Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 41 Tvö þorrablót í Flórída Morgunblaðið/Ásdís í friði með góðgætið ÞÓTT veröldin sé stór og áhugaverð til skoðunar er einnig nauð- synlegt að staldra við og nærast ofurlítið. Er þá oft hollast að vera ótruflaður, ekki síst þegar góðgæti er annars vegar og það kann unga kynslóðin. ÍSLENZK-Ameríska félagið Leif- ui’ Eiríksson í Orlando hélt sína há- tíð rétt í lok þorráns, laugardaginn 20. febrúar, á Doubletree hótelinu á Cocoa Beach. Flestir þátttak- enda, sem sumir hverjir höfðu ekið í marga klukkutíma, fengu sér gist- ingu á staðnum. Matreiðslumeistaramir Sigurð- ur Hall og Öm Garðarsson komu með þorramatinn að heiman og bára fram kræsingarnar, sem gest- ir gerðu góð skil. Hljómsveit Björgvins Halldórssonar og Bjarni Arason léku íyrir dansi og gerðu góða lukku. Avörp fluttu formaður félagsins, Guðleifur Kristjánsson, Hilmar S. Skagfield, aðalræðis- maður og Atli Steinarsson. Veislu- gestir heiðraðu minningu konu Atla, Önnu Bjarnason, sem stofn- aði félagið og var formaður þess um árabil, með því að rísa úr sæt- um. Fram fór veglegt happdrætti, þar sem stærsti vinningurinn var flugfar til Islands en auki þess fjöldi annarra góðra vinninga. Veislugestir vora um 225 að tölu. Aður en þorrablótið hófst var Fyrirlestur um vampýr- ur í sögu og menningu FÉLAG íslenskra fræða boðar til fundar í Skólabæ í kvöld, miðviku- dagskvöldið 3. mars 1999, með Úlf- hildi Dagsdóttur bókmenntafræð- ingi og hefst fundurinn klukkan 20.30. Úlfhildur nefnir erindi sitt „Blóð- þyrstur berserkur: Vampýran, vinir og ættingjar". f því mun hún fjalla um hin mörgu andlit vampýrunnar í sögu og menningu. Vampýran er ekki aðeins ódauðleg heldur líka heimsborgari, segir í fréttatilkynn- ingu. Úlfhildur mun fjalla um birting- armyndir hennar í þjóðsögum, goð- sögum, bókmenntum og kvikmynd- um og ræða um þetta lífseiga fyrir- bæri út frá ýmsum kenningum sam- tímans. Úlfhildur Dagsdóttir lauk BA- prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla íslands árið 1991. Árin 1992-1996 stundaði hún doktors- nám í bókmenntum og menningar- fræðum við Trinity College í Du- blin. Um þessar mundir vinnur hún við ýmis ritstörf við ýmsa fjölmiðla, sem kvikmyndagagnrýnandi, bók- menntagagnrýnandi og stunda- kennari við Háskóla Islands og Námsflokka Reykjavíkur. Eftir framsögu Úlfhildar verða almennar umræður. Fundurinn er opinn öllum. Nýjar sveitir á Kaffi Reykjavík GÓUGLEÐI stendur yfir á Kaffi Reykjavík þessa viku eins og á flestöllum veitingastöðum landsins. í kvöld leikur hljómsveitin Karma fyrir dansi. Til stóð að hljómsveitin 8-villt léki þrjú kvöld í vikunni en af því getur ekki orðið vegna forfalla. Dagskráin breytist þannig að hljómsveitin Hálft í hvoru leikur á fimmtudagskvöld, Sixties á föstudagskvöld og Hálft í hvora á laugardagskvöld. Mj ólkurdagar í verslunum KA í TILEFNI af 70 ára afmæli Mjólkurbús Flóamanna verða haldnir mjólkurdagar í verslunum KA dagana 3.-17. mars. Þar verður vakin athygli, með kynningum og haldinn stofnfundur nefndar til þess að undirbúa hátíðarhöld í til- efni 1000 ára afmælis landafund- anna á næsta ári. Rætt var laus- lega um það hvað gera bæri til þess að þetta verkefni „ísland 2000 Flórída" gæti borið góðan árangur og komu fram margar tillögur. Formaðm’ nefndarinnar var kjör- inn Arni Arnason, en hann stýrði hátíðarhöldum íslendinga í Flórída á 50 ára afmæli lýðveldisins af mik- illi röggsemi. Ritari var kosinn Kri- stján Ingvarsson. Suður Flórída-landar teygja sig inn í góuna með sitt þorrablót, en það verður haldið laugardaginn 6. mars að Doubletree Guest Suites Hótelinu í Ft. Lauderdale. Tveir matreiðslumeistarar koma frá Fróni færandi hendi með þorra- kræsingamar. Þeir eru Gissur Guðmundsson og Snæbjöm K. Kri- stjánsson. Páll Oskar og hljómsveit hans „Casino“ leika íyrir dansi og einnig verður haldið hið óumflýjan- lega happdrætti með ýmsum glæsi- legum vinningum. Búist er við margmenni, jafnvel gestum frá Is- landi. tilboðum, á öllum þeim mjólkurvör- um sem framleiddar eru hjá MBF á Selfossi. í verslun KA á Selfossi verður einnig sett upp sýning á gömlum myndum úr starfi MBF og gamlir munir tengdir framleiðslu á mjólk- urafurðum, fi’á Byggðasafni Arnes- inga, verða til sýnis. í tengslum við þessa daga verður síðan léttur spurningaleikur íyrir yngstu kyn- slóðina með veglegum verðlaunum í boði. Fræðsla um uppeldi barna FORELDRAFÉLÖG grannskól- anna í Kópavogi standa íyrir fræðslufundi miðvikudaginn 3. mars. Fyrirlesari er Jörundur Guð- mundsson heimspekingur. Erindi sitt nefnir hann „Siðferði og upp- eldi barna“. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 í Félagsheimili Kópavogs. Heitt verður á könnunni. Fundur for- eldra barna með Tourette- heilkenni TOURETTE-samtökin á íslandi hafa flutt skrifstofu sína að Lauga- vegi 7, 3. hæð. Sú nýbreytni verður á þjónustu við félagsmenn frá og með 9. mars að skrifstofan verður opin á þriðju- dögum frá kl. 9-12. Þá er ennfremur áætlað að for- eldrar bama með Tourette-heil- kenni geti hist reglulega og spjallað saman yfir kaffibolla. Hugmyndin er að þessir fundir verði haldnir fyrsta fímmtudag hvers mánaðar. Fyrsti fundurinn verður haldinn 4. mars kl. 20.30 í Kaffi Mílanó, Faxa- feni 11. Fullorðnum einstaklingum með Tourette-heilkennið gefst líka tæki- færi til að hittast. Þeir fundir verða á skrifstofu félagsins annan fimmtudag hvers mánaðar frá kl. 19-21. Fyrsti fundurinn verður 11. mars. Mótmælir breytingum á skipulagslögum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá hrepps- nefnd Biskupstungnahrepps: „Hreppsnefnd mótmælir harð- lega breytingum sem orðið hafa á frumvarpi til skipulags- og bygg- ingarlaga. Hreppsnefnd Biskups- tungna sér enga ástæðu til að breyta þeim hugmyndum sem fram vora komnar um skipan samvinnu- nefndarinnar samkvæmt framvarpi til laga nr. 73x1997. Það er grand- vallaratriði að nefndina skipi full- trúar sveitarfélaga sem liggja að miðhálendinu. Jafnframt mótmælir hrepps- nefnd Biskupstungnahrepps harð- lega þeim hugmyndum sem nú era uppi um verksvið nefndarinnar en það er að hún gefi ekki lengur um- sögn um tillögur að aðalskipulagi sveitarfélaga á svæðinu, heldur eigi hún að vinna að svæðisskipulaginu sjálf og gera um það tillögur til Skipulagsstofnunar. Hreppsnefnd Biskupstungna vill benda á að sveitarfélögin eiga að sjálfsögðu að ráða skipulagi miðhá- lendisins hér eftir sem hingað til og samvinnunefndin þarf því ekki að sjá til annars en að samræmi sé í skipulagi miðhálendisins og að farið sé eftir þeim lögum og reglum sem um það gilda.“ Berjast gegn jaðaráhrifum skatta MORGUNBLAÐINU heur borist eftirfarandi frá SUF: „Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna, haldinn á Akureyri 26. febrúar 1999, lýsir yfir vonbrigðum vegna aðgerðaleysis stjórnvalda við að draga úr jaðará- hrifum í skattkerfinu". Jaðar- skattanefnd forsætisráðherra lagði upp laupana án þess að skila tillög- um. A sama tíma hefur ríkisstjórn- in aukið heimildir fyrirtækja til þess að nýta sér uppsafnað rekstr- artap til frádráttar frá skatti. Jaðaráhrif skatta koma hart nið- ur á ungu barnafólki og lífeyrisþeg- um. Ungir framsóknarmenn telja það við hæfi á alþjóðlegu ári aldr- aðra, að ungliðasamtök og samtök eldri borgara leggi saman krafta sína og krefji stjórnvöld um að- gerðir til að draga úr jaðaráhrifum skatta. Samband ungra framsókn- armanna mun hér eftir sem hingað til vinna gegn því óréttlæti sem nú- verandi skattkerfi felur í sér og lýs- ir sig reiðubúið til þess að berjast við hlið eldri borgara í þessu sam- eiginlega hagsmunamáli. Ungir framsóknarmenn skora á fréttastofur fjölmiðla að endur- flytja upptökur af kosningaloforð- um formanna stjórnarflokkanna fyrir síðustu kosningar um úrbætur vegna jaðaráhrifa skatta og krefja forsætisráðherra svara um efndir. SUS hvetur til breyting-a á áfengislögum „STJÓRN Sambands ungra sjálf- stæðismanna batt vonir við að tján- ingarfrelsið, eitt af þýðingarmestu gi’undvallarréttindum borgaranna í lýðræðisþjóðfélagi, væri meira met- ið á íslandi en raun ber vitni nú þegar 21. öldin nálgast. I nýfollnum dómi Hæstáréttar um áfengisauglýsingar er staðfest réttarástand sem ekki verður við unað. Þess vegna er Alþingi hvatt til að breyta áfengislögum þannig að borgurunum verði frjálst að tjá sig um áfengi eins og aðrar verslun- arvörur, hvort heldur er í auglýs- ingum eða á annan hátt. Jafnframt hvetur stjóm Sam- bands ungra sjálfstæðismanna Al- þingi til að aflétta einkasölu ríkisins á áfengi. Slíkt verslunarfyrirkomu- lag er ekki bara tímaskekkja heldur hjákátlegt í hverju því þjóðfélagi sem vill kenna sig við mannréttindi og frelsi einstaklinganna,“ segir í fréttatilkynningu frá SUS. Epal sýnir stólinn Dreka FIMMTUDAGINN 4. mars kl. 17 verður opnuð sýning á stólnum Dreka í Epal, Skeifunni 6. Erla Sólveig Óskarsdóttir iðn- hönnuður hannaði stólinn. „Hún hlaut tvenn verðlaun fyrir Dreka á síðsta ári, menningarverðlaun DV og Rauða punktinn í Essenn í Þýskalandi. Erla Sólveig stundaði nám í iðn- hönnun í Danmörku og útskrifaðist árið 1993. Hún hefur lagt sig sér- staklega eftir hönnun á stólum og era nú tveir af stólum hennar > komnir í framleiðslu erlendis. Dreki er framleiddur hjá Brane í Þýskalandi og þegar kominn á markað en auk þess er hafin fram- leiðsla á öðrum stól eftir Erlu Sól- veigu í Danmörku. Sá stóll hefur hlotið heitið Jaki og mun hann koma á markað í lok mars eða í byrjun apríl. Samvinna hefur tekist um fram- leiðslu Dreka milli Brane og Epals sem stendur fyrir framleiðslunni hérlendis. Sólóhúsgögn smíða grindumar fyrir Epal en setur og bök koma frá Þýskalandi,“ segir í fréttatilkynningu frá Epal. I tilefni sýningarinnar verður Epal opið frá kl. 10 til 16 á laugar- ’ daginn, 6. mars, og kl. 14 til 17 á sunnudaginn, 7. mars. LEIÐRÉTT „FlugvöIIur 21. aldar“ AF TÆKNILEGUM orsökum slæddust villur inn í hluta af grein Steinunnar Jóhannesdóttur, „Flug- völlur 21. aldar“, sem birtist í blað- inu í gær. Er beðist velvirðingar á þessu. Umræddur kafli á að vera þannig: „Engin stofa eða stofnun hefur verið fengin til að kanna áhrif flug- vallarins á mannlífið í nágrenni hans, en í kjölfar mikillar umræðu um flugvallarsvæðið og framtíðar- skipulag höfuðborgarinnar gerði DV skoðanakönnun sem sýndi fram á að meirihluti Reykvíkinga og reyndar landsmanna allra vill að flugvöllurinn verði fluttur úr Vatns- mýrinni og svæðið notað sem bygg- ingarland. Skipulagt til 2016? Um svipað leyti og þessi vilji al- mennings kom fram samþykkti borgarstjórn deiliskipulag fyrir . Reykjavíkurflugvöll og lagði fram til kynningar. Það var gert í sam- ræmi við aðalskipulag sem sam- þykkt var fyrir tveimur árum til ársins 2016. Látið hefur verið í veðri vaka að þær framkvæmdir sem nú standa fyrir dyram séu eðlilegt og tímabært viðhald og hægt sé að endurskoða staðsetningu flugvallar- ins að þessu skipulagstímabili liðnu, því auðvitað sé honum ekki ætlaður staður í Vatnsmýrinni til frambúð- ar. Eftir að áætlanir flugmála- stjórnar hafa verið birtar er aug- ljóst að málflutningur af þessu tagi er til þess eins að slá ryki í augu á fólki.“ Milljónir ferkflómetra ' LÖGSAGA Argentínu er ein til tvær milljónir ferkílómetra (reynd- ar 1.164.500 ferkflómetrar) en ekki einn til tveir ferkflómetrar eins og misritaðist í blaðinu í gær. Land- grunnið innan 200 mflna er 796.400 ferkflómetrar. Beðist er velvirðing- ar á mistökunum. Loðdýrabændur verðlaunaðir I BLAÐINU í gær urðu mistök í frásögn af verðlaunaafhendingum til loðdýrabænda. Þar kom fram að * Þorbjörn Sigurðsson, Þrepi, hefði fengið fyrstu verðlaun íyrir skinna- búnt í flokki hvítrefa. Hið rétta er að Þorbjörn er frá Asgerði, Hrana- mannahreppi, og hann fékk verð- laun í flokki pastellminka og auk þess fyrstu verðlaun íyrir verkun minkaskinna. Það var Karl Jó- hannsson, Þreþi, Eiðahreppi, sem ? fékk fyrstu verðlaun fyrir hvítref.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.