Morgunblaðið - 03.03.1999, Page 44
44 MIÐVTKUDAGUR 3. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Sigurbjörn Björns-
son sigrar á Meist-
aramóti Hellis
SKAK
ilcllisheimilið,
Þiinglabakka 1
MEISTARAMÓT HELLIS 1999
15. feb. - 1. mars
SIGURBJÖRN Bjömsson sigr-
aði á Meistaramóti Hellis 1999 sem
lauk á mánudaginn. Hann fékk 6‘A
vinning af 7 mögulegum og gerði
einungis jafntefli við Bjöm
Þorfinnsson sem lenti í öðra sæti
með 6 vinninga. Þetta er annað árið
í röð sem Sigurbjöm sigrar á þessu
móti. Sigurbjöm tók þátt í Meist-
aramóti Hellis í beinu framhaldi af
Skákþingi Reykjavíkur þar sem
hann náði mjög góðum árangri og
deildi efsta sætinu með Jóni Viktori
Gunnarssyni. Jón Viktor varð í
þriðja sæti að þessu sinni með 5
vinninga.
Þar sem Sigurbjörn er ekki í
Taflfélaginu Helli hlaut Bjöm
Þorfinnsson titilinn Skákmeistari
Hellis 1999. Bjöm hefur þar með
unnið þennan titil þrjú ár í röð, eða
oftar en nokkur annar skákmaður.
Með þessum árangri íylgir Bjöm
eftir frábæram árangri sínum á
Guðmundar Arasonar mótinu sem
haldið var í desember sl. Fyrir
þann árangur og önnur afrek á síð-
asta ári var Bjöm valinn efnileg-
asti skákmaður Taflfélagsins Hellis
1998.
Þetta var í áttunda skipti sem
Meistaramót Hellis var haldið.
Þátttakendur vora fleiri en nokkra
sinni fyrr, eða 27. Þá var mótið
mjög sterkt og einungis einn þátt-
takandi var stigalaus. Þetta var
fyrsta mótið í hinni nýju Bikar-
keppni í skák, en næsta mót er
Skákþing Hafnarfjarðar sem hald-
ið verður í vor.
Úrslit í sjöundu og síðustu um-
ferð urðu sem hér segir:
Sigurbjöm Bjömss. - Vigfus Vigfusson 1-0
Siguröur Steindórss. - Bjöm Þorfinnss. 0-1
Stefán Kristjánss. - JónV.Gunnarss. 'k-'k.
Davíð Kjartanss. - Guðjón H. Valgarðss. 1-0
AmarÞorsteinss.-01afurí.Haimess. 1-0
Einar Kr. Einarss. - Bjami Magnúss. 1-0
GústafSmáriBjömss.-Helgi Jónatanss. 0-1
Jóhann H. Ragnarss. - Kjartan Guðmundss. 1-0
KristjánÖmElíass.-ElíB.Frímannss. 1-0*
Jóhann Ingvason - Valdimar Leifsson 1-0
Hjörtur I. Jóhannss. - Eiríkur G. Einarss. 1-0
Amþór Hreinsson - Torfi Leósson 0-1
Benedikt Egilsson - Harpa Ingólfsd.
Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1. Sigurbjöm Bjömsson 6‘A v.
2. Bjöm Þorfinnsson 6 v.
3. Jón Viktor Gunnarsson 5v.
4. -7. Stefán Kristjánsson 4 V4v.
Amar Þorsteinsson Vk v.
Vigfús Óðinn Vigfússon 4!4 v.
Davíö Kjartansson i'k v.
8.-12. Einar Kristinn Einarsson, Sigurður Páll Steindórs-
son, Guðjón Heíðar Valgarösson, Jóhann H. Ragnarsson,
HelgiJónatansson _ 4v.
13.-14. Ólafur ísberg Hanness, Kristján Öm Elias. Z'k v.
15.-21. Bjami Magnússon, Gústaf Smári Bjömsson, Torfi
Leósson, Benedikt Egilsson, Kjartan Guómundsson, Jó-
hannIngvason,HjörturIngviJóhannsson 3v.
22.-23. ValdimarLeifsson,EiríkurGarðarEinarsson 2v.
24. Amj)órHreinsson 1 'Av.
25. -26. Eh’ B. Prímannsson, Harpa Ingólfsdóttir 1 v.
Ýmsar fjörlegar skákir litu
dagsins ljós á mótinu, en einna
mesta athygli vakti þó viðureign
þeirra Sigurbjöms Björnssonar
og Jóns Viktors. Eins og áður
segir urðu þeir jafnir og efstir á
Skákþingi Reykjavíkur og eina
tapskák Sigurbjöms á því móti
var einmitt gegn Jóni Viktori. A
Meistaramóti Hellis snérist dæm-
ið hins vegar við og Sigurbjörn
náði að hefna fyrir tapið á Skák-
þinginu með sigri í vel tefldri
skák. Hannes Hlífar Stefánsson
hefur skoðað þessa skák:
Sigurbjöm Bjömss. - Jón Viktor
l.e4 e5 2.RÍ3 RfB 3.Rxe5 d6 4.RÍ3
Rxe4 5.d4 d5 6.Bd3 Bd6 7.0-0 0-0
8. c4 c6 9.Rc3 Beittara framhald er
9. cxd5 cxd5 10.Rc3. 9...Rxc3
10. bxc3 dxc4 ll.Bxc4 Bg4 12.Hbl
Rd7!? 13.Hel 13.Hxb71? Rb6
14. Bg5! Dc8 (ekki 14...Dxg5
15. Rxg5 Bxdl 16.Bxf7+ og hvítur
verður 2 peðum yfir; 14...Bxf3
15.Bxd8 Bxdl 16.Bxb6 og hvítur
stendur betur) 15.Ba6 DÍ5 með
óljósri stöðu. 13...b5 14.Bd3 Rb6
Svartur hefur náð að skorða peðin
á drottningarvæng. Möguleikar
hvíts liggja í því að sækja á kóngs-
væng. 15.Be4 Hc8 16.h3 Bh5
17.BÍ5 Hb8 18.Dd3 Bg6 19.Rg5
Bxf5?! Hér veikir Jón Viktor
kóngsstöðu sína að óþörfu. Sjálf-
sagt var 19...Rd5 með jöfnum
möguleikum. 20.Dxf5 g6 21.DÍ3
Rd5 22.Re4 22...f5
Hér hefði svartur átt að hugsa um
eigið öryggi og leika 22...Be7. í
framhaldinu nær Sigurbjöm að
opna stöðuna og þá segja veikleik-
amir í svörtu stöðunni til sín.
23.Rxd6 Dxd6 24.c4! bxc4 25.Ba3
Rb4 26.Dc3 a5 27.He5! Hvítur
stendur nú mun betur. 27...Rd5
28.Hxb8 Dxb8 29.Dxc4 Hf6
30.Be7 Hf7 31.Bg5 Dd6
32. He8+?! 32.Bh6! 32...Kg7
33. De2 Rc7? Síðasti möguleikinn
til að verjast var 33...RÍ6. Lokin
teflir Sigurbjöm af öryggi.
34. Hd8 De6 35.Dd2 h5 36.Bf4 Re8
37.Be5+ Kh7 38.Dxa5 f4 39.Da8
He7 40.Dc8 g5 41.a4 Rg7 42.Db8
c5 43.Hh8+ Kg6 44.Bxg7 Hxg7
45.dxc5 Dc6 46.Dbl+ Kf7
47.Df5+ 1-0
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlifar Stefánsson
Margeir Pétursson
Kiwanisfélagar á Eddu-
svæði safna fötum
KIWANISKLÚBBARNIR í
Eddusvæði, það er frá Snæfells-
nesi til Reykjavíkur, safna föt-
um fyrir fjölskyldur fanga í Lit-
háen. Þetta er þriðja árið sem
slík söfnun fer fram og í fyrra
söfnuðust fot og skór í tvo gáma.
„Kiwanisfélagar í Sostíne, sjá
um úthlutun fatnaðarinns og
Eimskip flytur gámana að
kostnaðarlausu á leiðarenda. í
ár mun Vöraflutningamiðstöðin
í Reykjavík leggja Kiwanis lið
með að taka á móti fötunum.
Fötin sem komið er með eiga að
vera í kassa merkt „karimanna-
föt, kvenföt og bamaföt", fötin
verða að vera hrein svo heil-
brigðisvottorð fáist fyrir út-
flutning.
Laugardaginn 6. mars milli
10 og 16 verður móttaka á föt-
um við Vöraflutningamiðstöð-
ina við Sundagarða fyrir þá sem
vilja leggja málefiiinu lið,“ segir
í fréttatilkynningu.
í DAG
VELVAKAJ\PI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Skógarhöggs-
menn á Reynis-
vatnsheiði
Á laugardaginn var - á
þorraþrælnum - gekk ég
á skíðum úr Selási um
Reynivatnshlíðar og um
heiðina, eftir Langavatni
og að Hafravatni.
Skemmtileg leið, nægur
snjór og ekki spillti að sjá
árangur skógræktarfólks-
ins og unglinganna í
Vinnuskólanum. Grænir
furutoppamir stinga koll-
inum upp úr fonninni og
lerkið er á fullri ferð,
þrátt fyrir hrakspár. Á
heimleiðinni nýtti ég mér
brautina sem ég hafði
troðið þar til ég kom að
slóða tveggja vélsleða og
ákvað að nýta mér braut
þeirra eins og ég geri oft.
Ég hafði notið hins fagra
dags, skíðafærið frábært
og kakóið og nestið
smakkaðist vel í trjálundi
skógræktarfólksins við
Hafravatn.
En er ég hafði gengið í
slóð snjósleðamannanna í
nokkra stund, varð
skyndileg breyting á og
það var sem öll fiól nátt-
úrunnar þögnuðu. Sleða-
menn þessir höfðu att
tækjum sínum á varnar-
lausar plöntumar á þann
hátt að keyra yfir þær,
þótt nóg pláss væri utan
„skógar“. Fantar þessir
höfðu haft erindi sem erf-
iði. Fumtopparnir, sem
höfðu boðið stórviðram
heiðarinnar birginn, lágu
afhöggnir á víð og dreif,
lerkið 70-80 sm hátt var
ýmist brotið undan belt-
um sleðanna eða greinum
flett, sum sluppu þó furð-
anlega, birkið fékk líka
sinn skammt, afrifnar
greinar lágu um allt. Ekki
veit ég hvort um
skemmdarverkakeppni
var að ræða en annar
sleðamannanna hafði aug-
sýnilega vinninginn. Eg
gekk lengi í slóð ökuþór-
anna í von um að sjá tO
þeirra en áttaði mig um
síðir að ég var kominn af
leið, degi tekið að halla,
kólgubakki var að mynd-
ast yftr Esjunni og brátt
myndi hann skella á með
norðanátt og skafrenningi
- íslenzkri veðráttu, sem
plöturnar á heiðinni höfðu
aðlagast. Þær geta hins
vegar ekki varist fontum,
sem stjórna vélsleðum
með stómm nöfnum, svo
sem Aric Cats, Snow
Kings eða hvað þeir heita
allir, kannski hafa þessir
heitið Tree Cutters. Ég
yfirgaf slóð sleðamann-
anna en hélt heim dapur í
bragði. Slóð þeirra lá hins
vegar að næsta skógar-
reit.
Þegar mér hafði mnnið
mesta reiðin, ákvað ég að
skrifa þessa grein í þeirri
von að umræða um þetta
slys, því slys vil ég kalla
þetta, verði til þess að
slíkir atburðir verði
óhugsandi.
Tillaga mín er sú að fé-
lög vélsleðamanna taki
svona mál föstum tökum
og uppræti þann hugsun-
arhátt, sem leiðir til fram-
angreindra athafna.
Sniglamir, sem er félag
mótorhjólamanna, tóku
sín mál svo föstum tökum,
já og svo góðum, að það að
vera Snigill telst virðing-
arheiti.
Oll viljum við njóta okk-
ar fagra lands, hvert á
sinn hátt. Sameinumst um
að gera það með virðingu
og reisn.
Einn á spýtum.
Einstaklega
góð þjónusta
ÉG bý í Hamraborginni
og lenti í því að þurfa að
fara í stórar aðgerðir. Ég
hef þurft á ýmiss konar
þjónustu að halda eftir
þetta þar sem ég á ekki
heimangengt. Það er al-
veg sama hvert maður
leitar í þjónustu hér á
Hamraborgarsvæðinu,
sama hvort það er bóka-
safn, heilsugæsla, hjúkr-
un, sjúkraþjálfun, sem er
alveg sérstök, heimilis-
hjálp, verslunin Nóatún,
Búnaðarbankinn, Apótek-
ið Lyfja, ég fæ einstaka
þjónustu og heimsendingu
á stundinni. Ég hringi
vikulega í Nóatún til að
panta, og ef eitthvað vant-
ar í pöntunina þá er
hringt til baka og ég látin
vita. Hafi ég gleymt ein-
hverju þá veit ég að sú
þjónusta væri alveg fyrir
hendi.
G.S.
Tapað/fundið
Leitað að veggteppi
MAÐUR sem fékk vegg-
teppi (teppi með ford-
saumi, tveimur fuglum og
geitum á) í Kolaportinu sl.
laugardag er beðinn að
hafa samband við Gunn-
laug vegna sögu teppisins í
síma 561 2187 og 698 9775.
Myndavél í óskilum
MYNDAVÉL, Canon,
fannst í Skálafelli sl.
sunnudag. Upplýsingar í
síma 699 8244 eða
898 8750.
Trefill úr minkaskinni
týndist
Trefill úr ljósu minka-
skinni týndist á göngu í
Elliðaárdalnum. Finnandi
vinsamlegast hafi sam-
band í síma 5516719.
Fundarlaun.
Dýrahald
Kettlingar fást gefins
ÞRÍR óvenjulega fallegir,
gráir, kassavanir kettling-
ar fást gefins. Upplýsing-
ar í síma 562 6979.
Páfagaukur týndur
frá Kaplaskjólsvegi
PÁFAGAUKUR, hvítur
og ljósgulur, með gráu og
svörtu í, flaug út um
glugga á Kaplaskjólsvegi
sl. mánudag. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band við Margréti í síma
551 6986 eða 551 8041.
SKÁK
llmsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á stórmótinu í
Linares á Spáni sem nú stendur yfir.
Búlgarinn Veselin Topalov (2.700)
hafði hvítt, en stigahæsti skákmaður
heims, Gary Kasparov (2.810) var
með svart og átti leik.
50. - Hxd4! 51. cxd4 - c3 52. g6 - c2
53. g7 - cl=D 54. g8=D (Þótt hvítur
eigi peði meira er drottningaendataf-
lið unnið á svart) 54. -
Dc4+ 55. Ke3 - Kc3 56.
Dd8 - Dd3+ 57. Kf4 -
Dd2+ 58. Kf3 - Ddl +
59. Ke3 - Dgl+ 60. Ke2
- Dg2+ 61. Ke3 - f4+!
og hvítur gafst upp.
Að hálfnuðu Linares
mótinu er staðan þessi:
1. Kasparov 5 v., 2.-3.
Kramnik og Anand 4
v., 4. Adams 3'A v.,
5.-7. Svidler, Leko og
Topalov 3 v., 8. Ivant-
sjúk 2,'A v.
SVARTUR
leikur og
vinnur
Víkveiji skrifar...
SÚ var tíðin, að menn gerðu það
að sérstöku umtalsefni þegar
ferðir á vegum Flugleiða hófust á
áætluðum tíma og þeim lauk á
áætluðum tíma. Nú er öldin önnur
og hefur verið um langt skeið.
Reynsla Víkverja af flugi með
Flugleiðum í mörgum undanförn-
um ferðum sem hann hefur átt
með félaginu, er sú, að Flugleiðir
eru undrastundvíst félag, þar sem
oft má stilla klukkuna sína eftir
því hvenær flugtak er. Þetta era
mjög ánægjuleg umskipti til hins
betra. Víkverji hefur á undanföm-
um mánuðum flogið nokkrum
sinnum með Flugleiðum, bæði til
Norðurlandanna og meginlands
Evrópu og ávallt verið mjög
ánægður með þjónustu og viður-
gjöming. Víkverji sér sig eigin-
lega knúinn til þessara yfirlýs-
inga, því hann hefur jafnan verið
ófeiminn við að gagnrýna, þegar
honum hefur eitthvað þótt skorta
á þjónustu og gæði hjá Flugleið-
um.
xxx
AÐ ríkti einskonar þjóðhátíð-
arstemmning hjá fjölmörgum í
veitinga- og ferðaþjónustu í íyrra-
dag, þar sem haldið var upp á 10
ára afmæli frjálsrar bjórsölu hér á
landi. Fjölmargir veitingamenn,
bæði af höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni, sameinast nú und-
ir því merki í eina viku sem þeir
nefna Góugleði, þar sem þeir beina
því til landsmanna, að þeir minnist
tímamótanna og Góunnar líklega
líka, með því að njóta þess sem þeir
hafa upp á að bjóða í mat og drykk.
Ef að líkum lætur, verða lítil vand-
kvæði á því fyrir veitingamennina
að laða landsmenn til sín þessa
dagana og fá þá til þess að eyða
nokkurri fjárhæð í mat og drykk.
Það þarf venjulega ekki lengi að
brýna Islendinga til þess að
skemmta sér, og Víkverja granar,
að Góugleði verði endurtekin að
ári, og þá verði markaðssetningin
með þeim hætti, að sökum þess
hversu frábærlega vel hafi tekist til
með Góugleði árið 1999 hafi verið
ákveðið að endurtaka gleðina árið
2000. Svo verða ekki mörg ár liðin,
áður en Góugleði verður jafnsjálf-
sagt fyrirbæri og þorrablót, eða
hvað?
xxx
ANNARS er Víkverji ekkert
sérstaklega að agnúast út í
svona nýjar tegundir af hátíðahöld-
um, þegar tilefnið er jafn rammís-
lenskt og það, að 10 ár séu liðin frá
því að sala og drykkja áfengs öls
var á ný heimiluð á Islandi. Það
gekk nú ekki svo lítið á fyrir rétt-
um tíu árum, þegar Island eins og
það lagði sig komst í heimspress-
una, vegna þess að erlendir fjöl-
miðlar gerðu ráð fyrir að hér færi
allt á annan endann við það að sala
og neysla áfengs öls væri heimil á
ný. Fjöldi erlendra fjölmiðla, þar á
meðal erlendar sjónvarpsstöðvar,
sendu hingað heilu fréttaliðin, sem
skyldu sjá áhorfendum þeirra og
lesendum fyrir góðri skemmtun, en
ekkert gerðist. Þvílík vonbrigði
sem þessi rólegheit landans hljóta
að hafa kallað fram!
xxx
UTSKÝRINGAR á því hvers
vegna ekki var leyft að selja
og drekka bjór á íslandi voru fyrir
1989 fastur liður á dagskrá, þegar
verið var að skýra land og þjóð fyr-
ir útlendingum, hvort sem var hér
eða erlendis. Það var svolítið erfitt
að gefa trúverðuga skýringu á því
að hér mætti selja létt vín og sterkt
áfengi, allar gerðir - bara ekki
bjór. Nú era flestir lausir við að
þurfa að gefa þessar útskýringar
og er það vel, því þær vora orðnar
ærið leiðigjamar, útþynntar og
klisjukenndar.