Morgunblaðið - 12.03.1999, Síða 32
32 FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fræðsluverkefni
Barnaheilla
ÞESSI vika hefur
verið valin af aðildar-
samtökum
International Save the
Children Alliance í
Evrópu til að vekja at-
hygli á nýútkominni
skýrslu þeirra sem ber
heitið „Secrets that
destroy“. Vísar heiti
skýrslunnar til þeirra
skelfilegu leyndarmála
sem mörg börn, bæði í
samfélagi okkar sem
og annars staðar, þjást
undan, - leyndarmál
sem geyma sársauka-
fullar sögur um kyn-
ferðislegt ofbeldi sem
þau hafa verið beitt.
Skýrslan sjálf greinir frá samvinnu-
verkefni aðildarsamtakanna í Evr-
ópu sem þau unnu að á síðasta ári
og er liður í átaki þeirra gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum.
Mannréttindi barna
International Save the Children
Alliance er bandalag 26 samtaka frá
jafnmörgum löndum sem starfa vítt
og breitt um heiminn. Þeirra á með-
al eru samtökin Barnaheill (Save
the Children, Iceland). Öll samtökin
hafa það að markmiði að vinna á
einn eða annan hátt að bættum hag
barna, m.a. með því að stuðla að
fullum mannréttindum börnum til
handa. Barnasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna er sá hugmyndafræðilegi
grunnur sem samtökin starfa á.
Aberandi þáttur í starfi samtakanna
hefur verið baráttan gegn kynferð-
islegu ofbeldi gegn börnum. Voru
samtökin t.d. í lykilhlutverki við
skipulagningu fyrstu heimsráð-
stefnunnar um barnavændi,
barnaklám og sölu á börnum í
gróðaskyni sem haldin var í Stokk-
hólmi í ágústmánuði 1996 og vakti
mikla athygli. Á þeirri ráðstefnu var
samin viljayfirlýsing þátttökuland-
anna um samvinnu og aðgerðir til
að vinna gegn kynferðislegu ofbeldi
gegn börnum. I framhaldi af ráð-
stefnunni ákváðu svo aðildarsamtök
International Save the Children
Allianee í Evrópu að sækja um fjár-
stuðning til Daphne-áætlunar Evr-
ópusambandsins til að vinna að
samstarfsverkefni á þessu sviði.
Megináhersla verkefnisins var ann-
ars vegar að skapa vettvang fræðslu
og umræðna um málefnið undir yf-
h-skriftinni „Secrets that destroy"
og hins vegar að safna
saman fræðslu- og upp-
lýsingaefni sem notað
er í forvarnarstarfi og
meta gildi þess. Barna-
heill er þátttakandi í
samstarfsverkefninu
en vegna stöðu Islands
utan Evrópusambands-
ins hafa samtökin ekki
átt tilkall til fjárstuðn-
ingsins.
Ógnandi leyndarmál
Verkefnið „Secrets
that destroy" var
skipulagt þannig að
haldnar voru 6 ráð-
stefnur um kynferðis-
legt ofbeldi gegn börn-
um, í jafnmörgum löndum, þ.e. á
Spáni, í Finnlandi, Frakklandi,
Danmörku og Grikklandi. Löndin
voru valin með tilliti til iandfræði-
legrar legu þeirra innan Evrópu,
Barnaheill
Mikilvægur þáttur í
samstarfsverkefni sem
þessu, sefflr Sveinbjörg
Pálsdóttir, er sú miðl-
un gagnkvæmrar þekk-
ingar og reynslu sem
á sér stað milli
samstarfsaðilanna.
einnig með tilliti til stöðu málefnis-
ins í viðkomandi löndum. Fyrirles-
arar voru innlendir og erlendir sér-
fræðingar og hópur þátttakenda var
samsettur af ýmsum fagaðilum sem
að þessum málum koma í störfum
sínum. Á ráðstefnunum var málefn-
ið skoðað frá ólíkum sjónarhornum
enda birtingarmyndir ofbeldisins
margar og ólíkar. Sem dæmi má
nefna að í Frakklandi er algengast
að kynferðislegt ofbeldi gegn börn-
um eigi sér stað innan fjölskyldunn-
ar á meðan að í Grikklandi stendur
fólk frammi fyrir þeim vanda að
börnum er rænt, þau flutt yfir
landamærin í norðurátt og þar seld
til að stunda vændi.
Helstu atriði sem voru tekin til
umfjöllunar og aðstandendur sam-
Sveinbjörg
Pálsdóttir
starfsverkefnisins vilja vekja at-
hygli á eru eftirfarandi:
• Kynferðislegt ofbeldi gegn börn-
um á sér stað og er alvarlegt samfé-
lagslegt vandamál.
• Bæði drengir og stúlkur eru
þolendur kynferðislegs ofbeldis.
• Gerendur ofbeldisins eru oft ung-
lingar undh' 18 ára aldri.
• Barnaklámi er dreift eftir nýjum
leiðum með tilkomu alnetsins.
• Heimilislausum börnum og börn-
um sem búa við erfiðar félagslegar
aðstæður er hættara við að verða
þolendur kynferðislegs ofbeldis.
• Meðferð fyrir unga gerendur er
mikilvæg.
Erlent samstarf Barnaheilla
Mikilvægur þáttur í samstarfs-
verkefni sem þessu er sú miðlun
gagnkvæmrar þekkingar og reynslu
sem á sér stað meðal samstarfsaðil-
anna. Þannig fá þeir innsýn í stöðu
mála í öðrum löndum, því hver þjóð
hefur sína sérstöku sögu að segja
og hefur með tilliti til hennar leitað
leiða til að taka á vandanum. Sam-
starfsverkefnið hefur verið góður
stuðningur við fræðslu- og foi'varn-
arverkefni Barnaheilla gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum sem
staðið hefur yfir undanfarið ár. Sú
staðreynd að samtökin hafa ekki
haft aðgang að fjármagni Evrópu-
sambandsins í þessu tilliti hefur
ekki staðið í veginum fyrir virkri
þátttöku í samstarfinu enda hafa ís-
lenskar fjölskyldur og fyrirtæki
stutt dyggilega við verkefni Barna-
heilla með fjárstuðningi sínum.
Samtökin vinna að því nú að verða
fullgildur meðlimur í nýrri umsókn
sem aðildarlönd International Save
the Children Alliance í Evrópu eru
að undirbúa um þessar mundir til
Evrópusambandsins.
Baráttan heldur áfram
I þessari viku er ráðherraráð
Evrópusambandsins að taka
ákvörðun um áframhaldandi fjár-
stuðning til frjálsra félagasamtaka
innan ramma Daphne-áætlunarinn-
ar. Það er því ekki tilviljun að
einmitt þessi tími varð fyrir valinu
af aðildarlöndum International Save
the Children Alliance í Evrópu til að
vekja athygli á samstarfsverkefn-
inu. Um leið vilja þau hvetja til þess
að Daphne-áætluninni verði tryggð-
ur lagalegur grundvöllur næstu 5
árin svo baráttan gegn þeim mann-
réttindabrotum sem kynferðislegt
ofbeldi gegn börnum er geti haldið
áfram.
Hægt er að nálgast skýrsluna
„Secrets that destroy" á skrifstofu
Barnaheilla á Laugavegi 7.
Höfundur er verkefnisstjóri hjá
samtökunum Barnaheill.
(BOsiDoe® jy Negro
Skólavörðustíg 21a * 101 Reykjavík
sími/fax 552 1220
U pplýsingamiðl-
un lífeyrissjóða
Verulegar framfarir
eru orðnar varðandi
upplýsingastreymi frá
lífeyrissjóðum, nú eru
birtar heilsíðuauglýs-
ingar sem sýna starf-
semina á árinu, mjög
góða afkomu í þeim
sjóði sem hér er skoð-
aður, 8,5% hrein raun-
ávöxtun 1998 og i'úm
8% sl. 3 ár. Fjölgun
sjóðsfélaga 5% og
greiðandi fyrirtækja
12,6%, - hér er átt við
auglýsingu frá lífeyr-
issjóðnum Framsýn. Árni
Þarna eru ýmsar Brynjólfsson
kennitölur, t.d. að „líf-
eyrisbyrði“ hefur minnkað um rúm
4% á milli áranna 197 og 198, von-
andi ekki af því að svo margt eftir-
launafóik hafi kvatt þennan heim,
fremur af því að „góðærið" létti á
örorkudeildinni. - Hrein eign til
greiðslu lífeyris hefur aukist um 4
milljarða á milli ára, reksturs-
kostnaður hefur lækkað verulega
og stöðugildum fækkað.
Upplýsingar um verðbréfaeign
og fjárfestingar eru
ýtarlegar og mynd-
rænar, en nokkra at-
hygli vekur að hluta-
bréfaeign í erlendum
fyrirtækjum er orðin
7,4% á móti 10,7% í ís-
lenskum og fjárfest-
ingarnar 1998 eru
meiri í erlendum fyrir-
tækjum, eða 14,1% á
móti 13%.
Naumt skammtaður
lífeyrir?
Athygli vekur að
greidd eftirlaun 1998
eru ekki að meðaltali
nema 138.790 kr. á
mann, en örorkulífeyrir er kr.
215.255 á mann þetta sama ár.
Svo varla er mikið sem fellur í
hlut hvers og eins. - Til eftir-
launamannsins innan við 12 þús.
kr. á mánuði, til öryrkjans tæp 18
þús. kr. Er mögulegt að ráða
megi af þessu að gert sé svona
miklu betur við öryrkja en eftir-
launafólk?
Makar í þessum aldurshópi
Kristján sló í
gegn í Hamborg
ÞEGAR maður er staddur er-
lendis lítur maður oft í kringum sig
eftir því hvort landi okkar Kristján
Jóhannsson, óperusöngvari og ten-
ór, sé ekki að syngja í óperu við-
komandi stórborgar. Heldur þótti
bera vel í veiði er við sáum í tíma-
ritinu „Opera Now“ að Kristján
myndi syngja aðalhlutverkin bæði í
Cavalliera Rusticana og I Pagliacci
sama kvöldið í Hamborgaróperunni
er við hjónin yrðum þar næst á
ferð. Eg lét því útvega tvo miða á
sýningu 18. febrúar sl. Það kom
hins vegar í ljós að Kristján söng
ekki þetta kvöld, heldur Lando
Bartolini, en Kristján syngi aðeins
23. og 27. febrúar. Miðarnir voru
hins vegar komnir og því ekkert
annað að gera en að hlusta á Bar-
tolini, sem söng' ágætlega.
Hinn 23. febrúar vorum við aftur
stödd í Hamborg og greip ég því
tækifærið og keypti aftur tvo miða.
Einnig vildi ég fá tækifæri til að
bera þessa tvo tenóra saman. Hálf-
tíma fyrir sýningu fórum við bak-
sviðs til að spyrja hvort við gætum
ekki fengið að heilsa upp á Kristján
í hléinu, en var sagt að við gætum
fengið að tala við hann strax og var
umyrðalaust vísað inn í búningsher-
bergi hans. Þar tók söngvarinn á
móti okkur í fullum skrúða og
sminkaður, með sínu elskulega við-
móti, sem allir þekkja. Þótt ekki
væru nema þrjátíu mínútur til sýn-
ingar var ekki nokkurn sviðsskrekk
á Kristjáni að sjá. Ekkert
„nervösitet“ eða spenna. Maður
hefði alveg eins getað verið að tala
við fisksala í Reykjavík hvað róleg-
heit snerti. Við spjölluðum við Kri-
stján dágóða stund um heima og
geima. Brátt fórum við hjónin að
ókyrrast, töldum okkur vera að
tefja manninn og kvöddum. Þá
bauðst Kristján til að fylgja okkur
styttri leið yfir sviðið svo við þyrft-
um ekki að /ara út aftur og í kring-
um húsið. Á leiðinni rákumst við á
hljómsveitarstjórann, Nicola Panz-
er, sem tók við okkur og vísaði okk-
ur inn í áhorfendasalinn. Panzer
minntist á að e.t.v. væri ekki hægt
að byrja alveg á réttum tíma vegna
þess að hávær mótmæli Kúrda
vegna Ocalan úti fyrir tefðu sýning-
argesti.
En á réttum tíma var tjaldið
dregið frá og sýning á Cavalliera
Rusticana hófst. Operan hefst á því
að Turiddu (Rristján) syngur arí-
una „0 Lola“ baksviðs. Tindrandi
munu flestir vera konur og hafa
oft verið heimavinnandi, og hafa
því lítil eða engin eftirlaun sjálfar.
- Þær fá að meðaltali rúmar 7 þús.
kr.
Dæmið er
ekki fullreiknað
Tryggingafræðilegar niðurstöð-
ur eru rniðaðar við 3,5% rauná-
vöxtun og sýna að eign sjóðsins
um síðustu áramót hafi verið rúm-
ir 6 milljarðar umfram skuldbind-
ingar. I samræmi við gildandi lög
og reglur hefur verið samþykkt á
ársfundi sjóðsins að greiða sér-
stakar ótilgreindar uppbætur á líf-
eyri næstu 5 árin, umfram það sem
samþykktir segja.
Upplýsingar
Varla er mikið, segir
*
Arni Brynjólfsson,
sem fellur í hlut
hvers og eins.
Síðan koma tölur er sýna hve
mikil blóðtaka þetta er fyrir sjóð-
inn, en ekki eitt orð um það hve
mikið eftirlaunafólkið, öryrkjarnir
eða makarnir muni fá í launa-
umslagið mánaðarlega til viðbótar
því sem fyrir er. - Ekki er heldur
sagt frá því hvernig lífeyririnn
rödd Kristjáns fyllti út í hvert horn
hins stóra áhorfendasalar Ham-
borgaróperunnar. Það var strax
ljóst að rödd Kristjáns var mun
þróttmeiri, bjartari og fágaðri en
Bartolinis. Háu tónarnir fyllri og
skærari.
Kristján var í mjög góðu formi.
Hann hefur grennst og hlutverk
hins léttlynda Turiddu passaði hon-
um eins og silkihanski; hann var
greinilega í sínu rétta „elementi"
þarna á sviðinu. Þegar drykkju-
söngurinn var sunginn sást vel og
Sönglist
Tindrandi rödd Krist-
jáns fyllti út í hvert
horn, segir Jóhann J.
Ólafsson, hins stóra
áhorfendasalar Ham-
borgaróperunnar.
heyrðist hversu reyndur og örugg-
ur Kristján er í þessu hlutverki.
Hann syngur á móti stórum kór,
skálar við kunningja og skenkir
víni, hendir upp flösku og grípur á
lofti allt á meðan hann syngur af
mikilli snilld. I lok söngsins yfir-
gnæfir hann allan kórinn með háum
tón. Því næst syngur hann há-
dramatíska aríu „Mamma“ þegar
hann kveðui' móður sína áður en
hann gengur út í opinn dauðann.
Túlkun þessa hlutverks krefst mik-
illar tilfinningalegrar breiddar.
I hléinu ræddi ég við nokkra sýn-
ingargesti og fullyrti einn þeirra
við mig að enginn tenór í heiminum
í dag syngi hlutverk Turiddu betur
en Kristján Jóhannsson. Þegai'
maður hugsar út í það, þá er þetta
líklegast rétt.
Eftir hlé hófst „I Pagliacci" og
tókst Kristjáni vel upp frá byrjun.
Gjarnan hefði mátt gera gervi hans
eldra í þessu hlutverki til að auka
spennuna á milli hans og hinnar
ungu eiginkonu hans Neddu. Gervi
hans var nærri óbreytt frá hinum
unga Turiddu.
Hamborgarbúar eru eins og
Bretar og Islendingar sparir á
klappið inni í miðju verki og bíða til
loka hvers þáttar. Eftir aríuna
„Vesti la giubba" sem Kristján söng
frábærlega vel bíða áhorfendur ró-
hefur staðið sig í samanburði við
laun á almennum vinnumarkaði sl.
ár eða jafnvel sl. 3 ár, en þannig er
greint frá varðandi arðsemi sjóðs-
ins. Þetta skiptir miklu máli fyrir
þá sem hafa verið að safna í sjóð-
inn til ellinnar og hafa myndað
grunninn að þeim sjóði sem þarna
er verið að auglýsa.
Þá skiptir það einnig máli fyrir
þá sem enn eru á vinnumarkaði að
vita hvort söfnun þeirra gufar
smátt og smátt upp vegna ónógrar
verðtryggingar, - þeir hafa e.t.v.
enn möguleika á að breyta þótt
þeir ráði ekki miklu um stjórn
sjóðsins.
í sjóðsstjórn era mætir menn,
eins og sjá má af framangreindri
auglýsingu og ekki þarf að efast
um það að þeir vilja upplýsa það
sem þarna á vantar, en spurt er
um þetta:
1. Hve mikið hækkar lífeyrir X á
mánuði næstu 5 árin vegna sér-
stakra uppbóta?
2. Hvernig breyttust eftirlaun X
á mánuði frá des. 1995 til des.
1998?
3. Hvernig breyttust örorkulaun
X á mánuði frá des. 1995 til des.
1998?
Launavísitalan hækkaði á sama
tíma um 22,2%, - en vísitala
neysluverðs um 5,5%.
Höfundur er félagi íaðgerðarhópi
aldraðra.