Morgunblaðið - 13.01.1999, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 19
BANDALAG VOLVO OG FIAT
Markaðir
(Milljónir dollara 1997)
Saia 23.229
Hagnaður 1.310
Starfsmenn 79.050
Markaðsvirði 11.921
Skipting framleiðslu
Markaðir
Hlutfall af heildarsölu (1997)
Aðrir 12% Ítalía 38%
Rómanska-
Ameríka 15%
Baaa
(Milljónir dollara 1997)
Sala
Hagnaður
Starfsmenn
Markaðsvirði
50.554
1.372
239.457
10.838
Evrópa 35%
Heimild: Hoover
Skipting framleiðslu
Volvo í Svíþjóð hefur staðfest að
fram fari viðræður um samvinnu við Fiat
Hlutfall af heildarsölu (1997)
Aðrir 14% Svíþjóð 11%
Hlutfall af heildarsölu (1997)
Annað 21% Fólksbílar 52%
Vörubílar 27%
N-Ameríka 28% Evrópa 47%
Hlutfall af heildarsölu (1997)
Annað 28% Fólksbílar 51%
Verslunar-, landbúnaðar- og
bygg.iðnaðartæki 21 % ;B
Volvo staðfestir
fAuglýsing um fasteignagjöld
í Reykjavík árið 1999
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 1999 verða sendir út næstu daga ásamt
gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda
með boðgreiðslum á greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Tollstjóranum í Reykjavík,
en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta sparisjóði, banka eða á pósthúsi.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, sorphirðugjald, vatnsgjald og hol-
ræsagjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsa-
gjaldi á liðnu ári, fá einnig að óbreyttu lækkun þeirra liða fyrir árið 1999 að teknu tilliti
til tekjuviðmiðunar.
Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl lífeyrisþega þegar þau liggja fyrir, væntanlega í
mars- eða aprílmánuði. Urskurðar hún endanlega um breytingar á fasteignaskatti og hol-
ræsagjaldi hjá þeim er eiga rétt á henni samkvæmt þeim reglum sem borgarstjórn setur,
sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga ásamt 87. gr. vatnalaga nr.
15/1923 með áorðnum breytingum. Verður viðkomandi tilkynnt um breytingar, ef þær
verða.
viðræður við Fiat
Tekjuviðmiðun vegna fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1999 er eftirfarandi
samkvæmt samþykki borgarráðs frá 15. desember 1998:
Stokkliólmi. Reuters.
VOLVO hefur staðfest að fyrirtækið
eigi í viðræðum við Fiat, en leggur
áherzlu á að viðræðurnar séu aðeins
liður í víðtæki’i úttekt á framtíðar-
möguleikum þess.
„Við höfum rætt við nokkra aðra
bílaframleiðendur," sagði Per
Lojdquist upplýsingastjóri, en
nefndi enga og neitaði að ræða við-
ræðurnar við Fiat nánar. Verð hluta-
bréfa í Volvo lækkaði um 7,50
sænskar krónur í 223 kr. Bréfín hafa
hækkað um 40% á einum mánuði
vegna sögusagna um samruna eða
samstarfsaðila á við Ford eða Fiat.
Ford ákjósanlegri?
Sérfræðingar telja að líkur á sam-
komulagi hafí aukizt við staðfesting-
una, en að Fiat sé ef til vill ekki bezti
samstarfsaðilinn. Með samvinnu við
fjöldaframleiðslufyrfrtæki eins og
Fiat kunni Volvo að reynast erfitt að
halda því áliti sem fyrirtækið njóti
fyi-ir gæði, en það sé nauðsynlegt
fyrh- áframhaldandi velgengni vax-
andi vörubíladeildar þess. „Ford
væri betri samstarfsaðili í augum
þeirra sem hafa Volvo vörumerkið í
hávegum,“ sagði aðalsérfræðingur
Aragon Securities, Hakan Persson.
Volvo stendur vel í Norður-Evr-
ópu og Fiat í Suður- og Mið-Evrópu.
Fyrirtækin mundu því bæta hvort
annað upp, en Volvo mundi hagnast
meir á samvinnu við Ford vegna
þess að fyrirtækið mundi fá aðgang
að öflugu markaðs- og dreifingar-
kerfí í Bandaríkjunum, þar sem það
hefur innan við 1% markaðshlutdeild
á fólksbílamarkaði en 12% á vöru-
bílamarkaði.
Sænskir sérfræðingai' telja ólík-
legt að fólksbíladeildin verði seld, en
hún er metin á 40 milljarða sænskra
króna, því að það mundi skaða vöru-
bíladeildina sem nýtur góðs af áliti
því sem Volvo nýtur fyrfr gæði og
öryggi.
Flestir búast við stofnun sameign-
arfélags Volvo og stæi-ri framleið-
anda, sem mundi auka möguleika á
sparnaði og gera fyi-irtækinu kleift
að fjárfesta í vörubíladeildinni. Sala
vörubíladeildar jókst um 26% í 45,04
milljarða s.kr. fyi-stu níu mánuðina í
fyrra, en sala fólksbíla jókst um 6% í
73,9 milljarða s.kr.
Olíufélög kanna samruna
London. Reuters.
OHÁÐU brezku oh'u- og gasfyrir-
tækin Lasmo plc og Enterprise Oil
plc kanna möguleika á samruna og
þróun í átt til aukinnar samþjöppun-
ar í olíugeiranum heldur áfram.
Fyrirtækin leggja áherzlu á að
málið sé á frumstigi og ekki sé víst
að samruni verði að veruleika. La-
smo kveðst ræða við flefri aðila og
Enterprise leggur áherzlu á að um
undfrbúningsviðræður sé að ræða.
Ef Lasmo og Enterprise samein-
ast verður stærsta óháða orkufyrir-
tæki Evrópu komið á fót. Fyrirtækið
mun ná til margra þróunarlanda og
nýrra markaða, þar á meðal Alsírs,
að sögn Sunday Telegraph.
Viðræður Lasmo og Enterprise
hófust um miðjan desember vegna
lækkandi olíuverðs. Fyrirtækin
könnuðu fyrst leiðir um samvinnu til
að draga úr kostnaði, en beindu
smám saman athyglinni að mögu-
leikum á samruna.
100% lækkun:
Einstaklingar með (peninga) tekjur allt að ........kr. 860.000
Hjón.............................................kr. 1.205.000
80% lækkun:
Einstaklingar með (peninga) tekjur frá kr. 860.000 til kr. 950.000
Hjón..............................kr. 1.205.000 til kr. 1.310.000
50% lækkun:
Einstaklingar með (peninga) tekjur frá kr. 950.000 til kr. 1.045.000
Hjón .............................kr. 1.310.000 til kr. 1.475.000
Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir sem ekki fengu lækkun á sl. ári sent framtalsnefnd
umsókn um lækkun ásamt afriti af skattaframtali 1999.
Framtalsnefnd er til viðtals alla miðvikudaga milli kl. 16.00 og 17.00 á 11. hæð
Aðalstrætis 6, frá 13. janúar til 28. aprfl nk. Á sama tímabili verða upplýsingar veittar í
síma 552 8050, alla þriðjudaga kl. 13.00 til 15.00.
• Gatnamálastjóri, Skúlatúni 2, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar
á sorphirðugjaldi í síma 567 9600 og í bréfsíma 567 9605.
• Vatnsveita Reykjavíkur, Eirhöfða 11, veitir þær upplýsingar sem snerta álagningu og
breytingar vegna vatnsgjalds í síma 569 7000 og í bréfsíma 567 2119.
• Fjármáladeild, Ráðhúsi Reykjavíkur, gefur upplýsingar um álagningu annarra
fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 563 2062 og í bréfsíma 563 2033.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 5.000,- fyrir árið 1999 eru: 1. febrúar, 1.
mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst. Gjalddagi gjalda undir kr. 5.000 er 1. maí.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
11. janúar 1999.