Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999
FOLK I FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Fágætur köttur
ÞESSI litli svinx-köttur verður
meðaJ keppenda á alþjóðlegri
kattasýningu sem hefst í New
York 28. febrúar. Kattai-tegundin
dregur nafn sitt úr goðafræðinni
en þar er svinxinn miskunnarlaus
gyðja sem hafði ljónslíkama en
mannshöfuð. Innan við 600 svinx-
kettir eru til í heiminum í dag.
Landakort
úr höfuð-
kúpum
►FERÐAMENN skoða kort af
Kambódiu, búið til úr höfuðkúp-
um fórnarlamba Rauðu khmer-
anna, í safni í Phnom Penh. Safn-
ið var áður miðstöð pyntinga
Rauðu khmeranna og er varð-
veitt sem vitnisburður um
grimmd þeirra. Þeir réðu ríkjum
í Kambódíu á árunum 1975-79 og
um þessar mundir er ríkisstjórn
landsins undir miklum þrýstingi
að handtaka og lögsækja foringja
khmeranna sem margir hverjir
eru frjálsir ferða sinna og lifa
góðu lífi í dag.
F E R M 1 N G A R
i B L A Ð A U K 1
Fermingarhárgreiðslan
Sítt eða stutt? Liðað eða slétt?
Fermingarbörn fara í hárgreiðslu.
\
Skilafrestur auglýsingapantana
ertil kl. 12 mánudaginn 8. mars.
AUGLÝSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Meðat efnis; Fermingarfatatíska • Hárgreiðsla og snyrting • Fermingargjafir • Uppskriftir frá matreiðslumönnum
Veisluborð - hugmyndir að skreytingu • Rætt við verðandi fermingarböm • Fermingarmyndir af þekktum (slendingum • O.fl.
Stutt
Astarlyf
kvenna
►ELDRI elskendur sem vilja
fjörga ástarlífið geta nú leitað
til Cork á Irlandi fyrir sfðbúinn
ástarbríma. I Cork eru mörg lítil
rómantísk þorp og þar er að
auki Viagra-verksmiðja fyrir
karlana. En í Cork er einnig
hægt að finna ástarörvunarlyf
fyrir konur.
Læknirinn Ronan Gleeson frá
Cork hefur búið til lyf fyrir kon-
ur sem örvar minnkaða kynhvöt
eftir breytingaskeiðið. Lyfið er
kallað Femagro og er í formi h't-
illar skærbleikrar pillu. Hægt er
að nálgast Femagro hjá læknin-
um eða í gegnum heimasíðu
Gleesons á Netinu.
I lyfínu er m.a. svokölluð
„indíánarót" sem talin er geta
unnið bug á ýmsum einkennum
breytingaskeiðsins, en einnig er
í lyfínu jurtin yohimbe sem í Af-
ríku er talin örva kynhvötina til
muna.
Átti tvíbura
í flug’vél
►KONA frá Kenýa átti tvíbura
síðastliðinn sunnudag í flugvél sem
var á leiðinni yfír Kýpur. Konan,
Grace Akosha, sem var aðeins
komin 30 vikur á leið, fæddi dreng
og telpu í flugvélinni. Læknir í vél-
inni aðstoðaði við fæðinguna en
flugmaðurinn ákvað neyðarlend-
ingu á Lamaca-flugvellinum á
Kýpur.
Bömin voru flutt með þyrlu lög-
reglunnar á fæðingardeild til að
kanna hvort allt væri með eðlileg-
um hætti. Akosha, sem býr í
Birmingham á Englandi, var
einnig flutt á sjúkrahús. I ljós kom
að allt var í sómanum með bæði
móður og böm þrátt fyrir óvana-
legan fæðingarstað.
Er hægt að vera
óheppnari?
►EF veitt væru verðlaun fyrir
ótrúlega óheppni myndi breski
lögfræðingurinn Edward
Bentley koma sterklega til
greina. Fyrst tapaði hann þús-
undum punda í slæmum íjárfest-
ingum, en það var aðeins byrjun-
in. Hann ákvað að fá „lánað“ fé
umbjóðenda sinna til að koma
sér á réttan kjöl. Hann fékk þá
hugmynd að fljúga til Monte
Carlo og vinna fé sitt aftur í
spilavítinu. Hann vildi Ieggja 60
þúsund pund undir en spilavítið
sagði að hámarksupphæð væri
10 þúsund pund, svo Bentley
ákvað að snúa til Englands og
reyna fyrir sér annars staðar.
Þegar heim var komið ákvað
hann að veðja á hesta og hann
veðjaði tæplega 11 þúsundum
punda á einn hestinn sem líkleg-
astur var talinn til vinnings. En
ekki var sú ferð farin til fjár.
Þriðja tilraunin var á hluta-
bréfamarkaðnum þar sem hann
ákvað að kaupa áhættubréf fyrir
49 þúsund pund, en allt kom fyr-
ir ekki. Ur hlutabréfaævintýrinu
sat Bentley uppi með sárt ennið
og aðeins eitt þúsund pund í
veskinu.
Þegar hér var komið sá
Bentley enga aðra leið úr klíp-
unni en að stytta sér aldur. Hann
leiddi slöngu úr púströrinu inn í
bfl sinn en þá bilaði vélin. Hann
reyndi aftur en þá kom lögreglu-
maður aðvífandi og bjargaði
honum.
En þó má segja að að lokum
hafi gæfan brosað við Bentley
þvi' hann hlaut mildan dóm, að-
eins 15 mánaða skilorðsbundið
fangelsi, fyrir að hafa stoiið 64
þúsundum punda af umbjóðend-
um si'num.