Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 47 FOLK í FRETTUM Scream-myndimar sýndu á sínum tíma,“ segir Christof. Hárfín lína, sem er í 3. sætinu, hefur hlotið mikið lof og er síðast vitað að hún fékk Berlínarbjörninn á nýafstaðinni Kvikmyndahátíð í Berlín. Astfanginn Shakespeare heldur fjórða sætinu, en Þú hefur fengið póst fellur úr öðru sæti í það fimmta og Hræðsla og viðbjóður í Las Vegas fellur um þrjú sæti og er í því sjötta. HÁRFÍN lína fer beint í annað sætið. ijjT'riTrmTiTi'] 111111 n i ii 1111 n i iTi 1111111111 m 111 m i VINSÆLUSTU KVIKMYNDIR Á ÍSUNDISra Nr. var vikur Mynd Framl./Dreifing 1. i 3 Bug's Life (Pöddulíf) WaJl Disney, Pixar 2. Ný Ný 1 Still Know What You Did Lost Summer ColumbiaTri-Star 3. Ný Ný Thin Red Line (Hórfín líno) fox 2000 Pktures,Phoeflix Fictures 4. 4 2 Shakespeare in Love (Ásfanginn Shakespeare) Ttie Bedford Falfs (o., Miromax Filrrn 5. 2 4 You've Got Mail (Þú hefur fengið póst) Wamef Bros 6. 3 2 Fear and Loathing in Las Vegas (Hræðsla og viðbjóður i LY.) Rhino Films 7. 5 2 Thunderbolt (Þrumufleygur) Golden Harvest, New Lme önema 8. 17 14 Mulan BV 9. Ný Ný Last Days of Disco (Síðustu dagor diskósins) Costle Roclc Entertainments 10. 6 7 The Waterboy (Sendillinn) BV 11. 7 3 Studio 54 Miramox Films 12. 9 ES Saving Private Ryan (Björgun óbreytts Ryan) Msk Gordon Prod., DreomWorks, Poromoun 13. 19 17 There's Something About MaryiMereinhvoöviJMmy) 20th Century Fox 14. 14 7 Festen (Veislan) Nimbus Rlm 15. 8 4 A Night at the Roxbury (Kvöld í Roxbury) ÖIP 16. 15 6 Ronin (Sex hnrJhnusor) UIP 17. 10 5 Elizabeth U)ttHxWI«rA>r.til|Cm 18. 16 6 Stepmom (Stjúpmamma) Columbia Tri-Stor 19. 20 10 Prínce of Egypt (Egypski prinsinn) DreomWorlu SK6 20. - ES Dansinn ísfihn Sýningarstaður á 8 Bíóhöilin, Kringlubíó, Bíóborgin, Nýjo'bíó (Kef), Nýja bió (Ak) Stjörnubíó, Laugarósbíó Regnboginn Borgarbíó (Ak), Bíóhöllin Hóskólabíó Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgin, Nýja bíó (Ak) | Bíóborgin, Nýja bíó (Ak) Regnboginn Bíóhöllin Kringlubíó, Bióhöllin, Kringlubíó, S cr> Regnboginn Borgurbió ( Hóskólabíó/Sambíóin M Regnboginn i Hóskólobíó ~4v Laugarósbíó Bíóhöllin Hóskólobió Stjörnubíó, Borgarbíó (Ak) Hóskólobió/Sambió Hóskólabíó Ottke sigraði á rothöggi íslenski kvikmyndalistinn Lífseig skordýr Olíkt höfð- ust þeir að ÓLÍKT höfðust þeir að hnefa- leikamennirnir Sven Ottke frá Þýskalandi og Italinn Nardiello. Sven Ottke sem hafði heims- meistaratitil að verja, bjó sig af mikilli kostgæfni undir bardag- ann og fékk kona hans lítið sam- neyti að hafa við kappann á und- irbúningstíma hans. „Konur eru mitt áhugamál númer eitt,“ sagði Nardiello hinsvegar sem sagður var meira í partíum og á diskó- tekum en í æfingahringnum. Skemmst er frá því að segja að Ottke barði ítalann sundur og saman og veitti honum rothögg í þriðju lotu. Nardiello var meðvit- undarlaus í 10 mínútur eftir bar- dagann og var í skyndingu flutt- ur á sjúkrahús. Ottke þótti sýna mikla drenglund er liann bað fjölmai-ga stuðningsmenn sína í Max Schmeling Halle í Berlín að fagna ekki sigri fyrr en Ijóst væri hvernig keppinautinum myndi reiða af. Áhorfendur hlýddu beiðni hans og var óvenju hljótt í höllinni þrátt fyrir afgerandi sig- ur á rothöggi. Nardiello er sagð- ur á góðum batavegi og senni- lega mun hann undirbúa sig bet- ur undir næsta bardaga. SKORDÝRIN halda fyrsta sæti sínu þriðju vikuna í sýningu, en þrjár teiknimyndir eru í efstu tutt- ugu sætum listans um þessar mund- ir, því Mulan hækkar sig úr sautj- ánda sætinu og fer í það áttunda og Egypski prinsinn er í því nítjánda. Þrjár nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna, þær Ég veit ennþá hvað þú gerðir síðasta sumar og Hárfín lína sem fara í annað og þriðja sætið og Síðustu dagar diskó- sins sem er í níunda sætinu. Christof Wehmeier í Stjörnubíói segist mjög ánægður með aðsókn- ina á Ég veit ennþá hvað þú gerðir síðasta sumar. „Það var uppselt á kvöldsýningum bæði á föstudaginn og sunnudaginn. Góð stemmning ríkti og ósjaldan mátti heyra sterk viðbrögð í salnum, það var alla vega mikið öskrað. Þessi gerð mynda á sér tryggan aðdáendahóp, eins og SKORDÝRIN eru í efsta sætinu. Dillandi gömludansa- popp og harmonikkustuð TÓJVLIST Geisladiskur KVEIKJUR Kveikjur, diskur Kristins Snævars Jónssonar. Höfundur laga og texta: Kristinn Snævar Jónsson. Á disknum leika: Ásgeir Óskarsson, trommur og slagverk, Jóhann Ásmundsson og Kristinn S. Jónsson, bassi, Kristinn Svavarsson saxófónn, Vilhjálmur Guðjónsson, gítarar, hljómborð, raddir o.fl., Ari Jónsson, Birgir Har- aldsson og Arnar Freyr Gunnarsson, söngur. Utsetningar, upptökur og ldjóðblöndun: Vilhjálmur Guðjónsson haustið 1998. Kristinn Snævar gefur út, Japis dreifir. Um 35 min. ÞEGAR ég handlék nýaldarlegt umslagið utan um Kveikjur, disk Kristins Snævars sem kom út nú fyrir jólin, átti ég von á einhverju í Enyu-deildinni - flæðandi hug- leiðslupoppi með hástemmdum kór- röddum. Sá ótti reyndist ástæðulaus því út um hátalarana streymdi það sem ég hefði síst vænst af geisladisk sem kemur út árið 1998. Dillandi gömludansapopp, harmonikkustuð og þjóðlegur hippaóður til náttúr- unnar. Einlægnin og heiðarleikinn glansa úr hverju lagi og ljóði, sem flest hver eru lofsöngvar um landið og manneskjurnar í því. Kristni virð- ist liggja mikið á hjarta og vera mik- ið í mun að koma áríðandi skilaboð- um sínum til mannkyns. Brot úr textanum Landið sem lengi var: Grandað er lífí, af gróðri sneitt, / og geigvænleg mengun er leyfð. / Rist er í jörð og regnskógum eytt, / við rányrkju spornað með deyfð. Eg er viss um að einhverjir þenja nasir heitir í hjarta þegar textar sem þessir líða um þá í fylgd eldhúsball- aðanna á Kveikjum en jafnvel þó mér hafi tekist að svæfa í mér pönkar- ann áður en ég lagði eyrun við, gat ég ekki alveg beislað í mér ungæðinginn sem beið óþreyju- fullur hasarsins sem aldrei kom. Hins- vegar sá ég móður mína, sem er á sex- tugsaldri, fyiir mér svífa með sælubros út á eldhúsgólfið og taka nokkur dillandi kunnugleg spor við kunnuglega tóna, þó nýir séu. Það varð úr að ég leyfði henni að heyra Kveikjur og spurði hana álits af því ég var forvitin um hvort fótur væri fyrir þessari kenn- ingu minni. Hún sagði: „Þetta er smart tónlist og rómantísk. Þetta er sko eitthvað fyrir mig.“ Ég gat ekki annað en fyllst lotningu og þakklætis til Kristins og allra hans félaga fyrir að búa til tónlist handa móður minni og öllum hennai- félögum. Nýja slag- ara eftir formúlum sjöunda áratug- arins, með heimilislega kassagítarn- um, kunnuglegum röddunum og auð- vitað nikkunni á hápunktum. Þrátt fyrir kynslóðagjána sem er á milli mín og Kveikja, fannst mér frum- skógarlegur trommuleikur Ásgeirs Óskarssonar Stuðmannatrommara í titillagi disksins ansi hressandi og eins rafmagnsgítarinn sem frussaði undir útilegustemmdum kassagít- arnum. Það var góð stígandi í þessu lagi sem er teymt áfram af rödd Birgis Haraldssonar sem kyrjaði 0- vey, o-vey í hátt í fimm mínútur. Ég hefði verið til í að heyra meira úr frumskógardeildinni frá Ásgeiri, en það hefði kannski spillt einfóldu hlöðustemmningunni sem ríkir í hin- um lögunum á disknum. Fyrirféiðar- lítið og létt, einfalt taktspil sem þjón- ar sínum tilgangi ágætlega. Annars vann lagið Hvar verða móar? mig á nostalgíunni. Harmonikkan og ang- urvær gítarleikurinn bræddu mig og sendu mig aftur til þeirra tíma þegar maður tíndi krækiber í sveitinni með foreldrunum og gömlu lummurnar liðu úr bílútvarpi Cortinu-bílsins uppi á malarveginum. Kveikjumenn segja diskinn hríf- andi gjöf sem maður gefi sjálfum sér og besta vini sínum, ég segi Kveikjur vera hressandi gjöf handa fimmtug- um mæðrum, notalegt undirspil eld- húsborðsumræðnanna. Kristín Björk Kristjánsdóttir MYNDBÖND Fálæti og ofbeldi Állinn (UNaGi)___________ llrama ★★★ Framleiðandi: Hiso Ino. Leikstjórn og handrit: Shohei Imainura. Kvikmyndataka: Shigeru Komatsu- bara. Aðalhlutverk: Koji Yakusho og Misa Shimizu. (117 min.) Japan. Háskólabíó, febrúar 1999. Bönnuð börnum innan 16 ára. ÁLLINN var valin besta myndin á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 1997 ásamt írönsku kvikmyndinni Keimur af kirsu- beri. Af því tilefni hefur Háskólabíó gefið myndirnar saman út á einni myndbandsspólu. Myndimar eiga vel saman þar sem þær eru að mörgu leyti andlega skyldar. Þær eru gerðar af reyndum leikstjórum sem setja mannlegt viðfangsefni sitt fram á *. vafningslausan hátt sem reynir á dómgreind áhorfandans og þolin- mæði. Lítið er lagt í það að skýra gjörðir aðalpersónanna og athyglinni fremur beint að samspili jákvæðra og neikvæðra þátta í mannlífinu og fegurðinni að baki því öllu saman. Állinn hefst með afdráttarlausu of- beldi þegar aðalpersónan Takuro myrðir eiginkonu sína eftir að hafa staðið hana að framhjáhaldi. Verkn- aðurinn kemur flatt upp á áhorfand- ann og vekur því með honum blendn- ar tilfinningar í garð hetjunnar. Myndin heldur áfram átta árum síð- ar, þegar Takuro er hleypt út úr fangelsi. I gegnum samskipti hans við ýmsa furðufugla og utangarðs- fólk sem virðast laðast að honum, kynnist áhorfandinn breyskri aðal- persónu sinni nánar. Þetta helst í hendur við fallegan stíl myndarinn- ar, sem er fálátur en óræður og flakkar á milli huglægs ástands per- sónunnar og hlutlægs veruleika. Heiða Jóhannsdóttir í leit að líkgrafara < Keimur af kirsuberi (Ta’m E Guilass) llrama ★★★ Framleiðandi, leiksljóri og handrits- höfundur: Abbas Kiarostami Kvik- myndataka: Homayoun Payvar. Aðal- hlutverk: Abdolhossein Bagheri. (95 mín) íran. Háskólabíó, febniar 1999. Bönnuð börnum innan 16 ára. ÍRANSKA kvikmyndin Keimur af kirsuberi sem deildi Cannes-verð- laununum með Álnum, byggir á ein- faldri en sterkri hugmynd. Þar segir frá hinum miðaldra Badii sem ákveð- ið hefur að binda enda á líf sitt. ' Hann ekur því um útjaðai- Teheran- borgar og reynir að ráða einhvern til að grafa sig að verkinu loknu. Ókuferð Badiis spannar mestalla atburðarásina og gefur innsýn í lífs- baráttu ólíkra undirmálsmanna á þessu íjarlæga heimshorni. Hin eðli- legu og mannlegu samtöl sem þar eiga sér stað færa hins vegar per- sónurnar afskaplega nálægt okkur. Atburðarásin er ofurróleg og gefur leikstjórinn góðan tíma í sjónræn og þögul atriði sem tjá bæði hugará- stand aðalpersónunnar og veita um- hverfinu og mannlífinu athygli. Tölu- vert er um endurtekningar og að- gerðarleysi sem endurspeglar tilvist- araðstæður fólksins í myndinni. Þetta verður þó einnig til þess að áhorfandinn kemst í hálfgert sefjun- arástand og getur athyglin þannig hneigst til að leita eitthvað út í busk- ann á tímabilum. Heiða Jóhannsdóttir **
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.