Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 53

Morgunblaðið - 20.11.1998, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1998 53 Hollvinasamtök Háskóla íslands Fyrirlestr- ar á ári hafsins HOLLVINASAMTÖK Háskólans gangast fyrir opnum fyrirlestrum í tilefni árs hafsins. Fyrirlestrarnir verða þrjá laugardaga í sal 3 í Há- skólabíói og hefjast kl. 14. Á morgun 21. nóvember flytur Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor fyrirlesturinn Áttir og eyktir, dagar og dægur; Nokkur álitamál um sigl- ingafræði og tímamælingar nor- rænna manna á miðöldum. Fyrirles- ari hyggst fjalla sér í lagi um nokk- ur atriði í þessum fræðum sem hafa reynst fræðimönnum hörð undir tönn, segir í fréttatilkynningu. Með- al annars vísar hann til sérstaki'a aðstæðna hér á norðurslóðum í samanburði við suðlægari lönd þar sem hefðbundin stjörnufræði varð til. Einnig tengjast álitamálin áþreifanlegum atriðum eins og hraða í siglingum yfirleitt, og stað- arákvörðunum á Vínlandi. Þorsteinn Vilhjálmsson er pró- fessor í eðlisfræði og vísindasögu við raunvísindadeild Háskólans. Hann hefur í rúman áratug unnið sérstaklega að rannsóknum á vís- indum og skyldri þekkingu nor- rænna manna á miðöldum. Laugardaginn 5. desember verða fluttir tveir fyrirlestrar en þá tala Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðing- ur og Jón Ólafsson prófessor í hafefnafræði. Laugardaginn 12. desember verða síðustu tveir fyrir- lestrarnir, en þá flytja Jóhann Sig- urjónsson, forstjóri Hafrannsókna- stofnunar, og dr. Guðrún Marteins- dóttir fískvistfræðingur. Fyrirlestrarnir eru ætlaðir al- menningi og aðgangur er ókeypis. Nóvember- fagnaður í Gullsmára NÓVEMBERFAGNAÐUR verður í Gullsmára, Gullsmára 13, sem er fé- lagsheimili eldri borgara í Kópavogi, í dag, föstudaginn 20. nóvember. Meðal efnis á dagskránni sem hefst kl. 14 er „smælki" í umsjón Kópavogsbúa, Oddný Sigurðardóttir syngur nokkur lög við undirleik Ki-istínar Cortes. Steingrímur Her- mannsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, og Dagur Eggertsson, rithöf- undur, lesa úr nýútkominni ævisögu Steingríms, tónar harmonikunnar munu óma og ef fólk vill er hægt að fá sér snúning. Heimabakað meðlæti sem hægt er að skola niður með rjúkandi kaffí verður selt á vægu verði. Til þessa fagnaðar eru allir eldri borgarar og gestir þeirra velkomnir endurgjaldslaust. Sólstöðuhópur- inn byrjar vetrarstarfíð SÓLSTÖÐUHÓPURINN byrjar vetrarstarfíð á hefðbundinn hátt með fyi’irlestri í Norræna húsinu laugar- daginn 21. nóvember kl. 14. Fyrii-- lesturinn er sá fyrsti í vetur undh- samheitinu: í hjartans einlægni. Fyrirlesari er Lára Magnúsar- dóttir, sagnfræðingur. Hún veltir upp spurningum eins og: Hvað eru fjölskyldugildi? Hvaðan koma þau? Hver ákveður þau? Eru þau alltaf „rétt“? Um hvað erum við í rauninni að tala þegar fjölskyldugildi eru á dagskrá? Lára mun í fyriiiestrinum fjalla um ástæðurnar fyrir skoðun- um okkar á fjölskyldunni, segir í fréttatilkynningu. Matthías Kormáksson leikur á hannoniku og eftir kaffihlé verða pallborðsumræður. Aðgöngugjald er 700 kr. FRÁ styrkveitingunni: F.v.: Gunnar Hansson, frumkvöðull að stofnun sjóðsins, Ásgeir Þorsteinsson, formaður sjóðsstjórnar, heldur á syni sínum, Helga Frey, María Játvarðsdóttir, Erla Ólafsdóttir og Stefán J. Hreiðarsson, forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Uthlutað úr styrktar- sjóði Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríkisins NÝVERIÐ var í þriðja sinn úthlut- að úr styrktarsjóði Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins til minn- ingar um Þorstein Helga Ásgeirs- son. Styrk hlutu Erla Ölafsdóttir sjúkraþjálfari til náms í nál- arstungum sem hún hóf fyrr á ár- inu og María Játvarðsdóttir fé- lagsráðgjafi til náms í stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands. Styrktarsjóðurinn var stofnaður fyrir þremur árum. Tilgangur hans er að veita styrki til símennt- unar og fræðilegra rannsókna á sviði fatlana barna með það að leiðarljósi að efla fræðilega þekk- ingu og faglega þjónustu við fötl- uð börn og fjölskyldur þeirra, seg- ir í fréttatilkynningu. Hefur stars- fólk Greiningar- og ráðgjafar- stöðvar ríkisins að jafnaði forgang við styrkveitingar úr sjóðnum sem fara fram árlega. Sjóðnum hefur borist fjöldi framlaga, bæði frá félögum og einstaklingum, en tekna er einnig aflað með sölu minningarkorta. Þeim sem vilja styrkja sjóðinn með minningargjöfum eða öðrum hætti er bent á að snúa sér til Greiningar- og ráðgjafarstöðvar- innar, Digranesvegi 5, Kópavogi, eða Breiðholtsapóteks, Mjóddinni. Islandsmót kvenna í skák 1998 ÍSLANDSMÓT kvenna í skák 1998 fer fram að Faxafeni 12, Reykjavík og hefst mánudaginn 23. nóvember nk. kl. 19.30. Teflt verður á mánudögum, mið- vikudögum og fóstudögum. Umferð- arfjöldi ræðst af fjölda keppenda. Umhugsunartími er Vh klst. á 36 leiki og 30 mín. til að ljúka skákinni. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Skáksambandsins virka daga kl. 10- 13. Erindi um álagseinkenni og vinnuumhverfí tónlistarmanna KYNNINGARHÓPUR VINNÍS stendur fyrir hádegisverðarfundi laugardaginn 21. nóvember kl. 11- 12.30 í Lækjarbrekku, 2. hæð. Gunnhiidur Ottósdóttir, sjúki'a- þjálfari, sem hefur langa reynslu af starfi með tónlistarfólki mun halda erindi um álagseinkenni og vinnu- umhverfi tónlistarmanna og á eftir verða opnar umræður. Fundarmenn geta keypt sér hressingu að vild meðan á fundi stendur. Fundurinn er öllum opinn. Verðlaunabfll til sýnis VERÐLAUNABÍLL nemenda Myndlista- og handíðaskóla íslands, Bomobil, verður til sýnis við Ráðhús Reykjavíkur helgina 20.-22. nóvem- ber. Bomobil er rafbíll og er sýndur ásamt fleiri rafbílum í tilefni ráð- stefnu um umhverfisvæna farkosti sem haldin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. nóv- ember. Nemendur MHI unnu til fyrstu verðlauna í hönnunarsamkeppni sem Stokkhólmsborg stóð fyrir vegna þess að hún er ein af menn- ingarborgum Evi’ópu 1998. Jólakort MS félagsins JÓLAKORT MS félags íslands eru komin út. Að þessu sinni prýða þau landslagsmyndir eftir listakonuna Erlu Axelsdóttur og eru þau fáanleg með íslenskum texta, enskum og ótextuð. Kortin eru seld á skrifstofu fé- lagsins frá kl. 10-15 og er hægt að fá þau send heim. Einnig eru til sölu eldri kort. Allur ágóðinn rennur til kaupa á hjálpartækjum. LEIÐRÉTT Gefa ekki út ættartölu AÐ GEFNU tilefni vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær vill Jörundur Guðmundsson forstöðumaður Há- skólaútgáfunnar taka fram, að út- gáfan hefur engin áform uppi um að gefa út ættartölu Guðlaugs Tryggva Karlssonar, eins og greint var frá. Hins vegar sér Háskólaútgáfan um dreifíngu. Tvítekin málsgrein TÆKNILEG mistök urðu við vinnslu greinar eftir Herdísi Her- bertsdóttur, Vandræðastaifsfólkið í heilbrigðiskerfinu, sem birtist í blað- inu í gær. Tvær fyrstu málsgrein- arnar voru í raun endurtekning á texta inni í greininni. Morgunblaðið biðst velvirðingar á því. Röng mynd MYNDABRENGL urðu við vinnslu fréttar sem birtist í gær um kosn- ingar í Quebec-fylki í Kanada. Fyrir mistök birtist mynd af Ragnari Sæ Ragnarssyni í stað Lucien Bouchard. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Ráðstefna um framtíð- arskipan orkumála SAMORKA, samtök raforku, hita- og vatnsveitna, gengst fyrir ráð- stefnu um framtíðarskipan orkumála á Islandi dagana 23. og 24. nóvember nk. á Grand Hótel Reykjavík. Á ráðstefnunni munu bæði inn- lendir og erlendir fyrirlesarar fjalla um þessi mál og í lok ráðstefnudags- ins fai'a fram pallborðsumræður. Að loknum erindunum verða fyrirspurn- h' leyfðai’. Ráðstefnan hefst kl. 12.45 mánu- daginn 23. nóvember nk. með ski’án- ingu ráðstefnugesta en í framhaldi af því mun Júlíus Jónsson, formaður Samorku, setja ráðstefnuna. Þá mun Þórður Friðjónsson, ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu, fjalla um fram- tíðarsýn stjórnvalda í orkumálum hér á landi og loks mun Robin Ad- ams, framkvæmdastjóri ráðgjafafyr- ii'tækisins Resource Strategies International, gera grein fyrir skýrslu sinni um samkeppni á ís- lenskum raforkumarkaði. Þriðjudaginn 24. nóvember hefst ráðstefnan kl. 8.30 og ræðir þá Ámi Tómasson, löggiltur endurskoðandi, um skattalegt umhverfi íslenskra orkufyiii'tækja. Ray Wilson frá Power Research Industry fjallar um viðhorf raforkukaupenda á sam- keppnismarkaði og loks mun Jan Samuelsson, framkvæmdastjóri sænska rafveitusambandsins, fjalla um áhrif markaðsvæðingar orkufyi'- irtækja þar í landi. Eftir hádegi ræðir Jakob S. Frið- riksson, yfmnaður þjónustudeildar Hitaveitu Reykjavíkur um mark- aðsvæðingu hitaveitna og síðan ræð- ir Guðmundur Þóroddsson, vatns- veitustjóri Vatnsveitu Reylgavíkm', um markaðsvæðingu vatnsveita. Að loknu kaffihléi fara fram pall- borðsumræður undir stjórn Halldórs J. Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans. Þátttakendur verða Ingibjörg Sólrún Gísladótth', borgar- stjóri í Reykjavík, Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Sam- taka iðnaðarins, Hjálmar Árnason, iðnaðarnefnd Alþingis, Friðrik Már Baldursson, forstjóri Þjóðhagsstofn- unar, Guðmundur Magnússon, pró- fessor við HÍ, og Ögmundur Jónas- son, alþingismaður. Ráðstefnustjóri verður Helga Jónsdóttir, borgarrit- ari. Ráðstefnunni lýkur kl. 16.45. Þátt- taka er öilum heimil og skal tilkynna um hana til Samorku. Þátttökugjald er 8.000 kr. pjW Vinningaskrá 27. útdráttur 19. nóvember 1998. Bifreiðavinningur Kr. 2.000.000__________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 68780 Kr. 100.000 x vi uaviuiiiiigui Kr. 200.000 (tvöfaldur) 832 2546 6172 53365 Ferðavinningur Kr. 50,000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 16800 38219 44519 48536 62734 68961 35384 38432 44564 53433 66941 79593 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (työfaldur) 1530 8541 21141 32381 44418 58098 66149 72274 1641 10808 21989 33062 48420 59032 66778 72382 1820 11787 22097 34246 49789 59053 67527 72495 2343 12621 23297 34683 51685 59278 68330 72699 3041 13088 23322 35241 52326 59378 68339 73717 3144 13451 24344 36294 53001 59516 69347 74694 3843 13567 26219 37780 53195 59761 69555 76735 4017 15130 26551 39278 54322 60067 69675 77147 4412 15518 27171 39373 54440 60359 69916 79888 4747 16677 27687 39451 55223 60445 70024 7313 19237 31111 39667 55741 63303 70341 7611 20291 31342 41593 56512 63971 70452 7612 20694 31347 43109 57422 64203 71636 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur) 436 8919 20279 30881 39945 50452 60647 73499 498 9088 20744 30984 39967 50940 61125 73713 821 9278 20836 31777 39969 51619 62250 73979 1055 9279 21575 32115 39971 52666 62938 74109 1468 9391 21786 32314 40139 52888 62948 74366 1554 9392 21942 32367 40259 53176 62965 74473 1646 9397 21995 33352 40920 53627 63306 75209 2077 10179 22045 33471 41780 53757 63436 75894 2162 10374 22640 34128 41876 53985 63933 75933 2285 10879 22831 34619 42860 54167 64168 76378 2477 11097 23178 34707 43589 54271 65195 76810 3358 11256 23256 35144 43925 54392 65453 76984 3389 11263 23401 35238 44017 54523 65915 77090 3546 12183 23739 35239 44209 54917 66393 77166 4059 13762 24099 35302 44661 55464 67065 77292 4136 13995 24249 35582 45132 56071 67112 77585 4371 14018 24581 35875 45327 56280 67464 77854 4761 14244 25754 36559 45894 56532 67542 77982 4844 14585 25872 36616 46511 56924 67866 78297 5324 14731 26337 36712 46942 57277 67927 78331 5556 14786 27773 37165 47033 57556 67963 78685 5558 14975 27782 37296 47069 57601 68088 79003 5703 15069 28447 37306 47605 58102 68970 79009 6185 15661 28602 37415 47757 58183 69976 79353 6293 15818 28801 37433 47814 58730 70109 79900 6416 17009 29044 37579 48009 59079 70227 79991 7096 18117 29313 37869 49207 59360 70438 7294 18154 29589 38571 49256 59629 71299 7306 18172 29612 38617 49471 59636 71330 7821 18537 29962 38712 49555 59941 71563 8235 18785 29970 38738 49993 60158 71923 8335 20269 30729 39095 50197 60337 72384 Næsti útdráttur fer fram 26. nóvember 1998 Heimasíða á Interneti: www.itn.is/das/

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.