Morgunblaðið - 05.12.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Breytingar á línukerfi Rarik út frá að-
veitustöðinni á Dalvík
Um 180 staurar
teknir niður
RAFMAGN SVEITUR ríkisins
lögðu háspennustrengi í jörð frá að-
veitustöðinni á Dalvík í haust og í
kjölfarið er nú verið að taka niður
hluta af háspennulínum sem þeir
leysa af hólmi. Alls verða teknir nið-
ur um 180 staurar, þar af um 135 á
Hrísmóum og þar sem hér er um að
ræða margar línur sem lágu þétt,
verður af þessu talsverð hreinsun.
Heildarkostnaður við verkið er
áætlaður um 12 milljónir króna.
Frá aðveitustöðinni við Dalvík,
austur um Hrísmóa og um Há-
mundarstaðaháls hafa legið þrjár
línur, þar af ein tvöfóld á kafla. Par
er um að ræða 132 kV línu frá
Rangárvöllum sem rekin hefur ver-
ið á 66 kV og 33 kV línu sem nú er
flutningslína til aðveitustöðvar við
Arskóg og 11 kV línur, annars veg-
ar lína fyrir Svarfaðardal að austan
og hins vegar lína fyrir Hrísey og
hluta Arskógsstrandar.
Morgunblaðið/Kristján
STARFSMENN Rarik eru þessa dagana að taka niður hluta af há-
spennulínum frá aðveitustöðinni á Dalvík og nota öfluga vélskóflu til
verksins. Sigfús Stefánsson, Brynjar Geirsson og Siguijón Svein-
björnsson eru hér að hefja hreinsun af staurunum.
Verið erfiður í rekstrí
vegna ísingar
Með tilkomu aðveitustöðvar við
Arskóg færðist tenging Árskógs-
strandar og Hríseyjar alfarið í
hana. I haust voru síðan lagðir jarð-
strengir um Hrísmóana til að leysa
af hólmi 11 kV og 33 kV línurnar á
þeim kafla sem erfíðastur hefur
verið í rekstri vegna ísingar og
mest tjón orðið á undanfarin ár.
Alls voru lagðir í jörð, 4,2 km af 33
kV streng og tæpir 1,2 km af 11 kV
streng.
Nú er verið að taka niður línurn-
ar á þeim” köflum sem jarð-
strengirnir þjóna, auk þess sem
lína um Hámundarstaðaháls að Há-
mundarstöðum er tekin niður. Að
hreinsun lokinni mun ein 132 kV
lína verða sjáanleg á kaflanum frá
aðveitustöð við Dalvík að Hámund-
arstaðahálsi en auk hennar mun 11
kV lína standa frá Hrísum að Hálsi.
TILKYNNING UM SKRÁNINGU SKULDABRÉFA Á VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS
VÞÍ hefur samþykkt að taka neðangreind skuldabréf á skrá, miðvikudaginn 9. desember 1998:
Útgefandi:
Flokkur:
Nafnverð og lánstími:
Sölutímabil
Jökull hf., kt. 631068-0149, Aðalbraut 4-6,
675 Raufarhöfn, sími 465 1200, bréfsími 465 1300.
1. flokkur 1998
Heildarnafnverð 1. fl. 1998 útgáfunnar er 150 milljónir
íslenskra króna og eru skuldabréfin til 6 ára.
Frá útgáfudegi til og með 8. desember 1998.
Skráning og milliganga Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka bréfin á skrá og
við Verðbréfaþing verða þau skráð 9. desember 1998. Kaupþing Norðurlands hf.
íslands: hefur milligöngu um skráningu bréfanna á Verðbréfaþingi ís-
lands (VÞI). Hlutabréf Jökuls hf. eru skráð á Vaxtarlista VÞÍ.
Útgáfudagur og fyrsti
Vaxtadagur:
Ávöxtunarkrafa og
sölugengi:
Fyrirkomulag sölu:
Útgáfudagur og fyrsti vaxtadagur var 8. júní 1998.
Á fyrsta söludegi var ávöxtunarkrafan 6,5% og sölugengi var
1,00141372.
Skuldabréfin verða seld og afhent gegn staðgreiðslu hjá
Kaupþingi Norðurlands.
Skráningarlýsing og önnur gögn um útgefanda og skuldabréfin liggja frammi hjá
Kaupþingi Norðurlands hf.
KAUPÞING
NtT«ÐURi-WT)S HF
Prófkjör
Framsóknarflokksins á
Norðurlandi eystra
Sex gefa
kost á sér
SEX frambjóðendur gefa kost á sér
á prófkjöri Framsóknarflokksins á
Norðurlandi eystra, fyrir alþingis-
kosningarnar næsta vor. Prófkjörið,
sem fram fer 16. og 17. janúar á
næsta ári, er bindandi fyrir fjögur
efstu sætin.
Valgerður Sverrisdóttir alþingis-
maður og Jakob Björnsson, fyrrver-
andi bæjarstjóri á Akureyri, gefa
kost á sér í fyrsta sæti listans en þau
Daníel Ámason, framkvæmdastjóri
á Akureyri, og Elsa B. Friðfinns-
dótth-, lektor við HA, gefa kost á sér
í 2. sætið.
Hinir tveir frambjóðendurnir eru
Bernharð Steingrímsson, veitinga-
maður á Akureyri, og Axel Yngvars-
son, bóndi á Merkigili í Eyjafjarðar-
sveit. Utankjörfundaratkvæða-
greiðsla hefst hinn 15. desember
næstkomandi.
fþróttahöllin
Vetrarsport ‘99
VETRARSPORT ‘99, sem er
vélsleða-, jeppa- og útilífssýning
verður haldin í íþróttahöllinni á
Akureyri um helgina, 5. og 6. desem-
ber.
Félag vélsleðamanna í Eyjafirði
stendur fyrir sýningunni sem íyrr, en
eyfírskir sleðamenn hafa staðið fyrir
síiku sýningarhaldi í á annan áratug.
Við undirbúning sýningarinnar var
lögð rík áhersla á að fjölga sýnendum
til að auka fjölbreytnina, en þeir eru
nú vel á þriðja tuginn. Vélsleða- og
jeppaumboðin eru áberandi, en þá
taka fjölmargir sem selja búnað til
útivistai- að vetrarlagi þátt að þessu
sinni. Um er að ræða fatnað, snjó-
bretti, síma og annan fjarskiptabún-
að, verkfæri, leiðsögutæki og örygg-
isbúnað svo fátt eitt sé nefnt.
Myndir
frá íslandi
MYNDIR frá íslandi er yfirskrift
sýningar á myndum eftir fjónska
málarann Johannes Larsen en hún
verður opnuð í Deiglunni á morgun,
sunnudaginn 6. desember, kl. 17.
Myndirnar teiknaði Johannes
Larsen árin 1927 og 1930 í tilefni af
danskri útgáfu íslendingasagnanna
fyrir Alþingishátíðina 1930. Sýningin
er samvinnuverkefni Dana og Is-
lendinga.
Sýningin stendur til 18. desember
næstkomandi.
Tónleikar
söngdeildar
SÖNGDEILD Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar heldur jólatónleika í Frey-
vangi annað kvöld, sunnudagskvöld-
ið 6. desember, og hefjast þeir kl.
20.30. Nemendur söngdeildar flytja
fjölbreytta efnisskrá. Píanóundirleik
annast Dóróthea Dagný Tómasdóttir
og söngkennari er Þuríður Baldurs-
dóttir
Kirkjustarf
í Eyjafirði
Sjá blaðsíðu 71
Bestu barnabrandararnir
- Brjálað fjör
Bókin sem börnin völdu sjálf.
Skaðræðislega fyndin.
Á metsðlulista Moraunblaðsins.
Box
Bubbi og Sverrir fjalla um
Prinsinn og aðrar hetjur hringsins
á líflegan og spennandi hátt. Fjöldi
Ijósmynda prýðir bókina. Frábær
bók um hrikalega íþróttamenn.
Kappar og kvenskörungar
Gísli Jónsson, fyrrverandi
menntaskólakennari, er í essinu
sínu i þessari einstaklegu fallegu
og fræðandi bók um 49 íslenska
fornmenn. Gunnar á Hlíöarenda,
Njáll og Grettir stíga Ijóslifandi
fram. Og hver var hún þessi
Hallgerður langbrók?
Skagfirsk skemmtiljóð 2
Hér er það komið, framhald
metsölubókarinnar í fyrra, og
gefur henni ekkert eftir. Sem
fyrr er það hagyrðingurinn
snjalli Bjarni Stefán Konráðsson
sem safnað hefur saman vísum
eftir nálega 60 sveitunga sína.
Útkoman er frábaer skemmtun.
Orðsnilld
Fleyg orö úr Ijóðum Einars Benediktssonar
Gunnar Dal fangar hér með smekkvísi heimsmannsins orðsnilldina og viskuna í
Ijóðum Einars Benediktssonar. Meira en 200 kyngimagnaðar hugsanir Einars á einum
stað. Petta er bók sem enginn aðdáandi skáldsíns getur látið fram hjá sér fara.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Sú nótt gleymist aldrei
Harmþrungin frásögn byggð á
viðtölum við þá er iifðu slysið af.
Petta er án vafa besta bókin um
hrikaleg örlög Titanic og
farþeganna um borð.
Hæstvirtur forseti
Gamansögur af (slenskum
alþingismönnum
Einstæð bók um einstæða menn. Pær
gerast einfaldlega ekki skemmtilegri
eða fyndnari.
1. sæti á metsölulista Daos oa 1. sæti
á metsölulista Moraunblaðsins vfir
almennar bækur.
tUjirní Slrfix