Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 21 Bandaríkjamenn herða árásir á skotmörk innan flugbannssvæðanna í Irak Markmiðið sagt að eyða loftvörnum Iraka Bagdad, VVashinglon. Reuters. _____________________ Reuters BANDARÍSK F-16 orrustuþota í flugtaksstððu á Incirlik-herflugvellinum í Tyrklandi. BANDARIKJAMENN hafa stig- magnað árásir sínar á skotmörk innan flugbannssvæðisins yfír norður- og suðurhluta Iraks. I einni af hörðustu árásum sínum, síðan loftárásirnar í desember hófust, vörpuðu bandarískar her- þotur yfir 30 sprengjum á loft- varna-, talstöðva- og samskiptamið- stöðvar á mánu- dag. Hafa írösk stjómvöld ásakað B and aríkj am e n n um að ráðast vís- vitandi á olíuleiðslur sem liggja um borgina Mosul frá írak til Tyrk- lands. William Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi eftir loftárásirn- ar á mánudag: „Flugmönnum hef- ur verið gefíð aukið svigrúm til að ákvarða árásir á búnað sem þeim stafar hætta af. Þeir munu ekki einungis einbeita sér að skotmörk- um á borð við loftvarnafallbyssur eða flugskeyti sem beint er gegn flugvélum,“ sagði Cohen. „[Flug- mennirnir] geta nú einnig ráðist á stjórn- og fjarskiptastöðvar sem nýtast Saddam Hussein við að miða út staðsetningu flugvéla þeirra.“ Hvað árásirnar á olíu- leiðslur Iraka varðaði, svaraði Cohen því til að Bandaríkjamenn hefðu sprengt fjarskiptamiðstöð nærri Mosul, „sem gæti eða gæti ekki hafa rofið streymi olíu til Tyrklands“. „Takmarkað stríð“ Loftárásir Bandaríkjamanna og Breta hafa staðið nær sleitulaust frá því í desember sl. og er tahð að fjöldi árása síðan þá nemi um eitt hundrað. Farnar hafa verið nær daglegar eftirlitsferðir yfir flug- bannssvæðin sem þekja um 60% af landssvæði íraks og telja frétta- skýrendur að ástandinu sé hægt að líkja við takmarkað stríð sem hafi það að markmiði að eyða sem mestu af loftvörnum Irakshers og þar með getu þeirra til árása. Bandaríska blaðið Washington Post hefur það eftir heimildamönn- um sínum innan varnamálaráðu- neytisins að aðgerðirnar nú séu augljós stigmögnun á árásum bandamanna. Einn heimildamaður blaðsins sagði að Bandaríkjastjórn hefði undir höndum lista yfir allar loftvamir Iraka og hann teldi að bandamenn beindu herþotum sín- um vísvitandi nálægt tilteknum loftvamastöðvum sem þeir vilja granda. Eftir að Irakar hefðu náð að miða vélarnar út eða skjóta úr byssum sínum gerðu herþotur bandamanna árás. Rýmkun reglna um það hvenær og undir hvaða kringumstæðum árásir em gerðar þýðir, að sögn blaðsins, að ormstuflugmönnum sé heimilt að gera árásir á almennar fjarskiptamiðstöðvar sem þurfi ekki endilega að vera tengdar vamarkerfi íraska hersins. Hefur að sögn blaðsins verið staðfest að Bandaríkin, Bretland og Tyrkland hafi undirritað samning, þann fyrsta sinnar tegundar, um hvemig staðið skuli tæknilega að loftárás- um á flugbanssvæðinu. Er sagt að í samningnum felist að flugmenn þurfi ekki að fá heimild stjóm- stöðva á jórðu niðri áður en árás er gerð. Nýjar upplýsingar um njósnir Bandaríkjamanna Washington Post hefur það eftir ónafngreindum heimildamönnum sínum innan bandaríska stjóm- kerfisins, að bandaríska leyniþjón- ustan hafi á þriggja ára tímabili komið fyrir njósnumm og njósna- búnaði undir því yfirskyni að um aðgerðir á vegum vopnaeftirhts- nefndar Sameinuðu þjóðanna (UNSCOM) hafi verið að ræða. Var upplýsingum um njósnimar verið haldið leyndum fyrir Richard Butler, yfirmanni UNSCOM, og Svíanum Rolf Ekeus, forvera Butlers í starfi. Þetta stangast á við fyrri yfirlýs- ingar Bandaríkjastjómar sem sagði í liðinni viku að öll upplýs- ingaöflun innan íraks hefði verið í fullu samráði við UNSCOM. Tals- menn Bandaríkjastjómar sögðu í gær að bandarísk stjórnvöld hefðu gert sér grein íyrir þeirri hættu sem eftirhtsstarfi Sameinuðu þjóð- anna stafaði af njósnunum. Það hefði hins vegar verið mat manna að svo mikið væri í húfi að rétt- mætt væri að taka þá áhættu. Viðurkennir að hafa bar- ið Anwar Kuala Lumpur. Reuters. ABDUL Rahim Noor, fyrrverandi lögreglustjóri í Malasíu, sagði í gær við réttarhöldin yfir Anwar Ibrahim, fyrrverandi fjármálaráð- herra landsins, að Anwar hefði móðgað sig og að hann hefði þess vegna veitt Anwar áverka. Rahim Noor neitaði hins vegar að hann hefði barið Anwar að fyrirskipan Mohamads Mahathirs forsætisráð- herra. Lét Mahathir hafa eftir sér eftir þessi ummæli Rahims Noors að hann væri „ósáttur“ við að lög- reglustjórinn fyrrverandi skyldi hafa veitt Anwar áverka. Þetta er í fyrsta sinn sem Rahim Noor viðurkennir að hafa lamið Anwar þegar ráðherrann fyrrver- andi var færður í fangageymslur eftir að hafa verið handtekinn í september á síðasta ári. Kvaðst Rahim Noor hafa misst stjóm á sér og lamið Anwar eftir að hinn síðar- nefndi hafði kallað Rahim Noor níðyrðinu „hundapabba“. „Ég vil leggja áherslu á eitt at- riði,“ sagði Rahim Noor í gær, „ég lamdi Anwar ekki að fyrirskipan annarra manna, né fékk ég tilmæli eða óskir um slíkt, ekki heldur fékk ég aðstoð við verknaðinn, ekki einu sinni frá lögregluþjónum undir minni stjóm og allra síst forsætis- ráðherranum.“ Mahathir rak Anwar úr ríkis- stjóm sinni í september vegna deilna um hagstjóm landsins og stuttu seinna var Anwar handtek- inn og ákærður fyrir kynferðis- glæpi og spillingu. Anwar neitar öllum sakargiftum. Rahim Noor, sem lét af störfum sem lögreglustjóri í janúar, sagði að Anwar hefði verið með bundið fyrir augu en standandi þegar Ra- him Noor gekk inn í fangaklefa hans eftir handtökuna. „Ég ákvað strax í byrjun að leysa bindið frá augum hans. Er ég gerði mig lík- legan til að leysa það lét Anwar þessi orð falla „Ni bapa anjing" [bölvaður hundapabbi]. Ég sá rautt,“ sagði Rahim Noor. Barði hann Anwar sem féll þegar í gólfið. Anwar neitar því að hafa reitt lög- reglustjórann til reiði. Bush og Buchanan lýsa yfír framboði Reuters FLÓTTAMENN reyna að komast uin borð í skip í höfninni í Ambon í Indónesíu. Eyjaskeggjar berast á banaspjót þrátt fyrir friðarsamkomulag Ambon. Reuters. LIK tveggja manna, konu og karls á fertugsaldri, fundust á eynni Ambon í Indónesíu í gær en talið er að tíu manns hafi týnt lífi í óeirðum þar í þessari viku. Lögreglan segir 166 manns hafa látist í róstum á milli kristinna og múslimskra eyjaskeggja á Ambon frá upphafi þessa árs. Andrúmsloft er Iævi blandið á Ambon. Þúsundir liafa reynt að flýja eyjuna undanfarna daga. Allt var með kyrrum kjörum í Ambon í gær og aftur búið að opna markaði og verslanir en borginni var lýst sem draugabæ. Mikill fjöldi herlögreglumanna er í borginni en friðarsamkomu- lag sem var undirritað síðdegis á sunnudag á milli múslima og kristinna virtist hanga á blá- þræði. Óeirðirnar á Ambon eru þær verstu sem orðið hafa í Indónesíu í 15 ár. Eyjan Ambon liggur í 2.300 km íjarlægð austur frá Jakarta. Austin, Manchester. Reuters. REPÚBLIKANARNIR Patriek Buchanan og George W. Bush yngri tilkynntu í gær að þeir sækt- ust eftir útnefningu Repúblikana- flokksins fyrir bandarísku forseta- kosningarnar á næsta ári. Nýlegar bandarískar skoðanakannanir sýna «ð ef kosið yrði nú, myndi Bush eða Elizabeth Dole, sem sterklega hef- ur verið orðuð við framboð, sigra varaforsetann A1 Gore sem er tal- inn líklegasti frambjóðandi Demókrataflokksins. Þingmenn úr Suður- og Norður- Karólínu og Connecticut afhentu Bush stuðningsyfírlýsingar í gær. Talið er víst að Bush, sem er ríkis- stjóri Texas-fylkis, njóti mikils stuðnings innan flokksins. Hafa t.a.m. margir ríkisstjórar lýst yfir stuðningi við hann. Buchanan, sem hefur gert tvær tilraunir til að hljóta útnefningu flokksins, er þekktur fyrir íhalds- samar skoðanir sínar og sagði í til- efni af framboði sínu að það væri köllun sín að „ná til baka sjálf- stæði og fullveldi ríkisins, hreinsa upp allt sem mengað hefur menn- ingu okkar og lækna hina amer- ísku sál“. Suóurlandsbraut 14 Sfmi S7S 1200 Söludeild 575 1210
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.