Morgunblaðið - 03.12.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 15
FRÉTTIR
Hreppsnefnd vill að Olfus
verði bær en ekki hreppur
Ný aðveitustöð RARIK við Brennimel
500 staurar víkja
fyrir jarðstreng
HREPPSNEFND Ölfushrepps
hefur samþykkt að óska eftir því
við örnefnanefnd að hún mæli með
því að nafni sveitarfélagsins verði
breytt úr Ölfushreppi í Ólfus. „Eg
held að það sé skoðun fólks að
hreppur sé eitthvað lítið og smátt,“
sagði Sesselja Jónsdóttir sveitar-
stjóri. „Þar sé fámenni og ekki
eins góð þjónusta og í borg eða
bæ.“
„Við viljum hnsta þetta af okk-
ur,“ sagði hún. „I Þorlákshöfn búa
tæplega 1.500 manns og samtals
1.700 manns í öllum hreppnum en
hann nær frá Herdísarvík í vestri
og að Ölfusá í austri. Hér er mjög
öflugt félagsstarf á öllum sviðum
og okkur finnst fullt tilefni til að
verða bær enda störfum við sem
bær. Þetta mun ekki breyta neinu
í sjálfu sér. Réttindi og skyldur
allra sveitarfélaga í landinu eru
þær sömu og breytingin mun ekki
heldur hafa úrslitaþýðingu um
fjárveitingar til okkar. Það er ein-
ungis þetta að okkur finnst bær
vera stærri og við teljum okkur
vera það og viljum vera það.“
Að sögn Sesselju verður tillagan
kynnt íbúum og sagðist hún vera
fullviss um að breytingin myndi
mælast vel fyrir. I tillögu um
nafnabreytinguna segir að þegar
örnefnanefnd hafi mælt með
breytingunni þyrfti að ræða hana
tvisvar í hreppsnefnd og að lokum
þurfi hún að hljóta staðfestingu fé-
lagsmálaráðherra.
Óbreytt útsvar
Hreppsnefnd Ölfushrepps hefur
einnig samþykkt að útsvar verði
óbreytt 11,4% á næsta ári og í bók-
un sem fylgir tillögunni segir að
þrátt fyrir miklar framkvæmdir og
fyrirsjáanlegar kostnaðarhækkanir
í rekstri hreppsins hafi verið
ákveðið að halda óbreyttu útsvari.
Hreppsnefnd hafi ákveðið að auka
ekki álögur á íbúa í formi hærra út-
svars heldur leggja sitt af mörkum
til að viðhalda kjarabótum í formi
skattalækkana sem samið var um í
tengslum við kjarasamninga árið
1997.
A fundi hreppsnefndar var auk
þess samþykkt að leggja auka-
vatnsgjald á þá notendur, sem
kaupa vatn til annarra nota en
heimilisþarfa og var samþykkt að
hækka gjaldið um 10% frá fyrra ári
eða 2,75 krónur fyrir hvern
rúmmetra. Þá var samþykkt að
hækka sorphirðugjald um 5% árið
1999.
TEKIN var formlega í notkun á
mánudaginn ný aðveitustöð RARIK
við byggðah'nustöð að Brennimel í
Hvalfirði. Jafnframt tók Akranes-
veita í notkun nýjan 66 þúsund volta
jarðstreng frá stöðinni til Akraness.
Strengurinn leysir af hólmi 40 ára
gamla tengingu RARIK frá aðveitu-
stöð ofan Korpúlfsstaða til Aki-a-
ness, þ.e. 27 km háspennulínu og 4
km sæstreng undir Hvalfjörð.
Það var árið 1958, um svipað leyti
og Sementsverksmiðjan tók til
starfa, að Akranes tengdist Sogs-
virkjunum með þeirri línu, en fram-
kvæmd var í höndum RARIK. Að
undanfömu hefur verið unnið að
niðurrifi línunnar frá Korpu. Mastur
í miðjum Kollafirði setti svip sinn á
umhverfið, en nú hefur það verið
fjarlægt. Tæplega 500 staurar verða
teknir niður og verður verkinu lokið
á þessu ári.
Aðveitustöð RARIK við Saurbæ á
Kjalamesi verður jafnframt lögð
niður, en Kjósin sem áður tengdist
Saurbæ, fær nú rafmagn frá Brenni-
mel um 5 km jarðstreng og nýjan 3
km langan sæstreng um Katanes yf-
ir Hvalfjörð annars vegar og jarð-
streng um Hvalfjarðargöng hins
vegar.
Framkvæmdir við hina nýju að-
veitustöð hófust á síðasta ári og vora
Borgarverk hf. og Trésmiðjan Borg
í Borgamesi verktakar við byggingu
aðveitustöðvarhússins, en að öðra
leyti hefur vinna við þær verið í
höndum starfsmanna RARIK.
Kostnaður við verkhluta RARIK,
þ.e. aðveitustöð og nýjar lagnir í
Hvalfirði, er um 150 milljónir króna.
BALENO
baleno
\mnm
VKU=in
SWIFT BALENO WAGON R+ JIMNY VITARA GRAND VITARA
TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR. TEGUND: VERÐ: l,3GL3d 1.140.000 KR. l,3GL4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX4x4 4d 1.495.000 KR. l,6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. TEGUND: GL GL4x4 VERÐ: 1.079.000 KR. 1.259.000 KR. TEGUND: VERÐ: Beinskiptur 1.379.000 KR. Sjálfskiptur 1.499.000 KR. TEGUND: JLX SE 3d JLX SE 5d DIESEL 5d VERÐ: 1.580.000 KR. 1.830.000 KR. 2.180.000 KR. TEGUND: GR, VITARA 2,0 L GR. VITARA 2,5 L V6 VERÐ: 2.179.000 KR. 2.589.000 KR.
Komdu
og sestu inn!
Sjáðu rýmið og alúðina
ry-
við smáatriði.
Skoðaðu verð o.
gerðu samanburo.
FUiLyM
framíIMI
i mm
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• aflstýri • 2 loftpúðar •
1 aflmiklar vélar • samlæsingar
• rafmagn í rúðum og speglum
• styrtarbitaí hurðum •
• samlitaða stuðara •
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Gardabraut 2, slml 431 28 00. Akureyrl: BSA hf„ Laufásgötu 9, slml 462 63 00. Egllsstaðlr:
Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 5S515 50. Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, slmi 456 30 95.
Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 2617.
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is