Morgunblaðið - 13.01.1999, Page 45

Morgunblaðið - 13.01.1999, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 45 BRÉF TIL BLAÐSINS KIRKJUSTARF Heilnæmt svar við skrifum Víkverj a Frá Kjartani Ólafssyni: VÍKVERJI skrifaði um ókosti ís- lenska gi-ænmetisins laugardaginn 9. janúar sl., þar sem m.a. var dregið í efa að framleiðsla okkar íslendinga væri samkeppnishæf við innflutt grænmeti. Það er misskilningur að íslensk garðyrkja telji íslenska grænmetið vera „hið besta í heimi“. Við teljum okkar framleiðslu ein- faldlega betri en þá sem flutt er til landsins. Slíkt hið sama gera 85,5% íslenskra neytenda (skv. könnun Fé- lagsvísindastofnunar Háskóla Is- lands okt. 1994). Það er hins vegar umhugsunarvert hvort íslenskir neytendur séu ekki búnir að svara því hvort íslenskt grænmeti sé það besta í heiminum, enda eykst neysla á íslensku grænmeti hröðum skref- um ár hvert. Helstu ástæður þess að íslenskir tómatar eru betri en innfluttir enr: 1. Samkvæmt skynmatsprófun- um Matvælarannsókna Keldnaholti reyndust íslenskir tómatar hafa meira tómatabragð (ekta einkenn- andi bragð) en þeir innfluttu. Biturt bragð og aukabragð fannst oftar í þeim erlendu. íslensku tómatarnir töldust einnig vera safaríkari. Skyn- matshópurinn var þjálfaður sérstak- lega áður en prófanirnar fóru fram. Staðhæfingar um bragðdeyfð og óhentugleika til matargerðar eru því út í hött. 2. íslenskir tómatar fara styttri leið frá plöntunni til neytenda og eru því ferskari og heilnæmari en þeir innfluttu. Þeir erlendu einfaldlega roðna meira vegna fjarlægðar frá ís- lenska markaðinum. 3. Rannsóknir hafa sýnt að ís- lenskir tómatar innihalda meira magn lýkópens en þeir sem fluttir eru inn til landsins. Lýkópen inni- heldur andoxunarefni sem hafa fyr- irbyggjandi áhrif á krabbamein. 4. Islenskir tómatar eru ekki klórþvegnir til að útrýma meindýr- um, hreinsa af þeim eiturefni og ná glansandi áferð. 5. íslenskir tómatar eru ekki geislaðir til að lengja geymsluþol þeiiTa. Með geislun er örverugróðri á yfirborði tómatanna eytt. 6. Eiturefni eru ekki notuð við ræktun íslenski-a tómata, hvorki meindýra- né sveppalyf. 7. Hreint og ómengað vatn er notað við ræktun íslenska gi-ænmet- isins, ekki vatn sem er margnotað og inniheldur óæskileg efni. 8. Kolsýra, sem notuð er við ræktun í gróðurhúsum og plöntur nota við ljóstillífun, er unnin úr jarð- gufu. Jarðgufan kemur úr borholu á Hæðarenda í Grímsnesi, en kolsýi-u- framleiðsla sem þessi er einsdæmi í heiminum. Erlendis er olíu brennt til að framleiða kolsýi-u og við brennsluna myndast aukaefni sem eru óæskileg fyiir plönturnar. Auk- in kolsýra er nauðsynleg þegar gi-ænmeti er ræktað með raflýsingu. Islenskir grænmetisframleiðend- ur vilja bjóða íslenskum neytendum upp á ferskt og heilnæmt grænmeti ræktað við bestu hugsanlegu að- stæður allan ársins hring, en ein af aðalforsendum lengri ræktunartíma er að raforkuverð verði lækkað í átt til stóriðjutaxtans sem þýðir u.þ.b. 1 kr/kWst. Þá kemst Víkverji kannski í hóp með þeim tæplega 90% Islend- inga sem vilja íslenskt grænmeti. Gleðilegt heilnæmt grænmetisár. KJARTAN ÓLAFSSON, formaður Sambands garðyi-kjubænda. ESTEE LAUDER Auðveld leið til að öðlast fallegri húð Fjögur einstök tilboð á húðumhirðuvörum frá Estée Lauder. Háþróaðar vörur sem færa húð þinni allt sem hún þarf: Styrkingu, vörn, fituhemlun, Ijóma. Hvert tilboð inniheldur það sem nauðsynlegt er til að öðlast fallega húð: Næringarkrem, andlitsvatn og hreinsi í hentugri snyrtitösku. Komdu í næstu Estée Lauder- verslun og fáðu að vita hvaða tilboð uppfyllir óskir þínar. Hygea Kringlunni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Sara Bankastræti, Hygea Laugavegi, Hygea Austurstræti, Lyfja Lágmúla, Lyfja Setbergi, Snyrtistofan Maja, Bankastræti, Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, Gullbrá Nóatúni, Amaró, Akureyri, Apótek Keflavíkur. Safnaðarstarf Áskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldr- aða kl. 13-17. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Grensáskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur, samverustund, kaffiveitingar. TTT-staif (10-12 ára) kl. 16.30. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. St- arf fyrir 9-10 ára kl. 16.30. Starf fyrir 11-12 ára kl. 18. Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Kvöldbænir og fyrirbæn- ir kl. 18. Langholtskirkja. Ihugunar- og fyrirbænastund kl. 18. Laugarneskirkja. Fundur „Kirkjuprakkara" (6-9 ára börn) kl. 14.30. Fundur TTT (10-12 ára) kl. 16. Fundur æskulýðsfélagsins (13- 15 ára) kl. 20. Neskirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Kaffi og spjall. Ungar mæð- ur og feður velkomin. Kaffí og spjall. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15-17. Athugið breyttan tíma. Fáum góðan gest frá annarri sókn sem mun létta okkur lund um stund. Verið velkomin. Umsjón Kristín Bögeskov, djákni. Bæna- messa kl. 18.05. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- stund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16. Handavinna og spil. Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safn- aðarins. TTT í Ártúnsskóla kl. 16- 17. Breiðholtskirkja. Kyi-rðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnað- arheimilinu á eftir. „Kirkjuprakk- arar“ starf fyi-ir 7-9 ára börn kl. 16. TTT starf fyrir 10-12 ára kl. 17.15. Æskulýðsstarf á vegum KFUM og K og kirkjunnar kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10-12. Sarf fyrir 10-12 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum í dag kl. 16.45-17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-18.45. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbæna- * efnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Léttur kvöldverður að bænastund lokinni. Vídalínskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi- stund, spil og kaffi. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar- stund í hádegi í kirkjunni kl. 12- 12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22 í minni Hásölum. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 12.05 bænar- og kyrrðarstund í , Landakirkju. Kl. 20.30 biblíulestur í KFUM og -K húsinu. KI. 20 verð- ur fundur á vegum eldri deildar KFUM & K í samnefndu húsi við Kirkj ubæj ar br autina. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Súpa og brauð fellur niður. Bíblíu- lestur kl. 19.30. Ath. breyttur tími, ræðumaður Dai-yl Ericson skóla- stjóri ICI biblíuskólans. Krakka- klúbbur kl. 19.30. Allir hjartanlega velkomnir. hefst fimmtudag kl. 10.00 Nýtt kortatímabil UNLIMITED UGAVEGI 95-97; SÍMI 552 18 KRINGLUNNI, SIMI 581 1944

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.