Morgunblaðið - 05.12.1998, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1998 67
i
\
:
!
Í
:
I
ist annað hvort kostur á að skipta
sínum bréfum fyrir ný hlutabréf í
fyrirtækjum KEA eða að bréfin
verði innleyst á gengi sem er í
samræmi við metna hlutdeild
þeirra í markaðsvirði KEA á þeim
tíma sem skipti fara fram. Þeim
mætti gefa forgang að því að velja
eignarhlut í öðrum fyrirtækjum en
þeim sem starfa á sviði landbúnað-
ar.
Með tilvísan til þessa legg ég
fram umræðuhugmynd um að
skipta eignarhlut í öllum nýjum
fyrirtækjum KEA í þrennt. Hlut-
imir gætu sem best verið jafnstór-
ir (33,33%), en gætu líka allt eins
verið misstórir ef menn komast að
þeirri niðurstöðu að slíkt leiddi til
meira réttlætis. Eg kýs að tala hér
um þá sem jafna þriðjunga til að
einfalda umræðuna.
I Mjólkursamlagi og Kjötvinnslu
verði:
1. einum þriðjungi skipt út frá við-
skiptaveltu síðustu 15-25 ára á
reiknaða forkaupsréttarávísun og
handhöfum seld hlutabréf t.d. á 1
krónu:1000.
2. einum þriðjungi yrði skipt í for-
kaupsréttarávísanir á grundvelli
viðskiptaveltu næstu 5 ára.
3. einum þriðjungi yrði ráðstafað
til sölu á markaðsgengi (etv. með
forkauprétti innan félags).
I Verslunarsviði, Byggingavör-
um og á Iðnaðarsviðinu verði gerð
eftirfarandi skipting;
1. einum þriðjungi skipt á eigendur
stofnsjóðs (sem eru yngri en 70 ára
og sannanlega búsettir á félags-
svæðinu 1. desember 1997).
2. einum þriðjungi verði ráðstafað
til forkaupsréttar einstaklinga sem
versla út á viðskiptakort næstu 2-5
árin.
3. einum þriðjungi verði ráðstafað
til B-hlutabréfaeigenda í samræmi
við eignarhlutfall þeirra við eigna-
skil og það sem út af stendur verði
selt á markaðsvirði (etv. með for-
kaupsrétti innan félagsins).
Er þetta hægt?
Eg reikna með að mínir ágætu
vinir í forystu KEA kunni að segja
að þetta sé ekki hægt, það sé búið
að skoða það. Víst er að útilokað
má telja að afhenda eignir kaupfé-
lagsins hinum eða öðrum, en allar
eignir má selja og stjórnendur
KEA hafa frjálsar hendur með
skilgreiningu á söluverði og hugs-
anlegum forkaupsrétti aðila. Málið
er víst flókið og þarfnast umræðu,
en fram að þessu hafa engar beinar
hugmyndir verið kynntar félags-
mönnum. Því leyfi ég mér að ríða á
vaðið. Á það er einnig að líta að
flókin vandamál eiga oftar en ekki
einungis einfaldar lausnir. Flóknar
lausnir flækja mál stundum bara
meira.
Meðan engin heildstæð tillaga er
á borðinu þá er auðvitað heldur
engin lausn í sjónmáli. Hvort sem
mínar hugmyndir reynast fram-
kvæmanlegar eða ekki skiptir e.t.v.
minnstu á þessu stigi, ég er hér
einungis að leggja fram vinnuhug-
mynd sem biður ekki um neitt ann-
að en að fá umræðu. Félagar KEA
sem ekki fella sig við þessa nálgun
ættu þá að koma fram með aðrar
uppástungur, - slíku mundi ég auð-
vitað fagna. Gefi menn sér á annað
borð tóm til að ræða málin þá kom-
ast menn oftast að skynsamlegri
niðurstöðu. Umræðan um framtíð
KEA er engu að síður hafin með
tillögum stjórnar en þær taka ein-
ungis á rekstrarforminu, en glíma
ekkert við vistun eignarinnar til
frambúðar. Það þurfum við að gera
ágætu félagsmenn, - við eigum
leikinn.
Vonandi skila nýir landvinningar
KEA á Reykjavíkursvæðinu ein-
ungis auknum hagnaði ábyrgrar
fjárfestingar en verða ekki til að
flýta fyrir hinu óumflýjanlega.
Hvernig sá hagnaður skilar sér til
okkar eigendanna er það sem mál-
ið á að snúast um, en ekki hver er
stærri í matvöruversluninni, þessi
eða hinn.
Höfundur er sérfræðingur í stjórn-
un og stjómsýslu skóla.
Ljós tendruð á
Hamborgartré
KVEIKT verður á Hamborgar-
trénu í 33. sinn laugardaginn 5. des-
ember næstkomandi klukkan 17.
Gefandi trésins er Hamborgarhöfn,
en um skipulagninguna sá
Hamburg Gesellschaft. Munu for-
svarmenn Reykjavíkurhafnar taka
á móti trénu fyrir hönd Reykjavík-
urhafnar.
í fréttatilkynningu segir: „Fyrsta
tréð barst árið 1965. Eimskipafélag
íslands hf. hefur í öll skiptin flutt
tréð endurgjaldslaust til Reykjavík-
ur, en þýski herinn hefur séð til
þess að tréð komist klakklaust til
Hamborgar. Árleg afhending trés-
ins er þakklætisvottur til íslenskra
sjómanna fyrir matargjafir til barna
í Hamborg sem þeir af myndarskap
færðu stríðshrjáðum börnum eftir
síðari heimsstyrjöldina. En upphaf
þessarar hefðar má rekja til tveggja
herra, Hermanns Schlunz og Wern-
ers Hoenig sem minntust rausnar-
skapar íslendinga og ákváðu árið
1965 að minnast hans með þessum
hætti.“
Við afhendinguna vera sungin
jólalög við harmonikuundirleik. All-
ir eu hvattir til að mæta á miðbakka
Reykjavíkurhafnar, gegnt Kola-
portinu, kl. 17 laugardaginn 5. des-
ember.
Félagshyggju-
fólk með kynn-
ingarfund
SAMFYLKING félagshyggjufólks á
Austurlandi heldur kynningarhátíð á
morgun, 6. desember, undir yfir-
skriftinni „Söguleg stund á Austur-
landi“. Þar verður kynntur fram-
boðslisti Samfylkingarinnar á Aust-
urlandi, sá fyrsti sem kemur fram á
vegum sameiginlegs framboðs fé-
lagshyggjufólks.
Frambjóðendur í efstu sætum
flytja stutt ávörp og kynna framtíð-
arsýn Samfylkingarinnar fyrir Aust-
urland. Listamenn af Austurlandi
lesa upp og leika tónlist. Fundar-
stjóri verður Smári Geirsson, forseti
bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfé-
lags Neskaupstaðar, Eskifjarðar og
Reyðarfjarðar. Sérstakir gestir há-
tíðarinnar verða Margrét Frímanns-
dóttir formaður Alþýðubandalagsins,
Sighvatur Björgvinsson formaður
Alþýðuflokksins og Þórunn Svein-
bjarnardóttir varaþingkona Kvenna-
listans.Hátíðin verður haldin í safn-
aðarheimilinu á Reyðarfirði og hefst
kl. 16.30.
Kveikt á jólatré
á Seltjarnarnesi
KIWANISKLÚBBURINN Nes-
odden við Oslóarfjörð, sem er vina-
klúbbur Kiwanisklúbbsins Ness á
Seltjarnamesi, hefur undanfarin 27
ár sent Nesklúbbnum jólatré að gjöf.
Sunnudaginn 6. desember nk. kl.
16 verður tréð afhent Seltjarnarnes-
bæ og Ijósin tendruð á því. Tréð
verður staðsett fyrir framan Iþrótta-
miðstöð Seltjarnarnesbæjar við Suð-
urströnd.
Við afhendingu trésins verða flutt
ávörp og félagar úr lúðrasveit Tón-
listarskólans leika nokkur lög.
DIRE STRAITS
VcriÓvclkomin í Jólapi
GífútlegÝ v rval af f
Þú finnur allar tegundir tónlistar: Rokk
Heimstónlist - Kántrý - Þýska og skandinav
öllum nýjustu íslensku og erlendu titlunum
- Djass - Kjassík -
tónlist ásamt
Dionne '
Warwick P
ELVIS PRESLEY
Christmas Collection
VERÐ: 999,
CARAOKE CHRISTMAS DIONNE WARWICK
VERÐ: 999 - Sings Bacharach
and David
VERÐ: 899,-
THE GOLDEN GATE
QUARTET
2 cd
VERÐ: 999,-
DIRE STRAITS
The Very Best Of
VERÐ: 1699,-
Jóiaskraut og4
jólasœigœti
í mikiu urvaii!
GREASE
Úr kvikmynd.
VERÐ: 1699,-
R.E.M.
UP
VERÐ: 1699,-
SMOKIE
The Best Of
VERÐ: 999,-
ANDERSON & DISSING
Svantes viser
VERÐ: 999,-
tilkoóó myndböndum!
Fjögur myndbönd í pakka á aðeins kr. 1999,-
Barnakóramót sem haldin hafa verið í Perlunni síðustu ár
hafa notið mikilla vinsælda og verða tvo næstu sunnudaga,
6. og 13. des. kl. 15:15
X j X
Láttu sjá þig í jólaskapi í Perlunni, njóttu útsýnisins
og frábærra veitinga.
•BUCK&DEGKER
borvél 500W
Verð: 5990,-
Jólagjöf húsbóndans í óri
71
Amerískttjólafré
Þessi flottu!