Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 76
76 FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Brúðhjón
Allur borðbiinaður - Glæsileg gjaíavara - Brríðlijónalistar
vERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
Við kaupum frímerki
Einu sinni enn komum við til íslands
Við kaupum íslensk og erlend frímerkjasöfn, gömul umslög, heilar
arkir. Við getum einnig tekið hlutina á uppboð.
Kjell Larsson verður á íslandi 14. —16. desember.
Ahugasamir seljendur geta haft samband við Kjell
í síma 00464072290 eða fax 00464072299.
Stærsta frímerkjauppboðsfyrirtæki á Norðurlöndum í yfir 25 ár.
POSTILJONEN, Södra Tullgatan 3, Malmö, Svíþjóð.
Dragtir og
fallegur sparifatnaður
(rá ^oruri
og
grunert
Stœrðir 44-52
B L U
Tískuverslun«Kringlunni 8-12»Sími 5533300
RERTTI PALMROTH*
JóCafijöfin kennar
“Efnið í stígvéíunum er
vatnsfráíirmdandi og
foíir regn, snjó, saít
og Iqitda.
dœgiCegt að frífa,
ein strolqi með rötqim
kjút og stígvéCin verða
gCjáandifaCCeg.
Margar tegundir af
hinum vinscetu
finnsku stígvéCum
ásamt nokfyum
gerðum af ökCfaskpm
!Pessi tegund er taufóðruð, svört, í
stcerðum 36-42, kosta kf. 14300.
í DAG
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Verndum
*
Island
EFTIR að hafa hlustað á
Ingu Jónu Þórðardóttur
útlista í viðtali á Rás 2, hve
slæm stjórn er á borginni
og að nánast allt sé ómögu-
legt sem gert hefur verið,
vaknar sú spuming hvers
vegna blessaðir póli-
tíkusarnir taka sig ekki
saman í andhtinu og vinna
saman, já, ég segi saman
að velferð borgarinnar og
bæjarfélaganna þegar það
á við. Einmitt þessi afstaða
fólks sem er í pólitískum
flokkum er svo ömurleg að
í raun langar marga ekki
til að kjósa. Sjálf er ég
þannig að ég vil miklu
fremur kjósa menn og
málefnin sem þeir standa
fyrir en heilan flokk af
misgóðum körlum og kon-
um.
Eg til dæmis kysi hik-
laust þann mann sem neit-
aði að sökkva hálendi ís-
lands vegna virkjunar-
framkvæmda.
Hvernig væri að kanna
aðra möguleika til orkuöfl-
unar, til dæmis vetni? Mér
þykja þeir menn skamm-
sýnir og ekki starfl sínu
vaxnir sem ekki sjá aðra
atvinnumöguleika en þá
sem felast í stóriðjuverum
og stóriðju almennt. Senni-
lega hafa þeir ekki lesið
neitt það sem erlendir
ferðamenn segja um nátt-
úru Islands; hversu stór-
brotin og falleg hún er og
hvað þeir séu ákveðnir í að
koma aftur en það gera
þeir varla ef blessaðir
stjórnmálamennirnir láta
drekkja öllu hálendinu.
Eg kysi líka þann sem
beitti sér fyrir þvi að eftir-
launaaldur lækkaði niður í
60 ár í stað 67 og mætti þá
hámarksaldurinn til að
vinna vera 67 ár í stað 70.
Ég tel þetta mjög eðli-
lega þróun í þessu vinnu-
þjóðfélagi okkar. Við erum
örugglega búin að skila
okkar og rúmlega það
þegar við verðum 60 ára.
Störfm okkar myndu losna
og yngra fólkið tæki við og
það sem meira væri við
gætum hugsanlega leyft
okkur að gera éitthvað
fyrir okkur sjálf áður en
við verðum alveg heilsu-
laus. Ætti einhver góður
maður að kanna hvernig
þetta er í nágrannalöndum
okkar en ég veit að þar er
eftirlaunaaldur lægri en
hér. Eitt enn fyrst ég er
byrjuð. Það er mikið leitað
til almennings þegar eitt-
hvað bjátar á í þjóðfélag-
inu.
Tökum dæmi. Við söfn-
um peningum og verjum
þeim til að venja unga fólk-
ið okkar af eiturlyfjum og
áfengi og er það gott en
við þurfum að gera meira.
Það er ekki nóg að venja
unga fólkið af eiturlyfjun-
um, við þurfum að aðstoða
það til að komast út á
vinnumarkaðinn eða á
skólabekk. Því miður er
það svo að sumir atvinnu-
rekendur vilja ekki fyrr-
verandi „fíkla“ inn á vinnu-
staði sína.
Við, „almenningur", ætt-
um kannski að safna eina
ferðina enn og koma upp
vinnustöðum með léttum
iðnaði fyrir þetta unga fólk
þvi ekki gera ráðamenn
það - kannski hafa þeir svo
mikið að gera við að telja
okkur trú um það hversu
góðir þeir eru og hvað hin-
ir eru lélegir sem eru í
andstöðu við þá í pólitík-
inni að þeir mega ekki
vera að neinu öðru.
En fyrst og fremst; gæt-
um að hálendinu okkar og
látum hvorki iðnaðarráð-
herra né forstjóra virkjana
valta yfir okkur. Við förum
að komast í þá aðstöðu að
við getum rekið þetta fólk
heim sem sér ekkert annað
en virkjanir og álver.
Það er einungis til eitt
Island - verndum það.
Guðrún Árnadóttir.
Tapað/fundið
Keiluskór og búningur
týndust
NÝIR Dexter-keiluskór
með skiptanlegum sóla og
tveir merktir keilubúning-
ar týndust föstudagskvöld-
ið 27. nóvember í Keilu í
Mjódd. Þetta var i plast-
poka sem kann að hafa
verið tekinn í misgripum
með öðru dóti. Þeir sem
kunna að hafa verið að
spila þetta kvöld á braut-
um 3 og 4 og/eða séð
keiludótið, eiu vinsamleg-
ast beðnir að koma pokan-
um með keiludótinu í Keilu
í Mjódd eða hafa samband
í síma 567 4246.
Það er mjög bagalegt að
tapa þessum búnaði þar
sem nú standa yfir æfingar
fyrir Norðurlandamót
unglinga sem haldið verð-
ur hér á landi í mars næst-
komandi. Það er mikill
kostnaður fyrir ungling og
fyrirhöfn að fá slíka keilu-
skó ef þessir skila sér ekki.
Erla Ivarsdóttir.
GSM-sími
í óskilum
GSM-sími, Ericsson,
fannst við Domus Medica
sl. laugardag. Upplýsingar
i sima 565 4802 eða
861 2389.
Frakki í óskilum
í Gerðubergi
FÖSTUDAGINN 20. nóv-
ember gleymdist frakki í
félagsstarfi Gerðubergs.
Upplýsingar í síma
557 9020.
Svartir hanskar
týndust
SVARTIR skinnhanskar
týndust sl. sunnudag fyrir
utan Austurver eða Eski-
hlíð 26. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
551 5772.
Dýrahald
Bröndóttur köttur
týndist
BRÖNDÓTTUR fress-
köttur týndist frá Flúða-
seli 48. Hann er með bláa
ól og blátt merkispjald og
er eyrnamerktur R8H-043.
Þeir sem hafa orðið hans
varir hafi samband í síma
SKAK
llinsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp í hrað-
skákeinvígi tveggja stiga-
hæstu skákmanna heims
sem haldið var í Moskvu um
síðustu helgi. Vladímir
Kramnik (2.780) var með
hvítt, en Gary Kasparov
(2.815) hafði svart og átti
leik.
Kasparov hafði orðið að
láta drottninguna af hendi
fyrr í skákinni, en sá sér nú
leik á borði:
37. - Rc5! 38.
Dxb5 (38. Da5 -
Ra4 var htlu
betra) 38. - Hb7
39. Dxb7 - Rxb7
40. Hxc4 - Hd7
og með manni yfir
í endatafli vann
Kasparov örugg-
lega.
Einviginu lauk
með jafntefli,
12-12 eftir miklar
sviptingar.
Helgarskákmót
TR hefst á föstu-
dagskvöld kl. 20
og lýkur á sunnu-
daginn. Mótið er með sama mót TR sem notið hafa vin-
sniði og undanfarin helgai’- sælda. Teflt er í Faxafeni 12.
NEI, Knútur, ég geri það
ekki meðan hún stendur
þarna og glápir á.
Víkverji skrifar...
VONBRIGÐI handknattleiks-
áhugafólks með úrslitin í leik
Islendinga gegn Ungverjum á
sunnudag voru sár. Það var svo
mikið í húfi að ná a.m.k. jafntefli.
Ungverjar eru auðvitað geysilega
erfiðir andstæðingar heim að
sækja, því heimavöllur þeirra er
svo sterkur og stuðningur heima-
manna við ungverska landsliðið
svo mikill og sterkur, að það þarf
geysisterk bein til þess að bogna
ekki eða brotna, að leika gegn
Ungverjunum. Víkverji var yfir sig
spenntur, þegar klukkan fór að
halla í tvö á sunnudaginn og leik-
urinn hófst. íslenska liðið náði
óskabyrjun og komst í 2-0, en
Ungverjarnir voru ekki lengi að
jafna. Lengi vel var leikurinn í
járnum og margir íslenskir sjón-
varpsáhorfendur gældu við til-
hugsunina um að strákunum tæk-
ist að sigra og að þátttaka á HM
og næstu Ólympíuleikum í Sydney
í Astralíu væri raunhæfur mögu-
leiki. Undir lok síðari hálfleiks,
þegar aðeins munaði einu marki á
liðunum var staðan orðin
æsispennandi, en spennan varði
ekki lengi, því Ungverjarnir voru
ekki lengi að gera út um leikinn,
með dyggilegri aðstoð frá íslensku
landsliðsmönnunum sem klúðruðu
boltanum ítrekað.
xxx
EKKI verður sakast við mark-
manninn í landsliði okkar, um
það hvemig fór. Guðmundur
Hrafnkelsson varði hvorki fleiri né
færri en 14 skot og hefði það nú oft
dugað íslensku landsliði til sigurs
að hafa slíka markvörslu fyrir aft-
an vamarvegginn. Það sem fór
fyrst og fremst úrskeiðis var slapp-
ur og broddlaus sóknarleikur,
sendingar vora allt of oft óná-
kvæmar og kæruleysi var í hrað-
upphlaupum og svo skipti auðvitað
sköpum stjörnuleikur Józefs Eles
sem skoraði 10 mörk fyrir ung-
verska liðið og ekki síðri stjörnu-
leikur ungverska markvarðarins,
Jánosar Szatmáris, sem varði eins
og berserkur.
XXX
REYNDAR virðast margir hafa
verið hissa á því að Þorbjörn
Jensson sá ekki ástæðu til þess að
nýta krafta stórskyttunnar Ró-
berts Júlíans Duranona í leiknum
gegn Ungverjum. Niðurstaðan er
fengin - tap gegn Ungverjum á
sunnudag gerir það að verkum að
draumurinn um þátttöku á HM í
Egyptalandi í sumar og á Olympíu-
leikunum í Sydney í Astralíu árið
2000 er að engu orðinn. Því virðist
ekki vera um margt annað að ræða
hjá HSÍ forystunni en að nota tím-
ann sem framundan er til þess að
byggja upp nýtt landslið, sem geti
tekið við af þeim sem í dag eru
heldur teknir að reskjast, þannig
að þegar við eigum þess kost að
taka þátt í alþjóðlegu stórmóti á
nýjan leik, getum við sýnt fram á
það að undirbúningstíminn hafi
verið vel notaður.