Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 81

Morgunblaðið - 03.12.1998, Side 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 FÓLK í FRÉTTUM Sharon Stone ræðir ainæmi og kyniíf Smokkakassa á hvert heimili LEIKKONAN Sharon Stone sagði á fimmtudag að foreldrar ættu áð hafa hundruð smokka á reiðum höndum heima fyrh' á aðgengilegum stað fyr- ir unglinga. Þeir lifðu kynlífi hvort sem foreldrar væru því hlynntir eða ekki. Hún sagði í pallborðsumræðum á vegum Sameinuðu þjóðanna að 7 þúsund manns á aldrinum 10 til 24 ára veiktust daglega af alnæmi. „Við erum ekki sterkari en kynhvötin,“ bætti hún við. Kynlíf eins og svefninn „Þegai- ég var unglingur og lifði kynlífi í aftursæti á bíl hefðu foreldrar mínir ekki talið það af hinu góða.“ En það þarf að fræða ungt fólk um þá hættu sem fylgir kynlífi án verja eða fleiri eiga eftir að falla í valinn, hélt hún áfram. Hún lagði til að foreldrar settu 200 smokka í kassa einhvers staðar á heimilinu þar sem „allir dveljast ekki öllum stundum“ svo unglingar gætu tekið þá án þess að fara hjá sér, gefið þá vinum sínum eða jafnvel búið til vatnsbelgi. „Kynlíf er ástæðan fyi-ir tilvist okkar. Kynlíf er það sem fær rósir til að blómstra. Kynlíf er náttúran," sagði Stone og bætti við: „Við borð- um, við sofum, við öndum, við lifum kynlífí.“ Virðum afl náttúrunnar Stone sagði ennfremur: „Eg hvet ekki unglinga til þess að lifa kynlífi vegna þess að það eitt að vera unglingur er nógu sársaukafullt og V erfitt. En ég missti meydóminn þeg- ar ég var unglingur og ég býst við að þið flest hafið gert það líka. Það er orðið tímabært að við látum grím- umar falla og segjum ungu fólki sannleikann. Við látum bömin okkar ekki fá bíl- próf án fræðslu eins og þegar þau fá kynhvötina. Og um þessar mundir er það alveg jafn hættulegt." Stone sagði að fullorðnir ættu að vera til staðar og veita börnum sín- um ráðgjöf þegar þeir „taka áhættur og ganga fram af fólki. Eg mun fyrr snúa baki við öllum vinum mínum en að láta bömin mín deyja. Og það eru valmöguleikamir sem við stöndum frammi fyrir. Við verðum að taka ákvörðun sem er best fyrir sem flesta. Við verðum að virða afl náttúr- unnar og afl kynlífs sem er gjöf náttúrunnar til okkar allra með því að auðvelda bömum okkar á öruggan og fordómalausan hótt að nota verjur." 33 milljónir með alnæmi Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, sagði í yfirlýsingu að enn væri engin lækning við alnæmi og „framrás sjúkdómsins hefði ekki verið stöðvuð í neinu landi“. I árslok 1998 sagði hann að fjöldi barna og fullorðinna með alnæmi yrði kominn yfir 33 milljónir, 10% fleiri en í fyrra. 14 milljónir hafa þegar látist úr al- næmi og eru að minnsta kosti 95% sýkinga og dauðatilfella í þróunar- heiminum þar sem lyf eru af skorn- um skammti. Tyson játar sök sína MIKE Tyson virðist ekki geta haldið sig frá vandræðum hvort sem það er innan hnefaleika- hringsins eða utan. Hann játaði á fimmtudag að hafa ráðist á tvo öku- menn í ágúst síðast- liðnum eftir minni- háttar umferðar- óhapp. Hann sagði einnig að hann hefði verið í tímum hjá sálfræðingi í nokkra mánuði. Þrátt fyrir mót- mæli saksóknara, sem sóttist eftir sak- fellingu, tók dómar- inn játninguna til greina og spurði hvernig Tyson liði. „Mér líður ágæt- lega,“ svaraði Tyson, sem er 32 ára, og brosti. Jafnvel þótt játning kalli ekki á sakfellingu gefur hún svig- rúm fyrir refsingu. Dómarinn frestaði úrskurði þar til snemma á næsta ári og spurði Tyson hvort hann áttaði sig á því að hann gæti fengið 20 ára fangelsisdóm fyrir líkamsárás- irnar sem voru báðar af annarri gráðu. „Já,“ svaraði Tyson sem hef- ur áður verið dæmdur fyrir að nauðga ungri konu í Indiana og er á reynslulausn. Þá var hon- MIKE Tyson ásamt unnustu sinni, Mon- icu, fyrir réttarhöldin á fimmtudag. um bannað að keppa í hnefa- leikum fyrir að bíta andstæðing sinn í hringnum. Tyson fékk réttindin aftur í nóvember og er áætlað að hann keppi við suður-afríska hnefaleikakapp- • ann Frans Botha í Las Vegas í janúar. Lögfræðingur hans sagði að Tyson kynni að vinna að góð- gerðarmálum nærri æfingabúð- um sínum í Arizona áður en úr- skurður dómarans félli í von um vægari refsingu. Á www.einkabanki.is getur þú framkvæmt allar algengustu bankaaögerðir í tölvunni þinni. Líttu viö í Landsbankanum og fáðu þinn einka banka. Opið fr.í f) til 10

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.