Morgunblaðið - 05.12.1998, Page 22
22 LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
BORNIN tóku vel undir sönginn.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
STEFÁN Bragason bæjarritari og Björn Hafþór Guðmundsson bæjar-
stjóri sungu með börnunum.
í hátíðar-
skapi 1.
desember
Egilsstöðum - í Egilsstaðaskóla
var brugðið út af vananum 1. des-
ember.
Að þessu sinni var haldin stutt
dagskrá í tilefni dagsins. Hákon
Aðalsteinsson kom í heimsókn og
las fyrir börnin ljóð og sagði m.a.
prakkarasögu frá Jökuldal sem
gerðist á hans skólaárum. Bæjar-
sfjóri og bæjarritari komu og
sungu með börnunum, sem tóku
vel undir. Bæði nemendur og
kennarar komu í sínum betri föt-
um þennan dag.
Minningarreitur
um frumkvöðla
Sleðbrjótskirkju
Vaðbrekku, Jökuldal - Félag um
gerð minningarreits um fimm
bændur og konur þein-a er byggðu
Sleðbrjótskirku í Hlíð árið 1926 var
stofnað nú í upphafi aðventunnar í
Hótel Svartaskógi. Það eru afkom-
endur þessara frumkvöðla er stofna
þetta félag nú, mest þriðji ættliður
frá þeim. Félagið er opið öllum
þeim er áhuga hafa á að hlúa að
umhverfi Sleðbrjótskirkju auk af-
komenda og tengdafólks bændanna
fimm.
Markmið félagsins er að gróður-
settur verði trjálundur í tæplega
eins hektara blett umhverfis kirkj-
una á Sleðbrjót til minningar um
þessa fimm bændur. Þennan blett
hafa landeigendur Sleðbrjóts, þeir
feðgar Eysteinn Geirsson og Geir
Stefánsson, gefið kirkjunni til
þessara nota og mun félagið er nú
var stofnað sjá um framkvæmd-
ina.
Geir er sonur Stefáns Sigurðs-
sonar bónda á Sleðbrjót sem var
einn fimmmenninganna er stóð að
byggingu kh-kjunnar árið 1926
ásamt konu sinni Björgu Sig-
mundsdóttur. Hinir bændurnir
voru Björn Guðmundsson og Guð-
ríður Guðmundsdóttir, Sleðbrjóts-
seli, Björn Sigbjörnsson og Sigrún
Jóhannesdóttir, Surtsstöðum, Elías
Jónsson og Auðbjörg Sigurðardótt-
ir, Hallgeirsstöðum, og Gunnar
Jónsson og Ragnheiður Stefáns-
dóttir, Fossvöllum.
Þegar var farið að ræða að
byggja nýja kirkju á Sleðbrjót náð-
ist ekki samstaða með Hlíðarmönn-
um hvernig standa ætti að bygging-
unni, en Hlíðarmenn áttu fram að
þessu sókn að Kirkjubæ í Hróars-
tungu sem var erfitt vegna sam-
gangna enda yfir Jökulsá á Dal að
fara, en fara ella inná Fossvallabrú
sem lengdi leiðina til muna.
Samstaða náðist ekki
og bændur tóku af skarið
Fundur var haldinn um málið
þar sem samstaða náðist ekki og
gengu þessir bændur afsíðis litla
stund og ákváðu að gangast fyrir
byggingu kirkjunnar, komu síðan
aftur inná fundinn og tilkynntu að
þeir ætluðu að sjá um kirkjubygg-
inguna á eigin ábyrgð. Það gekk
eftir og var kirkjan á Sleðbrjót
byggð árið 1926.
Félagsstofnunin nú er til að
minnast frumkvæðis þessara
manna en án þeirra forgöngu væri
óvíst að kirkjan hefði nokkurn tím-
ann verið byggð. Milli tuttugu og
þrjátíu manns mættu á stofnfund-
inn þar sem félag um gerð minning-
arreits um þessa fimm bændur var
stofnað. Orri Hrafnkelsson kynnti
tilgang félagsstofnunarinnar og
samþykkt voru lög íyrir félagið.
Geir Stefánsson sagði frá hvað ráð-
ið hefði mestu um að þessir fimm
bændur tóku fmmkvæði í þessu
máli, og sagði frá byggingunni
sjálfri sem hann man vel. Eftir
fundarstofnunina var kvöldvaka
með sögum, söng, upplestri og sýn-
ingu gamalla mynda úr Hlíðinni.
VIÐ söf*'**
heilwm
’L/rvfiuH
RAUÐI KROSS ISLANDS
Við söfnum:
Buxum, vestum, brókum og skóm, teppum, gardínum, lökum,
sængurverum, dúkum, ull, leðri, silki, næloni, draloni, bómull o.s.frv.
Við tökum við þessu öllu hreinu, heilu, rifnu eða stöguðu
Losaðu þig við öll fötin úr geymslunni beint í söfnunargám við
bensínstöðvar Olís á höfuðborgarsvæðinu og Rauði kross íslands
ytir þeim í lyf og lífsbjörg fyrir fórnarlömb fellibylsins Mitch.
Saman getum við fyrirhafnar-
lítið blásið von í líf þessa fólks