Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 74

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 74
>74 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Grettir /2k /- Ý1KMVO LlF' //ýtV ( /14indoe és \ ( fKAL <SH5A HV-/10 SSM etz F/RlR 2 ^KtóAE>.SE/M ER?) ! síf\ l FmvAVíse-w '^Tr ' 3 - - Sfr3? . , „ Hundalíf Ljóska Smáfólk o £ œ I NEVER 6ET TO THE PART ABOUTTHELIMO AND THE FREE Segjum sem svo að við séum gift, En segjum sem svo að og að pabbi minn hafi boðið þér 70 þú krefjist, þess að spila milljén kréna starf í fyrirtækinu á árans píanóið þitt í sínu... einhverri sjúskaðri búllu, og... Ég komst aldrei til þess að tala uin glæsivagn- inn og ékeypis máltíð- irnar... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Þjóðfélag fyrir alla Frá Maríu Hreiðarsdóttur: NÚ ÞEGAR þessi öld rennur sitt skeið þá getum við verið stolt af þeirri vinnu sem hagsmunasamtök um málefni fatlaðra hafa unnið á undanfórnum árum. Það eru ekki nema um tuttugu ár síðan fólk sem er fatlað var látið á stofnanir í ríkum mæli. Ekkert þótti sjálf- sagðra en að fólk sem er fatlað byggi á stofnunum. Að mati ann- arra öllum til heilla. En nó er öldin önnur og er það ekki síst að þakka hagsmunasam- tökum um málefni fatlaðra. Sem betur fer flytur fólk, sem er fatlað, ekki inn á sólarhringsstofnanir svo að ég viti til í dag. Þeir sem voru sendir þangað fyrir mörgum árum búa margir hverjir þar enn í dag. Þessu fólki verðum við að bjarga. Þetta fólk á ekkert val og að mínu mati ekkert líf. Það á betra skilið en að búa á stofnunum það sem það á eftir ólifað. Þó að félagsmála- yfírvöld hafí lofað að loka Kópa- vogshæli býr fjöldi fólks, sem er fatlað, þar enn. Þessir einstakling- ar fá skerta þjónustu miðað við annað fólk sem er fatlað í okkar samfélagi. Stefna þjóðfélagsins hefur verið að loka öllum stofnun- um. Það er að sjálfsögðu mál sem er virðingarvert og samfélaginu öllu til heilla þegar til lengri tíma er litið. Við verðum líka að skilja það að fólk, sem er fatlað ki-efst betri þjónustu á heimilum sínum en það hefur fengið hingað til. Þessir einstaklingar krefjast þess af samfélaginu að þeir fái stuðning til að búa sjálfstætt. Fólk, sem er fatlað, sættir sig ekki við þá af- komu sem jafningjar þeirra gerðu hér áður fyrr. Við erum einfaldlega að koma inn á nýja öld. Fólk, sem er fatlað, er ekki öðruvísi. Það ger- ir meiri kröfur til lífsins eins og aðnr þjóðfélagsþegnar. í dag er staðan sú að einstak- lingar, sem eru fatlaðir, eru farnir að eignast börn, en hvorki samfé- lagið né sérfræðiþjónusta fyrir fólk, sem er fatlað, býður upp á stuðning nema af skornum skammti. Þegar einstaklingar sem eru fatlaðir taka þá ákvörðun að eignast barn þá þykir það óhugs- andi. Foreldrar þeirra fara í við- bragðsstöðu, fordómar gagnvart þeim, sem eru seinfærir eða þroskaheftir á einhvern hátt, eru ótrúlegir og að mínu mati engan veginn við hæfi. Greindarskerð- ingin ein og sér segir ekkert til um hvort fólk sé hæft til foreldra- hlutverks, heldur miklu frekar hvort foreldrarnir séu ástríkir við börn sín eða ekki. Eg hef velt því fyrir mér af hverju fordómar gagnvart fólki, sem er seinfært, séu svo miklir en fæ enn fá svör. Eg tel þó að um mikið þekkingar- leysi sé að ræða. Þess vegna tel ég vera kominn tíma til að veita fólki fræðslu um þetta mál. Til að auka þekkingu og skilning á foreldrum sem eru seinfærir. Mín skoðun er sú að auðvitað séu ekki allir hæfir til að gegna foreldrahlutverkinu en svo er nú líka með fólk sem er með fulla greind. Þess vegna er mikilvægt að gefa fólki tækifæri til foreldrahlutverksins sem hefur getu til þess að sinna því. Við megum ekki sífellt velta okkur upp úr greindarskerðingunni því að hún ein og sér segir ekkert til um hæfni fólks til að gegna for- eldrahlutverkinu. Réttur stuðn- ingur getur þó oft skipt sköpum um að vel takist til. Fólk, sem er fatlað krefst, þess einnig að geta unnið fyrir sér. I dag er staðan sú sökum lélegra launa að fólk sem er fatlað hefur ekki efni á að kaupa sér húsaskjól. Fólk, sem er fatlað sættir sig ekki við frekar en aðrir þjóðfélags- þegnar að þurfa að vera á leigu- markaðinum allt sitt líf. Við erum manneskjur sem gerum sömu kröfur til lífsins og þið sem teljist vera heilbrigð. Við erum ekki að biðja um meira en þið hafið. Við erum að biðja um það sama fyrir okkur og afkomendur okkar. MARÍA HREIÐARSDÓTTIR Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.