Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 20.11.1998, Blaðsíða 62
62 FÖSTUDAGUR 20. NÓVBMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Laugarásbíó og Stjörnubíó sýna spennutryllinn Blade sem fjallar um baráttu ofur- mannlegrar hetju við nútíma blóðsugur. Myndin er byggð á teiknimyndasögu og með aðalhlutverk í henni fara Wesley Snipes og Stephen Dorff. BASAR verður haldinn á Hrafnistu í Hafnarfirði laug- ardaginn 21. nóvember frá kl. 13-17 og mánu- daginn 23. nóvember frá kl. 9-16. Margt góðra muna Sjón er sögu ríkari Ofurhetja á blóðsuguveiðum BLADE (Wesley Snipes) er ódauðlegur stríðsmaður með ofurmannlegt afl og hlutverk hans er að berjast '.-vfð blóðsugur. Móðir hans var bitin af blóðsugu þegar Blade var á fóst- urstigi og sársauki hennar berst til sonarins með blóðstraumnum. Við fæðingu hans lætur móðirin lífið, en hann fær í arf meira afl en nokkur maður eða blóðsuga býr yfir. Blade verður að verja mannkynið þótt hann sé ekki að öllu leyti mennskur sjálfur. Blóðsmit hans gerir það að verkum að hann býr yfir hæfileika til að skilja og sigrast á óvinum sín- um, flokki blóðsugna sem hreiðrað hafa um sig hvarvetna í þjóðfélag- inu. Án þess að mannfólkið geri sér grein fyrir því hafa blóðsugurnar komið sér fyrir í viðskiptalífinu, ríkis- stjórninni, löggæslunni og á alþjóð- legum fjái-málamarkaði. I samvinnu við Abraham Whistler (Kris Kri- stofferson) heldur Blade í herför til að ráða niðurlögum blóðsugnanna og því heljartaki sem þær hafa náð á samfélaginu. Helsti andstæðingur þeirra félaganna er Deacon Frost (Stephen Dorff) sem býr sig undir að taka völdin í heimi blóðsugnanna og stjóma árás þeirra á mannkyn- ið. Það eina sem sem er yfirsterkara valdafýsn Frosts er blóðfíkn hans. I baráttunni um völdin ryður hann úr vegi foringj- anum í stjóm æðstaráðs leynifélags stríðs- manna sem DEACON Frost (Stephen Dorff) fer fyrir hópi blóðsugna sem ætla að útrýma mannkyninu. engu vilja eira og sem nýr foringi þeirra hefur hann undirbúning að því að út- rýma mannkyninu. Fyrst verður hann þó að takast á við eina manninn sem getur komið í veg fyrir áætl- anir hans, sem auð- vitað er enginn annar en of- urhetjan Blade. BLADE í baráttu við erkióvininn Frost sem Stephen Dorff leikur. Söguhetjan Blade kom fyrst fyrir í hasarblaði árið 1973 og þá var per- sónan í aukahlutverki í sögu sem hét Grafhýsi Drakúla. Síðan þá hefur vegur hans í teiknimyndasögum vax- ið verulega, en Blade er ein fyrsta persónan í teiknimyndasögum sem er af afrískum uppruna. Framleið- endur Blade fengu David S. Goyer til að skrifa handritið að kvikmyndinni, en hann hafði áður gert handrit að myndunum Dark City, Death Warr- ant og The Crow: City of Angels. Þeim þótti aðeins einn leikari koma til greina í aðalhlutverkið og það var Wesley Snipes. Fyrst og fremst vegna þess að hann er frábær leik- ari, en einnig vegna þess að hann er sérfræðingur í bardagaíþróttum. Snipes sýndi strax mikinn áhuga á viðfangsefninu, enda segir hann hlutverkið vera einstakt tækifæri til að túlka margslungna ofurhetju. „Blade er flæktur í baráttu upp á líf og dauða og á sama tíma á hann í stöðugri baráttu við eigin skugga- hliðar,“ segir Snipes. „Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði aldrei gert áður. Ég hef leikið fullt af góð- um gæjum og þeir eru ágætir en lin- ir og takmarkað hvað þeir geta gert. Mig Iangaði til að leika eitthvað þar sem ég gæti verið dularfullur og hættulegur.“ Snipes var einnig áhugasamur um að taka þátt í kvikmyndaframleiðslu og þar sem hann fékk mikinn áhuga á gerð myndarinnar vildi hann vera með á öllum sviðum framleiðslunnar. Fyrh-tæki hans, Amen Ra, var því með í framleiðslunni á myndinni og sjálfur varð Wesley Snipes aðalper- sónan Blade. Hann notaði lítið stað- gengil í myndinni en aðstandendur myndarinnar settu honum þó stólinn fyrir dyrnar í sumum hættulegustu atriðunum, t.d. þegar Blade og Whistler brjótast í gegnum múrvegg og stökkva á lest á fullri ferð. „I svona tilfellum er maður virkilega þakklátur fyrir að hafa áhættuleik- ara við höndina,“ segir Snipes. KRIS Kristofferson leikur Abra- ham Whistler sem aðstoðar Bla- de í herför gegn blóðsugunum. BLADE (Wesley Snipes) er ódauðlegur stríðsmað- ur með það hlutverk að berjast við blóðsugur. ÆP / Bergljót Amalds, leikkona og rithöfundur, hefur m.a. hlotið heiðursverðlaun menn- ingarsjóðs SPRON fyrir bækur sínar. MYNDBÖND Geðveiki í fjölskyld- unni Já-setrið (The House of Yes)_ Gaman/drania ★★ Framleiðsla: Beau Flynn og Stefan Simchowitz. Leikstjórn: Mark Wa- ters. Handrit: Wendy MacLeod. Kvik- myndataka: Michae Spiller. Tónlist: Rolfe Kent. Aðalhlutverk: Parker Posey og Tori Spelling. 102 mín. Bandarísk. Sam-myndbönd, nóvember 1998. Bönnuð börnum innan 12 ára. MARTY er að koma með nýju kærustuna heim til mömmu, það sem hún veit ekki er að tilvonandi tengdafj ölskylda hennar er öll meira eða minna klepptæk. Fortíð- in er risastórt leyndarmál, sem einhvern veginn tengist Kennedy- morðunum, og heimilið enginn staður fyrir ókunnuga. Verkið er skrifað fyrir svið en uppfært hér fyrir sjónvarp. Leikrit- ■ ið er ágætt að mörgu leyti og bygg- ist í kringum geðveiki og svarta kímni. Margar brotalamir eru hins vegar í uppfærslunni. Leikur er of misjafn. Flestir leikaranna eru góð- ir eða slarkfærir, en Tori Spelling, sem hefur sannað að ekkert er betra fyrir feril vondrar leikkonu en að eiga voldugan framleiðanda sjón- varpsefnis íyrir foður, er ömurleg. Hver sem ber ábyrgðina, þá nær „The House of Yes“ aldrei því flugi sem efniviðurinn býður upp á, og marar því í meðallagi. Guðmundur Ásgeirsson Venst vel Söngdísirnar (Héroines)_________________ Drama ★ ★‘/2 Framleiðandi: Alain Terzian. Leik- stjóri og handritshöfundur: Gérard Krawczyk. Tónlist. Laurent Alvares og Maidi Roth. Aðalhlutverk: Virg- inie Ledoyen og Maidi Roth. (109 mín.) Frönsk. Skffan, október 1998. Bönnuð innan 12 ára. HÉR segir frá vinkonunum Johönnu og Jeanne sem syngja saman í lítt þekktri hljómsveit. Hin hlédræga Jeanne er gædd einlægri tónlistargáfu og heillandi söng- rödd en Johanna er kynþokkafull og hefur sterka sviðsframkomu. Þegar Johanna kemur fram í söngvakeppni í sjónvarpi spila tæknimennirnir óvart upptöku af rödd Jeanne í söngkerfínu og poppstjarnan „Jo- hanna“ verður til. Söngdísirnar er kraftmikil tón- listarkvikmynd og heilmikið drama um frægð, vináttu og mannkosti. Franska poppið lætur reyndar dá- lítið ankannalega í eyrum en venst ágætlega eftir því sem á líður. Mai- di Roth sem leikur Jeanne (eins konar franska útgáfu af Sheryl Crow), hefur mjög næma og fallega rödd og Virginie Ledoyen skilar hlutverki hinnar blóðheitu og kyn- þokkafullu Johönnu af sannfæringu. Þessi franska rokkmynd er skemmtileg tilbreyting, ekki síst fyrir áhorfendur í yngri kantinum. Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.