Morgunblaðið - 03.03.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 3. MARZ 1999 13
Morgunblaðið/Þórarinn Stefánsson
HÉR eru þau frá vinstri talið: Prófessor dr. Gert Kreutzer, Val-
gerður Valsdóttir, sendiherrafrú í Þýskalandi, Ingimundur Sigfús-
son, sendiherra Islands í Þýskalandi, prófessor dr. Ulrich Grönke
og dr. Reiner Pelka.
s
Uppselt á Islands-
kynningu í Sankelmark
NÝLEGA stóð Akademie Sankel-
mark í Þýskalandi fyrir víðtækri
kynningu á Islandi. Kynningin
stóð yfir í þrjá daga og fór fram í
formi fyrirlestra en einnig voru
sýndar bækur og ljósmyndir frá
Islandi.
Ulrich Grönke gaf innsýn í ís-
lenskt mál og málfræði en hann
talaði einnig um sögu Islands til
1944. þar tók Ingimundur Sigfús-
son sendiherra við en hann sagði
einnig frá daglegu lífi fslendinga.
Gert Kreutzer talaði almennt um
land og þjóð og ítarlega um
menningu og listir í þátíð og nú-
tíð. Manfred Miiller fjallaði um
legu landsins.
Líflegar umræður spunnust um
málefnin og þótt mörgu hafi ver-
ið svarað vöknuðu jafnan aðrar
spurningar sem reynsla af ferð til
Islands fær ein svarað.
Akademie Sankelmark var
stofnuð árið 1951 sem vettvangur
,frjálsra samskipta þjóðanna á
sviði sljórmnála, menningar og
andlegra mála og brúa þannig bil
þjóðanna,“ eins og kemur fram í
kynningarbæklingi. Akademian
er staðsett rétt fyrir utan Flens-
borg við landamæri þýskalands
og Danmerkur og rekin af þýska
landamærafélaginu (Deutsches
Grenzverein e.V.) með styrk frá
Slésvík Holtsetalandi.
Dr. Rainer Pelka, forstöðumað-
ur Akademie Sankelmark, sagði
sér hafa komið á óvart hinn víð-
tæki áhugi sem Islandi væri sýnd-
ur í þýskalandi. ,Fjöldi fólks hafði
samband við okkur af íyrra
bragði og bauð ýmis gögn til að
stilla upp til sýningar hvort sem
það voru bækur, ljósmyndir eða
eitthvað enn annað. Skýrasta
dæmið er kannski það að frum-
kvæðið að þessari kynningu á ís-
landi er ekki frá okkur komið
heldur frá almenningi hér í ná-
grenninu. Fjöldi manns kom til
máls við okkur og bað um að
námskeið um Island væri haldið,“
sagði Dr. Pelka. I samræðum við
hina ýmsu þátttakendur kom
fram að þeir sem sóttu Islands-
kynninguna voru ekki aðeins þeir
sem hyggja á ferð þangað heldur
ekki síður þeir sem höfðu verið á
íslandi og vildu dýpka þekkingu
sína á landi og þjóð nánar áður
en lagt væri í aðra ferð.
Selt var inn á kynninguna og
var aðsókn slík að á fjórða tug
einstaklinga þurfti frá að vísa.
Því verður Islandskynningin í
Akademie Sankelmark endurtek-
in að nokkrum vikum liðnum og
er þegar nánast uppselt í annað
sinn.
Formaður Felags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Laun langt undir
umsömdum kjörum
ASTA Möller, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, segir að
ekkert sé á móti því að hjúkrun sé
boðin í verktöku, en slíkt fyrirkomu-
lag tíðkist víða erlendis. Hins vegar
sé nauðsynlegt að þau laun sem
greidd eru fyrir verktökuna séu í
samræmi við laun og réttindi sem
samið hafi verið um fyrir hönd
hjúkrunarfræðinga og það sé langur
vegur frá því að svo sé hjá HM
Hjúkrun-miðlun.
Asta sagði að starfsemi sem þessi
þekktist víða um lönd og væri ekk-
ert við hana að athuga.
„Þetta er form sem við getum al-
veg mælt með, en hins vegar verður
að bjóða þau kjör sem eru viðun-
andi. Við höfum skoðað kjörin sem
boðin eru hjá þessari miðlun og þar
er verið að bjóða kjör langt undir
því sem félagið hefur samið um,“
sagði Ásta.
Hún sagði að þegar ráðningar-
réttindi væru metin inn í kjörin, eins
og réttindi til barnsburðarleyfis,
veikindaréttur, slysatryggingar,
námsleyfi, lífeyrisréttindi, trygging-
argjald, orlofsréttur og fleira, væru
þau kjör sem í boði væru langt undir
því sem félagið hefði samið um. Þótt
einungis væri tekið mið af greiðslum
fyrir yfirvinnu á sjúkrahúsunum og
engu öðru næðu þau kjör sem við-
komandi miðlun byði ekki þeim
greiðslum. Fyrir átta tíma dagvakt
til dæmis væru boðnar 1.380 krónur
á tímann hjá miðluninni. Algeng
grunnlaun reynds hjúkrunarfræð-
ings, og yfirleitt væru það ekki aðrir
en reyndir hjúkrunarfræðingar sem
færu í þetta, væru um 150 þúsund
kr. á mánuði og yfirvinnutíminn
væri um 1% af þeirri upphæð eða
um 1.500 krónur. Fyrir hverja átta
tíma vakt með kaffitímum fengjust
greiddar 9,6 stundir, þannig að um
talsvert hærri greiðslur væri að
ræða, þótt ekkert tillit hefði verið
tekið til allra þeirra réttindá sem
fylgdu ráðningu.
Asta sagði að það væri svo mikill
skortur á hjúkrunarfræðingum að
þeir gætu fengið eins mikla yfir-
vinnu og þeir vildu. Félagið réði því
hjúkrunarfræðingum eindregið frá
því að ráða sig á þessum kjörum.
Hún benti jafnframt á að félagið
hefði gert verktakasamning fyrir
hjúkrunarfræðinga við Trygginga-
stofnun og þar væru taxtarnir helm-
ingi hærri en þetta.
:
IM QUARTZ
HefúBbúkomið
Takmarkaður sýningafjöldi: í dag mið. 3/3 : fím. 4/3
fös. 3/3 : mið. 10/3 : fím. 11/3 : fös. 12/3 : lau. 13/3
„Mikið var skemmtilegt... að
fara niður í Iðnó í hádeginu,
borða súpu og horfa á leikrit”
S.A. DV 22/2
„Samskipti persónanna eru
tekin föstum dramatískum
tökum og vel er unnið úr
efninu” s.H. mbl 19/2
„Það var gaman að koma ... og
sjá einþáttung Kristjáns
Þórðar Hrafnssonar”
G.S. Dagur 23/2
„Sýningin er skemmtileg”
S.H. MBL 19/2
Einróma dómar
„Hádegisstundin í Iðnó er
hugguleg og ... vel heppnuð”
A.E. DV 19/2
„Verk Kristjáns er skýrt og
skemmtilegt” m.þ.1>. rúv 1/3
‘ í 6fi(
„Hlý og góðlátleg kímni .Utar
textann. Slíkur eiginleiki er
dýrmætur” g.s. Dagur 32/2
„Magnús Geir Þórðarson
leikstýrir verkinu bráðvel og
er sérstaklega útsjónasamur”
SJt. mbl 19/2
Borðhald hefst kl. 12:00. Sýningin hefst kl. 12:20 og lýkur um k!.12:50.
V
ferðaskrifstofa
stúdenta
Miðaverð kr.1.300,- Innifalið er rjómalöguð
sveppasúpa með heitu brauði.
Höfúndur. Kristján Þórður Hraíhsson
Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson
Leikendur. Gunnar Hansson og Linda Ásgeirsdóttir
YAK/VHacAFELL Pœntaðu tímanlega ísíma 5303030