Morgunblaðið - 03.12.1998, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 GS*'
hversu margir hafa látist eða misst
allt sitt þegar upp er staðið.
Alls staðar sem maður fer um
höfuðborgina sér maður risastór
skörð í fjöllunum þar sem áður
stóðu heilu íbúðarhverfm. Úti um
allt eru hús sem vantar á veggi eða
þak, bílar, strætisvagnar og annað
lauslegt liggur á hvolfi úti í ám, risa-
stór svæði eru undir vatni. Þar sem
áður var stórt útivistarsvæði nálægt
miðbænum stendur nú upp úr drull-
unni aðeins efsti hlutinn af körfu-
boltakörfu.
Það er hægar sagt en gert að
komast leiðar sinnar um borgina,
því þótt strætisvagnar séu farnir að
ganga eru alls staðar ónýtar götur
og brotnar brýi- svo maður þarf að
Fólk deyr úr hungri og
sjúkdómum úti um allt
land því engin hjálp
berst og enginn matur.
Sigrún Tómasdóttir er
stödd í Hondúras og
segist hún hafa upplif-
að þar meiri hörmung-
ar en hana óraði fyrir.
fara rosalegar krókaleiðir, taka
jafnvel þrjá vagna f staðinn fyrir
einn áður og svo þarf maður að
labba og labba og labba...
Rotnunarlyktin
liggur í loftinu
Óhreinindin úr ánum eru alls
staðar og ólyktin hi-yllileg, árnar
eru fullar af rotnandi líkum og
hræðilegur daunninn liggur yfir
öllu. Þegar svo þornar í ánum og
fnykurinn fýkur yfir borgina er loft-
ið þannig að nú ganga borgarbúar
með andlitsgrímur. Það svíður í
augun, nefið er fullt af ryki og
óbragð í munninum. Salerni eru víð-
ast óvirk, svo fólk gerir þarfir sínar
þar sem því verður við komið og
fólk getur ímyndað sér Iyktina sem
því fylgir. Skólar hafa allir verið
lagðir niður það sem eftir er þessa
skólaárs og í staðinn fara náms-
menn um bæinn í hópum með skófl-
ur og hjólbörur og moka og hjálpa
til. Alls konar sjúkdómsfaraldrar
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, simí 5544433
eru að skjóta sér niður og eins gott
að vera vel bólusettur.
Bað- og drykkjarvatnið mengað
Ennþá er mikill vatnsskortur,
símalínur í ólagi og miklir erfiðleikar
með rafmagn. Það baðvatn sem við
fáum, sem er ekki mikið og stundum
líða margh- dagar á milli þess að við
komumst í bað, er drulluskítugt og
meira að segja diykkjarvatnið sem
selt er á flöskum þykh- ekki öruggt
að drekka lengur.
Hér í höfuðborginni erum við þó
„heppin"; hingað kemur matur og
heimilislausir fá lágmarksaðstoð.
Það eru fjöldamörg þorp og bæir úti
á landi sem enn fá enga hjálp og eru
jafnvel algjörlega einangruð vegna
götu- og símaleysis. Fólk deyr úr
hungri og sjúkdómum úti um allt
land, því það berst engin hjálp og
enginn matur.
Eg og nokkrir félagar úr
skiptinemahópnum mínum, m.a. frá
Noregi og Danmörku, ásamt öðrum
vinum og vandamönnum bæði hér
og í heimalöndum okkai’, viljum
reyna að hjálpa einhverju af þessu
fólki. Heima veit ég að Rauði kross
íslands hefur gefið AUS um tvö
tonn af fatnaði, sem Hondúrasmenn
búsettir á Islandi (en nú á leið heim
til að hjálpa fjölskyldum sínum sem
misstu allt sitt), fyrrverandi íslensk-
ir sjálfboðaliðar í Hondúras og fleiri
velviljaðir hafa pakkað í kassa handa
þurfandi hér. Allt sem við þm-fum nú
er aðstoð við að senda fatnaðinn
hingað. í Noregi og í Danmörku
stendur yfir peningasöfnun til að
kaupa mat og leikíong til að senda
með fótunum frá Islandi út í þorp og
bæi sem enn hafa enga hjálp fengið,
því þar er jú þörfin mest. Við höfum
þegar tekið við peningasendingu frá
Noregi og hluta þeirra höfum við
notað til kaupa á leikfóngum, litum,
pappír og fleira sem við höfum farið
með í athvörf heimilislausra hér í
Tegucigalpa. Þai’ gefum við bömun-
um gjaflr og leikum við þau. Það er
skelfilegt til þess að vita hve heimil-
islausum börnum hefur og á efth’ að
fjölga hér. Nógu mörg voru þau fyr-
ir.
Geta íslendingar hjálpað okkur?
Mig Iangar að vita hvort íslend-
ingar séu ekki tilbúnir að ganga í lið
með Norðmönnum og Dönum í að
hjálpa okkur að hjálpa heimilislaus-
um og matarlausum í Hondúras.
Sérstaklega höfum við áhuga á því
fólki sem býr úti í sveitum lándsins
og hefur litla sem enga aðstoð feng-
ið. Við sjálfboðaliðarnir á vegum
AUS/ICYE hofum gengið í lið með
samtökum lækna og hjúkrunarliðs
frá Bandaríkjunum og annars stað-
ar frá sem er á leið út á land. Þar
hefur fólk misst allt sitt; hvorki er
til matur né fatnaður, lyf né aðrar
nauðsynjar, fólk deyr af næringar-
skorti og sjúkdómum daglega og
flestir eygja litla sem enga von.
Þegar þetta birtist almennings-
sjónum á Islandi verð ég komin með
öðra hjálparfólki til Nacaome, suð-
ur af Tegucigalpa. Þar sem engir
vegir eru neyðumst við til að ganga
lengi, lengi, lengi... Hvenær hefði
mér dottið í hug að ég - venjulpg
stelpa úr allsnægtunum uppi á ís-
landi - ætti eftir að leggja þetta á
mig? Til Hondúras hafði ég farið
full af útþrá og eftirvæntingu og
bjóst kannski við að þiggja meira en
ég gæfi. En svona getur lif manns
breyst á stuttum tíma.
Mér er kunnugt um að Hjálpar-
stofnun kirkjunnar á Islandi hefur
ákveðið að hluti af söfnunarfé henn-
ar þessi jól renni til þurfandi í Mið-
Ameríku. Til þess hefur verið stofn-
aður sérstakur bankareikningur,
númer 27 í Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis á Skólavörðustíg. Von
mín er sú að Hjálparstofnun og aðr-
ir velviljaðir heima geti aðstoðað við
fiutning á þeim fatnaði sem
Hondúrasbúar á íslandi og AUSar-
ar, með aðstoð Rauða krossins, hafa
pakkað til þurfandi í Hondúras.
Þörfin er svo gríðarleg að það er
ekki einu sinni hægt að biðja venju-
legt fólk að setja sig í spor þessa
fólks.
Mig langar að biðja fólk, í miðjum
önnum jólaundirbúningsins á ís-
landi, að hugsa til okkar hér suður
frá og leggja sitt af mörkum með
því að styðja Hjálparstofnun jíirkj-
unnar með framlagi sínu. Eg er
ákveðin í að koma ekki heim fyrr en
skiptinemaárinu mínu hér lýkur;
hér vil ég vera og hvergi annars
staðar. Ég vii reyna að leggja mitt
af mörkum, hversu lítið sem það
kann að verða, til þess að aðstoða þá
sem svo sárlega þurfa á því að halda
hér.
Ég vona að Islendingar séu af-
lögufærir þessi jól til aðstoðar þurf-
andi meðbræðrum og -systrum.
Höfundur er sjálfboðaliði á vegum
AUS i Hondúras.
Breiðir og með góðu innleggi
Einir bestu „fyrstu" skórnir
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus Medica 551 8519
Kringlunni 568 9212
Toppskórinn 552 1212
Verð fró: 3.995,-
Tegund: Jip 623
Hvílt, rautt, blótt, svart, bleikt og
brúnt leður í stærðum 18-24
Lax & síld
GóðgœtL a jóiabordid
&
ÍSLENSK MATVÆLI
^UNNEVA
>ES\ON
Hur
Sölustaðir:
Veiðimaðurinn, Hafnarstræti 5, Rvík,
Leðuriðjan Atson, Laugavegi 15, Rvík,
Sunneva Design,
Hvannavöllum 14, Akureyri.
t