Morgunblaðið - 03.03.1999, Side 15

Morgunblaðið - 03.03.1999, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 15 LANDIÐ Brydebúð í Vík gerð upp Fagradal - Brydebúðarhúsið er orðin staðarprýði í Vík í Mýrdal og enn fallegra á það eftir að verða í sumar. Húsið hefur verið mikið end- urnýjað og fært nær því sem það var upphaflega. Það var upphaflega byggt í Vestmanna- eyjum árið 1831 sem verslunar- hús en tekið niður og flutt til Víkur árið 1895. Brydeverslun var fyrst opnuð 1895 og í húsinu var síðan rekin verslun allt til 1981. Þá hófst þar rekstur prjónastofu sem stóð til 1994. Síðan keypti Mýrdalshreppur húsið og stofnað var Menningar- félag um Brydebúð sem síðan hefur aflað fjár til þess að end- urbyggja húsið. Nú er verið að vinna í húsinu innanverðu og er búið að rífa alla innveggi og einangra húsið að nýju. Þegar verið var að rífa klæðninguna innan úr húsinu fannst heilmikið af gömlum sendibréfum og dagblöðum sem einhvernveginn hafa lent á milli þilja. Meðal þess sem fannst var Morgunblað frá 1914, en blaðið var stofnað árið áður. Sveinn Pálsson formaður Menningarfélagsins vonar að hægt verði að opna húsið í sumar og hægt verði að taka á móti ferðamönnum. Hugmyndir eru uppi um að setja upp einhvers- konar safn þar, t.d. Kötlusafn. Sveinn segir að félagið hafi feng- ið þrjár milljónir króna af fjár- lögum yfirstandandi árs og það sýni að eftir verkefninu sé tekið. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson SVEINN Pálsson með Morgunblaðið frá þriðjudeginum 26. maí 1914 fyrir framan endurgerða Brydebúð. Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir. SKURÐGRAFA og vörubíll að störfum við skólahúsið. Endurbætur í fullum gangi í Reykholti Reykholti - Nú gengur mikið á við gamla Héraðsskólann í Reyk- holti og veggir sem alltaf sneru inn, farnir að snúa út. Á aðra hönd eru stórvirkar vinnuvélar að rífa niður gömul hús og á hina sést afgirt svæði fornleifauppgraftarins þar sem sérfræðingar voru sl. sumar með sín fínlegu tæki að rannsaka fortíðina. Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði Héraðsskólann í Reykholti en byggingin var stórvirki á sínum tíma, með sundlaug innanhúss. Og strax í kjölfarið var byggt leikfímis- hús á baklóðinni, þvert yfir fornan arf í jörðu, þar sem göng Snorra liggja upp að bæ hans. Bætt var svo enn við og byggt smíðahús austur úr leikfimishúsinu. Ekki var þó gert ráð fyrir búnings- og hreinlætisað- stöðu í samræmi við þessi nútíma- þægindi. Menn brugðust fljótlega við þeirri kröfu með þvi að byggja afhýsi aftan við skólann, samhliða sundlaugarálmunni, íþróttafólki til ánægju þótt mörgum fagurkeran- um hafí þótt lítil prýði af. Nú er ver- ið að rífa þessi hús, enda ekkert skóla- eða íþróttastarf á staðnum og sundlaugin löngu tæmd. En upp- runalegur hluti hússins fær engu síður að halda sínum fallega arki- tektúr. Þjóðarbókhlaðan fær afnot af húsinu Þjóðarbókhlaðan mun fá afnot af stórum hluta skólans og hefur látið rifa allt tréverk innan úr austurálm- unni. Þar verður fljótlega hafín end- urbygging innanhúss. Liðin eru um 70 ár frá því húsið var upphaflega tekið í notkun og vitna gamlar myndir um þann uppbyggingar- kraft sem ríkti í sveitinni þegar hér- aðsbúar reistu húsið á svo til einu sumri, úr steypumöl sem sótt var niður í á. Niðurrifið er því að hluta liður í endurnýtingu hússins fyrir Þjóðar- bókhlöðu og opnar um leið aðgengi fyrir Þjóðminjasafn með fornleifa- rannsóknir á þessum dýrmæta arfí okkar Islendinga, en hafín var stór rannsókn sl. sumar, sem standa mun yfir í mörg ár. Ferðaþjónusta í Hveragerði Gríðarleg’ur fjöldi ferðamanna sækir staðinn heim Hveragerði - Borgarafundur um framtíðarmöguleika ferðaþjónustu í Hveragerði var haldinn nýverið á Hótel Ork. Fundurinn var haldinn á vegum atvinnu- og markaðsnefndar Hvera- gerðisbæjar og var tilgangur hans m.a. að gefa bæjarbúum, fyrirtækj- um og stofnunum kost á að koma inn í stefnumótunarvinnu í ferðamálum í Hveragerði. Rögnvaldur Guðmunds- son ferðamálafræðingur sem unnið hefur að skýrslunni „Ferðaþjónusta í Hveragerði 1997-’98“ kynnti skýrsl- una en hún byggir á skoðanakönnun- um sem fram fóru meðal heima- manna, gesta og leiðsögumanna um stöðu ferðamála í Hveragerði. í máli Rögnvaldar kom meðal annars fram að könnun sem Gallup framkvæmdi sýndi að heimsóknir íslendinga til Hveragerðis væru um 800.000 á ári. Um átta hundruð milljónir á ári Út frá því mætti áætla að útgjöld innlendra ferðamanna væru um 800 milljónir króna miðað við að út- gjöld í hverri heimsókn hafi verið um 1.000 kr. á mann. Sama könnun sýndi að um 72% íbúa á höfuðborg- arsvæðinu heimsótti bæinn árið 1998, en um 68% íslendinga á aldr- inum 16-74 ára komu í dagsferð til Hveragerðis, að meðaltali 5,7 sinn- um á árinu. Rögnvaldur taldi að áætla mætti að um 50.000 erlendir gestir hafi komið í Hveragerði árið 1998 og skilið eftir sig um 130 milljónir króna í tekjur. I þeim töl- um er ekki tekið tillit til þeirra Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir BORGARAFUNDUR um málefni ferðaþjónustunnar í Hveragerði var haldinn að Hótel Örk. gesta er koma til Hveragerðis af skemmtiferðaskipum. Á fundinum kynnti Magnús Ágústsson, formaður atvinnu- og marðaðsnefndar Hveragerðisbæjar, markmið með stefnumótunarvinn- unni og þá framtíðarsýn sem nefnd- in hefur. I máli hans kom m.a. fram að stefnumótunin er unnin innan þess ramma sem bæjaryfirvöld hafa markað sér í þeirri viðleitni að skil- greina Hveragerði sem alþjóðlegan heilsubæ. Einn af frummælendum var Óli Rúnar Ástþórsson, fram- kvæmdastjóri Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands. Kynnti hann starfsemi og uppbyggingu sjóðsins almennt og hlutverk sjóðsins sem samstarfs- aðila atvinnu og markaðsnefndar Hveragerðis í stefnumótunarvinn- unni. Samstöðu vantar Miklar umræður urðu um málið á fundinum og kom þar meðal annars fram að samstöðu vantaði milli ferðaþjónustuaðila á staðnum og stæði það greininni fyrir þrifum. I lok fundarins voru stofnaðir fjórir vinnuhópar meðal fundargesta og er ætlunin að þeir komi með ábending- ar sem nýst geta inn í stefnumótun- aivinnuna. Fundarstjóri var Olaf Forberg, verkefnisstjóri atvinnu- og markaðs- nefndar Hveragerðisbæjar. Hann tilkynnti að lokaskýrslu um stefnu- mótun í ferðamálum mætti vænta í byrjun maí. Við viljum fylgja bílnum sem við seljum þér úr hlaði. Notfærðu þér ókeypis skoðun í fullkominni skoðunarstöð okkar. ÁBYRGÐ Qg> TOYOTA Betri notaðir bflar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.