Morgunblaðið - 13.01.1999, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 13.01.1999, Qupperneq 36
^36 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + ■ Elskuleg eiginkona mln, móðir okkar, tengda- móðir og amma, MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR, Engihlfð, Vopnafirði, varð bráðkvödd á heimili sínu sunnudaginn 10. janúar síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Halldór Björnsson, Þorgeir Hauksson, Guðbjörg Leifsdóttir, Jóna Kristín Halldórsdóttir, Gunnar Smári Guðmundsson, Björn Halldórsson, Else Moller, Ólafía Sigríður Halldórsdóttir, Þorsteinn Kröyer, Gauti Halldórsson, Halldóra Andrésdóttir og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR HALLDÓRSSON frá Holti, Hrafnakletti 4, Borgarnesi, lést mánudaginn 11. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Brynja Gestsdóttir, Þorgeir Einarsson, Anna Einarsdóttir, Guðmundur V. Guðsteinsson, Helga Einarsdóttir, Óskar I. Þorgrímsson, Brynjar, Írís, Soffía og Rakel. + Elskulegur faðir minn, ARINBJÖRN ÁRNASON, vistheimilinu Seljahlíð, lést á Landspítalanum að kvöldi mánudagsins 11. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Árni Arinbjarnarson. + Systir mín, STEFANÍA KATRÍN ÓFEIGSDÓTTIR, Brávallagötu 6, Reykjavík, andaðist aðfaranótt þriðjudagsins 12. janúar á Landspítalanum. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Ófeigsdóttir Hjaltested. + Hjartkær eiginkona mín, GERÐA IRENE PÁLSDÓTTIR, Hátúni 6B, lést á Landspítalanum sunnudaginn 10. janúar. Ingólfur Kr. Sigurgeirsson. + 1 GUÐBJÖRG SVEINSDÓTTIR • ■ " í frá Leirvogstungu, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, n sem lést fimmtudaginn 7. janúar, verður jarðsungin frá Mosfellskirkju fimmtudaginn 14. janúar kl. 13.30. mm Vandamenn. ANNA LA COUR + Anna la Cour, fædd Claessen fæddist 27. júlí 1915. Hún lést 5. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar Önnu voru hjónin Þórdís Björnsdóttir, f. 22. febrúar 1892, d. 3. maí 1952 og Gunn- laugur Claessen, yf- irlæknir í Reykja- vík, f. 3. des. 1881, d. 23. júlí 1948. Þórdís var dóttir Björns Jenssonar, yfirkenn- ara við Menntaskól- ann í Reykjavík, en hann var sonur Ólafar Bjömsdóttur og Jens Sigurðssonar rektors. Móð- ir Þórdísar var Henriette Louise Svendsen, dóttir Agústu Svend- sen kaupmanns í Reykjavík og Hendriks Henckel Svendsen. Gunnlaugur, faðir Önnu, var sonur Jean Valgard Claessen, kaupmanns á Sauðárkróki af hollensku bergi, síðar landsfé- hirðis, og konu hans Kristínar Briem, dóttur Eggerts, sýslu- manns á Reynistað í Skagafirði, Gunnlaugssonar Briem og Ingi- bjargar Sverresen Briem. Systir Önnu er Þórdís Hofdahl hús- í fjölskyldualbúminu er til mynd tekin síðla árs 1915 að mér sýnist. Hún er af tveimur litlum stelpum á fyrsta ári. Þær sitja hvor fyrir sig á hnjám móður sinnar, snúa hvor að annarri og halda báðar í krús sem önnur er að rétta hinni. Myndin er af Önnu Claessen og undirritaðri en mæðumar em systumar Þórdís og Ólöf Bjömsdætur. Það vom náin tengsl og sam- gangur milli heimila okkar Önnu alla tíð og aðeins^ Landakotshæðin skildi þau að. í Aðalstræti 12 bjuggu foreldrar Önnu, Gunnlaugur Claessen læknir og Þórdís móður- systir mín, í húsi sem langamma okkar, Agústa Svendsen, átti. Hún bjó þar einnig ásamt dótturdætram sínum, Sigríði og Amdísi Bjöms- dætrum, til dauðadags árið 1924. Á fyrstu hæð hússins var handavinnu- verslun langömmu, sem Sigríður og Arndís störfuðu við, og um tíma var þar einnig lækningastofa Gunn- laugs Claessen. Á hæðinni fyrir of- an bjuggu þau Gunnlaugur og Þór- dís og dætur þeirra tvær, Anna og Þórdís. I djúpi kjallarans var skó- smíðavinnustofa. Frá því ég fyrst man eftir mér var þarna annað heimili mitt meðal frændfólks og vina, en ég átti heima á Túngötunni vestan við Landakot. I bernsku okkar Önnu og á ung- lingsáranum vorum við svo ná- tengdar sem værum við systur. En þótt svo væri og við jafnöldrar vor- um við aldrei í sama skóla. Eg var í Landakotsskóla, Miðbæjarskólan- um og síðan í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga en Anna í kennsludeild Kennaraskólans og Menntaskólan- um í Reykjavík. Þaðan tók hún stúdentspróf vorið 1933, þá tæpra 18 ára. Anna var afburðanemandi og tveimur vetram á undan sínum árgangi í skóla. Við Anna vorum saman í sveit þegar við voram átta og níu ára. Seinna lékum við tennis saman, tókum margsinnis þátt í keppni og urðum tvisvar sigurveg- arar í tvíliðaleik kvenna áður en við fórum utan til náms. Við fóram líka saman á skíði á vetram og í tjald- ferðir ásamt vinkonum okkar á sumrin. Þá voru engar skipulagðar áætlunarferðir og til að komast út fyrir borgarmörkin þurftum við að mæta með útbúnaðinn við Mjólkur- félagshúsið í Hafnarstræti og koma okkur vel við bílstjóra á vörubílum sem sóttu mjólk til að fá far hjá þeim aftan á vörupallinum. Sumarið 1932 gengum við Anna, Helga Kalman og Liselotte Gunnarsson frá Borgarnesi til Reykjavíkur á fjórum dögum. Við gengum inn Skorradal, yfir Botnsheiði niður í móðir í Lemvig á Jót- landi, f. 22. ágúst 1919, gift Niels Fol- mer Hofdahl verk- fræðingi, f. 1. janúar 1921. Þeirra börn eru Gunna Hofdahl lög- fræðingur hjá danska samgönguráðuneyt- inu, f. 26. janúar 1951, og Niels Hofdahl stýrimannaskóla- kennari, f. 22.ágúst 1953. Anna giftist 10. október 1941 eftirlif- andi eiginmanni sín- um, Peder David la Cour, f. 19. maí 1914. Hann starf- aði mestan hluta starfsævi sinnar hjá Handelsbanken í Danmörku, síðast sem varaútibússtjóri. Dætur þeirra: 1) Dísa la Cour ritari, f. 15. apríl 1944, d. 7. október 1998. Hún giftist sr. Henrik Frandsen 1973 og eignuðust þau soninn Peder David la Cour yngri, nema í upp- lýsingatækni við Danmarks tekniske universitet, f. 9. október 1975. Þau skildu 1993. 2) Nanna la Cour, f. 1. nóvember 1946, sem starfar við dýragæslu á Land- bohojskolen. Anna lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið Hvalfjörð, þaðan í Brynjudal og um Kjósina til Reynivalla yfir Svína- skarð. Er það eftirminnilegt ferða- lag. Sumarið 1933 fóram við saman til náms í Kaupmannahöfn ásamt hópi vina og bekkjarbræðra Önnu. Með- al þeirra var Bjöm bróðir minn, Grímur Grímsson, Sigurður Haf- stein og Einar Ólafsson sem allir fluttu ásamt okkur inn á Pension Hansen á homi Kobmagergade og Kultorvet í hjarta borgarinnar. Við Anna bjuggum saman í herbergi næstu þrjú árin. Þau ár voru okkur allt það sem ungar stúlkur gætu helst óskað sér. Nýtt, heillandi um- hverfi, skemmtilegt og áhugavert nám og sambýli við jafnaldra þar sem allir vora vinir og hvergi bar skugga á. Við áttum þess einnig kost að sjá og heyra marga listamenn þeirra tíma. Af tónlistarmönnum t.d. Vla- dimir Horowitz og Arthur Rubin- stein, sem þá voru ungir menn, Rachmaninoff á tónleikum þar sem konungshjónin vora viðstödd og Comedian Harmonists, hina upp- haflegu og sönnu, sem þá voru að syngja síðasta konsertinn - en það vissum við ekki þá. Anna var við nám í Translatprskolen í Valkend- orfsgade í ensku og þýsku og tók þaðan próf vorið 1936. Enn var hún á undan fjöldanum því hún var of ung til að fá þegar í stað réttindi sem löggiltur skjalaþýðandi. Þess vegna hélt hún til Englands í fram- haldsnám, en ég sneri heim að loknu námi við Kunsthándvær- kerskolen. Þarna lýkur kapítula í samlífi okkar en sambandið rofnaði aldrei þrátt fyrir heimsstyrjöld og það að við giftumst og settumst að hvor í sínu landi. Anna giftist í Danmörku öðlingsmanni, Peder D. la Cour, og eignuðust þau tvær dætur, Dísu og Nönnu, en Dísa átti soninn Peder, sem er 23 ára og í verkfræðinámi. Svo sorglega vildi til að Dísa veikt- ist skyndilega og dó tæpum tveim- ur mánuðum á undan móður sinni. Var Önnu ekið til jarðarfarar henn- ar í sjúkrabíl af spítalanum þar sem hún lá banaleguna. Anna var hugsjónum sínum trú svo af bar og nutu ættjörð hennar og vinir þess. Áratugum saman kom hún heim til Islands á tveggja ára fresti og lét sig aldrei vanta þegar árgangurinn hennar úr menntaskólanum fagn- aði stúdentsafmælum. I heimsókn- um sínum dvaldi hún jafnan hjá mér í 2-3 vikur í senn meðan ég bjó enn á Túngötunni til ársins 1985. Eins stóð heimili hennar í Holte alla tíð opið frændfólki henn- 1933 og hélt þá um sumarið ut- an til náms og fluttist aldrei aft- ur til Islands. Hún innritaðist f Translatorskolen í Kaupmanna- höfn, lagði þar stund á ensku og þýsku og Iauk prófi árið 1936. Hélt hún að því búnu til Eng- lands til frekara enskunáms og starfa. Hún gerði ensku að aðal- grein sinni í þýðingum og hlaut löggildingu í Danmörku sem skjalaþýðandi í ensku árið 1940. Upp frá því rak hún eigin starf- semi í Danmörku sem löggiltur skjalaþýðandi allt fram á síð- ustu ár. Hún hafði alla tíð skrif- stofu á heimili sínu í Holte, en þar bjó íjölskylda hennar frá því skömmu eftir stríð. Anna sérhæfði sig fljótlega í læknis- fræðiþýðingum og þýddi ógrynni fræðigreina og dokt- orsritgerða eftir danska lækna af dönsku á ensku, en einnig nutu íslenskir læknar þekking- ar hennar og þýddi hún nokkr- ar doktorsritgerðir þeirra á ensku. Mun hún hafa þýtt um það bil 200 bækur og doktors- ritgerðir á ferli sínum og um 10 þúsund greinar. Alla sína starfsævi lagði hún kapp á að viðhalda menntun sinni og fylgjast grannt með fræðimáli enskumælandi lækna og fór hún í því skyni til námsdvalar í London með reglulegu millibili. Anna var jarðsungin frá Soll- erodkirkju íDanmörku 11. des- ember. ar að heiman eins og aðrir munu minnast hér. Eg bið Guð að varðveita þau sem eftir lifa, Peder, Nönnu og Peder yngri, sem eiga á bak að sjá máttar- stólpa í lífi sínu og þakka þann þátt sem Anna og fjölskylda hennar hafa átt í lífí mínu. Ágústa P. Snæland Það var alltaf tilhlökkunarefni fyrir jólin á Túngötu 38 að fá pakk- ann til okkar bræðranna frá Ónnu í Danmörku, leynifrænkunni okkai- sem aldrei brást. Meðan við voram litlir gerðum við okkur enga grein íyrir því hvaða kona þetta eiginlega væri sem mundi svo vel eftir okkm- og kom þeirri hefð á að senda okkur ævinlega nýjustu og stærstu gerð af jóladagatali fyrir jólin. Svo fór þó að við sáum hana í eig- in persónu þegar hún heimsótti Is- land, landið sitt sem hún elskaði svo mikið, en þá bjó hún ævinlega heima hjá okkur á Túngötu. Stund- um kom hún ein en oftast var Peder maðurinn hennar með í för. Fyrir kom að Dísa og Nanna dætur henn- ar komu einnig með og náðum við frændsystkinin að kynnast og hitt- umst oft síðan, bæði hér heima og síðar í Danmörku. Upp frá því var aldrei neinn vafi á að við bræður, og í raun allur frændgarður Önnu, átti hauk í horni í Danmörku þar sem Anna var og fjölskylda hennar. Við hjónin fórum til náms í Dan- mörku árin 1967-1971 og allan þann tíma voru Anna, Peder og systurnar Dísa og Nanna okkar nánasta og besta velgjörðarfólk og gengu í öll- um málum fram fyrir skjöldu til að létta okkur lífið og gera okkur námsdvölina sem ánægjulegasta. Þegar við fluttumst út og áttum eft- ir að finna okkur húsnæði var ekk- ert sjálfsagðara en að bjóða okkur að vera hjá þeim á meðan. Það tók eina tvo mánuði en okkur var þannig tekið að okkur fannst við þegar í stað eins og heima hjá okk- ur. Við áttum alltaf síðan athvarf hjá þeim heima á överodvej 35c í Holte og bjuggum þar langtímum saman í skólaleyfum. í sumarbústað þeirra í Vík á Norður-Sjálandi var dvalið flestar helgar á sumrin og var þar oft kátt á hjalla. Þar undum við á kvöldin einkum við að spila suður-amerískt rommý, sem þau Anna og Peder kenndu okkur, og þetta spil höfum við æ síðan haldið upp á, kenndum okkar bömum og spilum enn á síðkvöldum. Tengslin við þau Önnu og Peder urðu í reynd eins og við værum börnin þeirra og þegar við fluttumst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.