Morgunblaðið - 13.01.1999, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 13.01.1999, Qupperneq 46
46 MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Innlausnardagur 15. janúar 1999. 1. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.947.082 kr. 100.000 kr. 194.708 kr. 10.000 kr. 19.471 kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: InnLausnarverð: 1.000.000 kr. 1.732.528 kr. 500.000 kr. 866.264 kr. 100.000 kr. 173.253 kr. 10.000 kr. 17.325 kr. 1. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 8.532.020 kr. 1.000.000 kr. 1.706.404 kr. 100.000 kr. 170.640 kr. 10.000 kr. 17.064 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarveró: 5.000.000 kr. 8.398.122 kr. 1.000.000 kr. 1.679.624 kr. 100.000 kr. 167.962 kr. 10.000 kr. 16.796 kr. 1. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.734.235 kr. 1.000.000 kr. 1.546.847 kr. 100.000 kr. 154.685 kr. 10.000 kr. 15.468 kr. 3. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.016.895 kr. 1.000.000 kr. 1.403.379 kr. 100.000 kr. 140.338 kr. 10.000 kr. 14.034 kr. 1. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.841.500 kr. 1.000.000 kr. 1.368.300 kr. 100.000 kr. 136.830 kr. 10.000 kr. 13.683 kr. 1. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.450.227 kr. 1.000.000 kr. 1.290.045 kr. 100.000 kr. 129.005 kr. 10.000 kr. 12.900 kr. 1. 2. og 3. flokkur 1996: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.212.057 kr. 100.000 kr. 121.206 kr. 10.000 kr. 12.121 kr. Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf íbúðalánasjóður | Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavfk | Sími 569 6900 | Fax 569 6800 í DAG Fyrirspurn EG var að hlusta á út- varpsþáttinn Víðsjá á Rás 1 sl. mánudag. I þættinum var vitnað í Stein Steinarr og byrjað að lesa upp úr „Tímanum og vatninu“ en svo var því hætt. Langar mig að fá að vita hvers vegna því var hætt. Utvarpshlustandi. Auglýsum ekki verðmæti eiturlyfja í FRÉTTUM sl. daga af eiturlyfjasmygli í Vest- mannaeyjum hafa frétta- menn lagt áherslu á hversu mikil verðmæti hafi verið í þessum eiturlyfjum. Finnst mér ekki rétt að vera að auglýsa þetta svona, það getur orðið til þess að fólk freistist til að verða sér út um skjótfeng- inn gróða. Gömul kona. Sljörnustríð - Star Wars ER einhver sem getur út- vegað bókina Stjörnustríð (Star Wars) eftir George Lucas. Upplýsingar hjá VELVAKAMII Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Ólöfu í síma 588 4469 eða 588 4465. Hver kann vísuna? SÓLVEIG hafði samband við Velvakanda og er hún að leita að einhverjum sem kann vísuna sem byrjar á: Hatturinn og húfan hittust eina stund. Þeir sem kunna þessa vísu geta haft samband við Sólveigu í síma 565 8665. Hækkum launin BJÖRGVIN hafði sam- band við Velvakanda og finnst honum að hækka ætti laun stai’fsmanna Reykjavíkurborgar um meira en 3,6%, það þurfi að minnsta kosti 2% meiri hækkun því fólk lifi ekki af þessum launum. Mokum snjó og höfum ljós VELVAKANDI vill minna fólk á að hreinsa snjó og klaka af tröppunum hjá sér og hafa logandi ljós við útidyr til að auðvelda blaðburðarfólki starf sitt. Tapað/fundið Gleraugu týndust GLERAUGU, svört plast- gleraugu, týndust sl. laug- ardag. ÞeiiTa er sárt saknað. Finnandi hafi sam- band í síma 581 3966 eða 897 0766. Fundarlaun. Hjólkoppur týndist í miðbænum HJÓLKOPPUR af Benz, suðusúkkulaðibrúnn og merktur G-1037 týndist í miðbænum í síðustu viku. Finnandi hringi í síma 553 1053 á kvöldin. Myndavél í óskilum í Kópavogi MYNDAVÉL fannst á nýársdag við Smára- hvammsveg nálægt blokk númer 8. Upplýsingai’ í sima 564 1367 eftir kl. 20. Svartur Stússy-jakki týndist SVARTUR Stússy- dúnjakki týndist á Kaffi Thomsen sl. laugardag. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 554 3003. Lítil svört gleraugu týndust FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 8. janúar týndust svört smá gleraugu á veitinga- staðnum 22 á Klapparstíg. Finnandi vinsamlega hafið samband við Hrafnhildi í síma 561 1353 eða 861 6421. Fundarlaun. GSM-sími týndist í miðbænum SVARTUR Motorola GSM-sími týndist að- faranótt sunnudags í miðbænum. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 552 3372. Dýrahald Svört og hvít læða í óskilum ÞAÐ hefur köttur verið að flækjast á Kárastígnum síðan í sumar. Það er svört og hvít læða, frekar lítil. Hún var fyrst með rauða hálsól sem er týnd núna. Vonandi kemur eigandinn og vitjar hennar sem fyrst. Upplýsingar í síma 552 6049. SKAK msjoii illargeir I’étursson STAÐAN kom opnu móti í Linares á Spáni sem nú stendur yfir. C.S. Gokhale (2.335) var með hvítt en Bolog- an (2.580), Molda- viu, hafði svart og átti leik. 31. - Rg2! (Hindrar hvíta kónginn í að flýja í gegnum el reitinn. 32. Kxg2 gengur nú alls ekki vegna 32. - Hh2+ 33. Kgl-Hhl+34. Kf2 - Dh4+ og mát í næsta leik) 32. Hgl - Hh2 33. Kfl upp a - Dh3 34. Bd2 - Re3+ 35. Kel - Dh4+ og hvítur gafst upp. Rússarnir Drejev og Svetúsjkin eru efstir með fjóra vinninga. Helgi Ólafs- son keppir á mótinu og hafði hlotið tvo vinninga að loknum fjórum umferðum. SVARTUR leikur og vinnur ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu og söfnuðu kr. 4.262 til styrktar Neistanum, styrktarfélagi hjart- veikra barna. Þær heita Sólveig Björk Ásmundsdóttir, Hildur Eva Ásmundsdóttir og Helga Hafdis Gunnars- dóttir. Víkverji skrifar... SKÁLMÖLD sú sem ríkti fyrstu skólaviku nýs árs í Hagaskóla, vegna sprengjuæðis örfárra nem- enda og fjöldarefsinga skóla- stjórnenda í kjölfarið er vonandi á enda. Víkverja finnst dapurlegt þeg- ar unglingum á mótunarskeiði og skólastjórnendum lýstur saman með þeim hætti sem gerðist í Hagaskóla í liðinni viku. Víst er að allur sá frétta- flutningur, sem varð af skotsýning- um Hagabúa, var einungis til þess fallinn að verka eins og olía á eldinn. Nemendur sem kennarar og skóla- stjórnendur færðust í aukana - nem- endur héldu áfram að sprengja og eyðileggja skólann sinn langt fram á föstudagskvöldið síðasta og skóla- stjórinn blés af bæði árshátíð og skíðaferð alls skólans. XXX EGAR hér var komið sögu fannst Víkverja rétt að staldra við, að hugsa um hvað hafði gerst í þessum skóla, sem hingað til hefur farið einkar gott orð af og íhuga hvort ekki hefði verið fært að grípa til annarra agaún-æða en þeirra sem gert var. Vissulega er það fáránlegt, að skólastjórnendur skuli ekki leng- ur hafa yfir viðurlögum gegn aga- brotum að ráða, eins og þeim að víkja nemendum tímabundið úr grunnskóla vegna alvarlegra brota. Það að skólastjórnendum skuli gert vegna stjórnsýslulaga að gefa for- svarsmönnum hins brotlega unglings kost á andmíelum, með fresti i 15 daga, áður en hugsanlega kemur til þeirrar tímabundnu brottvikningar úr skóla sem að var stefnt, gerir slíka brottvikningu gjörsamlega marklausa og gagnslausa sem tæki til þess að halda uppi aga í skóla. Refsing við alvarlegu agabroti i grunnskóla verður að eiga sér stað þegar í stað, til þess að hún hafi for- varnargildi gagnvart öðrum nem- endum og sé um leið sanngjörn refs- ing. Ef til refsingarinnar kemur eftir tvær til fjórar vikur er tilefni refs- ingarinnar með öllu gleymt, ekki satt? XXX AÐ MÖRGU leyti telur Víkverji því að skólastjórnendum sé nokkur vorkunn, þegar þeim er ætlað það hlutverk að halda uppi aga og reglu og skila sínu lögbundna hlutverki, að uppfi’æða æskuna sam- kvæmt námskrám grunnskólanna, en hafa um leið verið sviptir úrræð- um til þess að bregðast við og taka á alvarlegum agabrotum. En þetta er bara ein hlið málsins, því Víkverji telur að skólastjórnendur í Haga- skóla hafi því miður verið mjög skammsýnii’ og beinlínis heiftúðugir, þegar þeii+a fyrstu viðbrögð við al- varlegum agabrotum innan við tíu unglinga úr Hagaskóla voru þau að svipta á sjötta hundrað nemendur skólans tilhlökkuninni af því að eiga árshátíð skólans og skíðaferðalag í vændum. Jafnframt er ekki endilega víst að það sé refsivert athæfi að hafa stjörnuljós, hurðasprengjur eða froska í skólatöskunni - eða hvað? Ennfremur er Víkverji ekkert endi- lega sannfærður um að fyllilega hafi verið farið að lögum, þegar kennarar og skólastjórnendur Hagaskóla tóku upp á sitt eindæmi ákvörðun um að leita í öllum skólatöskum nemenda. Hvað með friðhelgi einkalífsins? Get- ur ekki verið að svona leit flokkist sem innrás í einkalíf? XXX ER ÞAÐ einhvem tíma réttlátt að refsa öllum fjöldanum fyrir af- glöp fárra? Er slík afstaða ekki vís- asti vegurinn til þess að hleypa öllu í bál og brand? Hvers vegna í ósköp- unum ættu á sjötta hundrað ungling- ar í Hagaskóla, sem ekkert hafa af sér gert, að hafa skilning á því að þeir hafa verið sviptir því, sem oftast er hápunktur félagslífs grunnskóla ár hvert - árshátíð og skíðaferðalag? Er ekki verið að koma kolröngum skilaboðum til krakkanna? „Þótt ég hafi hagað mér vel og ekkert gert af mér, er mér samt sem áður refsað. Ergó: Það borgar sig ekkert sér- staklega að vera góður og haga sér vel,“ gæti verið þankagangur krakk- anna sem saklaus urðu fyrir þessari sviptingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.