fundurinn skilaði engu Stjórnmálaskýrendur virðast sammála um að fundurinn hafi engu skilað sem máli skipti. „Flest nTd hefðu verið ánægð ef fundurinn hefði ekki átt sér stað. Við verðum að hafa í huga að samtökin voru stofnuð á uppgangstímum," sagði dr. Athar Hussein við London School of Economics í samtali við The Daily Telegraph. Walden Bello, prófessor í félagsfræði við Háskóla Filippseyja, var einnig óvæginn í ummælum sínum um APEC: „Eng- in önnur svæðissamtök hafa valdið jafn miklu fjaðrafoki, og þó skilað jafn litlum raunverulegum árangri." Indónesíustjórn heitir rannsókn á auði Suhartos Tyrkir hafna boði Itala um fund Ankara, Brussel. Reuters. MESUT Yilmaz, forsætisráðherra Tyrklands, hafnaði í gær boði Itala um fund svo hægt væri að draga úr spennu milli ríkjanna vegna þeirrar kröfu Tyrkja að Italir framselji kúrdneska skæruliðaforingjann Abdullah Öcalan til Tyrkiands. Telja fréttaskýrendur að viðbrögð Yilmaz sýni að Tyrkir óttist nú mjög að ekki verði orðið við kröfum þeirra, en tyrknesk stjórnvöld telja Ócalan ábyrgan á dauða 30.000 manna vegna fjórtán ára baráttu Kúrda fyrir því að fá að stofna full- valda ríki í suðausturhluta Tyrk- lands. Reyndi yfirstjórn Evrópusam- bandsins í gær að halda sig utan við deilurnar um framsal Öcalans, sem harðna með degi hverjum, en Massimo D’Alema, forsætisráð- herra Ítalíu, hafði látið hafa eftir sér að hér væri ekki einungis um að ræða milliríkjamál Tyrklands og Ítalíu heldur málefni sem snerti alla Evrópu og að Italir færu fram á að ESB sýndi þeim samstöðu. Yilmaz tilkynnti að hann gæfi lít- ið fyrir boð Itala í þann mund er hann gekk á þingfund þar sem stjórnarandstaðan hugðist leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórn hans. Var tillagan samþykkt og er fastlega gert ráð fyrir því að minni- hlutastjórn Yilmaz falli þegar gengið verður til endanlegrar at- kvæðagreiðslu um tillöguna í næstu viku. Djakarta. Reuters. STJÓRNVÖLD í Indónesíu hétu því í gær að frekari rannsókn myndi fara fram á auðsöfnun Suhartos, fyrrverandi forseta landsins, eftir að um þrjú þúsund námsmenn höfðu mótmælt við heimili hans í Djakarta og farið fram á að Suharto yrði sótt- ur til saka fyrir spillingu og mann- réttindabrot í stjórnartíð sinni. Stöðvuðu öryggissveitir lögreglunn- ar mótmælendur um 700 metra frá húsi Suhartos en ekki kom til átaka. Sumir fréttaskýrenda halda því fram að Suharto og fjölskylda hans hafi safnað að sér allt að 40 milljörð- um Bandaríkjadala, um 2.800 millj- örðum ísl. kr., meðan 32 ára valdatíð Suhartos stóð, en hann harðneitar að eiga fé í bönkum erlendis. Ekki er ljóst til hvaða ráðstafana stjórn- völd munu grípa en Akbar Tandjung, talsmaður Jusufs Ha- bibies, núverandi forseta Indónesíu, sagði að einnig yrði tekið mið af þeim kröfum Amiens Rais, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, að rannsókninni verði hraðað og skipt um rannsóknarnefnd. Hefur Rais haldið því fram að bæði Habibie og ríkissaksóknarinn Muhammad Ghalib hafi verið of handgengnir Suharto til að vilja róta mikið í málum forsetans fyrrver- andi. Habibie, sem á mjög undir högg að sækja eftir að götuóeirðir brutust út í síðustu viku og ollu dauða fjórt- án manns, varaði landa sína við því í gær að þeir myndu valda tortímingu Indónesíu ef þefr berðust fyrii' skoð- unum með ólögmætum hætti. Hvatti hann jafnt almenning sem stjórn- málamenn til að berjast með lýð- ræðislegum aðferðum fyrir hags- munum sínum og áhugamálum. Erlendir fréttamenn varaðir við Peking. Reuters. STJÓRNVÖLD í Kína vöruðu í gær erlenda fréttamenn við að brjóta kínversk lög, en í fyrradag var Jurgen Kremb, fréttamaður þýska vikuritsins Der Spiegels, rekinn úr landi. Var hann sakaður um að hafa komist yfir ríkisleyndarmál. Talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytsins sagði, að stjórnvöld ábyrgðust réttindi erlendra frétta- manna í Kína en krefðust þess um leið, að þeir héldu sig innan ramma laganna. Hann vildi þó ekkert um það segja hvers vegna Kremb hefði verið vísað burt og sagði, að svarið sjálft væri leyndarmál. Er Kremb annar blaðamaðurinn, sem Kínverj- ar vísa bm-t sl. tvo mánuði. í Kína er litið á næstum allar upplýsingar, sem ekki hafa verið birtar í opinber- um fjölmiðlum, sem ríkisleyndarmál. --------------------- Greina ekki milli þorsks og skips Óslá. Morgunblaðiö. NORSKI sjóherinn stendur fr-ammi fyrir óvenjulegum vanda - þorskum í makaleit. Við hana gefur þorskur- inn frá sér hljóð sem trufla hlustun- artæki kafbáta sjóhersins. Þorskurinn gefur frá sér stutt en reglubundin hljóð, sem rugla þá sem fylgjast með skipaferðum í ríminu, því þeir geta oft á tíðum ekki greint á milli þorsks og skips. Hefur sjó- herinn nú hvatt skipstjóra kafbát- anna til að halda sig utan hrygning- arslóða þorsksins eins og kostur er. Reuters UNGUR drengur stendur í miðjum hópi lögreglumanna sem búa sig undir að stöðva mótmælagöngu náms- manna að heimili Suhartos, fyrrverandi Indónesíuforseta, í gær. Á undanförnum misserum hafa kappsfullir söluaðilar kallað hin ýmsu gólfefni parket, þótt þau eigi ekkert skylt með því nema mynstrið - og komist upp með það. Vegna misskilnings sem af þessu hefur hlotist munum við héðan í frá tala um viðargólf þegar um hið eina sanna parket er að ræða. Teppaland GÓLFEFNIehf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.