Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Uppákomur í réttar- höldum yfír Anwar Einkabílstjórinn ítrekaði ásökun sem hann hafði áður dregið til baka Kuala Lumpur. Reuters. í VITNALEIÐSLUM í gær í réttarhöldun- um yfír Anwar Ibra- him, fyrrverandi að- stoðarforsætisráð- herra Malasíu, sagði Azizan Abu Bakar, sem áður var einkabíl- stjóri Anwars, að hann stæði við fyrri yfirlýsingu sína um að Anwar hefði ítrekað neytt hann til að eiga við sig kynmök árið 1992. Anwar er sakaður um spillingu og kyn- Anwar ferðisafbrot, en sam- Ibrahim kynhneigð er bönnuð með lögum í Malasíu. Hafði Azizan dregið yfirlýsingu sína til baka í ágúst 1997, skömmu eftir að hann sendi hana frá sér, en þá hafði hann verið handtekinn. Er það einmitt eitt af ákæruatriðunum gegn Anwar að hann hafi beitt lög- reglunni til að þvinga Azizan til að draga ásakanir sínar til baka. Sagði Azizan að athafnir sínar með Anwar hefðu valdið sér miklum andlegum sársauka og vegna sektarkenndar hefði hann átt mjög erfitt með að vera í návist eiginkonu Anwars, sem hann sagði afar góða mann- eskju. „Eg ákvað loks að sætta mig ekki lengur við að vera hvað eftir annað kynferðislegt fómarlamb þessa manns, Anwars Ibra- hims, sem ég tel öf- ugugga.“ Verjandi Anwars biðst afsökunar Fyrr um daginn hafði dómarinn í máli Anwars fellt úr gildi hand- tökuskipun á hendur einum af níu verjendum Anwars eftir að sá hinn sami hafði beðist afsökunar á þeim staðhæfingum sínum að saksókn- arar í málinu hefðu reynt að falsa sannanir gegn Anwar. +80 aurar á bensínlítra inn á Safnkortið Brúarlandi Mosfellsbæ Olíufélagiðhf www.esso.is Hafði dómarinn á mánudag dæmt Zainur Zakaria, verjanda Anwars, í þriggja mánaða fangelsi fyrir að sýna réttinum óvirðingu en Zakaria hafði þá lagt fram eið- svama yfirlýsingu frá Anwar þar sem hann sakaði saksóknarana um að hafa boðist til að falla frá ákæru á hendur gömlum vini ráðherrans fyrrverandi gegn því að hann bæri vitni í málinu. Dómarinn sagði að þessi ásökun væri tilhæfulaus og óvirðing við réttinn þar sem markmiðið með henni væri að gefa í skyn að öll málsóknin byggðist á tilbúnum sakargiftum. Skrautleg réttarhöld Fangelsisdómurinn yfir Zainur kom bæði verjendum og sak- sóknuram í opna skjöldu og þykja reyndar réttarhöldin yfir Anwar hafa verið æði skrautleg. Leyfði dómarinn á þriðjudag til- raunir verjenda Anwars til að sanna að ásakanimar á hendur Anwar væra liður í samsæri gegn honum en það kom mjög á óvart því dómarinn hafði í síðasta mán- uði úrskurðað að verjendur ættu ekki að eyða tíma réttarins í sam- særiskenningar sínar. Líknsöm hönd RICK Herman, forngripasafnari í Florida í Bandaríkjunum, heldur hér á 4.000 ára gamalli hendi, smyrlingi, sem á sínum tíma til- heyrði egypskri prinsessu. Var hún uppi á dögum konungsins Merenre en vann sér það til óhelgi að líkna fátækum og gefa þeim mat. Fyrir það missti hún höndina. Verður höndin seld á uppboði til styrktar börnum þannig að segja má, að eftir allan þennan tíma sé hin líknandi hönd prinsessunnar enn að verki. Reuters Viðskiptafröm- uðir stunda klámklúbbana Kaupmaiinahöfn. Morgunblaöið. MENN úr viðskiptalífinu eru helstu viðskiptavinir klámklúbba, ef marka má könnun sem sænska sjónvarps- stöðin TV4 hefur gert. Par kom fram að rúmlega helmingur við- skiptavina á slíkum stöðum kemur úr viðskiptalífinu. Þrátt fyrir að konum hafi fjölgað í valdamiklum stöðum í viðskiptalífinu virðist það enn tíðkast í ríkum mæli að farið sé með gesti á klámklúbba. Reikningar fyrir ráðgjöf og tækjakaup Viðskiptalífsfrömuðimir virtust þó eitthvað setja fyrir sig að leggja reikninga klúbbanna á borð bók- haldaranna, því á reikningana var iðulega skrifuð ráðgjöf, tækjakaup eða önnur viðskipti, sem ekki koma heim og saman við þá þjónustu, sem klúbbaroir veita. Pað er alkunna að verðlag í klúbbum af þessu tagi er uppsprengt og því voru reikning- arnir háir. Margvísleg fyrirtæki virðast fara með viðskiptavini á klámklúbba og voru ýmis þeirra nafngreind, en stór og þekkt fýrirtæki hafa ekki komið við sögu. Risnan fari í annað Forstjóri eins fyrirtækjanna, sem nafngreind hafa verið, sagðist ekki sjá neitt athugavert við að fara á slíka staði, það tíðkaðist víða, en viðurkenndi að röng uppáskrift á reikninga væri auðvitað ekki æski- leg; Ymsir aðrir frammámenn í við- skiptalífinu hafa bent á að ekki sé eðlilegt að fyrirtæki noti risnu sína í klámklúbba og röng uppáskrift reikninga sé heldur ekki eðlileg. Þjóðarmorðið í Rúanda 7 6 sleppt úr haldi vegna ónógra sannana Kigalí. Reuters. SJÖTIU og sex manns, sem allir höfuð verið handteknir granaðfr um aðild að þjóðai-morði, vai- í gær sleppt úr haldi í Afríkuríkinu Rú- anda vegna ónógra sannanna. Greindi Rwanda News Agency frá því að stjórnvöld í landinu hygðust sleppa allt að tíu þúsund manns úr haldi vegna skorts á sönnunum en þessi ákvörðun, sem tekin var í október síðastliðnum, olli mikilli reiði samtaka þeirra sem lifðu af þjóðarmorðin í Rúanda og sögðu talsmenn samtakanna að um um svik af hálfu dómsmálayfrrvalda væri að ræða. Talið er að öfgasinnaðir Hútú- menn hafi murkað lífið úr átta hundrað þúsund Tútsímönnum og hófsömum Hútúmönnum í hundrað daga morðæði sem gekk yfir í borgarastríðinu árið 1994. Era öll fangelsi í Rúanda yfirfull vegna þessara atburða enda era meira en hundrað tuttugu og fimm þúsund manns granuð um aðild að drápun- um. Saksóknari sagði í gær að fang- amir sem nú fengu frelsi að nýju yrðu sendir til sinna heimabyggða en tók fram að hægt yrði að hand- taka þá á nýjan leik kæmu fram frekari sannanir um aðild þeirra að ódæðunum. Segjast samtök þeirra sem lifðu þjóðarmorðið af óttast að fangarnfr fyirverandi taki upp sína fyrri iðju og myrði mann og annan til að ryðja úr vegi hugsanlegum vitnum gegn sér. Glœsilegar jólagjafir Vegna þeirra fjölmörgu er misstu af okkur á húsgagnadögum í Blómavali í nóv. og haft hafa samband símleiöis.viljum við benda á að við verðum að Laufásvegi 17 til jóla. 30% - 50% afsláttur Opið virka daga 10-18 ogHelgar 11-18 Sendum heim! COLONY ehf. Laufásvegi 17 Sími 893 8100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.