Morgunblaðið - 03.03.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Halldór Ásgrímsson utanríkisrád-
herra.
Skrifimi
eldd imdir
i Ríkisstjómin ákvað f gær að skrífa
ekki undir Kyoto-bókunina fyrir
15. mars
REYKMERKIN okkar koma til með að sjást víða að.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Fákar á ferð
HESTAMENN hafa notið kosta gæðinga sinna í veðurblíðunni síðustu daga. Hér fer flokkur mosfellskra
manna og hesta með Móskarðshnúka og Mosfellið í bakgrunni, sem skarta súiu fegursta í vetrarskrúða.
Vegagerðin
Sjö tilboð í
efnisvinnslu
SJÖ tilboð bárust Vegagerðinni í
efnisvinnslu á Vestfjörðum.
Lægsta boð átti Sigurþór Þóris-
son, Patreksfírði, sem bauð rúmar
28 milljónir, en kostnaðaráætlun
er rúmar 40,6 milljónir.
Aðrir sem buðu voru Tak ehf.,
Borgamesi, sem bauð tæpar 29
millj., Possvélar ehf., Selfossi,
sem bauð rúmar 30,3 millj., Myll-
an ehf., Egilsstöðum, sem bauð
rúmar 30,7 millj., Gunnar Karl
Þórðarsson og Jón Már Snorra-
son, sem buðu rúmar 31,6 millj.,
Arnarfell ehf., Akureyri, sem
bauð rúmar 33,4 millj., og
Krókverk ehf., Sauðárkróki, sem
bauð rúmar 36 millj.
Sálfræði aldraðra á stofnunum
Mikilvægt að
aldraðir ráði sér
sem lengst
SJALFRÆÐI aldr-
aðra á stofnunum er
heitið á málþingi
sem siðanefnd Sjúkra-
húss Reykjavíkur stend-
ur fyrir á morgun,
fimmtudaginn 4. mars.
Ástríður Stefánsdóttir
situr í siðanefnd Sjúkra-
húss Reykjavíkur og er
fundarstjóri málþingsins.
„Siðanefndin hefur
reynt að taka fyrir ákveð:
ið efni á hverju ári. í
fyrra var það umföllun
um þagnarskyldu sjúkra-
húsanna sem var á dag-
skrá. í ár var ákveðið að
taka fyrir sjálfræði aldr-
aðra á stofnunum. Það er
efni sem tengist sjúkra-
húsinu og við finnum að
það brennur á fólki. Á
málþinginu leggjum við út frá
sjálfræði aldraðra sem siðferði-
legu gildi.“
Ástríður bendir á að samfélag-
ið geri í æ ríkari mæli kröfur um
aukin mannréttindi og sjáifræðis-
hugmyndin er sterk. „Aldraðir
hafa orðið útundan í þessari um-
ræðu. Það eru ákveðin gæði að fá
að ráða sér og sínum högum sem
lengst. Við það að fara á stofnun
þarf fólk oft að lúta forræði
stofnunarinnar sem kemur til
með að hafa áhrif á daglegt líf
þess. Hlutir sem hafa verið sjálf-
sagðir fram að þessu verða nú
allt í einu í höndum annarra.
Þetta eru hversdagslegar
ákvarðanir eins og hvað á að vera
í matinn, hvemig liturinn er á
gluggatjöldunum eða hvenær á
að fara að sofa. Það er geysilega
mikilvægt að geta tekið ákvarð-
anir um eigið líf og ráða sínum
málum áfram sem lengst. Jafnvel
þótt starfsfólkið sé allt af vilja
gert til að gefa þeim sem búa á
stofnunum færi á að ráða meira
sínu daglega lífi þá geta það verið
þættir eins og knappur fjárhagur
stofnunar sem kallar á ákveðinn
rekstur og hönnun bygginga get-
ur hamlað því að hægt er standa
undir þessum viðhorfum.
Það er mikilvægt að sýna
öldruðum virðingu og það er
áleitin spurning hvort við höfum
staðið okkur nægilega vel í því.“
Hún segir að reynt verði á
málþinginu að skoða sérstaklega
stöðu aldraða á stofnunum og
hvaða möguleikar eru á að auka
sjálfræði aldraðra sem þar búa
eða dvelja.
„Það er nauðsynlegt að stofn-
anir búi yfir þeim sveigjanleika
að hægt sé að standa vörð um
sjálfræði. Við teljum að umræðan
sé mikilvæg til að kanna mögu-
leikana á að auka sjálfræði aldr-
aðra á stofnunum. Við uppbygg-
ingu og skipulag stofnana þarf að
hafa þá grundvallarkröfu til hlið-
sjónar að fólk ráði sér sem
lengst. Á stofnunum þurfa vist-
menn oft að borða all-
ir á sama tíma, sama
matinn og fara í rúmið
á sama tíma. Hvaða
möguleikar eru á að
breyta þessu?“ __________
- Verður eitthvað
komið inn á lagalegt sjálfræði
aldraðra?
„Fyrst og fremst skoðum við
hugtakið sjálfræði útfrá siðferði-
• legu sjónarmiði. En siðferðilega
hliðin snertir líka þá lagalegu.
Lögin eiga að standa vörð um hið
Ástríður Stefánsdóttir
► Ástríður Stefánsdóttir er fædd
í Reykjavík 10. febrúar árið
1961. Hún lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Háskóla Islands
árið 1987 og hlaut almennt lækn-
ingaleyfí árið 1989.
Hún lauk BA-námi í heimspeki
frá Háskóla íslands árið 1992 og
MA-námi í sama fagi frá Dal-
housie-háskólanum í Halifax árið
1993.
Ástríður er lektor við Kenn-
araháskóla íslands og starfar
auk þess sem læknir á lungna-
og berkladeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur.
Eiginmaður hennar er Jón Ás-
geir Kalmansson, starfsmaður
Siðfræðistofnunar Háskóla fs-
lands, og eiga þau tvo syni.
Stefán Eiríksson lögfræðingur og
deildarstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu. Hann mun kynna þær
breytingar sem urðu á lögræðis-
lögunum þegar þau voru endur-
skoðuð síðast. Þá var gefinn
möguleiki á skipan sérstaks fjár-
gæslumanns án þess að grípa
þurfi til þess að svipta viðkom-
andi sjálfræði. Þetta er ákveðin
réttarbót fyrir aldraða."
- Aðrir sem halda fyrirlestra á
máiþinginu?
„Vilhjálmur Árnason, prófess-
or í heimspeki við Háskóla Is-
lands, verður með fyrirlestur og
fjallar um merkingu sjálfræðis-
hugtaksins og hvenær sé rétt að
skerða sjálfræði. Hann mun
einnig minnast á þá þætti sem
hugsanlega geta ógnað sjálfræði
aldraðra á stofnunum. Jón Snæ-
dal öldrunarlæknir verður með
inniegg um aðstæður aldraðra á
stofnunum og Bryndís Víglunds-
dóttir sérkennari og fyrrverandi
skólastjóri lýsir sjónarhorni að-
standenda aldraðra á stofnunum
og hugmyndum sínum um hvern-
ig ástandið er í dag og hvaða
möguleika við eigum til að styðja
betur við sjálfræði en gert er í
dag. í framhaldi af erindunum
verða pallborðsum-
ræður og þar situr
lfka Þóra Karlsdóttir
hjúkrunarforstjóri
Dvalar- og hjúkrun-
arheimilisins Klaust-
urhóla á Klrkjubæj-
arklaustri. Hún hefur í sínu starfi
kynnt nýjar hugmyndir þar sem
fólki á stofnunum er gefinn
möguleiki á að ráða sínu daglega
lífi meira en gengur og gerist."
Málþingið verður haldið í safn-
aðárheimli Háteigskirkju. Það
Sjálfræði
aldraðra frá
siðferðilegu
sjónarmiði
siðferðilega sjálfræði. Einn af verður frá 14-17 og eru allir vel-
fyrirlesurunum á málþinginu er komnir.